Morgunblaðið - 03.11.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981 33
Bílaplan og
lofthjúpur
eftir Pétur Pétursson þul
„Þegar vindur var lékum við
okkur oft að flugdrekum, sem við
smíðuðum sjálfir. Á vængi drek-
anna límdum við mislitan gjáandi
pappír til skrauts, eftir því sem
við höfðum föng á. Var mikil
keppni meðal drengjanna um það
hver okkar ætti stærstan og
skrautlegastan flugdrekann og
hver gæti komið flugdreka sínum
hæst í loft upp.“
Thor Jensen í frásögn um æskuár
sín.
Með svofelldum orðum lýsir
Thor Jensen, athafnamaðurinn
kunni, leikjum danskra drengja á
liðinni öld. Við veitum athygli
keppnisandanum er fram kemur í
athöfnum drengjanna. Þeir höfðu
líka sitt flugráð og dómnefnd. En
flugdrekarnir voru margir og báru
ýmis merki. Ekki bara eitt, heldur
mörg og skrautleg. Og knatt-
spyrnuliðin voru líka mörg hér á
landi, áður fyrr á árunum. Og eru
mörg enn i dag. Sem betur fer.
Eða hvað segði Albert Guð-
mundsson ef ekkert félag tefldi
fram knattspyrnuliði nema „elsku
KR“ eins og Erlendur Ó. Péturs-
son kallaði félagið sitt? Væri ekki
kallað: Útaf með dómarann ef
knattspyrnuráð kvæði upp slíkan
dóm? (Er það rangminni að Al-
bert, heimsborgari og frjáls-
h.vggjumaður, hafi sjálfur áform-
að stofnun flugfélags á sínum
tíma og þotukaup? Hefði hann
setið hjá við atkvæðagreiðslu um
leyfi til þess félags?)
Miðaldra Reykvíkingar og aldr-
aðir minnast tíðra og ánægjulegra
ferða að Reykjavíkurhöfn fyrr á
árum, þá er fríður floti millilanda-
skipa leitaði hafnar. Gullfoss,
Dronning Alexandrine, Lyra og
Nova, skip Eimskipafélagsins,
Sameinaða, og Bergenska voru
kvödd og þeim var heilsað með
fögnuði. Að vísu slógu hjörtun
hraðar og metnaðurinn var meiri
ef íslenskur fáni blakti við hún.
En aldrei heyrðist krafa frá Eim-
skip um að Sameinaða og Berg-
enska væri bönnuð sigling til ís-
lenskra hafna. Steindór bíla-
kóngur sætti sig við samkeppni
Hreyfils, BSR, Bæjarleiða og
Borgarbíla og þó var hann for-
göngumaður um stofnun bíla-
stöðvar. Að vísu átti hann til að
segja við þá sem lögðu bílum á
planið hans: „Ef þú átt planið, þá
farðu með það.“ Svo átti hann til
að bæta við: „Það er ég sem hef
valdið og peningana." En lengra
náði það ekki.
Kemur nokkrum til hugar að
Flugleiðir eigi lofthjúpinn yfir
landinu og hafinu? Er ekki tími
átthagafjötra, vistarbands og
hörmangara liðinn?
Frelsishreyfingar liðinna alda
brutust úr fjötrum aðals og léns-
skipulags. Aldalöng forréttindi
féllu úr gildi. Ætla stjórnvöld að
stofna lénsveldi Flugleiða í him-
inhvolfi og sækja til þess fé í vasa
skattborgara?
Eiga Flugleiðir að dæma sér
Evrópubikarinn án keppni? Og
önnur og þriðju verðlaun líka?
Pétur Pétursson þulur.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
\h L AUGLÝSINGA- CÍVIINV 17».
/ 7 22480
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Til sölu
Til sölu skemma og stór kæli-
skápur, til breytingar í frysti-
kistu. Eldavél meö 4 gormahell-
um, flúorljós 10 stk. Krossviö-
arplötur, timbur o.fl. allt á góöu
veröi. Uppl. i sima 92-6519.
Konur athugiö
Okkur vantar sjálfboöaliða f
verslanir okkar. Uppl. í síma
?8222.
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauðakross íslands.
Sumarbústaður óskast
til leigu 20—80 km frá Reykja-
vik, má þarfnast lagfæringar.
Einnig kemur til greina aö taka
eyöibyli á leigu Ttl greina gæti
komiö aö hluti leigunnar veröi
greiddur meö viöhaldsvinnu. Til-
boö sendist Mbl. merkt: „K —
7806".
Hilmar Foss
löggiltur skjalaþýöandi.
231 Latymer Court, LONDON
WC 7LB simi 01-748-4497.
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu. Fyrirgreiöslu-
skrifstofan, Vesturgötu 17, simi
16223, Þorleifur Guömundsson,
heima 12469.
Vélritun
Tek aö mér vélritun. Upplýsingar
i síma 75571 daglega kl. 10—16.
tryy-
tilkynningar-
—*A-i—L~A_A_
„Sólargeislinn“
Sjóöur til hjálpar blindum börn-
um. Gjöfum og áheitum veitt
móttaka i Ingólfsstræti 6.
Ðlindravinafélag Islands.
□ EDDA 59811137 — 1 Frl.
IOOF Rb = • 1138’? ET I —
9 III
□ HELGAFELL 59811137 IV/V
— 2.
