Morgunblaðið - 11.07.1984, Side 3
3
Fri Norðurá.
Eru
þeir að
fé 'ann
■?
Mikið af stórlaxi í
Laxá í Þingeyjarsýslu
Jöfn og góð veiði hefur verið í
Laxá í Aðaldal það sem af er
þessu veiðitímabili, þannig
veiddust 15 laxar í ánni í gær-
morgun og voru þá komnir 470
laxar á land. „Laxinn hefur
veiðst upp um alla á, heldur lítið
á neðstu svæðunum upp á síð-
kastið, en þau voru best fyrst.
Miðsvæðin hafa verið lökust, en
best veiðist nú á efstu svæðun-
um. Laxinn hefur verið afar
vænn og varla sést fiskur undir
10 pundum. Sá minnsti í sumar
var minnir mig 8 pund og sá
stærsti var 20 pund. I gærmorg-
un var aflinn allur 10—17
punda,“ sagði Jóhanna Pálsdótt-
ir i veiðihúsinu Vökuholti að
Laxamýri i samtali við Mbl. i
gær.
Jóhanna gat þess einnig að
veiðin hefði verið heldur upp og
niður og raunar örlítið dræm
síðustu dagana þar til i gær-
morgun, en aldrei hefði hún ver-
ið svo lítil að athygli hefði vakið.
Stærsta laxinn sagði hún 20
pund, en hann var skráður á þá
Laxamýrarbræður Jón og Vig-
fús, en laxinn veiddu þeir á
Toby-spón í Flösinni í Kistu-
kvisl. Talsvert hefur veiðst á
flugu siðustu vikurnar sem venja
er þegar laxinn fer að veiðast
frammi i dal.
Aðeins að glæðast í Langá
Eftir afspyrnulélega byrjun
hefur verið að koma dálitið líf í
Langá á Mýrum síðustu dagana.
Mbl. hafði samband við ýmsa
landeigendur við ána í gær, á
Ánabrekku, Jarðlangstöðum og
Stangarholti og niðurstaðan er
sú, að í gær voru komnir milli
140 og 150 laxar á land úr ánni
allri, eitthvað um 100 af neðstu
svæðunum, Langárfossi og Ána-
brekku, rúmlega 30 af mið-
svæðunum, Jarðlangstöðum,
Hvítstöðum og Stangarholti, og
eitthvað um 20 af efstu svæðun-
um, Grenjum og Litla-Fjalli.
15—20 laxar hafa fengist á dag
siðustu dagana og á það við ána
alla. Ekki mikil veiði i jafn
langri og stangamargri á, en
stórum betra en i byrjun veiði-
tímans. Talsvert af aflanum er
mjög vænn fiskur, allt upp i 15
pundr en smálaxinn er sannkall-
aður smálax, 3—4 punda kóð.
Ekki árennileg byrjun
í Hofsá
Veiðin hófst í Hofsá síðdegis i
fyrradag og veiddust þá tveir
laxar, en á nokkrum bændadög-
um þar á undan höfðu fengist
fjórir laxar þannig að á hádegi i
gær höfðu sex laxar veiðst i
ánni. „Það hefur sést dálitið af
laxi upp á síðkastið," sagði við-
mælandi Mbl. í veiðihúsinu
Árhvammi siðdegis í gær. Var og
uppgefið að laxarnir hefðu verið
sæmilega vænir, 8—10 punda,
aðeins einn smálax. Þoka og
rigning hefur verið síðustu dag-
ana i Vopnafirði.
— gg-
.. NÝJU FILM
SXJORNURNAR
FRAKODAK!
Nyju 35 mrn litfilmurnar fra Kodak,
|KODACOLOR VR.skila hlutverki sinu
Imeösoma við olikustu skilyrði
I litljosmyndunar, enda eiga þær ekki
llangt að sækja frabæra
í ..lithæfileika" sina.
Li0v»ryjiwn*xrvWfo /íi'b.wíww
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1984
Helsingjadrápið í Skagafírði:
Rannsókn miÖar lítt
Fólkið enn
innilokað f
Kverkfjöllum
Kgibwtööum, 10. Júlí.
