Morgunblaðið - 26.06.1984, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1984
39
Snemma í vor kom Vigfús i
hinsta sinn til Akureyrar snögga
ferð til að hlusta á Hörð frænda
sinn Áskelsson leika á hið veglega
orgel Akureyrarkirkju. Þarna í
kirkjunni sá ég hann og kvaddi í
siðasta sinn, kirkjunni, þar sem
faðir hans og afi minn hafði verið
fyrsti organistinn.
Ég á Vigfúsi frænda margt að
þakka, miklu fleira en hér er talið.
Oft fengum við hjónin að gista hjá
þeim Valgerði með börn okkar
fyrr á árum, og alltaf var viðmótið
hið saman, glatt, gott og ljúft, og
þangað var alltaf gott að koma. Ég
þakka honum alla hugulsemi við
foreldra mína og þá ekki síst föður
minn, eftir að móðir mín lést og
hann var orðinn einbúi, en með
þeim var alltaf hin besta vinátta
með bróðerni.
Vigfús var tvíkvæntur. Fyrri
konu sína, Bertu Þórhallsdóttur
kaupmanns Daníelssonar á Höfn í
Hornafirði, missti hann árið 1932
eftir tæplega eins árs hjónaband.
Síðari kona hans (20. júní 1943)
var Valgerður Magnúsdóttir, skip-
stjóra Brynjólfssonar í Reykjavík,
en hún lést fyrir tæplega tveimur
árum. Börn þeirra eru tvö:
Gunnar Geir, f. 1943, ljósmyndari
og samstarfsmaður föður síns.
Kona hans er Erla M. Helgadóttir,
hjúkrunarfræðingur, og eiga þau
tvö börn.
Berta, f. 1945, húsfreyja í Mos-
fellssveit, gift Gunnari Hinriks-
syni, rafvirkjameistara, og eiga
þau tvær dætur.
Vigfús frændi fæddist í
skammdeginu, en lifði langan og
Ijósan dag og kvaddi að lokum
þetta líf á björtum vormorgni.
Hann bjó alltaf í ljósinu og gaf
öðrum það með sér. Nú skín hon-
um hið eilífa ljós.
Sverrir Pálsson
Ég ætla að þakka Vigfúsi Sigur-
geirssyni, ljósmyndara, allt sem
hann var Lionshreyfingunni á ís-
landi og tímariti hennar LION.
Vigfús var einn af frumherjum
Lions á íslandi, félagi í meir en 30
ár! Við kölluðum hann ljósmynd-
ara Lions, enda hélt hann hreyf-
ingunni lifandi í ljósmyndum og
kvikmyndum. Myndirnar skipta
þúsundum frá því fyrsta myndin
var tekin á stofnfundi af þeim
Magnúsi Kjaran, Guðbrandi
Magnússyni og Ásgeiri Ásgeirs-
syni (heiðursfélaga) í ágúst 1951.
Nefnið einhverja Lionsathöfn hér
heima og myndir eru til af henni í
safni Vigfúsar.
Þegar okkur félögum bauð svo
við að horfa kölluðum við Vigfús
konsertmeistara Lionsmanna.
Hann var undirleikari af guðs náð,
músíkalskur og næmur. Fingurnir
léku um nótnaborðið og andlitið
ljómaði í ljúfu brosi. Listin var
honum í brjóst borin.
Fram í hug mér koma allar
myndirnar sem ég sá hjá Vigfúsi
af ferðalögum íslensku forset-
anna, einnig allir studentahóparn-
ir, sem hann geymdi á ljós-
myndum. Ljóst er að í fórum Vig-
fúsar var eitt athyglisverðasta
ljósmyndasafn í landinu.
Vigfús var léttur í spori og létt-
ur í lund. Fáir sem mættu honum
síðustu dagana munu hafa trúað
því að þar fór 84 ára gamall mað-
ur (hann fylgdi öldinni, fæddur 6.
jan. 1900). Fráfall hans kom okkur
Lionsfélögum í Lkl. Reykjavíkur á
óvart. Hann lést eftir uppskurð og
nokkurra daga legu í sjúkrahúsi
16. júní síðastliðinn.
Vigfús var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans, Bertha Þórhallsdóttir
dó 1932 og síðari kona hans, Val-
gerður Magnúsdóttir, andaðist
fyrir tveimur árum. Börnin voru
tvö, Gunnar ljósmyndari og
Bertha.
Pétur Ólafsson
Nú þegar ævigöngu vinar míns
Vigfúsar Sigurgeirssonar, ljós-
myndara og kvikmyndagerðar-
manns, er lokið, vil ég að leiðar-
lokum minnast samstarfs okkar
með nokkrum orðum.
Okkar kynni hófust fyrir all-
mörgum árum. Ég hafði séð fróð-
legar vel gerðar kvikmyndir sem
Vigfús hafði gert. — Myndir sem
fyrst og fremst voru heimildar-
kvikmyndir og geymdu merka
þætti úr mannlífi fyrri tíma. Það
var því engin tilviljun þegar við í
framkvæmdanefnd heimildar-
kvikmyndarinnar sunnlensku „1
dagsins önn“ vorum að undirbúa
það umfangsmikla verk, að ákveð-
ið var að leita til Vigfúsar Sigur-
geirssonar með töku og frágang
myndarinnar.
