Morgunblaðið - 25.03.1986, Page 37
Sigurvegararnir i stærðfræðikeppni framhaldsskólanema ásamt formanni dómnefndar. F.v. Sverrir
Þorvaldsson, Ágúst Sverrir Egilsson, Hákon Guðbjartsson og Reynir Axelsson, formaður dómnefnd-
ar í stærðfræðikeppninni.
Stærðfræðikeppniframhaldsskólanema:
Urslitakeppnin
— Rætt við sigurvegara í stærðfræðikeppninni
ÚRSLITAKEPPNI í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór
fram á laugardag og tóku 20 nemendur þátt í henni. Úrslit voru
kunngerð á sunnudag. Ágúst Sverrir Egilsson, nemandi í Mennta-
skólanum í Reykjavík, varð í efsta sæti og hlaut hann fyrstu
verðlaun, 12.500 kr. í öðru sæti var Hákon Guðbjartsson, MR,
og hlaut hann önnur verðlaun, 10 þúsund kr. í þriðja sæti varð
Sverrir Þorvaldsson, MR, og hlaut hann þriðju verðlaun, 7 þúsund
kr. í 4. til 10. sæti voru: Geir Agnarsson, MR, Fjóla Rún Björns-
dóttir, MH, Guðrún Birna Guðmundsdóttir, MA, Ári Kristinn Jóns-
son, MR, Gylfi Magnússon, MR, Kristján Magnús Arason, MR, og
Hallbjörn Karlsson, MR.
Þetta er í annað sinn sem
stærðfræðikeppnin fer fram hér á
landi. Að keppninni standa ís-
lenska stærðfræðifélagið og Félag
raungreinakennara, en hún er
kostuð af IBM á íslandi. Þá
styrktu Flugleiðir keppnina að
þessu sinni og Hið íslenska bók-
menntafélag gaf hinum 10 sem
bestum árangri náðu bókina Máls-
vöm stærðfræðings eftir Godfrey
Harold Hardy í viðurkenningar-
skyni.
Þeir sem bestum árangri náðu
í stærðfræðikeppninni og hafa
ekki náð tvítugsaldri þegar
Ólympíukeppni í stærðfræði fer
fram næsta sumar, koma til álita
til keppni þar fyrir íslands hönd.
Að þessu sinni fer Ólympíukeppn-
in í stærðfræði fram í Varsjá í
Póllandi. Enn hefur ekki verið
ákveðið hveijir munu keppa þar
fyrir hönd Islands en í ráði er að
senda tvo keppendur til keppninn-
ar.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við hina þrjá efstu í úrslita-
keppninni og var sigurvegarinn,
Ágúst Sverrir Egilsson, fyrstur
tekinn tali. Ágúst varð í öðm
sæti í stærðfræðikeppninni í fyrra
og keppti fyrir hönd íslands í
Ólympíukeppninni sem fram fór í
Finnjandi sl. sumar. Þess má geta
að Ágúst Sverrir varð annar í
Eðlisfræðikeppni framhaldsskóla-
nema sem fram fór fyrir skömmu.
KEPPNIN GETUR
SKAPAÐ NEMEND-
UMTÆKIFÆRI
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með árangurinn núna en ég kem
ekki til álita um að keppa í Olymp-
íukeppninni þar sem ég er orðinn
of gamall “ sagði Ágúst. „Ég
keppti í Ólympíukeppninni sem
fram fór í Jouts í Finnlandi í fyrra
- það voru hrikalega þung dæmi
sem þar voru lögð fyrir keppend-
ur. Við sem kepptum fyrir hönd
íslands náðum sæmilegum
árangri enda höfðum við fengið
mikinn undirbúning.
