Morgunblaðið - 03.11.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
„Eins og að leika með
atvinnumannaliði“
- segir Kristinn Björnsson, norskur meistari
„ÞAÐ var stórkostlegt að verða norskur meistari með Vaalerengen, þetta er
virkilega vinalegt félag og það er stórskemmtilegt að leika með því, sérstak-
lega á heimavelli þar sem áhorfendur eru að jafnaði 10.000 talsins. Þá er
andrúmsloftið slíkt, að engu er Ifkara en maður sé að leika með atvinnu-
mannaliði," segir Kristinn Björnsson í samtali við fréttamann Morgunblaðs-
ins í Osló. Kristinn tók nýlega við sigurverðlaunum sínum og er hann fyrsti
Islendingurinn sem verður norskur meistari í knattspyrnu.
Þrátt fyrir meistaratign, var
keppnistímabilið Kristni að
mörgu leyti ekki til sannrar gleði.
í rúma tvö mánuði gekk hann ekki
heill til skógar, eftir að hafa brák-
ast á fæti í æfingaleik. Var hann
með miklar umbúðir á fætinum
lengi vel og það var ekki fyrr en í
júní, að hann gat farið að æfa á
ný. Fótbrotið kom á versta tíma,
því hann var sögn þjálfara Vaaler-
engen, í þann mund að vinna sér
sæti í byrjunarliði félagsins.
Kristinn iék 11 leiki með Vaal-
erengen, en aðeins einn heilan
leik. í hinum 10 tilvikunum kom
hann inn sem varamaður. Hann
stóð sig vel, en segir sjálfur: „Það
hefði getað gengið betur, ég náði
til dæmis aldrei að skora mark
fyrir Vaalerengen. En það var
samt gaman að vera með, allir
leikmenn liðsins eru miklir vinir
og samheldnin, ásamt andrúms-
loftinu á heimaleikjum, varð oft
til þess að liðið lék betur en talið
var mögulegt.
Því er ekki að neita, að
skemmtilegt hefði verið fyrir mig
að skipa fast sæti í liðinu. En það
var erfitt að verða heill af meiðsl-
um einmitt um sama leyti og sér-
staklega vel gekk hjá liðinu. Eðli-
lega kaus þjálfarinn að breyta
ekki sigurliöinu og maður varð að
sætta sig við það,“ bætir Kristinn
við.
Staða Kristins hjá Vaalerengen
er mjög óljós um þessar mundir,
sérstaklega vegna þess að 17 ára
piltur, að nafni Henning Bjarnoy,
kom hreint ótrúlega á óvart undir
lok keppnistímabilsins og skoraði
mikið af mörkum. Haldi Bjarnoy
áfram að sýna framfarir rýmkast
ekki beinlínis um Kristinn. En
hvað segir Kristinn sjálfur um
mál þetta:
„Ég hef ekki ákveðið hvort ég
held áfram að æfa með Vaalereng-
en næsta keppnistímabil. Nýr
þjálfari tekur við liðinu og það er
aldrei að vita nema hann sé lík-
legri til að gera breytingar á lið-
inu sem opna fyrir mér dyr. Ég
gæti alveg eins hugsað mér að
skipta um félag, en ég hef fengið
tilboð frá félagi sem leikur í 2.
deild.“
En vandamálið með Kristinn er,
að hafi hann hug á að leika
knattspyrnu með námi sínu í
íþróttaskóla Osló, þá verður hann
námsins vegna, að leika með félagi
í Osló, hann hefur engin tök á að
sækja æfingar langar vegalengdir.
Hann útskrifast næsta sumar og
hefur ekki gert upp við sig hvort
hugurinn stefni í framhaldsnám.
„Ég gæti vel hugsað mér að fara
heim til íslands og þjálfa þar
knattspyrnulið. Hugsanlega inn-
rita ég mig líka í Háskóla ís-
lands,“ segir Kristinn og bætir við
að lokum: „Ég kann geysilega vel
við mig í Noregi og norskri
knattspyrnu, en menntunina tek
ég fram yfir knattspyrnu í fram-
tíðaráformunum."
Jan Eric Laure, Osló
• Norska meistaraliðið Vaalerengen. Markaskorarinn Mikli Paal Jakobsen er fjórði frá hægri í aftari röðinni. Tvö
ensk stórlið, Manchester Utd og Nottingham Forest hafa verið á höttunum eftir honum, án árangurs þó. Kristinn
Bjömsson er annar frá hægri í fremri röðinni.
Þór sigraði Dalvík 28—17
\ FOSTUDAGINN áttust við í 3.
deild í handknatlleik á Akureyri Þór
og Dalvík og lyktaði leiknum með
Frjálsíþróttadeild IR hefur nú haf-
ið vetrarstarfsemi sína af krafti eftir
vel heppnað sumar. /Efingar eru
ba-ði úti og inni alla daga vikunnar.
Einn liðurinn í vetrarstarfsemi
deildarinnar eru hlaup þau, sem
deildin hefur staðið fyrir mörg
undanfarin ár, svo sem Oskjuhlíð-
arh.'aupið, Gamlaárshlaupið,
Kambaboðhlaupið, Víðavangs-
hlaupið, Breiðholtshlaupin og
Hljómskálahlaupin.
Óskjuhlíðarhlaupið hefur þegar
farið fram og tókst það mjög vel.
Næst í röðinni í vetur verða
öruggum sigri l>órsara, 28—17, eftir
að þeir höfðu leitt 18—8 í hálfleik.