Vigfús, sem lengst af hefur haft
ljósmyndagerð að aðalstarfi, tók
erindi okkar af velvilja og góðum
skilningi. Kjörorð hans var strax í
upphafi, svo sem áður var spak-
lega mælt: „Það skal vel vanda
sem lengi skal standa". Þessa
ákvörðun hafði hann í heiðri uns
verkinu var lokið. Taldi hann ekki
aðalatriðið að skila verkinu á sem
skemmstum tíma, eldur hitt að
skila vel unnu verki.
Heimildarkvikmyndin f dagsins
önn er í allmörgum þáttum og tek-
ur sýning þeirra allra um þrjár
klukkustundir. Hvort það var til-
viljun, eða „forlög" — þá er stað-
reyndin sú að síðasta samstarfs-
verkefnið okkar Vigfúsar var að
skoða sameiginlega sfðustu þætti
myndarinnar sem þá voru ný-
komnir fullfrágengnir frá Bret-
landi.
Þessi sögulega stund var Vigfúsi
mikils virði. Nú hafði hann lokið
vandasömu og umfangsmiklu
verki, að dómi viðstaddra með
mjög góðum árangri.
Gerð þessarar myndar var Vig-
fúsi mikið áhuga- og hugsjónamál.
Hann vissi að mikilsvert væri að
myndin geymdi sem sannasta
heimild síns tíma. Þakklátur var
hann þeim sem lögðu honum góð
ráð við gerð myndarinnar. f því
efni var texti og tónlist honum
mikils virði. Hann vildi svo sann-
arlega ræða málin og afla fanga
sem síðar mættu að gagni koma.
Samstarf okkar Vigfúsar Sigur-
geirssonar og kunningsskapur
náði yfir langt árabil. Það var oft
ánægjulegt að heimsækja þau
hjónin að Miklubraut 64. Gestrisni
þeirra var frábær. Oftast endaði
heimsóknin í vinnustofu húsbónd-
ans. Þar var mikið safn mynda af
markverðum atburðum úr þjóðlífi
fyrri tíma.
Mikið og verðmætt myndasafn
úr forsetaferðum fyrri ára, heima
og erlendis, átti hann og manna-
myndir margar og sumar fágætar.
Vigfús vann oft langan vinnu-
dag, gaf sér þó oft tíma til að fara
í sund, taka í hljóðfæri og margar
stundir átti hann í matjurtagarð-
inum sínum. Ég hvíli mig frá
„dagsins önn“ við að hlú að mat-
jurtunum mínum — sagði hann
stundum, spaugsamur, aðspurður
hvort ekki væri erfitt hjá mynd-
gerðarmanninum að moka og pæla
úti í garði.
Vigfús var mikill tónlistarunn-
andi og kunni vel að meta góða
tónlist. Hann lét sæti sitt sjaldan
vera autt í Háskólabíói þegar Sin-
fóníuhljómsveit íslands hélt þar
tónleika, eða völ var á annarri
vandaðri tónlist.
Ungur að árum lærði hann á
hljóðfæri, enda af merku tónlist-
arfólki kominn. Faðir hans var
organisti í Akureyrarkirkju um
langt árabil og mikill tónlistar-
áhugi var á æskuheimili hans.
Fyrri kona Vigfúsar var Bertha
Þórhallsdóttir, ættuð úr Horna-
firði. Síðari kona hans, Valgerður
Magnúsdóttir, af hinni lands-
þekktu Engeyjarætt lést fyrir einu
og hálfu ári.
Þessi heiðurskona bar ekki
áhugamál sín á torg. Hún var
fyrst og fremst húsmóðir og skap-
aði fjölskyldu sinni farsælt vé inn-
an veggja heimilisins. Þar var
hugur hennar og hönd fyrst og
fremst.
Vigfús Sigurgeirsson fæddist á
Akureyri 6. janúar árið 1900.
Hann var einn af aldamóta-
mönnunum sem lifðu og störfuðu
með þjóð sini á því mesta fram-
fara- og umbreytingatímabili sem
um getur frá upphafi. Eitt af því
merkasta í ævistarfi hans var að
bjarga menningarverðmætum for-
tíðarinnar yfir til framtíðarinnar
í aðgengilegu óbrotgjörnu formi.
Nú, þegar þessi aldni heiðurs-
maður er allur og lífsljósið slokkn-
að, ferðin hafin yfir móðuna miklu
til fundar við ástvini, hinum meg-
in grafar, er okkur samstarfs-
mönnum hans og vinum efst i
huga virðing og þakklæti.
Börnum hans, Berthu og Gunn-
ari Geir, ljósmyndara, tengda-
börnum og afabörnum sendum við
hjónin innilegar samúðarkveðjur.
Stefán Jasonarson
Birting afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
..fctríojtniTirrTTTjTT-“__-
Tirc$tone
ER FJÖLS
DA wn
OÐRA
HJÓLBARÐA VIRÐI ?
Firestone S-211 radial hjólbarðarnir eru framleiddir
undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt
og fjölskyldu þinnar.
Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt
bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks
öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan.
Firestone S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru
sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki.
Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og
endist og endist . . .
UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT!
JOFUR
HR
Nybylavegi 2
Kópavogi
Sími 42600