Morgunblaðið - 09.07.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1982
31
ESPANA '82 »
Italía í úrslitin —
Rossi með tvö mörk
Heilmikið vatn hefur til sjávar
runnið síðan Ítalía mætti Póllandi í
forriðli HM í júní. Sá leikur endaði
með markalausu jafntcfli og þótti
slakur, og hvorugt liðið burðugt.
Leikur ítalanna er nú allur annar,
og er liðin mættust að nýju í gær, á
Nou Camp leikvanginum í Barcel-
ona, sigruðu þeir örugglega með
tveimur mörkum gegn engu. Mesta
breytingin á liðinu er sú að það er
farið að skora mörk og rnunar mest
um að Paolo Rossi, hinn frábæri
framherji þeirra, hefur fundið sitt
gamla form í tveimur síðustu leikj-
um. Enn var hann hctjan, því hann
skoraði bæði mörkin í leiknum.
Pólska liðið hafði, fyrir leikinn,
fengið á sig fæst mörk allra liða í
keppninni, eða aðeins eitt í fimm
leikjum. Pólverjarnir byrjuðu bet-
ur í gær og sóttu meira til að byrja
með, en hættuleg færi fengu þeir
engin. En síðan fóru ítalirnir að
taka við sér.
Cabrini átti hættulega auka-
spyrnu fyrir markið. Mlynarcyk
markvörður kýldi frá, en Tardelli
náði boltanum og átti gott skot
sem markvörðurinn varði vel.
Rossi tók síðan forystuna fyrir ít-
alíu á 22. mín.
Giancarlo Antognoni sendi
aukaspyrnu inn í teiginn þar sem
Rossi sendi knöttinn örugglega í
netið. Eftir markið munaði ekki
miklu að Pólverjunum tækist að
jafna metin.
Ciolek skaut, boltinn lenti í
Collovati og breytti um stefnu, en
Zoff náði honum á síðustu stundu.
Mistök geta komið fyrir bestu
menn, og á 27. mín. kingsaði ítal-
inn Antognoni illa og tognaði.
Varð hann að fara af velli og kom
Marini inn á fyrir hann.
Stuttu seinna voru Pólverjarnir
enn nær að jafna metin en fyrr.
Lato rúllaði boltanum til Kupcew-
icz úr aukaspyrnu og bogaskot
hans lenti í stönginni utanverðri,
og var það besta færi þeirra í
leiknum. En Pólverjunum gekk
illa að brjóta sterka vörn ítala á
bak aftur og ógnuðu Zoff lítið.
Rossi var aftur á móti mjög
ógnandi í framlínu ítala og gerði
vörninni oft mikla skráveifu. I
fyrri hálfleiknum var Majewski
bókaður fyrir brot á honum. Stað-
an í hálfleik var 1—0.
í upphafi seinni hálfleiksins
settu Pólverjarnir Andrzej Palasz,
sókndjarfan miðvallarleikmann,
inn á fyrir Ciolek, en allt kom
fyrir ekki. Þeir gáfu Itölum tvær
hættulegar aukaspyrnur á fyrstu
mín. hálfleiksins en ekki nýttust
þær sem skyldi. Italirnir voru
hættulegri allan tímann og á 73.
mín. skoraði Rossi sitt annað
mark.
Marini hóf sóknina vinstra meg-
in, Conti fékk síðan knöttinn og
sendi háa sendingu fyrir markið.
Pólverjarnir misstu allir af henni
og Rossi, sem var við fjærstöng-
ina, skallaði örugglega í markið.
Er hann því markahæstur í
keppninni með 5 mörk.
Eftir markið skiptu Pólverjarn-
ir Marek Kusto inn á fyrir Smol-
arek. Pólverjarnir fengu besta
færið það sem eftir var leiksins,
en Zoff varði mjög vel skot Maj-
ewski úr aukaspyrnu.
Liðin
Italirnir voru sterkari og sigur
þeirra var sanngjarn. Þrátt fyrir
34 stiga hita, meðan á leiknum
stóð, léku liðin á fullu og börðust
af krafti allan tímann. En þau
léku nokkuð grófa knattspyrnu og
skemmdi það leikinn. Italirnir
Antognoni og Graziani urðu að
fara út af meiddir, Antognoni að
vísu vegna eigin mistaka eins og
Nýtt tímarit
um íþróttir
Nvlega kom á markaðinn fyrata
tölublað nýs íþróttablaðs og nefniat
það Tímaritið íþróttir. Blaðið er hið
hressilegasta aflestrar og í því má
finna viðtöl við þá Pétur Guð-
mundsson, körfuknattleikskappa i
Bandaríkjunum, þar sem hann
Ijóstrar m.a. upp um það hve mikið
hann hafi í laun, og Magnús V. Pét-
ursson, knattspyrnudómara, sem
segir að hann sé besti dómari á ís-
landi.