JÖKULHLAUPIÐ úr Hnútulóni sem
féll um Kverká og Kreppu í Jökulsá
á Fjöllum skolaði vegfyllingunni
beggja megin við brúna yfir Kreppu
í burtu á stórum kafia. Skarðið f
veginum er 20 metra breitt og 6
metra djúpt austan við brúna en
hcldur minna vestan megin, að sögn
Völundar Jóhannessonar sem fór
með Björgunarsveitinni á Egilsstöð-
um að brúnni í fyrrakvöld til að
kanna aðstæður og athuga hvort fólk
væri þarna í hættu statt.
Völundur sagði að björgunar-
sveitarmenn hefðu náð sambandi
við bílstjóra á rútu frá Guðmundi
Jónassyni sem kom að brúnni á leið
úr Kverkfjöllum og hefði hún snúið
aftur inn í Kverkfjöll þar sem fólkiö
væri enn í góðu yfirlæti.
— Steinþór.
RANNSÓKN á belsingjadrápinu
svonefnda stendur enn yfir og að
sögn Ófeigs Baldurssonar hjá rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri, sem
hefur rannsóknina með höndum,
hafa yfirheyrslur farið fram, en eng-
ar játningar liggja fyrir. Málið er nú
í biðstöðu vegna anna hjá rann-
sóknarlögreglunni, og vildi Ófeigur
ekkert segja til um það hvenær
niðurstöðu væri að vænta.
Samkvæmt upplýsingum full-
trúa sýslumannsins á Sauðárkróki
hafði embættið aðeins með hendi
frumrannsókn og hefði málið ver-
ið sent bæjarfógetanum á Akur-
eyri 5. júní sl. til frekari aðgerða,
enda ættu þeir sem undir grun
sætu þar varnarþing.
Eins og lesendur Morgunblaðs-
ins rekur minni til komst upp um
fjöldadráp á helsingja, sem er
friðaður, snemma í vor og sendi
Fuglaverndarfélag íslands þegar
kæru á hendur þeim er það gerðu
til sýslumannsembættisins á
Sauðárkróki. Beindust böndin
fljótt að aðilum á Akureyri, en
eins og fyrr segir liggja engar
játningar fyrir og er málið í bið-
stöðu.
AUK hl. Auglysingastofa Kristinar 91.43
KODAK
UMBOÐIÐ
200
400
KOOACOLOR VR 100
er sú skarpasta, mjög
ffnkorna og þvf einkar
vel fallin til stækkunar.
KODACOLOR VR 200
er sú fjölhæfasta. Hún
ræöur jafn vel viö mis-
jöfn birtuskilyrði sem
óvæntar uppákomur.
KODACOLOR VR 400
er mjög Ijósnæm og fin-
korna og skilar afar lit-
sterkum myndum.
KODACOLOR VR 1000
er sú allra Ijósnæmasta
- Filma nýrra mögu-
leika.
Baly fyrir rétti vegna
stulds á erninum Ikarus
— Fálkaþjófarnir bera íslenskum yfírvöldum illa söguna
Daun, Ið. júlf. Frá Önnu Bjnrnndóttur, fréttarítara Morgunblaónins.
STROKUMAÐURINN Peter Baly var færður fyrir rétt í Daun í Eifel í
Vestur-Þýskalandi f dag. Hann er ákærður fyrir að hafa stolið gullerni úr
fálka- og úlfagarði í um 150 km. fjarlægð frá Köln fyrir rúmu ári. Réttarhöld-
unum var frestað um eina viku eftir að nafn Konny Ciesielsky, þekkts
eggjaþjófs og fuglasala frá Köln, blandaðist í málið. Ciesielsky-fjölskyldan
hefur látið greipar sópa í fálkahreiðrum á fslandi eins og Baly og Ciesielsky
er í landgöngubanni þar. Sonur hans, Markús, er nú í haldi í Norður-Amer-
íku fyrir eggjaþjófnað.
Baly var klæddur í gráan há-
skólabol, sem á stóð „138 km“, á
meðan á réttarhöldunum stóð —
það er kannski hraðinn sem þýska
skipið sigldi með hann á út úr
Reykjavíkurhöfn. Hann sagði í
stuttu samtali í réttarhléinu að
hann hefði einfaldlega litast um á
höfninni í Reykjavík eftir hugs-
anlegri undankomuleið. Honum
var ljóst að hann gæti ekki borgað
sektina sem hann átti yfir höfði
sér fyrir fálkaeggjaþjófnaðinn.
