Morgunblaðið - 26.06.1984, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIP, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
FÖSTUDAGS
U //W»I
Eni margir í felum?
Á ég engan tilverurétt?
Einn í felum skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég er hommi, sem sagt einn af
þeim sem eru í felum, og hef verið
alla mína ævi. Tilvera min hefur
verið eins og í viti og oft hef ég
verið kominn að því að fyrirfara
mér og meira að segja gert til-
raunir til þess, en alltaf verið
bjargað á síðustu stundu. Ég veit
að maðurinn hefur ekki leyfi til að
eyða eigin lífi, en örvæntingin hef-
ur stundum verið svo mikil að ég
hef ekkert séð nema svart.
En spurningin er: Af hverju er
ég hommi? Frá því ég man eftir
mér hef ég laðast að karlmönnum.
Geðlæknir spurði mig eitt sinn af
hverju ég breytti mér ekki og
snéri mér að kvenfólki og hætti
þannig að hugsa um karlmenn.
Það virðist mér vera ómögulegt,
þetta er meðfædd tilfinning sem
ég ræð ekki við. Ég hef leitað víða
að svari, en hvergi fengið það. Ég
hef leitað í Biblíunni, því ég trúi
að hún sé guðsorð. En hún hefur
andstyggð á fólki sem líkist mér.
Hún hefur heldur ekki svarað því
af hverju ég er svona. Ég þekki
marga homma, bæði þá sem lifa í
felum og þá sem hafa komið úr
felum. Eg veit að margir eiga í
svipuðu sálarstríði og ég. Margir
hafa farið út í áfengið og orðið því
að bráð og þó nokkra veit ég um
sem hafa fyrirfarið sér. Ég þekki
margt gott fólk sem fyrirlítur
homma og oft hefur mér sviðið
það þegar það hefur talað um þá
við mig. Hommar sem hafa komið
úr felum hafa verið ofsóttir á
skemmtistöðum og víðar.
Ótal sinnum hef ég beðið guð að
breyta mér, en ekkert hefur gerst.
Þess vegna bið ég allt gott fólk að
svara mér, um leið og ég spyr: Af
hverju er ég með þessar tilfinn-
ingar og á ég engan tilverurétt?
Þessir hringdu . . .
Er eins farið
með rauðmag-
ann og laxinn
í Elliðaánum?
Jón Júlíusson hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Mér
stökkbrá þegar ég las fyrirsögn-
ina í DV um daginn þar sem sagt
var að klóakbragð væri af laxin-
um sem geógi í Elliðaárnar. En
þá fór mér að detta í hug að lík-
lega væri engu minni mengun í
rauðmaganum sem við kaupum
hérna á torgum og í fiskbúðum.
Rauðmagarnir veiðast hér upp
við landsteinana þar sem klóak-
rör borgarinnar koma í sjó fram.
Ég hef reyndar ekki orðið var við
þetta sjálfur en þætti það ekki
ólíklegt.
Allt að verða
vitlaust
9454—3827 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Allt
þetta kjaftæði um kókómjólk.
Eins og það skipti nokkru máli,
meðan sjálf mjólkin er svona
dýr. Fjármálaráðherra sem telur
sig vin lítilmagnans, hefur hon-
um aldrei dottið í hug hvernig
t.d. fjölskylda með fimm smá-
börn geti kcypt þá mjólk sem
þau þarfnast, auk annars? Hvað
hefur fjármálaráðherra hugsað
sér að væri þessum fjölskyldum
til bjargar?
Um Pétur og
Albert
Lára hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Fyrst vil ég lýsa
furðu minni, af hverju svo marg-
ir eru að hnýta í Pétur Pétursson
þul. Það finnst mér algjör óþarfi
og ég tel hann með okkar allra
bestu þulum. Við mundum áreið-
anlega heyra minna af íslenskri
tónlist ef hann væri ekki hjá út-
varpinu, hann ber af.
Ég er nú gömul sjálfstæðis-
kona, en nú finnst mér verið að
reita flugfjaðrirnar af flokknum,
þegar ráðamenn haga sér eins og
t.d. Albert. Þetta hundafargan í
honum er orðin svo mikil þjóðar-
skömm, að almenningur hefur
hann að skotspæni. Hann sem er
maður í ábyrgðarstöðu. Ég held
að hann ætti að sjá sóma sinn í
því að þessum látum linni.
Eyrnabólgur
eru dýrar
Hólmfríður Sigurðardóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Ég er móðir með þrjú
börn. Sá yngsti, tveggja ára, er
með eyrnabólgur og þarf að fara
til læknis einu sinni i mánuði
eða oftar. Hvert viðtal kostar 78
krónur og meðalaglasið 270
krónur. Þessir peningar eru ekki
lengi að verða að stórum fúlgum
og ég sé ekki fram á að barnið
mitt geti fengið meðulin sín. Ég
veit um mörg fleiri slík dæmi
hér í bænum og því vildi ég koma
þessu á framfæri til almennings.
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verö.
Steinull — glerull — hólkar.
Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Þetta verð
o
lætur þú ekki fara
fram hjá þér
TOSHIBA
20“ úrvals sjónvarpstæki meö fjar-
stillingu á einstöku veröi kr.
27.527.- stgr. Útborgun kr. 7.000,
eftirst. á 6 mán.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
• /X
PERMANENT
fyrir
karlmenn
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG
Tímapantanir í síma 12725
L
J