Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 7
6 B MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 ______________________________MORGUNBLADID, ÞRIDJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Enn heimasigur Þórs
— sanngjarn sigur yfir KR-ingum á sunnudaginn
ÞÓR vann sanngjarnan sigur, 3:1,
á KR é Akureyri á sunnudag.
Staöan í leikhléi var 2:0 fyrir
heimamenn. Þór á eftir aö leika
einn heimaleik, gegn FH í síöustu
umferöinni og þeir hafa enn ekki
tapaö heimaleik. Aö sögn Jó-
hannesar Atlasonar, þjálfara liös-
ins, stendur ekki til aö þar veröi
nein breyting á.
Þórsarar voru mun betri aöilinn
í fyrri hálfleik og sýndu oft á tíðum
stórgóða knattspyrnu. Strax á 11.
minútu skoraöi Halldór Áskelsson
fyrsta markið meö góöu skoti af
vítateigslínu neöst í hægra mark-
ornið. Halldór fékk sendingu frá
Jónasi Róbertssyni.
KR-ingar uröu fyrir því áfalli aö
missa Gunnar Gíslason útaf leik-
veliinum, meiddan, á þessari sömu
mínútu.
Áfram sóttu Þórsarar og á 22.
minútu skora þeir sitt annaö mark
og var þar aö verki Kristján Krist-
jánsson. Hlynur Birgisson átti þá
háa fyrirgjöf frá hægri, Stefán Jó-
hannsson, markvöröur KR, stökk
upp og greip knöttinn en missti
hann klaufalega frá sér. Kristján
var eldfljótur aö átta sig og skoraöi
örugglega af stuttu færi.
Þaö sem eftir var af fyrri hálfleik
áttu heimamenn nokkur ágæt
marktækifæri og má sem dæmi
nefna aö góöu skoti Halldórs var
bjargaö af marklínu. Einnig áttu
þeir Hlynur og Kristján ágæt færi
en fleiri uröu mörkin ekki.
KR-ingar komu mjög ákveönir til
leiks í síöari hálfleik og strax á 50.
minútu minnkuöu þeir muninn. Jón
G. Bjarnason átti þá sendingu utan
af kantinum aö nærstönginni þar
sem Ágúst Már Jónsson stökk upp
og skallaöi knöttinn í netiö af
stuttu færi.
Næstu mínútur sóttu KR-ingar
heldur meira en Þórsarar komust
þó smátt og smátt aftur inn í leik-
inn. Jafnræöi var þó með liöunum,
Halldór átti gott færi og hinum
megin komst Hannes Jóhannsson
Þór — KR
3:1
• Kristján Kristjánsson
í gott færi eftir aukaspyrnu Jóns G.
Bjarnasonar en Báldvin, mark-
vöröur Þórs, varöi vel í horn.
Á 81. mínútu geröu Þórsarar
síöan út um leikinn. Halldór Ás-
kelsson lék á nokkra varnarmenn
KR inn í þeirra vítateig, renndi
knettinum út til Nóa Björnssonar,
fyrirliöa síns, sem hugöist skjóta á
markiö. Nói hitti knöttinn illa og
hann hrökk til Kristjáns þar sem
hann stóö einn og óvaldaöur á
markteigshorninu. Kristján átti
ekki i vandræöum meö aö skora
sitt annaö mark í leiknum.
Það sem eftir liföi leiksins áttu
liöin sitt færiö hvort. Árni Stef-
ánsson átti skot úr sæmilegu færi
yfir markiö hjá KR-ingum og hinum
megin átti Jósteinn Einarsson
svipaö færi sem fór á sama veg.