í fyrri hálfleik var nánast um
Breiðholtshlaupin, sem nú hefur
verið ákveðið að fari fram á 6
sunnudögum fyrir jól og hefjast
þau alltaf klukkan 2 = 14.00 hvern
dag við Breiðholtskjör.
Hlaupin munu fara fram þessa
daga: 8.11., 22.11., 29.11., 13.12. og
20.12.
Veitt verða verðlaun öllum, sem
Ijúka 4 hlaupum af þessum 6 og
röð þeirra innan hvers aldurs-
flokks miðast við bestan saman-
lagðan tíma úr fjórum bestu
hlaupum þeirra.
Aldursflokkarnir fara eftir fæð-
ingarári.
einstefnu að ræða og réðu Þórsar-
ar lögum og lofum á vellinum.
Þórsarar byrjuðu þann seinni illa
og gerðu þeir sitt fyrsta mark í
hálfleiknum þegar liðnar voru 10
mínútur, en þrátt fyrir að þeir
lékju ekki eins vel og í þeim fyrri
var sigur þeirra aldrei í hættu.
Bestur hjá Þór var Guðjón Guð-
mundsson en hjá Dalvík var Björn
Friðþjófsson bestur.
Mörk Þórs: Sigtryggur Guð-
laugsson 7 (6v), Guðjón Guð-
mundsson 6, Arni Stefánsson 5,
Sigurður Pálsson 3, Rúnar
Steingrímsson 2, Jón Sigurðsson 2,
Einar Arason 2 og Sölvi Ingólfs-
son 1.
Mörk Dalvíkur: Stefán Georgs-
son 5, Tómas Viðarsson 4, Aðal-
steinn Gottskálksson 3, Björn
Friðþjófsson 3 og Einar Einarsson
2.
— re
Breiðholtshlaup ÍR
• Kristinn Björnsson á fullri ferð í leik gegn Brann í sumar.
Afturelding fór
án stiga frá
Vestmannaeyjum
LEIKMENN Aftureldingar úr Mos-
fellssveitinni sóttu ekki gull í greip-
ar Eyjamanna í 2. deildinni um helg-
ina. Þeir töpuðu stórt fyrir Tý á
föstudagskvöldið og á laugardaginn
urðu þeir að láta í minni pokann
fyrir Þór. Naumur sigur Þórs 20—19
í miklum barningsleik. Afturelding
hvarf því af braut frá Eyjum án
stiga.
UMFA byrjaði leikinn við Þór
vel og hafði forustu lengi framan
af fyrri hálfleik en Þórarar
slepptu þeim þó aldrei úr augsýn
og þeir höfðu jafnað metin í hálf-
leik 11—11. Til að byrja með í s.h.
var jafnræði með liðunum og upp
komu tölur sem, 14—14 og 15—15
um miðjan hálfleikinn. Þá kom
góður kafli hjá Þór og þeir skor-
uðu fjögur mörk i röð án svars frá
UMFA. En þeir úr sveitinni gáfust
ekki upp og náðu að saxa á forskot
Þórs og breyta stöðunni í 19—18.
Lokamínútur leiksins var allt við
suðumark í húsinu, Sigurjón
Eiríksson, fékk tækifæri til að
jafna leikinn úr víti en skaut þá í
stöng. Þórarar skora 20—18 en
UMFA minnkar enn i 20—19 og á
síðustu sek. leiksins kemst UMFA
í hraðaupphlaup en Þórarar ná að
stöðva það á elleftu stundu og tím-
inn rann út.
Þórarar hafa farið ágætlega af
stað í deildinni í vetur, unnið þrjá
af fimm leikjum sinum. Góður
varnarleikur og frábær mark-
varsla er aðall liðsins sem annars
leikur nokkuð þunglamalegan
handknattleik en ágætlega árang-
ursríkan. Besti maður liðsins var
Herbert Þorleifsson og Sigmar
Þröstur varði oft á tíðum glæsi-
lega í leiknum.
Lið Aftureldingar er nú eitt og
yfirgefið á botninum og verður að
gera betur ef möguleiki á að vera
að halda sætinu í 2. deildinni. Það
Þór V. - UMFA
20:19
á þó eflaust eftir að bíta frá sér í
vetur og alltof snemmt er að af-
skrifa liðið. Sigurjón Eiríksson
var langbesti maður liðsins. Einn-
ig átti Guðjón Magnússon góðan
leik. Markvörður liðsins heitir
Ásgeir Ragnarsson en ekki Jón
Ágústsson eins og slæddist inn í
Mbl. á laugardag, nafn hans um-
snérist svona hrikalega á símalín-
unni frá Vm. til Rvíkur og er beð-
ist velvirðingar á því.
Mörk Þórs: Andrés Bridde 6
(3v), Albert Ágústsson 5, Herbert
Þorleifsson 5, Páll Scheving 3,
Karl Jónsson 1.
Mörk UMFA: Sigurjón Eiríks-
son 8 (2v), Guðjón Magnússon 3,
Steinar Tómasson 2, Magnús Guð-
mundsson 1, Ingvar Hreinsson 1,
Þorvaldur Hreinsson 3, Björn
Bjarnason 1.
— hkj.
Staðan í
2. deild
Staðan í 2. deild er nú sem
hér segir:
ÍR 3 3 0 0 63:48 6
Stjarnan 3 2 0 1 73:68 4
Þór Ve. 4 2 0 2 78:79 4
Haukar 3 1 1 1 69:64 3
Fylkir 3 1 1 1 64:62 3
UBK 3 1 1 1 59:59 3
Týr 4 1 0 3 83:96 2
UMFA 3 0 1 2 54:67 1
ísiandsmötlö 2. delld
rl