Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988
3
Jónína Guðrún Signrðardóttir og Sigurður Steinar Sigurðsson.
Létust af slysf örum
Ungmennin, sem létust í um-
ferðarslysi við brúna yfir
Mjósund í Hraunsfirði á Snæ-
fellsnesi á föstudag, hétu Sigurð-
ur Steinar Sigurðsson, skipstjóri,
og Jónina Guðrún Sigurðardótt-
ir.
Sigurður Steinar var 25 ára gam-
all, fæddur 1. janúar árið 1963.
Jónína Guðrún var tæplega 19 ára
gömul, fædd þann 9. mars árið
1969. Þau voru í sambúð og bjuggu
að Grundarbraut 12 í Ólafsvík.
O'
INNLENT
Tap refabænda 80
prósent af tekjum
Starfshópur landbúnaðarráðherra
vinnur að tillögugerð um lausn
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað starfshóp til að gera til-
lögur um lausn á vanda refa-
bænda. Hópurinn á að skila áliti
á miðvikudag. Refabúin hafa
verið rekin með halla í 2—3 ár.
Sautján refabændur hafa þegar
hætt með refi í vetur og að sögn
Jóns Ragnars Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Sambands ís-
lenskra loðdýraræktenda, munu
fleiri gefast upp ef aðstæður
breytast ekki til batnaðar.
Miðað við verð á uppboðum í
desember fá íslenskir refabændur
1.850 krónur fyrir hvert skinn að
meðaltali. Ekki eru taldar líkur á
að mikil breyting verði á næstu
uppboðum. Kostnaðurinn er aftur á
móti áætlaður 3.330 krónur á hvert
skinn. Tapið af framleiðslu hvers
skinns er því 1.480 krónur, sem er
80% af tekjum. Tekjurnar duga
aðeins rétt rúmlega fyrir fóður-
kostnaði, sem er 1.420 krónur á
skinn, og kostnaði við verkun
skinna, sem er 350 krónur. Þá er
eftir að greiða annan kostnað, svo
sem vexti af afurðalánum, sölulaun
og sjóðagjöld, sem nema 590 krón-
um á hvert refaskinn, fastakostnað
590 krónur og laún, 690 krónur.
Beinn útlagður kostnaður bóndans,
það er að segja kostnaður fyrir utan
laun og fymingar, er 2.250 krónur
og er því beint peningalegt tap af
hverju skinni 400 krónur.
Jón Ragnar sagði að forystu-
menn refabænda hefðu verið að
funda um stöðuna að undanfömu.
Á fundi ráðherra hefði verið bent
á nokkrar leiðir til að halda starf-
seminni gangandi: Að greiða
framleiðslusstyrki á hvert framleitt
skinn, að greiða niður refafóðrið,
að breyta lausaskuldum í föst lán,
að draga úr refarækt og auka
minkarækt þar sem verðið er betra
eða að endurfjármagna fóðurstöðv-
amar þannig að fjármagnskostnað-
ur jieirra dreifist á lengri tíma.
I starfshópi landbúnaðarráðherra
eru auk fulltrúa ráðuneytisins menn
frá Sambandi íslenskra loðdýra-
ræktenda, Byggðastofnun, Stofn-
lánadeild landbúnaðarins og
Búnaðarfélagi íslands.
Mesta frost í 70 ár
MESTA frost sem mælst hefur
á landinu í 70 ár mældist á
Möðrudal aðfaranótt siðastlið-
ins laugardags eða 32,5 stig og
32 stig aðfaranótt sunnudags.
Mesta frost sem mælst hefur
hér á landi er 37,9 stig. Það
var frostaveturinn 1918 á
Grimsstöðum á Fjöllum.
Samkvæmt upplýsingum frá
veðurstofunni mældist 32 stiga
frost á nokkram bæjum í Mý-
vatnssveit og er það mesta frost
sem þar hefur mælst til þessa.