Liö Þórs lék mjög vel í þessum
leik og var mun betri aðilinn í ef
undanskildar eru fyrstu 15 tii 20
mínútur síöari hálfleiksins. Fyrri
hálfleikurinn hjá Þór var meö því
besta sem sóst hefur á Akureyr-
arvelli í langan tima. Erfitt er aö
gera uþp á milli leikmanna í þess-
um leik, liöið virkaöi jafnt en Hall-
dór Áskelsson, Siguróli Krist-
jánsson og Jónas Róbertsson voru
allir mjög góöir. Allir varnarmenn
liösins stóöu sig mjög vel og Nói
Björnsson, fyrirliöi, var kjölfestan í
liöinu og baröist hann mjög vel aö
venju. Hlynur Birgisson átti mjög
góöan leik í fyrri hálfleik og ekki
má gleyma Kristjáni Kristjánssyni
sem hefur veriö iöinn viö aö skora
mörk aö undanförnu, meira aö
segja meö hægra fæti. Lítiö reyndi
á Baldvin í markinu en þaö sem á
reyndi stóö hann sig vel.
Liö KR lék ekki vel megniö af
þessum leik. Vörnin virkaði til
dæmis mjög óörugg í fyrri hálfleik
en þeir sem voru mest áberandi
voru þeir Sæbjörn Guömundsson,
Ágúst Már Jónsson og Jón Bjarna-
son.
i STUTTU MÁLI:
Akureyrarvöllur 1. deild.
Þór — KR 3:1 (2:0)
Mörfc Þórs: Halldór Askelsson á 11. min. og
Kristján Kristjánsson á 22. og 81. mín.
Marfc KR: Ágúst Már Jónsson á 50. min.
Gul spjöld: Jósteinn Einarsson, KR.
Dómari: Baldur Scheving og var hann ekki
nógu sannfærandi.
Áhorfendur: 1.247
EINK UNN AG JÖFIN:
Þór. Baldvin Guömundsson 3, Sigurbjörn Viö-
arsson 3, Siguróli Kristjánsson 4. Árni Stef-
ánsson 3, Kristján Kristjánsson 3, Jónas Rób-
ertsson 4, Nói Björnsson 3, Halldór Askelsson
4. Hlynur Birgisson 3, Július Tryggvason 3,
Óskar Gunnarsson 3, Rúnar Steingrimsson
(vm. á 77. mín.) lék of stutt.
KR: Stefán Jóhannsson 2, Jósteinn Einarsson
2, Hálfdán örlygsson 3, Hannes Jóhannsson
3. Willum Þórsson 2, Gunnar Gíslason lék of
stutt, Ágúst Már Jónsson 3, Ásbjörn Björns-
son 2. Björn Rafnsson 2. Sæbjörn Guömunds-
son 3, Jón G. Bjarnason 3, Stefán Pétursson
(vm. á 15. mín.) 2, Júlíus Þorfinnsson (vm. á
78. min.) lék of stutt.
Strákarnir léku stórvel
— sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs
„MÉR fannst fyrri hálfleikur vera
þaö besta sem ég hef séö til Þórs-
líðsins og voru KR-ingar heppnir
aö vera bara 2:0 undir í hálfleik,"
sagöi Jóhannes Atlason, þjálfari
Þórs, aó leikslokum á sunnudag-
inn og bætti síóan viö: „Strákarnir
léku alveg stórvel og heföu átt
aó vera búnir aö skora þrjú til
fjögur mörk í hálfleiknum.
„í seinni hálfleik geröu KR-ingar
stööubreytingar hjá sér, settu
Sæbjörn á miöjuna og Hálfdán lék
framar en í fyrri hálfleiknum. Viö
þetta náöu þeir undirtökunum á
meöan viö vorum aö átta okkur á
þessu en síðan náöum viö aö kom-
ast afturinníleikinn.
Eftir þetta áttum viö margar
hættulegar sóknarlotur og heföum
getaö skoraö fleiri mörk."
— Hvernig líst þér á loka-
sprettinn?
„Ég er bjartsýnn á framhaldiö
hjá okkur og ég held aö viö vinnum
FH hérna heima en ég er miklu
hræddari viö Þróttarana á útivelli
þar sem þeir eru í þullandi fall-
hættu. Þaö getur allt gerst í mótinu
ennþá en þaö endar meö því aö
besta liöiö sigrar. Valsmenn eru
geysisterkir um þessar mundir en
Framarar eru ekki á réttu róli og
mér er sama hvaö hver segir um
Framliöiö, þeir voru í toppæfingu
þegar mótiö byrjaöi en eru ekki í
eins góöri æfingu núna og eru aö
gefaeftir."
