Morgunblaðið - 27.09.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988
Bifreiðaskoðun íslands hf.:
Framkvæmdastj ór-
inn ráðinn í dag?
í DAG verður væntanleg-a gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra
Bifreiðaskoðunar íslands hf., en umsækjendur um stöðuna eru sex
talsins. Stjórn Bifreiðaskoðunar íslands hefur ekki viljað greina frá
hverjir umsækjendurnir eru.
Bifreiðaskoðun íslands hf. var
stofnuð í júlí síðastliðnum og er
henni ætlað að taka við verkefnum
Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Að sögn Hauks Ingibergssonar,.
sem sæti á í stjóm Bifreiðaskoðun-
ar íslands hf., hefiir verið unnin
mikil undirbúningsvinna undanfarið
á vegum stjómar fyrirtækisins, en
ekki hefði þó enn verið tekin endan-
leg ákvörðun um hvort byggð verð-
ur stór skoðunarstöð í Reykjavík,
eins og rætt hefur verið um.
Eitt af fyrstu verkefnum nýs
framkvæmdastjóra verður að móta
íjárhagslegan gmnn fyrirtækisins,
en gert er ráð fyrir því að helstu
tekjustofnar þess til að byija með
verði skoðunargjöld og bflnúmera-
sala, en Bifreiðaskoðun íslands mun
bera hitann og þungann af númera-
kerfisbreytingunni sem væntanleg
er.
„Því verður hraðað svo sem kost-
ur er að þetta nýja fyrirtæki taki
við verkefnum Bifreiðaeftirlitsins,
en það verður þó væntanlega ekki
fyrr en á áliðnu næsta ári. Það er
þó nauðsynlegt að ákveða einhveij-
ar dagsetningar varðandi þetta sem
fyrst, því öll óvissa í þessu sam-
bandi er mjög erfið fyrir alla við-
komandi aðila," sagði Haukur Ingi-
bergsson.
JL-markaði lokað
JL-MARKAÐINUM var lokað
fyrirvaralaust klukkan rúmlega
Qögur í gærdag. Ekki tókst að
ná sambandi við forráðamenn
fyrirtækisins en ljóst er að lok-
unin er tilkomin vegna mikilla
greiðsluörðugleika fyrirtækis-
ins. Starfsfólkinu, 30 að tölu,
var sagt að það þyrfti ekki að
koma til vinnu í dag. Því hefur
hinsvegar ekki verið sagt upp
störfiim.
Gunnar Bjartmarz deildarstjóri
matvöru í JL segir að fundur hafi
verið haldinn með starfsfólkinu í
gærkvöldi. Þar hafí hinsvegar ekki
verið gefín nein svör um ástæður
þess að JL var lokað án fyrirvara,
aðeins sagt að vonast væri til að
markaðurinn yrði opnaður fljót-
lega aftur.
Samhliða því að JL-markaðin-
um var lokað var öðrum verslunum
í húsinu, bakaríinu og verslunum
í porti hússins tilkynnt að JL-
greiðslukortin væru ekki gild leng-
ur.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst Morgunblaðinu ekki að ná
sambandi við forráðamenn JL-
hússins.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Til vinstri er Vökustaurinn. Á hægri myndinni sýnir Sigmar Eðvarðsson, formaður slysavarnar-
sveitarinnar Þorbjörn i Grindavík, Sævari Gunnarssyni, formanni Sjómanna-og vélstjórafélagsins
í Grindavík, Vökustaurinn og útskýrir hvernig hann vinnur.
Vökustaur — nýtt örygg-
istæki í bru skipa og báta
Crindavík. ^1 ^
Grindavík.
VÖKUSTAUR heitir nýtt örygg-
istæki í skip og báta sem fyrir-
tækið Davíð Gfslason sf. á Akur-
eyri hóf framleiðslu á fyrir
skömmu i samvinnu við Slysa-
vamarfélag íslands. Tækið, sem
er rafeindatæki, er hannað til
að koma í veg fyrir að stjóm-
endur skipa og báta sofni við
stjómvölinn eftir langan vinnu-
kynningu á tækinu sem Slysa-
vamarfélagið sendir slysavamar-
sveitum allt í kringum landið þessa
dagana, en þær munu annast söl-
una og fá ágóðahlut, segir að tæk-
ið sé tímastillt og þannig útbúið
að það gefur fíá sér tón sé ekki
ýtt á tónhnappinn á því. Skipstjóm-
armaður verður af skiljanlegum
ástæðum að vera vakandi til að ýta
á hnappinn, en við tækið er hægt
að tengja aukabjöllu sem er stað-
sett annars staðar í skipinu sem
þá vekur aðra áhafnarmeðlimi ef
stjómandinn í brúnni hefur sofnað.
Ef einn maður er skilinn eftir
við stjómvölinn þá ræsir sá er yfír-
gefur stýrishúsið Vökustaurinn og
tekur með sér lykilinn. Vökustaur-
inn vinnur í fímm þrepum og er
hægt að ráða lengd tíma á fyrsta
þrepi með innri stillingu.
Að sögn Sævars Gunnarssonar
formanns Sjómanna-og vélstjórafé-
lags Grindavíkur er þetta nýja tæki
mjög til bóta enda væm talandi
dæmi um óhöpp sem þetta tæki
hefði getað forðað víða í nágrenni
Grindavíkur.
