Morgunblaðið - 03.11.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
41
Hornabolti í Ameríku
+ Sl. laugardag birtum við myndir úr amerískum fótbolta og nú í dag úr hornabolta svonefndum. Þar er
geysileg harka eins og í fótboltanum, og ef áhorfendur eru ekki nógu hressir, þá bregða þeir sér bara inná
völlinn og hleypa lífi í leikinn. Önnur myndin sýnir áhorfanda einn lumbra á tveimur leikmönnum
Yankee-liðsins og hin er svipmynd úr venjulegum leik ...
Montand syngur á ný
+ Leikarinn og söngvarinn franski, Yves Montand
lifir enn. Hann hefur haft hægt um sig í heil 13 ár og
ekki komið fram opinberlega allan þann tíma. En nú
er Montand aftur kominn í sviðsljósið. Hann söng
fyrir fullu húsi í Olympia-tónleikahöllinni í París í
síðustu viku, og hann ætlar ekki að láta þar við sitja,
heldur ætlar hann að skella sér útí sjóbissnessinn af
fullum krafti og koma fram á mörgum tónleikum ...
Marty Feldman
+ Marty Feldman er háðfugl þekktur í kvikmyndaheimin-
um. Hann hefur nýlega gert mynd uppá eigin spýtur, ef svo
má segja; leikur sjálfur aðalhlutverkið, leikstýrir, og skrif-
aði handritið með öðrum manni, og hér er ljósmynd af
kappanum úr þessari nýju kvikmynd ...
Úr söng í málverk
+ Amanda Lear er sumsstaðar þekkt söngkona en nú hefur
hún lagt sönginn á hilluna og snúið sér að málverkinu. Hún
er skjólstæðingur málarans fræga Salvador Dalis og hefur
lært hjá honum meira og minna sl. 15 ár. Fyrir ári síðan
var það svo tilkynnt að hún yrði hans eini erfingi, en
Salvador er maður hrumur af elli og lasleika. Amanda býr
nú í París og gerir það gott; hún seldi fyrstu myndina sína
fyrir 150 þúsund krónur íslenskar.
\ Björgvin
' Gíslason,
^ .... á ferö meö Friöryk
30. okt. Egilsstaöir (í kvöld), 31. okt. Reyðarfjörður, 1. nóv. Egils-
staðir, 2. nóv. Seyðisfjöröur. 3. nóv Neskaupsstaður, 5. nóv. Vík i Mýrdal.
Heildsöludreifmg
HIJOMOEIID
stdAorhf
Simar 85742 og 85055
laugavegi 66 — Giapsiba* — Austurstrv't. /,
Stmi trá sfctpt.bofö. 8S0S5_____________________