— Áttir þú von á þessum
árangri hjá Þór?
„Já, ég átti von á að viö næöum
góöum árangri í sumar og sagöi
strákunum þegar ég byrjaöi meö
þá í vor aö þeir ættu nákvæmlega
sömu möguleika og önnur lið. Þetta
sagöi ég þeim eftir aö ég haföi
skoöað leiki liðsins frá því á síðasta
keppnistímabili af myndböndum.
Þaö var aö vísu mjög slæmt aö
missa aöalmarkaskorarann okkar,
Bjarna Sveinbjörnsson, en þaö
hafa komiö inn aörir strákar sem
hafa staðið sig meö mikilli prýöi.
Þaö skemmtilega viö árangur okk-
ar i sumar er aö flestir í liöinu eru
„innfæddir" Þórsarar og þaö sýnir
sig aö þaö er ekki allt fengiö meö
því aö fá leikmenn alls staöar aö
með misjöfnum árangri," sagði Jó-
hannes.
Tokst þaö sem
viö ætluöum okkur
— sagöi Ársæll Kristjánsson, Þrótti
„ÉG ER ánægöur meö þennan
leik, vió þurftum aö fá stig og
okkur tókst þaö aem við ætluðum
okkur,“ sagöi Ársæll Kristjáns-
son, besti maður Þróttar þegar
aó Þróttur og Fram gerðu jafntefli
á Valbjarnarvelli sunnudaginn.
„Ég haföi trú á því allan timann
aö okkur tækist aó halda jöfnu,
sérstaklega þegar líöa tók á síöari
hálfleikinn og ég sá aö Fram ætlaöi
ekki aö takast að opna vörnina neitt
hjá okkur. Ég hef trú á aö þetta sé
allt aö koma hjá okkur, ef viö skilj-
um leikinn viö Víking útundan þá
hafa síöustu leikir veriö baráttuleik-
ir hjá okkur þó svo úrslitin hafi veriö
óhagstæö.
Þeir leikir sem viö eigum eftir eru
báöir erfiöir en ef baráttan veröur í
lagi þá trúi ég aö viö höfum þetta
af,“ sagði Ársæll aö lokum.
• Ársæil Kristjánsson
• Ómar Torfason á hér skot aö marki Þróttar í síóari hálfleik en skotió var ónákvæmt og Guómundur Erlingsson átti ekki í erfiöleikum með aö verja þaö.
Ársæll Kristjánsson reynir eins og hann getur að komast fyrir skot Ómars og Kristján Jónsson fylgist örvæntingarfullur meö.
Enginn meistarabragur hjá Fram
„ÞETTA voru hagstæö úrslit fyrir
okkur og ég hef ekkert meira um
leikinn aö segja,“ sagöi Theodór
Guömundsson, þjálfari Þróttar,
eftir að Þróttur og Fram geröu
jafntefli, 1:1, og þaö veróur aö
segjast eins og er aó Þróttarar
voru stálheppnir aö ná í eitt stig í
þessum leik. Fram sótti nær allan
tímann, sköpuóu sér þó ekki
mjög mörg marktækifæri, en
heföi átt aó geta gert út um leik-
inn í fyrri hálfleik.
Þróttur fókk óskabyrjun — eöa
ættum viö frekar aö segja aö Fram
hafi byrjaö illa. Ásgeir Elíasson,
þjálfari Fram, skoraöi sjálfsmark
þegar aöeins 50 sekúndur voru
liönar af leiknum. Atli Helgason g?f
þá fyrir markiö og Ásgeir ætlaöi aö
skalla aftur til Friöriks í markinu en
ekki tókst betur til en svo aö bolt-
inn fór í markið. Svipaö mark og
Guöni Bergsson geröi á laugar-
daginn gegn Víöi.