Á þeim veðurathugunarstöðv-
um, þar sem fram fara reglulegar
veðurathuganir, mældist mest
frost frá sunnudegi til mánudags
á Hveravöllum, 26 stig, á Staðar-
hóli í Aðaldal 25 stig og 22 stig
á Egilsstöðum.
Búast má við að dragi heldur
Um og yfir
30 stiga frost
Björk, Mývatnssveit.
UNDANFARNA daga hefur
verið allhart frost hér í Mý-
vatnssveit og mælst um og yfir
30 stig.
Ekki hafa menn þó sérstaklega
kvartað undan kuldanum, enda
logn. Vélknúin ökutæki, er úti
hafa staðið, hefur reynst erfitt að
gangsetja og eitthvað hefur frosið
í vatnslögnum.
— Kristján
úr frosti sunnanlands í dag og
má reikna með 3 til 4 stiga frosti
í Reykjavík en svipaður kuldi
verður áfram á Norðausturlandi.
Áþorrablót
á vélsleða í
32 stiga frosti
VERNHARÐUR Vilhjálmsson, bóndi á Möðrudal, fór ásamt konu
sinni, Önnu Birnu Snævarsdóttur, á vélsleða um 50 kOómetra
leið á þorrablót á Vopnafirði síðastliðinn laugardag. Frostið var
rúmlega 28 stig þegar lagt var af stað, en 32 stig daginn eftir
þegar haldið var heimleiðis. Þeim varð ekki meint af nema
Veraharð kól lítillega í andliti þrátt fyrir að hann væri með
grímu. Fram að morgni mánudags hafði frostið ekki farið niður
fyrir 28,5 stig á Möðrudal, sem er óvenjulega langur frostakafli,
að sögn Vernharðs.
Til Vopnafjarðar frá Möðradal
era um 80 kílómetrar og var sleð-
anum ekið áleiðis þegar haldið var
á þorrablótið. Þegar kom á
Vopnaijorð var sleðinn geymdur
inni yfír nóttina og ekið með þau
hjónin og sleðann inn að fjalli
daginn eftir. „Það var komið 32
stiga frost þegar við komum heim
aftur á sunnudag," sagði Vem-
harður. „Við voram mjög vel búin
og okkur gekk vel þrátt fyrir hvas-
sviðri á leiðinni upp úr Vopnafirði
en svo var logn á heiðinni."
Daginn áður höfðu þau farið
nokkum spöl á bíl með sleðann,
en á heimleiðinni var of kalt til
að hægt væri að gangsetja bílinn
þar sem hann hafði verið skilinn
eftir á heiðinni daginn áður. „Það
fer ekki nokkur díselbíll í gang í
svona frosti, en vélsleðinn dugar
betur enda var hann geymdur í
húsi,“ sagði Vemharður. „Það
getur verið erfitt fyrir fólk að
átta sig á hvemig er að vera í
svona miklu frosti og hvað ber
að varast. Þegar maður býr á
svona stað er nauðsynlegt að
þekkja sín takmörk og vita hvem-
ig best er að búa sig í svona ferð.
Við voram að hugsa um að fara
á fjórhjóli fyrst en það er svo
miklu kaldara að sitja á því. Þess
vegna tókum við sleðann, sem er
með hlíf framan á. Á honum er
hægt að hafa fætuma í skjóli og
hita frá vélinni en það er mjög
gott að geta haldið hita á fótunum
í svona miklum kulda.“
Ferðalangamir dúðuðu sig inn-
an undir snjógallana og sagði
Vemharður að hitinn hefði verið
„í lagi“ enda tók ferðin ekki nema
um eina og hálfa klukkustund
hvora leið.
Lágt.verð á erlend-
um fiskmörkuðum
Skilaverð fyrir þorsk svipað lágmarksverði hér heima
UMTALSVERT framboð á fiski
úr gámum héðan er nú í Bret-
landi. Alls verður selt þar úr um
100 gámum f þessari viku, en
aðeins um 200 tonn úr fiskiskip-
um. Heildarframboð er þvi ekki
Stöðug fjölgun er á
villtum ref og mink
Tilraunir hafnar með rafmagns-
girðingar til að bægja lágf ótu frá
VILLTUM refuiu og minkum
virðist fjölga um mestallt land,
samkvæmt upplýsingum Páls
Hersteinssonar veiðistjóra.