„Ég er á móti þessu tæki ef það
verður til að fækka um einn mann
í brúnni þar sem venjulega em
tveir menn á vakt, en þar sem er
einn maður á vakt eins og er í all-
flestum bátum allt í kringum landið
er það til bóta og fagna ég því,“
sagði Sævar.
Sævar ætlar að beita sér fyrir
því að þetta tæki verði kynnt mjög
rækilega á Sjómannasambands-
þingi sem hefst seinna í vikunni .
_____ Kr.Ben
Morgunblaðið/Silli
Á Húsavík gekk á með norðanátt og siyóéijum um helgina, og var hvitt að sjá til fjalla og grátt orðið
i rót frá Qalli til fjöru. Eftir i meðallagi gott sumar, sem oft var þó rysjótt með köflum, þykir
Húsvikingum nokkuð snemmt ef vetrarveðráttan er i garð gengin, en eidri ibúar eru þó margir
hveijir á þeirri skoðun að veðurlagið um helgina boði gott haust.
Snjókoma á norðausturlandi um helgina
VÍÐA á norðanverðu landinu,
einkum norðaustanlands, snjó-
aði í norðanáttinni um helgina,
og varð á nokkrum stöðum
þungfært af þeim sökum. Að
sögn Vegaeftirlitsins var hafist
handa við hreinsun vega í gær-
morgun og var þá unnið að því
að opna allar meginleiðir.
Á Öxnadalsheiði voru nokkur
snjóþyngsli um helgina, en þar
var hreinsað og saltborið í gær-
morgun. Þá var þungfært í gær-
morgun um Víkurskarð, og veg-
imir um Hólssand og Axaifyarðar-
heiði vom lokaðir allri umferð
vegna ófærðar, en fært var með
ströndinni. Möðrudalsöræfi voru
einungis fær stóram bílum og
jeppum. Fjarðarheiði, Fagridalur
og vegurinn yfír í Mjóaflörð urðu
þungfærir og erfíðir yfírferðar,
en unnið var að því að hreinsa þá
í gær.
Arnar Sigurmundsson formaður fískvinnslustöðvanna:
Fiskvmnslan tapar
2 milljörðum á ári
ÁRLEGT tap fískvinnslunnar miðað við núverandi rekstrarstöðu
er talið nema um tveimur milljörðum króna. Auk þess hefúr vinnsl-
an fengið á þessu ári um einn miHjarð, erlend og innlend lán, að
mestu tíl skuldbreytingar. Arnar Sigurmundsson, formaður stjórn-
ar Samtaka fiskvinnslustöðvanna, segir í samtali við Morgun-
blaðið, að til þessa verði að taka tillit, þegar leysa eigi rekstrar-
vandann. Ekki verði nóg að koma rekstrarstöðunni rétt yfír núll-
ið, þvi peningar verði að fást fyrir því tapi, sem stjómvöld hafi
skyldað menn tíl með aðgerðarleysi sínu.
Áhyggjur fískverkenda fara
vaxandi vegna langvarandi tap-
rekstrar. Þorsteinn Ásgeirsson,
framkvæmdasijóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar hefur sagt upp starfs-
fólki sínu frá og með 14. október
næstkomandi. Hann segir að
stjómmálamenn hafí ekki viljað
horfast í augu við vandann og því
sé útlitið nú verra en það hafi
verið í marga áratugi. Hann segir
að til að leysa vandann þurfí 20
til 25% gengisfellingu, verðstöðv-
un og aftengingu lánskjaravísi-
tölunnar.
Ámi Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Félags Sambands-
frystihúsa segir það stefnuna hjá
félagsmönnum að þrauka sem
lengst og láta utanaðkomahdi að:
ila um að stöðva reksturinn. í
síðustu viku hafí staðan verið
metin svo, að af 24 húsum, sem
hann hafí rætt við, hafí 18 verið
að stöðvun komin.
Aðrir, sem Morgunblaðið ræddi
við, sögðu á þá leið að dráttur
fráfarandi stjómar á aðgerðum í
þágu fískvinnslunnar væri ábyrgð-
arleysi og menn hefðu verið
„teymdir áfram á asnaeyrunum,"
eins og Guðni Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Grundatfyarðar orðaði það.
Sjá nánar viðtöl við fimm
fúOtrúa fiskvinnslunnar á bls.
24 og 25.
Noregur:
íslendingur ferst í slysi
íslendingur fórst í bUslysi um
miðjan dag á föstudag við bæinn
Voss í Noregi. íslendingurinn,
Magnús Gunnlaugsson, var að
koma úr vinnu er slysið varð.
Mikið vatnsveður var og vegir
þvi hálir af bleytu. Ökumaður
bifreiðar sem ók á móti bifreið
Magnúsar mun hafa misst stjórn
á bifreið sinni með þeim afleið-
ingum að hún fór yfir á vegar-
helming Magnúsar og utan í bif-
reið hans. Magnús mun hafii lát-
ist samstundis.
Magnús Gunnlaugsson var lærð-
ur bifvélavirki og vann hann hjá
Ford-umboðinu í Voss. Hann var
35 ára gamall og lætur eftir sig
eiginkonu, Önnu Sæunni Magna-
dóttur Gunnlaugsson, og þijú ung
böm. Magnús var fæddur á Akra-
nesi, sonur hjónanna Selmu og
Gunnlaugs Magnússonar. Magnús Gunnlaugsson