Það er skemmtilegt að taka
þátt í keppni sem þessari og svo
getur maður lært mjög mikið á
því. Það getur líka skapað nem-
endum tækifæri að standa sig vel
í Ólympíukeppni - það er fylgst
með Ólympíukeppninni af ýmsum
menntastofnunum víða um heim
og úrslit birt í ýmsum tímaritum
sem háskólar gefa út. Þeir sem
náð hafa langt í Ólympíukeppn-
inni hafa margir fengið ókeypis
skólavist í löndum þar sem þarf
að greiða skólagjöld og þeir hafa
líka meiri möguleika á að fá styrki
en aðrir. Ég held líka að þátttaka
íslendinga í keppnum sem þessum
sé góð landkynning, og ef okkur
tekst að ná góðum árangri skipar
það íslandi vissan sess meðal
annarra þjóða," sagði Ágúst.
Ágúst ætlar að heíja nám í Há-
skóla íslands í haust en hefur
ekki enn gert upp við sig hvaða
grein hann muni leggja stund á.
Stærðfræði er eitt af aðal áhuga-
málum hans og ætlar hann að
leggja stund á háskólanám sem
tengist henni.
DÆMIN í ÚRSLITA-
KEPPNINNIEKKI
ÞUNG
„Stærðfræðikeppnin fór mjög
vel fram að þessu sinni og var
skemmtilegri en í fyrra vegna
þess að nú voru þátttakendur
miklu fleiri," sagði Hákon Guð-
bjartsson MR sem keppti fyrir
hönd íslands í Ólympíukeppninni
í Finnlandi í fyrra ásamt Ágúst
Sverri. „Dæmin í úrslitakeppninni
voru ekki eins þung og við höfðum
búist við. Sjálfur er ég ánægður
með þann árangur sem ég náði
að þessu sinni, því ég eyddi miklu
minni tíma í undirbúning en í
fyrra. Dæmin sem við áttum að
leysa í Ólympíukeppninni í Finn-
landi voru mjög erfið viðfangs -
maður hefði helst þurft að vera
með háskólapróf til að geta leyst
þau.
- Er stærðfrasðin áhugamál
hjá þér?
„Já, ég hef fengist töluvert við
stærðfræði í frístundum og vinn
reyndar við að semja tölvuforrit.
Reyndar reyna þessi viðskiptafor-
rit sem ég hef samið ekki mjög
mikið á stærðfræðikunnáttu en ég
hef áhuga á_því að læra meira á
þessu sviði. Ég hef enn ekki gert
upp við mig hvort ég fer í raf-
magnsverkfræði eða stærðfræði
og tölvufrasði í háskóla, en sem
stendur hef ég mestan áhuga á
þessum greinum."
MJÖGGAMANAÐ
TAKAÞÁTTÍ
KEPPNINNI
„Það kom mér á óvart hve
dæmin í úrslitakeppninni voru
létt,“ sagði Sverrir Þorvaldsson,
MR. „Dæmin í forkeppninni skipt-
ust eiginlega í tvennt, það voru
tiitölulega létt dæmi og svo dæmi
sem voru mjög erfíð viðfangs. Það
hefur verið mjög gaman að taka
þátt í þessu og keppnin hefur farið
mjög vel fram.
- Nú virðist öruggt að þér
verði boðið að taka þátt í Ólympíu-
keppninni í Póllandi í sumar, þar
sem þeir í efstu sætunum eru
báðir orðnir tvítugir - hvemig líst
þér á að fara í Ólympíukeppnina?
„Mér líst bara vel á það — mér
skilst að þeir sem fara í Ólympíu-
keppnina fái mikla þjálfun hjá
aðstandendum keppninnar þannig
að þátttakan kostar töluverða
fyrirhöfn. En það hlýtur að vera
mjög skemmtilegt að kynnast
jafnöldrum sínum frá öðrum lönd-
um sem hafa svipuð áhugamál
og eins hlýtur að vera gaman að
komatil Póllands."
- Er stærðfræði áhugamál
hjá þér?
„Já, áhugi fyrir stærðfræðinni
vaknaði eiginlega þegar ég fór
að fást við að forrita tölvur. Ég
hef áhuga á að læra meira í tölvu-
fræði en hef þó ekki tekið neina
ákvörðun um hvaða grein ég mun
leggja stund á í háskóla," sagði
Sverrir.
Flókagata 53, öðru nafni Hliðabær.
