Morgunblaðið - 03.11.1981, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
'ai, TIL FÖSTUDAGS
■7 r MKTI
Skrefagjaldið:
Orð þriggja
alþingismanna
Jón Ögmundur l'ormóðsson lög-
fræóingur skrifar:
„í umræöum í sameinuðu þingi
hinn 27. október sl. um tillögu til
þingsályktunar um könnun á af-
stöðu símnotenda til mismunandi
valkosta við jöfnun símkostnaðar,
sem nokkrir þingmenn Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
flytja (Jóhanna Sigurðardóttir,
Friðrik Sophusson, Benedikt
Gröndal, Birgir ísleifur Gunn-
arsson, Geir Hallgrímsson, Albert
Guðmundsson, Vilmundur Gylfa-
son, Pétur Sigurðsson, Matthías
Á. Mathiesen, Salome Þorkels-
dóttir, Kjartan Jóhannsson og
Karl Steinar Guðnason), féllu m.a.
eftirfarandi orð:
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, sagði
um flutningsmenn tillögunnar
(orðrétt úr fundargerð Alþingis):
„Þeir vilja bregða fæti fyrir
framkvæmd þessa réttlætismáls,
sem skrefatalningin er og skrefa-
talningin jafnar þó í litlu sé lífs-
aðstöðu þegnanna í landinu."
Helgi Seljan, Alþýðubandalag-
inu, forseti efri deildar Alþingis,
sagði:
„Eg er ekki í nokkrum vafa um
það, að við eigum að huga vel að
elli- og örorkulífeyrisþegum í
þessu efni. Það eigum við bara að
gera með öðrum hætti og það á
ekki að gerast — þeir eiga ekki að
vera notaðir í þessu efni sem ein-
hver- tylliástæða til þess að menn
séu á móti því, en ég verð að telja
að sva sé, að menn séu á móti því
að jafna þennan kostnað milli
allra landsmanna sem allra fyrst
og sem allra best.“
Jóhanna Sigurðardóttir og
Vilmundur Gylfason bentu rétti-
lega á það í svarræðum sínum á
þingfundinum að sama fjárhags-
lega jöfnuðinum væri unnt að ná
með hvorri leiðinni sem væri, 1)
skrefatalningu innanbæjarsím-
tala og 2) hækkun á gjaldskrár-
taxta umframskrefa, og að með
könnuninni gæfist símnotendum
kostur á að velja á milli leiðanna.
Skal þetta undirstrikað hér þar eð
nauðsynlegt er að íslenska þjóðin
sem á ekki skilinn ofangreindan
rangan málflutning Páls og Helga
vaði ekki í neinni villu um þetta
grundvallaratriði viðvíkjandi
jöfnun símgjalda. í þessu sam-
bandi má taka fram að póst- og
símamálastjóri veitti opinberlega
í ágústlok sl. síðbúna en þakkar-
verða viðurkenningu á því að ná
mætti sama jöfnuði með hvorri
leiðinni um sig og var þetta bein-
línis tekið fram í greinargerð fyrir
þingsályktunartillögunni. Hefði
mátt ætla að þær raddir sem hafa
kallað andmælendur skrefataln-
ingarinnar (meðmælendur gjald-
skrárbreytingarleiðarinnar) and-
stæðinga jöfnunar og stuðnings-
menn misréttis mundu hljóðna við
þetta en þær skutu þá því miður
upp kollinum þar sem síst skyldi
— á sjálfu Alþingi.
I'jódin á leiðréttingu skilda
Á fundi í borgarstjórn Reykja-
víkur hinn 4. september 1980, þar
sem meirihluti Alþýðuflokksins,
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins samþykktu gegn
atkvæðum minnihluta Sjálfstæð-
isflokksins tillögu um að taka
undir skrefatalninguna, vísaði
Guðrún Helgadóttir, alþingismað-
ur og borgarstjórnarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins, sem tók ein til
máls af meirihlutamönnum m.a. í
viðtal sitt við Guðmund Ólafsson,
fyrrverandi umdæmisverkfræðing
Pósts og síma í Reykjavík og and-
stæðing skrefagjaldsins sem rekur
nú verkfræðistofu og símtækni-
fyrirtæki í Reykjavík, og sagði
hún (orðrétt úr fundargerð borg-
arstjórnar):
„Hann sagði, og mér er alveg
áreiðanlega óhætt að hafa það eft-
ir honum, að þó að hann hefði á
sínum tíma eygt annan möguleika
heldur en það að hefja skrefataln-
ingu, þá er hann þeirrar skoðunar,
að hjá því verði raunar ekki kom-
izt, og það segi sig auðvitað sjálft
að af hverju skyldu Islendingar
geta sloppið framhjá þessu, frekar
en aðrar þjóðir."