Framarar voru nokkurn tíma aö
ná sér eftir þetta reiðarslag en
þeim tókst þó fljótlega aö ná und-
irtökunum í leiknum og sóttu þeir
án afláts það sem eftir var af fyrri
hálfleiknum. Pétur Ormslev átti
gott skot rétt yfir markiö á 9. mín-
útu, Guömundur Erlingsson,
markvöröur Þróttar, varöi vel gott
skot frá Ómari Torfasyni tíu mínút-
um síðar en hólt knettinum ekki og
Arnar Friöriksson bjargaöi í horn
rétt áöur en Fram tókst aö pota
boltanum yfir marklínuna.
Guömundur Torfason átti mjög
gott skot frá vítateig á 23. mínútu
en nafni hans Erlingsson bjargaöi
mjög vel meö því aö slá knöttinn í
stöngina og þaöan fór hann aftur
fyrir endamörk. Tíu mínútum síöar
varöi Guömundur enn einu sinni
mjög vel aö þessu sinni skot frá
Pétri Ormslev úr aukaspyrnu og á
sömu mínútu var Viðar Þorkelsson
i dauöafæri innan markteigs Þrótt-
ar en hitti knöttinn illa þegar hann
ætlaöi að skalla í netiö og úr varö
markspyrna.
Guömundur Steinsson átti gott
marktækifæri skömmu siöar en
Fram — Þróttur
1:1
Texti:
Skúli Sveinsson
Mynd:
Júlíus Sigurjónsson
hitti ekki boltann og skotiö fór
framhjá. Þetta færi kom eftir fal-
lega sókn þeirra Péturs, Ómars og
Guömundar Steinssonar. Fram
jafnaöi síöan metin á 43. mínútu.
Pétur Ormslev tók þá aukaspyrnu
sem dæmd var á Þrótt viö vita-
teigslinu. Hann vippaöi knettinum
fallega inn á Guömund Steinsson
sem snéri sér viö á punktinum og
skoraöi meö viöstöðulausu skoti
án þess aö Þróttur kæmi nokkrum
vörnum viö.
Síðari hálfleikur var hreint og
beint leiöinlegur á aö horfa. Fram
sótti nær látlaust i leiknum en vörn
Þróttar var sterk og gaf framlínu-
mönnum Fram aldrei neinn friö til
aö athafna sig. Ómar Torfason
fékk þau færi sem Fram fékk i síö-
ari hálfleik. Fyrst átti hann snöggt
skot úr miöjum vítateignum en
beint á Guömund markvörö og
síðan bjargaöi Ársæll í tvigang á
marklínunni þegar Ómar skallaöi
aö markinu.
Rétt undir lok leiksins munaöi
ekki nema hársbreidd aö Þrótti
tækist aö stela stigunum þremur.
Sverrir Pétursson og Atli Helgason
komust þá í hraöaupphlaup sem
endaöi meö skoti úr góöu færi frá
Sverri en framhjá. Þar meö lauk
leiknum meö jafntefli.
Þaö viröast vera álög á liöi
Fram, aö þegar þeir sækja mikiö í
leikjum sínum þá gengur þeim illa
aö skora mörk. í þeim leikjum sem
liðiö hefur haft nokkra yfirburöi og
sótt mikiö þá hafa þeir oftar en
ekki lent í miklu basli, og svo var
um þennan leik.
Pétur Ormslev, Guömundur
Steinsson og Viöar Þorkelsson
áttu allir góöan leik, en þeir Guö-
mundur Torfason og Ómar Torfa-
son voru lítt áberandi, Ársæll
Kristjánsson passaöi Guömund
mjög vel í leiknum. Ormarr Ör-
lygsson var í leikbanni og horföi
þvi aöeins á leikinn, Ásgeiri Elías-
son lék aftar á miöjunni en hann er
vanur og náöi sér ekki eins vel á
strik og oft áöur. Kristinn Jónsson
átti ágætan leik og þaö sama verö-
ur sagt um Þorstein Þorsteinsson.
Ekki var mikiö aö gera hjá Friörik
markveröi og er þetta trúlega einn
rólegasti leikur sem hann hefur
leikið lengi.