Veiðiskýrslur siðasta árs liggja
ekki fyrir en upplýsingar um
fjölgunina fær veiðistjóraemb-
ættið m.a. frá veiðimönnum.
Árið 1986 var metár hér í minka-
veiðum, er um 5.200 dýr vora unnin
en Páll telur að enn fleiri dýr hafi
verið veidd á siðasta ári. Árið 1985
voru tæplega 4.300 minkar veiddir
og um 3.500 árin þar á undan.
Stofninn virðist fara stækkandi um
allt land og er það sérstaklega
áberandi fram til heiða og á hálend-
inu. Páll telur að mildara veðurfar
sé líklegasta ástæða stækkunar
minkastofnsins.
Ref hefur fjölgað um vestanvert
landið í mörg ár, frá Reykjanesi
til Vestflarða að báðum héraðum
meðtöldum^ og virðist ekkert lát
hafa orðið þar á á síðasta ári. Sömu
sögu er að segja af Suð-Austurl-
andi og nú verða menn einnig varir
við fjölgun á Norð-Austurlandi og
sums staðar á annesjum norðan-
lands. Á áranum 1984—86 voru
veidd 1.900 til 2.000 refir á
landinu, en árin þar á undan vora
veiddir 1.600— 1.700 refir.
Minkaveiðar i Mjóey.
Um viðbrögð veiðistjóraembætt-
isins við þessu sagði Páll að
aðalatriðið væri að halda í horfínu
með veiðamar. Ekki væri fyrir-
hugað að auka þær, enda væri það
mjög kostnaðarsamt. Þá þyrfti að
leggja áherslu á að koma í veg
fyrir tjón af völdum refa og minka.
Á Ferstiklu í Hvalfírði er verið
að gera tilraun með að setja raf-
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
magnsgirðingu utan um æðarvarp
til að bægja tófu frá og fylgist
veiðistjóri grannt með þeirri til-
raun. Hann telur að ef sú aðgerð
reynist vel geti hún markað tíma-
mót í vömum gegn ref í æðarvarpi.
Páll hefur hug á að setja upp kvik-
myndavél sína við girðinguna til
að fylgjast með lágfótu og áhrifum
girðingarinnar.
mjög míkið héðan, en aukinn
afli úr Norðursjó og Eystrasalti
eykur framboðið verulega. Verð
fyrir fiskinn er því lágt, tæpast
hærra en gildandi lágmarksverð
hér, þegar kostnaður hefur verið
dreginn frá uppboðsverðinu.
Verð, fyrir þorsk úr gámum í
Bretlandi í gær var að meðaltali
56,33. krónur. Að minnsta kosti
má reikna með 20 króna kostnaði
á hvert kfló/ líklega meira, en lág-
marksverð fyrir smáan þorsk hér
heima er um 32 krónur.
Alls vora seld 408 tonn úr gám-
um héðan í Bretlandi í gær. Sá
fiskur fór utan með flutningaskip-
inu ísbergi og er frá Vestfjörðum.
Heildarverð var 23,6 milljónir
króna, meðalverð 57,71. Meðalverð
fyrir þorsk var 56,22 og ýsu 85,36.
Þá seldi Garðey SF 74,5 tonn í
Hull. Heildarverð var 5,6 milljónir
króna, meðalverð 75,81. Meðalverð
fyrir þorsk var 67,43, ýsu 82,03
og kola 66,51.
Framboð héðan í Þýzkalandi í
þessari viku er fremur lítið, enda
hefur karfaafli verið lítill hér við
land að undanfömu. Ögri RE selur
um 150 tonn í dag og Snorri Sturlu-
son RE 160 á fimmtudag. Auk þess
verður selt úr örfáum gámum.