Að sögn Guðmundar Ólafssonar
eru þetta ekki hans orð og beinlín-
is efnislega rangt þegar því er
haldið fram að hann telji skrefa-
gjaldið óhjákvæmilegt. Hann var
og er andstæðingur skrefagjalds-
ins en er hlynntur gjaldskrár-
breytingarleið (verðhækkun um-
framskrefa samfara lengingu
langlínuskrefa). Ummæli Guðrún-
ar Helgadóttur voru röng og mjög
meinleg þar eð þau voru til þess
fallin að hafa áhrif á afstöðu ann-
arra borgarfulltrúa og tillagan
síðan áhrif á aðra.
Enn tók Guðrún Helgadóttir
fram:
„Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar vissi hann um eitt land,
sem ekki hefur tekið upp skrefa-
talningu, og þaðær eitthvert olíu-
ríki suður við Svartahaf. — Þeir
hafa ókeypis innanlandssímtöl."
Þetta er villandi framsetning
því að hér liggur næst að álykta að
tímamæling innanbæjarsímtala
— skrefagjaldið — sem var til um-
ræðu sé svo til undantekningar-
laus regla erlendis. Því fer hins
vegar víðs fjarri enda hefur Póst-
ur og sími ekki getað nafngreint
nema 15 erlend ríki — innan við
tíunda hluta aðildarríkja Samein-
uðu þjóðanna — þar af 8 eða ein-
ungis þriðjung vestrænna ríkja
þar sem skrefatalning innanbæj-
arsímtala fer fram (miðað við
könnun erlends fyrirtækis þar
sem 56 ríki svöruðu fyrirspurn þar
að lútandi).
Þjóðin á leiðréttingu skilda.
Og alþingismenn sem greiða at-
kvæði um framangreinda þings-
ályktunartillögu í sameinuðu
þingi á næstunni eiga skilið að fá
réttar upplýsingar — og engar
aðrar.
Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra sagði nýlega í
blaðaviðtali að könnun á afstöðu
símnotenda til mismunandi val-
kosta væri ekki til neins annars en
að egna dreifbýlið á móti þéttbýl-
inu. Er ráðherrann að gefa í skyn
að skrefatalningarleiðin sé eina
jöfnunarleiðin? Ef veita má dreif-
býlinu sömu fjárhagslegu jöfnun á
grundvelli hækkunar á gjald-
skrártaxta umframskrefa og á
grundvelli skrefatalningar inn-
anbæjarsímtala hvers vegna
skyldi dreifbýlismönnum þá ekki
standa á sama fjárhagslega séð
hvor leiðin yrði farin? Bágt á ég
með að trúa að dreifbýlismönnum
sé nokkurt minnsta kappsmál að
koma skrefatalningunni sem slíkri
á Reykvíkinga og aðra þéttbýl-
isbúa í óþökk þorra þeirra þar eð
skrefatalningin mun svipta alla
landsmenn (96% símnotenda
strax) því frelsi sem þeir hafa nú
til að tala án tímamælingar við
nágranna sína. E.t.v. á ráðherrann
við að könnun sem tæki nokkrar
vikur mundi ergja einhvern. En
benda má á að ná hefði mátt jöfn-
un með annarri aðferð en skrefa-
talningu fyrir mörgum árum. Val
á skrefatalningartækjum, pöntun
og uppsetning þeirra hefur því
tafið mjög fyrir æskilegri jöfnun
símgjalda. Einnig hefði verið unnt
að hækka nú gjaldskrártaxta um-
framskrefa í stað skrefatalningar-
innar þannig að jöfnunin gæti
byrjað strax.
Steingrímur Hermannsson sem
vill ekki breyta ákvörðunum fyrir-
rennara í skrefagjaldsmálinu og
færði mannréttindalögsögu Is-
lendinga einhliða inn hinn 1. nóv-
ember sl. — og það að þarflausu —
hlýtur að minnast þess að hann er
sem ráðherra og alþingismaður
sýknt og heilagt að breyta ákvörð-
unum og lögum fyrirrennara
sinna. Þarf ekki að felast í því
neinn áfellisdómur um eldri
ákvarðanir og lög sem mótast af
aðstæðum staðar og stundar, m.a.
áliti kjósenda. Það er aldrei of
seint að taka rétta ákvörðun.
Menn verða eingöngu menn að
meiri.
Þjóðin á leiðréttingu skilda."
Ódýr
matarkaup
Hvalkjöt
Kíndalifur
Folaldahakk
Kindahakk
Kindakarbonaði
Unghænur
27,00 kr. kg.
20.50 kr. kg.
33,00 kr. kg.
29.50 kr. kg.
52,00 kr. kg.
36.50 kr. kg.
.mj 1
^KRAFJ
Jomato
^tchup
CA«IC *M** SWÖ
NEIWT. 14 0Z& <39?g)
Kn*ft .. „
KRAFT
TÓMATSÓSA
frá einum þekktasta
matvælaframleiöanda Bandaríkjanna
Gerid verösamanburö
^KAUPfÉlAGH)
¥ JO iSVON«€ ATOOV