Morgunblaðið - 03.11.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981 5
Loðnan:
34 skip með 18
þúsund lestir
Nýkjörin stjórn LH ásamt fráfarandi stjórnarmönnum. Talið frá vinstri: Árni Guðmundsson, Árni Magnússon, Skúli
Kristjónsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Egill Bjarnason, Leifur Kr. Jóhannesson (gengur nú úr varastjórn), Albert
Jóhannsson (fráfarandi formaður), Stefán Pálsson nýkjörinn formaður, Hjalti Pálsson (fráfarandi stjórnarmaður),
Sigurður Haraldsson, Birgir Guðmundsson, Gísli B. Björnsson og loks Kristján Guðmundsson, nýkjörinn varafor
maður. Ljósm.: Sig. Sigm.
32. landsþing Landssambands hestamannafélaga:
Stefán Pálsson kjörinn formaður
FRÁ ÞVÍ á laugardagsmorgun
fram að hádegi í gær tilkynntu 34
loðnuskip um veiði, alls 18.360
tonn. Flest fóru skipin með aflann
til Norðurlandshafna, en loðnuna
Fuglaverndarfélag
íslands:
Sagt frá
fuglalífi við
Mývatn
FYRSTI fræðslufundur Fuglavernd-
arfélags íslands á þessum vetri verð-
ur haldinn í Norræna húsinu á morg-
un, miðvikudag og hefst hann kl.
20:30. Verður þar sagt frá fuglalífi við
Mývatn.
Árni Einarsson líffræðingur,
sem stundað hefur rannsóknir við
Mývatn sl. átta ár, segir frá fugla-
iífi við vatnið og sýnir litskyggnur.
í frétt frá Fuglaverndarfélaginu
segir m.a. að Mývatn sé með merki-
legustu fuglastöðvum heims hvað
snertir fjölda varpfuglategunda. Á
síðari árum hafi umferð um svæðið
aukist mjög mikið og spurning sé
hvort Mývatn þoli það til frambúð-
ar. Fundurinn er öllum opinn.
fá skipin nú djúpt undan Siglu-
firði. Mörg loðnuskipanna fengu
sæmilega veiði á fiistudagskvöld,
en á laugardagsmorgun brældi og
veður batnaði ekki fyrr en á
sunnudag á ný, á sunnudagskvöld
og fram á mánudagsmorgun var
góð veiði, en um leið og birti stakk
loðnan sér.
Skipin sem hafa tilkynnt um
afla frá því snemma á laugar-
dagsmorgun fram til kl. 14 í gær
eru þessi: Sæbjörg VE 350 tonn,
Jón Finnsson GK 260, Sighvatur
Bjarnason VE 170, Keflvíkingur
KE 300, Skarðsvík SH 370,
Börkur NK 400, Krossanes 200,
Svanur RE 350, Pétur Jónsson
RE 450, Hilmir SU 630, Helga 2.
RE 360, Hrafn GK 500, Helga
Guðmundsdóttir BA 400, Sigur-
fari AK 300, Albert GK 300,
Ljósfari ÞH 240, Gullberg VE
230, Örn KR 280, Jón Kjartans-
son SU 1100, Örn KE 580, Þórð-
ur Jónasson EA 490, Gígja RE
730, Súlan EA 720, Dagfari ÞH
510, Pétur Jónsson RE 750,
Skírnir AK 450, Hrafn GK 670,
Sigurður RE 1300, Heimaey VE
450, Ársæll KE 440, Ásbjörg VE
530, Sæbjörg VE 530, Grindvík-
ingur GK 900, Hákon ÞH 750,
Víkingur AK 1350 og Rauðsey
AK 600 tonn.
STEFÁN Pálsson í Kópavogi var
kjörinn formaður Landssambands
hestamannafélaga, á 32. lands-
þingi LH í Stykkishólmi um helg-
ina. Albert Jóhannsson á Skógum,
fráfarandi formaður, baðst undan
endurkjöri, en hann hefur verið
formaður Landssambandsins á
annan áratug. Stefán Pálsson,
sem er framkvæmdastjóri stofn-
lánadeildar landbúnaðarins, var
áður varaformaður LH.
Aðrar breytingar á stjórninni
urðu þær, að Kristján Guð-
mundsson í Reykjavík var kjör-
inn varaformaður og Skúli
Kristjónsson á Svignaskarði í
Borgarfirði var kjörinn í stjórn í
stað Hjalta Pálssonar, sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs.
Varamaður Skúla var kjörin
Guðrún Gunnarsdóttir, Egils-
stöðum á Héraði.
Alls sóttu um 160 fulltrúar
landsþingið um helgina, sem
haldið var í boði hestamannafé-
lagsins Snæfellings á Snæfells-
nesi. Innan Landssambands
hestamannafélaga eru 45 félög
vítt og breitt um landið, og fé-
lagar í þeim eru um 7 þúsund
talsins.
Á þinginu að þessu sinni voru
fjölmörg mál afgreidd, en
ákveðið var að næstu tvö ár
verði helguð baráttu fyrir úrbót-
um í ferðamálum hestamanna.
Þá var á þinginu greint frá því
að ákveðið hefur verið að færa
landsmót hestamanna næsta
sumar aftur um eina viku. Verð-
ur það haldið að Vindheimamel-
um í Skagafirði dagana 8. til 11.
júlí. Þá voru reifaðar hugmynd-
ir um að farin verði póstferð á
hestum á landsmótið, eins og
gert var 1974. Enn var sam-
þykkt, eftir allmiklar deilur, að
framvegis verði knöpum yngri
en 16 ára óheimilt að hleypa
hestum í kappreiðum hér á
landi. Mörg önnur mál voru reif-
uð og rædd á þinginu, sem stóð
sem fyrr segir yfir í Stykkis-
hólmi nú um helgina.
SÆLUVIKA
eðalöng helgi í heimsborginni
Útsýn velur réttu staöina á
réttu veröi fyrir þig.
Þú nýtur stórfellds afsláttar
— án aðildar.
CUMBERLAND
viö vinsælustu verzlunargötu Evrópu — Oxford Street —.
Betri staöur er vandfundinn í West End — örstutt i allt þaö
eftirsótta glæsilegar stórverzlanir, matsölustaöi, leikhús,
söfn, kvikmyndahús, klúbba og skemmtanir viö allra hæfi.
Öll herbergi meö baöi, síma og litsjónvarpi. Morgunverður
innifalinn. 3 þekktir, ódýrir matstaöir í hótelinu.
Vikuverð kr. 4.400. Helgarverð kr. 3.300.
GLOUCESTER HOTEL
Vandaö og vinsælt 1. fl. hótel skammt frá Gloucester Road
neðanjaröarstööinni. Yndisleg herbergi meö litsjónvarpi,
sima, einkabaði. Enskur morgunveröur.
Vikuverð kr. 4.400. Helgarverð kr. 3.300.
REGENT PALACE
stendur rétt viö Piccadilly Circus. Steinsnar í aöalverzlun-
argötur og skemmtistaöi. Notaleg herbergi — ódýr gisting.
Vikuverð m. enskum morgunverði
kr. 3.800. Helgarverð kr. 3.200.
ÚTSÝN HEFUR VERIÐ
BRAUTRYÐJANDI í LUNDÚNAFERÐUM
í 20 ÁR
— OG BÝÐUR YKKUR ENN
BEZT STAÐSETTU OG
VINSÆLUSTU HÓTELIN MEÐ
NÆSTUM HELMINGS
AFSLÆTTI
Austurstræti 17,
101 Reykjavík
Sími 26611 — 20100