Einnig eru í blaðinu frásagnir
af yngri flokkum í knattspyrnu,
viðtal við Guðmund Þórarinsson,
frjálsíþróttaþjálfara, og þar finna
hestamenn einnig eitthvað við sitt
hæfi, því sagt er frá og birtar
myndir af graðfolanum Skarða á
Skörðugili í „aðgerð." Haft er eftir
- Timaritíð
0
Iþrottir
Övðeru
é »»Hef 50
V þúsund
dollara"
„Pétur otj Atli €(fu góflir"
Spiirning mánfiðaríns Yngfrljfloitkar
áður segir, og þrír leikmenn voru
bókaðir. Voru það Majewski og
Smolarek, Póllandi, og Collovati,
Ítalíu.
Pólverjarnir söknuðu Boniek
greinilega mjög mikið, en hann
var í eins leiks banni. Án hans
voru sóknarloturnar ekki beittar.
Lato gamli beitti sér langmest, en
gat lítið gert upp á eigin spýtur.
Gentili hjá Itölum var einnig í
banni, en vörnin var geysilega
sterk þrátt fyrir það. Gaetano
Scirea, hinn hávaxni miðvörður
frá Juventus, var þar sem klettur,
og Tardelli og Marini voru mjög
sterkir á miðjunni.
Liðin voru þannig skipuð í
leiknum. Ítalía: Zoff.Bergomi,
Collovati.Scirea, Cabrini.Oriali,
Tardelli, Antognoni (Marini á 27.
mín), Conti.Rossi, Graziani (Alto-
belli á 66. mín.). Pólland: Mlyn-
arczyk, Dziuba, Janas, Zmuda,
Majewski, Matysik, Kupcewicz,
Ciolek (Palasz á 46. mín.), Buncol,
Lato, Smolarek. (Kusto á 77. mín.)
Dómari var Juan Daniel Cardell-
ino frá Uruguay.
• Paolo Rossi, ítalski knattspyrnusnillingurinn, skoraði bæði mörk Ítalíu í
gær. Hér sést hann fagna marki. Rossi er nú orðinn markahæsti leikmaður
HM-keppninnar með 5 mörk. Hann er orðinn þjóðardýrlingur á Ítalíu vegna
frammistöðu sinnar í síðustu tveimur leikjum keppninnar.
KR sló Val út
SÆBJÖRN Guðmundsson skoraði
gullfallcgt mark á 83. mínútu og
tryggði KR sigur yfir Val í 16—liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ í Laugar-
dal í gærkvöldi, 2—1. Sæbjörn var
arkitektinn að laglegu samspili KR
úti á vellinum, átti snjalla sendingu
út á kantinn og fékk knöttinn inn i
vítatcig og skoraði með föstu skoti.
Valur náði forustu á 63. mínútu
þegar varnarmaður KR skoraði
sjálfsmark, eftir að Magni Péturs-
son hafði sótt að varnarmönnum.
KR jafnaði þegar á næstu mínútu,
Óskar Ingimundarson skallaði
knöttinn í netið af stuttu færi eft-
ir mikla þvögu í vítateig Vals-
manna.
Valsmenn áttu að gera út um
leikinn áður en Sæbjörn skoraði
sigurmark KR. Hilmar Sighvats-
son og Þorsteinn Sigurðsson áttu
góð tækifæri, en fóru illa að ráði
sínu. Þá varði Stefán Jóhannsson
vel frá Guðmundi Þorbjörnssyni
og Ingi Björn Albertsson tók
knöttinn af tám Njáls Eiðssonar,
sem var í ákjósanlegu færi. En KR
átti síðasta tækifærið. Ottó Guð-
mundsson, fyrirliði KR, skaut
himinhátt yfir úr vítaspyrnu eftir
að leiktíma var lokið.
KR-ingar gerðu fátt af viti í
leiknum, utan augnablik Sæ-
björns. Þeir reyndu að þæfa leik-
inn í von um að Valsmenn næðu
ekki að skapa tækifæri og síðan ná
að pota marki. Þetta tókst í
gærkvöldi; en skelfing er þessi
taktík Hólmberts Friðjónssonar
leiðinleg. Það er beinlínis átakan-
legt að horfa upp á þessa
KR-knattspyrnu. Liðið reynir alls
ekkert að spila. Þetta er hrein
móðgun við áhorfendur, að ekki sé
talað um knattspyrnuna sem
íþrótt.
