Morgunblaðið - 30.01.1982, Page 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
21. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1982 _____________________Prentsmiðja Morgunblaðsins,
Miðausturlandaferð
Haigs lokið:
Israelar
fallast á
evrópskt
gæslulið
lyondon, 211. janúar. Al*.
ALEXANDER M. Haig, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kom í dag
til Lunduna úr ferð sinni um Mið-
austurlönd þar sem hann átti við-
ræður við leiðtoga ísraela og Egypta.
llaft er el'tir manni úr fiiruneyti
Maigs, að Israelar hafi nú loksins
fallist á að friðargæsluliðið, sem
mun hafa eftirlit á Sinai-skaga þegar
Israelar hverfa þaðan, verði skipað
evrópskum hermönnum. í dag átti
Haig fund með Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, um l’ólland og
sagði við fréttamenn eftir fundinn,
að hann væri mjög ánægður með
viðbrögð vcstrænna þjóða við her
lögunum í landinu.
Talið er, að Begin muni letjgja
það til við stjórn sína nk. sunnudag,
að hún samþykki evrópska friðar-
gæsluliðið en í því munu verða her-
menn frá Bretlandi, Frakklandi, ít-
alíu og Hollandi. Andstöðu ísraela
við þátttöku þessara þjóða í frið-
argæslunni má rekja til friðartil-
lagna Efnahagsbandalagsins en í
þeim er gert ráð fyrir, að Frelsis-
samtök Palestínumanna taki þátt í
viðræðum um frið fyrir botni Mið-
jarðarhafsins. Á það hafa ísraelar
aldrei viljað fallast.
Á fundinum í dag með Margaret
Thatcher gerði Haig henni grein
fyrir viðræðum sínum við Andrei
Gromyko, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, sl. þriðjudag, og við ísra-
elska og egypska leiðtoga. Haig
sagði aðspurður eftir fundinn, að
hann væri mjög ánægður með þann
einhug, sem ríkt hefði á utanríkis-
ráðherrafundi Atlantshafsbanda-
lagsins 11. janúar sl. og þær aðgerð-
ir, sem síðar hefði verið gripið til
vegna herlaganna í Póllandi.
Reagan
ætiar í
— mun sitja NATO-
fund í júní
RrusM-l, 29. januar. Al*.
TILKYNNT var í adalstödvum
AtlanLshafsbandalagsins í gær,
fimmtudag, að Ronald Reagan,
Kandaríkjaforseti og aðrir
frammámenn frá aðildarríkjum
bandalagsins muni eiga með sér
fund í Kvrópu í júní nk.
Talsmaður NATO sagði, að
fundurinn yrði haldinn skömmu
fyrir eða eftir árlegan fund full-
trúa sjö helstu iðnríkja heims,
sem fram mun fara í Versalahöll-
inni i Frakklandi í fyrstu viku
júnímánaðar, en Reagan mun
einnig sitja hann. Staður og stund
fyrir NATO-fundinn hefur enn
ekki verið ákveðinn endanlega.
Þetta verður fyrsta Evrópuför
Reagans sem forseta og fyrsti
toppfundur NATO-ríkja í fjögur
ár, eða síöan í Washington 1978.
Judith, eiginkona bandaríska hershöfðingjans James L. Dozier, faðmar mann sinn að sér eftir að hann hafði fært
hcnni jólagjöfina, gullhálsmen, sem hann hafði keypt nokkru áður en menn úr Rauðu herdeildunum rændu honum
17. des. sl. Myndin var tekin á blaðamannafundi, sem Dozier hélt í dag. AP-símamynd.
Þáttaskil í baráttunni
við hryðjuyerkamenn
Fjöldahandtökur, vopnafundur og listi yfir fyrirhuguð fórnarlömb fellur í hendur ítölsku lögreglunni
Vieenza, 29. janúar. Al'.
ÍTAI.SK A lögreglan handtók í dag 17
manns, sem grunaðir eru um að vera
félagar í Rauðu herdeildunum og
komst yfir mikið af alls kyns gögnum
um starfsemi hryðjuverkasamtak-
anna. Á tveimur dögum hafa þá verið
handteknir 23 menn, sem grunaðir
eru um hryðjuverk, og er giftusamleg
björgun bandaríska hershöfðingjans
James L. Doziers og þessar handtök-
ur mikilvægasti sigur, sem ítalska
lögreglan hefur unnið i baráttunni
gegn hermdarverkamönnunum og tal-
inn marka þáttaskil.
Við handtökurnar í dag fann
„Hreykinn af starfi
mínu fyrir NAT()“
— sagði James L. Dozier á blaðamannafundi í gær
Yirenza, 29. janúar. Al*.
„KONA mín og ég viljum þakka öllum þeim, sem hafa hugsað hlýlega til
okkar síðustu sex vikurnar og minnst mín í bænum sínum," sagði James
L. Dozier, hershöfðingi, sem í gær var bjargað úr klóm Rauðu herdeild-
anna eftir 42 daga fangavist, á fundi, sem hann hélt með blaðamönnum
ásamt konu sinni og dóttur. Blaðamannafundinum var sjónvarpað um
alla Ítalíu og einnig til Bandaríkjanna.