Hjá Þrótti var Ársæll bestur, hélt
Guömundi Torfasyni alveg i skefj-
um. Guömundur Erlingsson var
einnig góöur í markinu en úthlaup-
in hjá honum þegar veriö er aö
gefa knöttinn fyrir mættu þó vera
öruggari. Loftur lék vel, geysilega
sterkur skallamaöur, og Daöi
Haröarson átti góöan dag, reyndi
alltaf aö leika af skynsemi. Þeir Atli
og Sverrir sem voru frammi börö-
ust vel framan af leiknum en þegar
líöa tók á hurfu þeir alveg, enda
boltinn lítiö í námunda viö þá.
Nikulás Jónsson fékk þaö erfiöa
hlutverk aö gæta Guömundar
Steinssonar hjá Fram. Honum
tókst þaö ekki sem skyldi, braut
mikiö á Guðmundi, þó sjaldan illa,
en fékk fyrir bragöiö aö líta gula
spjaldiö. Guömundur er eldfljótur
og ef Nikulás gaf honum einhvern
tíma til athafna þá réð hann ekkert
viö Guömund.
I ituttu máli:
Valbjarnarvöllur 1. deild.
Fram — Þróttur 1:1 (1:1)
Mark Fram: Guömundur Steinsson á 43. min.
Marfc Þróttar: Sjálfsmark Asgeirs Eliassonar á
1. mínútu
Gul spjöld: Pétur Ormslev, Fram, og Nikulás
Jónsson, Þrótti.
Dómari: Friögeir Hallgrimsson og dæmdi hann
þokkalega.
Áhorfendur: 721
Einkunnagiöfin:
Fram: Frlörik Friöriksson 2, Þorsteinn Þor-
steinsson 3. Sverrir Einarsson 3, Kristinn
Jónsson 3, Guömundur Steinsson 3, Ómar
Torfason 2, Guömundur Torfason 2, Asgeir
Eliasson 2, Pétur Ormslev 3, Viöar Þorkelsson
3, örn Valdimarsson 2.
Þróttur: Guömundur Erlingsson 3, Kristján
Jónsson 3, Loftur Ólafsson 3, Arsæll Krist-
jánsson 4, Pétur Arnþórsson 3, Sverrir Pét-
ursson 2, Daöi Haröarson 3, Atli Helgason 2,
Björgvin Björgvinsson 2, Nikulás Jónsson 2,
Arnar Friöriksson 1.
Svekkjandi aö
skora ekki meira
— sagöi Guömundur Steinsson, fyrirliöi Fram
„UFF ... ég veit ekki hvaö ég i aó
segja um svona leik. Það var mjög
svekkjandi aö skora ekki meira í
leiknum. Viö vorum meö boltann
svona 70—80% af leiknum en tókst
ekki aö skora nema eitt mark, þaó er
ekki nógu gott,“ sagöi Guömundur
Steinsson, fyrirliói Fram, eftir leikinn
vió Þrótt.
„Maöur veröur Para aö vona hiö
besta úr þessu. Viö eigum tvo leiki
eftir og þaö dugar ekkert annaö en aö
vinna þá báöa, hin liöin geta vel tapaö
stigum í þeim leikjum sem eftir eru.
Viö veröum aö vinna þetta sjálfir og úr
því sem komiö er veröum viö líka aö
treysta á aö önnur liö taki stig af þeim
liöum sem eru í toppbaráttunni, fyrst
viö náum bara einu stigi hérna í dag,“
sagöi Guömundur.
Valsmenn á toppinn
— sigruðu Víði í skemmtilegum leik
VALUR sigraði Víði frá Garöi með
nokkrum yfirburöum á velli fé-
lagsins aö Hlíöarenda þegar liöin
mættust þar á laugardaginn í 1.
deildínni í knattspyrnu. Vals-
menn skoruðu þrjú mörk hjá Víói
og eitt hjá sjálfum sér. Valur haföi
mikla yfirburöi í leiknum og
heföu getað unnið mun stærra en
þeim gekk erfiðlega aö nýta þau
fjölmörgu marktækifæri sem þeir
fengu.
