Morgunblaðið - 30.01.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1982
39
Valur sigraði
Fram eftir
framlengdan leik
Fram:
vaiur 78:79
VALUR sigraði Fram, 79—78, í úr
valsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöldi og þurfti að framlengja til
að knýja fram úrslit, en staðan eftir
40 mínútur var 70—70. Staðan í
hálfleik var einnig jöfn, 32—32.
Stigaskorið segir flest sem segja
þarf um leikinn, hittnin var í lág-
marki og áhugi einnig á köflum,
þó smábarátta sæist þó annað
veifið. Getumunur var enginn á
liðunum og gat þetta endað á
hvorn veginn sem var. Lokamínút-
urnar voru æsispennandi, en þá
skiptust liðin á að ná 1—2 stiga
forystu. Eftir að staðan var orðin
70—70, fengu bæði liðin upphlaup
sem fóru í súginn.
Aðeins tveir menn létu af ein-
hverjum krafti hjá Fram, Viðar
Jafnt í
Firðinum
HAUKAR og Breiðablik skildu jöfn
í 2. deild Islandsmótsins í hand-
knattleik í gærkvöldi, bæði lið skor
uðu 19 mörk, en staðan í hálfleik var
11—11. Leikurinn fór fram í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði og var allan
tímann í járnum.
Þorkelsson, sem þó dofnaði undir
lokin, og Val Bracey, sem þá fyrst
fór að láta til sín taka. Hjá Val
var Ramsey bestur, en Ríkharður
komst vel frá lokasprettinum.
STIG Vals fyrir venjulegan leik-
tíma: John Ramsey 22, Ríkharður
Hrafnkelsson 18, Torfi Magnússon
13, Kristján Ágústsson 11, Jón
Steingrímsson 4 og Leifur Gúst-
afsson 2 stig.
STIG Fram: Val Bracey 24, Viðar
Þorkelsson 18, Símon Olafsson 16,
Ómar Þráinsson 4, Þórir Einars-
son 3, Björn M. og Þorval lur 2
hvor.
- gg-
STAÐAN
STAÐAN I úrvalsdeildinni nú er
sem hér segir:
UMFN 13 11 2 1139:1025 22
Fram 14 9 5 1172:1070 18
Valur 14 8 6 1135:1101 16
KR 13 7 1 1014:1081 14
ÍR 14 S 9 1089:1172 10
fs 14 1 13 1112:1262 2
STAÐAN
STADAN í 2. deild handknattleiks-
ins er nú ÍR þessi: 9 7 0 2 169—154 14
Stjarnan 10 6 1 3 211—205 13
l»ór 9 5 1 3 182—178 11
Haukar 9 4 2 3 197—178 10
Týr 10 4 0 6 225—234 8
UMFA 8 2 3 3 167—173 7
UBK 9 2 3 4 170—176 7
Fylkir 10 1 2 7 192-225 4
ÍS:
Ingi Stefánsson 7
Bjarni Gunnar Sveinsson 6
Gísli Gíslason 5
Árni Guðmundsson 5
Guðmundur Jóhannsson 5
Aðrir léku of lítið til að fá einkunn.
ÍK:
Kristinn Jörundsson
Jón Jörundsson
Benedikt Ingþórsson
Hjörtur Oddsson
Aðrir léku of lítið til að fá einkunn.
LIÐ FRAM:
Símon Ólafsson
Viðar Þorkelsson
Þorvaldur Geirsson
Björn Magnússon
Ómar Þráinsson
Þórir Einarsson
LIÐ VALS:
Ríkharður Hrafnkelsson
Torfi Magnússon
Kristján Agústsson
Jón Steingrímsson
Leifur Gústafsson
Fá KR-ingar Anders Dahl
Nielsen í sínar raðir?
EFTIR ÞVÍ sem Mbl. kemst næst,
hefur handknattleiksdeild KR stað-
ið í samningaviðræðum við hinn
heimskunna danska handknattleiks-
mann Anders Dahl Nielsen að und-
anförnu, en KR-ingar hafa hug á að
fá hann sem þjálfara og jafnvel
leikmann í bland næsta keppnis-
tímabil. Jóhann Ingi Gunnarsson
fyrrum landsliðsþjálfari og núver
andi þjálfari KR hefur verið KR-ing-
um innan handar í þessum efnum og
komið þeim í samband við Dahl.
Mbl. hafði samband við Gunnar
Hjaltalín formann handknatt-
leiksdeildar KR í gær og spurði
hann út í mál þetta. Gunnar vildi
lítið segja að svq stöddu, en stað-
festi þó að viðræður hefðu farið
fram og fljótlega yrði úr því skor-
ið hvort að gengi saman með hlut-
aðeigandi aðilum eða ekki.
Anders Dahl Nielsen þarf varla
að kynna. Hann hefur leikið mik-
inn fjölda landsleikja fyrir Dan-
mörku og sá leikmaður sem marg-
ir telja danska landsliðið ekki geta
verið án. Reyndar hefur hann ekki
gefið kost á sér í landsliðið nú um-
skeið og leikið með liði í 2. deild.
En hann er afar sterkur samt sem
áður og er með markhæstu
mönnum þar í deild.
— 88
Anders Dahl Nielsen
Handknattlelkur
Arnór í „liði
vikunnar“
Knattspyrnukappinn Arnór Guð-
johnsen, sem leikur sem kunnugt
er með belgíska félaginu Lokeren,
hefur gert það gott það sem af er
þessu keppnistímabili. Síðasta
skrautfjöður hans kom í síðasta
leik liðsins í belgísku deildar
keppninni, er Lokeren sótti Stand-
ard Liege heim og jafntefli varð,
2—2. Arnór skoraði að vísu ekki í
leiknum, en að sögn belgískra
blaða var hann einn af bestu
mönnum liðsins. Hann var látinn
gæta Hollendingsins frábæra Arie
Haan og gerði það svo vel, að eitt
stærsta blaðið valdi Arnór í lið vik-
unnar, en Haan kom annars lítið
við sögu í leiknum. — gg
Knattspyrna
ÞOKULUKTIR
VINNULJÓS OG KASTARAR
ísetning á staðnum.
BOSCH ÞJÓNUSTA
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820