Dozier sagðist vera snortinn að þið segið frá þeim ákafa
stuðningi, sem fólk hefur verið
að láta í ljós við NATO undan-
farna daga. Hann er stórkostleg-
ur og ég er hreykinn af starfi
mínu fyrir Atlantshafsbanda-
lagið.“
Dozier kvaðst hafa keypt
handa konu sinni jólagjöf nokkr-
um vikum áður en honum var
rænt „og nú ætla ég að færa
henni hana“, sagði hann og rak
konu sinni rembingskoss um leið
af þeim hlýhug, sem hann og
fjölskylda hans hefðu hvarvetna
fundið, og ekki síst kvaðst hann
vera ánægður með þann stuðn-
ing við Atlantshafsbandalagið,
sem víða hefði komið fram hjá
almenningi vegna þessa máls.
„Þið hafið flutt fréttir af mót-
mælagöngunum," sagði hann við
blaðamennina, „sem farnar hafa
verið gegn Atlantshafsbandalag-
inu víða um Evrópu. Nú vona ég,
og hann lét hana fá gjöfina,
hálsmen með ljóni heilags Mark-
úsar, einkennismerki herafla
Atlantshafsbandalagsins í
Suður-Evrópu.
Dozier svaraði engum spurn-
ingum um vist sína hjá mann-
ræningjunum og kvaðst ekki
mundu gera það fyrr en hann
hefði greint yfirboðurum sínum
frá allri reynslu sinni. Hann
sagði, að atburðir síðustu vikna
hefðu sannfært sig um, að óvinir
frelsisins sætu víða á fleti fyrir
og að frjálst fólk yrði að halda
vöku sinni. „Atlantshafsbanda-
lagið er brjóstvörn frelsisins
fyrir menn og konur,“ sagði
Dozier.
lögreglan gífurlegt vopnamagn í
níu íbúðum eða vistarverum
hryðjuverkamannanna og einnig
komst hún yfir lista með nöfnum
fjölmargra manna, sem taldir eru
tengdir Rauðu herdeildunum á einn
eða annan hátt. í öðru skjali var
greint frá fyrirhuguðum skotmörk-
um hryðjuverkamannanna og nöfn-
um þeirra manna, sem ýmist átti að
myrða eða ræna. í kvöld gaf lög-
reglan í skyn, að búast mætti við
enn frekari handtökum næstu daga.
Lögreglustjórinn í Verona sagði í
dag, að öruggt væri, að Dozier hefði
verið myrtur ef mennirnir úr
áhlaupssveitunum hefðu ekki
bjargað honum í gær, fimmtudag.
Sagði hann, að mannræningjarnir
hefðu fljótlega tekið bindið frá aug-
um Doziers og ekkert gert til að
leyna hann því hverjir þeir væru,
en það sagði hann benda ákveðið til
þess, að búið hefði verið að dæma
hann til dauða.
Italska lögreglan vill ekkert um
það segja hvernig henni barst vitn-
eskja um hvar Dozier var hafður í
haldi en ítalska fréttastofan Ansa
hefur það í dag eftir heimildum
innan lögreglunnar, að það hafi
verið 22ja ára gamall maður, sem
handtekinn var fyrir viku vegna
eiturlyfjamáls, sem hafi veitt þær
upplýsingar, sem máli skiptu. Bróð-
ir hans situr í fangelsi vegna aðild-
ar sinnar að Rauðu herdeildunum.
James L. Dozier hershöfðingi
mun á morgun, laugardag, verða
spurður spjörunum úr af sam-
starfsmönnum sínum og ítölsku
lögreglunni um vistina hjá mann-
ræningjunum. í gær og í dag hefur
hann gengist undir stranga læknis-
skoðun og þótt niðurstöður hennar
liggi ekki alveg fyrir sögðu læknar
hans í dag, að hann væri vel á sig
kominn og virtist ekki bera þess
nein merki andlega að hafa búist
við dauða sínum stöðugt í 42 daga.
Atburðirnir síðustu tvo daga
þykja gífurlegur siðferðilegur sigur
fyrir ítali og yfirvöldin í landinu og
ljúka allir upp einum munni um að
að málunum hafi nú verið staðið á
þann hátt sem kunnáttumönnum
sæmir.
Sjá „Glæstasti sigur...“ bls.
18.
Bara fyrir
hina útvöldu
Wa.shinKlon, 29. janúar Al'
SEXTÁN þjóðir hafa nú beðið um
að fá til sýningar þáttinn um Pól-
land, „Megi Pólland vera Pól-
land", þar sem leiðtogar margra
þjóða tjá Pólverjum samúð sína og
stuðning í þrengingum þeirra. Það,
sem athygli vekur, er að í þessum
hópi eru tvar AusturEvrópuþjóðir,
Pólland og l'ngverjaland. Ekki
mun þó fyrirhugað að sýna þáttinn
öllum almenningi í þessum löndum
heldur langar yfirstéttina, þá, sem
með völdin fara, svo skelfilega
mikið til að sjá hann, að það á að
sýna hann sérstaklega fyrir hina út-
völdu í aðalstöðvum ríkissjónvarps-
ins í hvoru landinu fvrir sig.
Sjá „Sjónvarpsþáttur..bls.
20—21.