Fíladelfía
bænavikan heldur áfram, meö
bænum hvern dag kl. 16.00 og
20.30.
Námskeið fyrir áramot:
1. Fotvefnaður 9. nóv. 2. Band-
vefnaður i bandgrind 13. nóv. 3.
Jólaföndur, morgunnámskeiö kl.
9—12. dagnamskeiö kl. 13.30—
16.30 og 16.45—19.45 og
kvöldnamskeið kl. 20—23. Inn-
ritun aö Laufásvegi 2, uppl. i
síma 17800.
ISLERSKI ALPAKLUBBURINN
ÍSALJ' ICELANDIC ALPINE CLUB
Rötunarnámskeið
(áttavitanámskeið)
Mánudagur 9. nóv. Rötunarnám-
skeiö i umsjón Einars H Arn-
aldssonar. Inniæfing. Utiæfing
veröur haldin eitt kvöldiö i vik-
unni.
Skráning a rötunarnámskeiö,
miövikudaginn 4 nóv. i opnu
husi aö GrenSásvegi 5. kl. 20.30.
Ferö i Tindafjöll 14.—15. nóv.
Feröanefnd
Kvenfélag Neskirkju
Aöalfundur félagsins verður
haldinn fimmtudaginn 5 þ.m. kl.
20.30 i felagsheimilinu.
Konur fjölmennið
Stjórnin.
Stykkishólmskonur
Fundur veröur i Domus Medica
fimmtudagskvöld 5. nóv. kl.
20.30.
Nefndin
AD KFUK
..a kristniboösari" fundur i kvöld
a Amtmannsstig 2B i umsjá
Hilmars Baldurssonai kl. 20.30.
Kaffi. allar konur velkomnar.
Fimir fætur
Heldur dansæfingu sunnudagmn
8 november i Hreyfilshusinu fra
kl 9—01 Nyir felagar avallt
velkomnir.
Heimatrúboðið,
Óöinsgötu 6A
Vakningarsamkoma i kvöld kl
20.30. Allir velkomnir.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju
fundur veröur haldinn i félags-
heimilnu fimmtudaginn 5. nóv-
ember kl. 20.30.
Stjornin.
rEF ÞAÐ ER FRÉTT-
■NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilboö —■ útboö
Byggingameistarar
— verktakar
Tilboö óskast í byggingav. risþaks á 4 raðhús
í Reykjavík. Verkinu þarf aö vera lokið fyrir
árslok ’81.
Útboðsgögn liggja frammi hjá Ásgeiri
Guðnasyni, Sæviöarsundi 56, sími 81548.
Skilatrygging 200 kr.
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
1. Útboð RARIK-81023 Einangrarar. Opnun-
ardagur 4. des. 1981 kl. 14.00.
2. Utboð RARIK-81025 Vír. Opnunardagur
4. des. 1981 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja-
vík, fyrir opnunartíma, þar sem þau verða
opnuð aö viðstöddum þeim bjóðendum er
þess óska.
Útboðsgögn veröa seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 3. nóv-
ember 1981 og kosta kr. 25.- hvert eintak.
Reykjavik 30. október 1981.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Valdimar Tryggvason.
Scania Super 80
Til sölu Scania Super 80 árg. ’72 í mjög góðu
ástandi. Er falleg. Til sýnis hjá ísarn hf.,
Reykjanesbraut 10, þar sem einnig eru gefn-
ar nánari upplýsingar.
Stuðlafell
Til sölu er verksmiðja á Akureyri, Stuðlafell,
en hlutverk hennar er að framleiða stein-
steyptar einingar til húsagerðar og kraft-
sperrur. Byggingaraðferð þessi hlaut viöur-
kenningu Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins 4. apríl 1975 eða um leið og
starfsemin hófst.
Frá byrjun hefur verksmiðjan framleitt og
reist 118 hús. A þessu ári flutti verksmiðjan í
nýtt húsnæði að Draupnisgötu 1, Akureyri,
aö stærð 1204 fm, 6477 rm. Stór og góð lóð
4580 fm. Framleiðslugeta nú er 60 hús á ári.
Ahugasamir kaupendur hafi samband við
undirritaðan.
Ásmundur S. Jóhannsson,
Brekkugötu 1.
Akureyri.
Símar 96-21721 og 96-22742.
Til sölu
fiskvinnslufyrirtæki
í fullum rekstri. Fyrirspurnir sendist Mbl.
merkt: „F — 7810“.
Scania Super 80
Til sölu Scania Super 80 árg. '72 í mjög góðu
ástandi. Er palllaus. Til sýnis hjá Isarn hf.,
Reykjanesbraut 10, þar sem einnig eru gefn-
ar nánari upplýsingar.
Úrethan-einangrun
Til sölu er verksmiðja á Akureyri, Urethan-
einangrun sem sérhæft hefur sig í samsetn-
ingu og einangrun hitaveituleiðslna. Verk-
smiöjan er í 360 fm eigin húsnæöi. Véla- og
tækjakostur nýlegur. Selst sem ein heild eða
hús, vélar og tæki sér.
Asmundur S. Jóhannsson hdl.,
Brekkugötu 1,
Akureyri.
Símar 96-21721 og 96-22742.
• W J3J9 » t «