Viöismenn sóttu nokkuö fyrstu
minútur leiksins, og á 14. mínútu
skoruöu Valsmenn sjálfsmark eftir
eina sókn Víöis. Boltinn barst þá
inn i vítateiginn, Guöni Bergsson
ætlaöi aö skalla frá en Stefán Arn-
arson kallar til hans þannig aö
Guóni skallar til baka og ætlaði
Stefáni knöttinn, en ekki vildi betur
til en svo að boltinn fór í markiö og
Víöir haföi þar meö tekiö forustuna
í leiknum.
Eftir þetta var leikurinn Vals-
manna og þaö leið varla svo mín-
úta í fyrri hálfleiknum aö ekki gæf-
ist tækifæri aö grípa til minnisbók-
arinnar. Þaö voru Valsmenn sem
áttu hvert marktækifæriö af ööru
og aðeins fjórum mínútum eftir aö
Guöni skoraði í eigið mark jafnaöi
Heimir Karlsson metin fyrir Val.
Grimur Sæmundsen átti þá góöa
sendingu fram völlinn, Siguröur
Magnússon ætlaöi aö spyrna hon-
um fram en hitti ekki og Heimir var
fljótur aö átta sig, stakk sér inn
fyrir vörnina og skoraöi af öryggi
framhjá Gísla Heiöarssyni mark-
veröi Viðis.
Valsmenn áttu fjögur næstu
marktækifæri. Hllmar Haröarsson
skaut laust framhjá úr góöu færi,
Valur Valsson skallaöi laust í fang
Gísla úr mjög góöu færi, Þorgrímur
Þráinsson skallaöi síöan rétf yfir
eftir aö Guömundur Þorbjörnsson
haföi nikkaö knettinum fallega til
hans og Sævar Jónsson átti skalla
rétt framhjá eftir fallegan samleik
hans og Ingvars Guömundssonar.
Næstu tvö marktækifæri áttu
Viöismenn. Vilberg Þorvaldsson
skaut lúmsku skoti aö marki Vals
frá vítateigshorninu en Stefán var
vel á veröi og varöi fallega i horn.
Úr horninu var Gísli Eyjólfsson ná-
lægt því aö skora en Stefán var
fyrri til og handsamaöi knöttinn.
Stefán spyrnti frá marki sinu og
til Guömundar Þorbjörnssonar og
sendi gullfallega sendingu á Ingvar
• Heimir Karlsson skorar hér jöfnunarmark Vals (Mknum gagn V(öi að HKöarenda á laugardaginn. Heimir
komst inn fyrir vörn Víöis eftir varnarmistök og skoraöi framhjá Gísla Heióarssyni, markveröi Vtöis, sem
reyndi aö stööva hann meö því aö koma út é móti honum. Valsmenn eru nú einir í efsta sæti deildarinnar
þegar tvær umferöir eru eftir.
Valur — Víöir
3:1
Ciimauiiiua^——^
Texti: J
Skúli Sveinsson
Mynd:
Júlíus Sigurjónsson
Guömundsson. Ingvar tók vel á
móti sendingunni og skaut góöu
skoti sem Gisli rétt náöi aö verja í
horn.
Eftir hornspyrnuna fékk Valur
Valsson knöttinn, gaf fyrir markiö
þar sem Guömundur Þorbjörnsson
kom á móts viö nærstöngina og
sneiddi knöttinn fallega meö höfö-
inu í hliðarnetiö fjær.
Valsmenn höföu þó ekki sagt
sitt síöasta í fyrri hálfleik. Ingvar
átti gott skot rétt framhjá markinu,
Heimir komst í mjög gott færi en
skaut yfir og rétt undir lok fyrri
hálfleiks gaf Valur fyrir markiö og
Guömundur skallaöi rétt yfir. Þar
meö lauk einum fjörugasta fyrri
hálfleik sem um getur i sumar.
Síöari hálfleikurinn var öllu ró-
legri, enda ef til vill eins gott því
annars heföu skriffærin ekki dug-
aö. Gísli, markvöröur Viöis, varö
tvívegis aö taka á honum stóra sín-
um til að forða marki strax á fyrstu
mínútum síöari hálfleiksins. Fyrst
skalla frá Guðmundi Þorbjörnssyni
og siöan þegar Heimir komst einn
í gegnum vörnina.