Setustofa í hinu nýja húsnæði.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1986
Selveiðar við
Island
Fram hefur verið lagt stjómar-
frumvarp um selveiðar við ísland
(endurflutt). Samkvæmt fmmvarp-
inu annast Hafrannsóknastofnun
rannsóknir á selum við landið. Sjáv-
arútvegsráðuneytið hafi yfirumsjón
allra mála er selveiðar varða, sam-
anber þó ákvæði laga um lax- og
silungsveiði.
Samkvæmt frumvarpinu hafa
landeigendur einir heimild til sel-
veiða og ráðstöfunarréttar þeirra í
landareign sinni. Landeigandi á rétt
til slíkra veiða 115 metra á haf út
frá stórstraumsfjörumáli fyrir landi
sínu og eru það netlög hans. Öllum
íslenzkum ríkisborgurum em sel-
veiðar heimilar utan landareigna
og netlaga, samanber þó 1. grein,
sem fjallar um yfimmsjón sjávarút-
vegsráðuneytis.
Ráðherra getur sett reglur um
framkvæmd laganna; bannað veið-
ar á tilteknum svæðum eða tak-
markað þær við ákveðinn tíma.
Hann getur einnig friðað ákveðnar
tegundir sela eða ákveðið fjölda
þeirra sela er veiða má af einstökum
tegundum. Þá getur hann sett
reglur um veiðiaðferðir, ákveðið
hvemig gengið skuli frá drepnum
selum og sett reglur um veiðar í
vísindalegum tilgangi.
Fjárhagsleg sam-
skipti ríkis og
sveitarfélaga
Fimm þingmenn úr stjómar-
flokkunum, Alþýðuflokki og Al-
þýðubandalagi hafa lagt fram til-
lögu um fjárhagsleg samskipti ríkis
og sveitarfélaga. Fyrsti flutnings-
maður er Davíð Aðalsteinsson
(F.-Vl.). Tillagan felur íjármálaráð-
herra, verði hún samþykkt, í sam-
vinnu við einstök ráðuneyti og
Samband íslenzkra sveitarfélaga,
„að láta gera yfirlit um fjarhagsleg
samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Greint verði milli samskipta er lúta
að framkvæmdum annars vegar og
rekstri og ýmissi þjónustu hinsveg-
ar. Fram komi skuldbindingar og
fjárhagsstaða hvors aðila fyrir sig
miðað við árslok 1985. Greinargerð
um þetta efni verði lögð fyrir Al-
þingi með fmmvarpi til fjárlaga
fyrirárið 1987“.
í greinargerð segir að nauðsyn-
legt sé að árlega „liggi fyrir yfírlit
um fjárhagsskuldbindingar ríkis og
sveitarfélaga. Það yrði ótvírætt til
hagræðis og einföldunar allri máls-
meðferð fyrir fjárveitinganefnd
Alþingis . . .“.
Stærri
gjaldskrársvæði
símans
Sjö þingmenn Framsóknarflokks
(fyrsti flutningsmaður Davíð Aðal-
steinsson) flytja þingsályktunartil-
lögu sem felur ríkisstjóminni, verði
hún samþykkt, að „gera nú þegar
ráðstafanir til að gjaldskrársvæði
símans verði stækkuð þannig að í
meginatriðum gildi sami gjaldflokk-
ur innan sérhvers athafna- og við-
skipta- eða greinistöðvasvæðis".
Greinistöðvasvæði em nú 20
talsins.
Sj ómannadagur
lögskipaður
Tveir þingmenn Alþýðuflokks,
Eiður Guðnason og Karl Steinar
Guðnason, flytja fmmvarp til laga
um frídag sjómanna. Fyrri fmm-
varpsgreinin kveður á um að „fyrsti
sunnudagur í júnímánuði ár hvert
skuli vera almennur frídagur sjó-
manna“. Sú síðari að lögin öðlist
þegar gildi.
I greinargerð segir að það sé
gamalt baráttumál sjómanna að fá
lögskipaðan fridag. Þar sem ekki
bóli á fmmvarpi frá ríkisstjóminni
um þetta efni hafi flutningsmenn
kosið að hafa fmmkvæði þar um.
STUTTAR ÞINGFRÉTTIR