Hann bar íslensku lögreglunni
heldur illa söguna og kona hans,
Gabriela Baly, sagðist hafa lést
um tíu kíló á þeim fimm dögum
sem hún sat inni á íslandi. Fjöl-
skylda hennar hjálpaði henni um
peninga svo hún kæmist úr landi.
Hún sagðist ekki hafa vitað, þegar
hún skrifaði undir pappíra á ís-
landi, að hún mætti eícki áfrýja
málinu eftir að hún kæmi aftur
heim til Þýskalands .
Baly situr nú í fangelsi. Hann á
yfir höfði sér nokkuð þunga refs-
ingu ef hann verður fundinn sekur
um arnarþjófnaðinn. Hann þarf
þá að sitja af sér eins árs fangels-
isvist fyrir gamalt afbrot sem
hann hlaut skilorðsbundinn dóm
fyrir, og sæta hegningu fyrir arn-
arþjófnaðinn.
En það mál er ekki eins einfalt
og það virtist í upphafi. Baly er
ákærður fyrir að hafa klifrað yfir
girðingar og múr inn í kastala-
garð, þar sem verðmætir ernir og
fálkar eru geymdir. Hann er sagð-
ur hafa leyst örninn Ikarus, haft
hann á brott með sér í poka, en
gengið svo frá, að helst virtist sem
fuglinn hefði losað sig sjálfur.
Gæslumaður dýranna, Dominik
Kollinger, sá þó fljótt að fuglinum
hafði verið stolið. Það hafði verið
fiktað við festar annarra fugla og
þær ekki hnýttar aftur á sama
hátt og hann gerir sjálfur. Hann
kærði málið til lögreglunnar, en
komst sjálfur að því, eftir nokkrar
símhringingar, hvar fuglinn var
niðurkominn. Maður að nafni
Hiebler hafði keypt örninn fyrir
3.000 mörk, sem er gjafverð fyrir
slíkan fugl. Hann hafði keypt
hann af Polacek nokkrum, sem
þekkti Baly. Þeir voru saman í
þýska fálkafélaginu fyrir nokkr-
um árum, en félagið hefur leyst
upp og þeir segjast ekki hittast
oft. Polacek segir að Baly hafi
hringt í sig í júní í fyrra og boðið
sér örn til kaups fyrir 3.000 mörk.
Hann segist alls ekki hafa viljað
kaupa stolinn fugl og trúði að Baly
myndi senda sér skilríki arnarins
nokkrum dögum seinna. Hann
keyrði fuglinn til Hiebler, sem býr
í grennd við Múnchen og seldi
honum fuglinn. Það kom strax í
ljós þegar Kollinger talaði við
Hiebler, að hann hafði keypt stol-
inn fugl og Hiebler skilaði Ikarus
aftur til heimahúsanna.
En Baly neitar öllu og segir að
Polacek ljúgi upp á sig. Kona hans
segist aldrei hafa séð Polacek-
hjónin, en þau fullyrða bæði að
Baly-hjónin hafi komið með fugl-
inn fyrir ári síðan og fengið kaffi.
í lok réttarhaldanna í dag, sem
virtust illa undirbúin og margir
misbrestir voru á, kom í ljós Pol-
acek-hjónin voru einnig með tvo
förufálka, sem eru mjög verðmæt-
ir, í farangrinum fyrir Hiebler
þegar þau fluttu honum örninn.
Þar blandaðist Ciesielsky inn í
málið, en hann er einn af höfuð-
paurunum í allri fálkasölu í
Vestur-Þýskalandi.
Gæslumaðurinn, Kollinger,
sagði í samtali í dag, í kastala-
garðinum, þaðan sem Ikarus var
stolið, að hann væri sannfærður
um að Baly hefði verið þar að
verki. „Þessi maður hefur lifað af
fálkaránum undanfarin fimm ár.
Atburðirnir á íslandi eru bara síð-
asta dæmið um það. Allt bendir til
þess að hann hafi verið hér að
verki.“
Baly vildi ekki segja'hver borg-
aði fyrir ferð hans til íslands, í
réttinum í dag. Hann sagðist
óttast um líf sitt, meðlimir fálka-
mafíunnar hikuðu ekki við að
drepa konuna sína og hann vildi
svo sannarlega ekki komast upp á
kant við þá.