Guömundur Þorbjörnsson, besti
maöur leiksins, skoraöi þriöja
mark Vals á 65. mínútu. Hilmar gaf
þá góöa sendingu á Heimi, sem lék
á Gisla Eyjólfsson og gaf fyrir
markið. Guömundur haföi nægan
tíma í vítateig Víöis, tók knöttinn
niöur og skoraöi með föstu skoti.
Níunda mark Guömundar í sumar
og er hann nú meö markahæstu
mönnum deildarinnar.
Fimm minútum siöar geröist
skringilegt atvik. Guömundur fékk
knöttinn út viö endamörk, innan
vítateigs Víöís. Hann snéri baki i
markiö og vippaði knettinum yfir
Guöjón Guðmundsson og var þar
meö kominn í gegn. Dómarinn
flautaði og dæmdi aö knötturinn
heföi snert hönd Guöjóns og benti
á vítapunktinn. Viöismenn mót-
mæltu ákaft og eftir aö dómarinn
haföi rætt viö línuvörð ákvaö hann
aö falla frá fyrri ákvöróun sinni og
dæmdi Víöi boltann. Skynsamleg
ákvöröun þvi hitt var tóm vitleysa.
Þaö sem eftir var leiksins fengu
Valsmenn ein fjögur marktækifæri
sem þeim tókst ekki aö nýta.
Magni átti gott langskot rétt fram-
hjá, Guðmundur átti tvö góö færi
en honum mistókst aö skora sitt
þriója mark í leiknum og Heimir
fékk gulliö tækifæri undir lok leiks-
ins en var óviðbúinn því aö fá
knöttinn og skallaöi laust í jöröina
og þaöan fór boltinn til Gísla í
markinu.
Eins og fyrr segir var fyrri hálf-
leikur þessa leiks sá fjörugasti sem
undirritaöur hefur séð lengi. Siöari
hálfleikurinn var ekki eins haröur
og skemmtilegur en engu aö síöur
leiddist engum aö horfa á hann.
Guömundur Þorbjörnsson átti
mjög góöan leik og þaö sama má
segja um Grim Sæmundsen, sem
nú er fyrir alvöru kominn í gott
form, og Ingvar Guömundsson.
Valsmenn voru einfaldlega mun
betri aðilinn i þessum leik og þeir
heföu getaö skoraö miklu fleiri
mörk. Viðisliöiö var óvenju dauft
og virtist sætta sig viö aö vera lak-
ari aðilinn. Baráttan, sem veriö
hefur aöal liðsins ásamt leikgleöi,
sást varla eöa aö minnsta kosti
mun minna en venjulega. Gísli stóö
fyrir sinu í markinu, Rúnar
Georgsson og Gisli Eyjólfsson
voru traustir í vörninni og Guöjón
baröist vel og það er alltaf eitthvað
spil í kringum hann.
Í STUTTU MÁLI:
Hliðarendavöllur 1. deild.
Valur — Viöir 3:1 (2:1)
Mörfc Val»: Heimir Karlsson á 18. min. og
Guömundur Þorb(örnsson á 31. og 65. minutu
Marfc Víöis: Sjálfsmark Guöna Bergssonar a
14. min.
Dómari: Þoroddur Hjaltalin og dæmdi hann
auödæmdan leik vel.
Áhorfendur: 490
EINKUNNAGJÖFIN:
Valur: Stefán Arnarson 2, Þorgrimur Þráins-
son 3, Guöni Bergsson 3. Sævar Jónsson 3,
Guömundur Þorbjörnsson 4, Valur Valsson 3,
Ingvar Guömundsson 4, Hilmar Haröarson 3,
Magni Pétursson 3, Grimur Sæmundsen 4,
Heimir Karlsson 2.
Víöir Gísli Heiöarsson 3, Rúnar Georgsson 3,
Ólafur Róbertsson 2, Siguröur Magnusson 1,
Guöjón Guömundsson 3, Vilberg Þorvaldsson
2, Guömundur Knútsson 1. Grétar Einarsson
2. Gisli Eyjólfsson 3, Klemens Sæmundsson 2,
Daniel Einarsson 2, Hjörtur Daviösson (vm. á
74. min.) 1.