Valsliðið var slakt í gærkvöldi,
eins og allan áhuga vantaði. Sú
knattspyrna sem sást í gærkvöldi
kom þó frá Val og liðið var óhepp-
ið að tapa. Aðalleikvangurinn í
Laugardal var mjög slæmur og
háðu aðstæður Valsmönnum
meira, því þeir reyndu að leika
knattspyrnu; KR-ingar hins vegar
að koma í veg fyrir að knattspyrna
væri leikin. Furðulegt, að Laug-
ardalurinn skuli vera eini staður-
inn á Islandi þar sem ekki virðist
hægt að koma upp þokkalegum
grasvelli.
H.Halls.
Þær keppa fyrir Island
í Norðurlandabikarnum
Kvennalandsliðið í frjáls-
íþróttum, sem keppir við lands-
lið Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar i Norðurlandabikar-
kcppnínni í frjáisíþróttum á
Laugardalsvelli helgina 17. og
18. júlí, hefur verið valiö og
skipa það eftirtaldar frjáls-
íþróttakonur:
100 m — Oddny Árnadótt-
ir, 200 m — Oddný Árnadótt-
ir, 400 m — Unnur Stfáns-
dóttir, 800 m — Hrönn Guð-
mundsdóttir, 1.500 m —
Ragnheiður Ólafsdóttir, 3.000
m — Aðalbjörg Hafsteins-
dóttir, 100 m grind — Helga
Halldórsdóttir, 400 m grind
— Sigurborg Guðmundsdótt-
ir. Hástökk — Þórdís Gísla-
dóttir. Langstökk — Bryndís
Hólm. Kúluvarp — íris
Grönfeldt. Kringlukast —
Margrét Óskarsdóttir.
Spjótkast — íris Grönfeldt,
4x100 m boðhlaup: — Oddný
Árnadóttir, Geirlaug Geir-
laugsdóttir, Helga Halldórs-
dóttir og Sigurborg Guð-
mundsdóttir, 4x400 m boð-
hlaup: — Oddný Árnadóttir,
Unnur Stefánsdóttir, Hrönn
Guðmundsdóttir og Helga
Halldórsdóttir. Sigurborg
Guðmundsdóttir er til vara.
• Ritatjórar og útgefendur blaðsins
„Tímaritið íþróttir,, Ragnar Péturs-
son t.v. og Stefán Kristjánsson.
eiganda Skarða að hann sé „alveg
óvenju graður.“ Atli Eðvaldsson,
knattspyrnumaður, skrifar um ís-
lenska knattspyrnu, sagðar eru
stuttar sögur úr ýmsum áttum og
ýmislegt fleira.
Eins og á þessu sést er blaðið
fjölbreytt að efni og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Ritstjórar nýja blaðsins eru
Ragnar örn Pétursson og Stefán
Kristjánsson, fyrrverandi íþrótta-
fréttamenn, og mun blaðið koma
út einu sinni í mánuði. Óhætt er
að segja blaðið fari vel af stað og
má vænta góðs af framlagi þeirra
félaga í framtíðinni
KA-menn áfram í bikarnum
Lið KA frá Akureyri sló ísafjarðar
út úr Bikarkeppni KSÍ í gær er það
sigraði á Akureyri með þremur
mörkum gegn einu. Staöan í hálfleik
var 0—0. Fyrri hálfleikurinn var
frekar slakur og ekki mikið um færi.
ísfirðingar áttu þó tvö og KA eitt.
Kristinn Kristjánsson átti fyrirgjöf
að marki KA sem virtist ekki hættu-
leg, en lenti í stöng. Þá átti Einar
Jónsson góða skalla rétt framhjá
KA-markinu eftir fyrirgjöf og fimm
mín. fyrir leikhlé komst Gunnar
Gíslason einn fyrir vörn ÍBÍ en
Hreiðar markvörður bjargaði með
úthlaupi.
Fyrsta markið kom á 55. mínútu
Ásbjörn Björnsson skoraði með
skoti af 25 metra færi. 1—0 fyrir
KA. KA komst síðan í 2—0 á 65.
mín. er Gunnar Gíslason gaf inn í
teiginn og Gunnar Guðmundsson
ætlaði að gefa á markvörðinn, en
skoraði.
Þriðja mark KA kom á 67. mín.
Hinrik Þórhallsson skoraði með
skalla af markteig eftir fyrirgjöf.
Bæði lið fengu eitt dauðafæri
eftir markið, en nýttu þau ekki.
Fjórum mín. fyrir leikslok skoraði
Haraldur Leifsson eina mark Is-
firðinga með glæsilegu skoti utan
úr teig.
Lauk leiknum því með öruggum
sigri KA. Sinni hálfleikurinn var
mjög skemmtilegur og opinn.
Bauð hann upp á skemmtileg færi.
Jón Oddson var bestur hjá Isfirð-
ingum en KA-liðið var mjög jafnt
og lék ágætlega.
— re/sh.