Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988
„Allt l Iclq'i • þú geiur haett ab gefa mericf
um v/ins-tribeygju núna."
*
Ast er...
... að reyna að muna
hvernig súkkulaði hún
vill.
TM Reg. U.S. Pal Off. — all nghts reserved
° 1988 Los Angeles Times Syndicaie
Með
morgunkaffmu
Ekki átt þú japanskt yen?
HÖGNI HREKKVlSI
Hættum að veiða hvali!
Til Velvakanda.
Nýjustu fréttir herma að skóla-
yfirvöld í Boston í Bandaríkjunum
hafi tekið ákvörðun um að hætta
að kaupa íslenskan fisk til að hafa
í skólamötuneytum þar í borg.
Astæður þessarar ákvörðunar eru
að sjálfsögðu hinar alræmdu hval-
veiðar íslendinga.
Hvað ætla íslendingar að halda
þessari vitleysu lengi til streitu?
Þessi þijóska væri skiljanleg ef
hvalveiðar væru okkar helsta lifi-
brauð. Það sér hver heilvita maður
að við verðum að draga okkur í
hlé áður en Greenpeace og önnur
glæpasamtök verða búin að eyði-
leggja öll viðskiptasambönd fyrir
okkur. Fiskveiðar og fisksala er
það sem heldur lífínu í þjóðinni
þótt margir hafi eflaust gleymt því.
Ekki þarf að leita langt til að
sjá hvemig áróðurinn getur eyði-
lagt fyrir einni þjóð. Gott dæmi
eru eskimóamir í Grænlandi. Gre-
enpeacemenn og fleiri hafa reynd-
ar viðurkennt að þar voru gerð
reginmistök. Það viðurkenndu þeir
þó ekki fyrr en þeir höfðu gert
selskinn að óseljanlegri vöru og
nú verða eskimóamir að gjöra svo
vel að finna sér eitthvað annað að
gera en að veiða seli. Þeirra veiðar
höfðu þó aldrei ógnað selastofnin-
um.
Aðgerðir gegn okkur em órétt-
látar eins og aðgerðir gegn eskimó-
unum vom óréttlátar á sínum tíma.
Munurinn er aðeins sá að við höf-
um tækifæri til að snúa við. Ætla
Islendingar virkilega að vera svo
heimskulega stoltir að láta þetta
eyðileggja fyrir sér eða ætla þeir
að sýna kænsku og hætta að veiða
hvali?
Við verðum að viðurkenna þá
staðreynd að áróður gegn okkur
fellur í góðan farveg erlendis.
Margir útlendingar trúa því að við
gemm út tugi frystitogara sem
gera ekki annað en að veiða hvali.
Við emm ekki þess megnug að
leiðrétta þennan misskilning og
þ.a.l. verðum við að hætta að veiða
hvali áður en búið er að knésetja
okkur fyrir þessa iðju.
Hrefha
SAMEIGINLEG ÁBYRGÐ
Ágæti Velvakandi.
Þegar mikill samdráttur á sér
stað í þjóðfélaginu á öllum sviðum,
er nauðsynlegt að hinn almenni
borgari fylgist vel með aðgerðum
ráðamanna þjóðarinnar. Flokka-
kerfið gerir það að verkum að
stjómmálamennimir verða eins og
brúður í leikhúsi og í mörgum tilfell-
um efast maður um heilindi þeirra.
Allt er gert fyrir vinsældimar, ekki
má styggja kjósenduma.
Eins og alþjóð veit, ríkir nú mik-
il ringulreið í efnahagslífínu og allt
er komið á heljarþröm. Nú ríður á
að ráðamenn taki þær ákvarðanir
sem era skynsamlegastar fyrir þjóð-
ina í heild. Hætta er á að nú taki
brúðumar að dansa í takt við há-
værar óánægjuraddir kjósenda, sem
era náttúrulega ekki reiðubúnir að
taka á sig frekari byrðar á neinu
sviði. Ráðamenn verða nú að taka
á vandanum með festu og loka eyr-
unum fyrir röddum óánægðra kjós-
enda. Ríkinu verður að stjóma eins
og fyrirtæki. Ef vel á að takast til
þýðir enga linkind og sýndar-
mennsku.
í tíð fráfarandi ríkisstjómar hef-
ur Jón Baldvin Hannibalsson setið
við stjómvölinn í fjármálaráðuneyt-
inu og sýnt mikla festu og ákveðni.
Aðgerðir hans hafa hlotið miklar
óvinsældir sem vonlegt er en líklega
hefur ekki verið auðvelt að vera í
hans sporum. Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsóknarflokkurinn hafa
sloppið einstaklega vel og almenn-
ingur hefur auðsjáanlega skellt allri
skuldinni á Jón Baldvin og Al-
þýðuflokkinn. Margir loka augun-
um fyrir því að þessir þrír flokkar
vora saman í stjórn og bera sameig-
inlega ábyrgð á þessum aðgerðum.
Guðjón
Víkverji skrifar
Nú orðið falla ríkisstjómir í
sjónvarpssal og gerð er tilraun
til þess að mynda ríkisstjómir fyrir
framan sjónvarpsvélamar. Senni-
lega hefur þessi þáttur sjónvarps
aldrei verið meiri í pólitíkinni en
þessa daga og vikur. Stjómmála-
mönnum þykir þetta að vonum
óþægilegt og meðan Steingrímur
Hermannsson gerði tilraun til að
mynda vinstri stjómina fyrir og um
helgina var reynt að loka fundar-
stað fyrir fréttamönnum. Það tókst
þó ekki nema að litlu leyti.
Víkveiji hefur orðið þess var, að
ýmsir velta því fyrir sér hvað mundi
gerast, ef stjómmálamennimir neit-
uðu einfaldlega að ræða við blaða-
menn, neituðu ljósmynduram og
kvikmyndatökumönnum sjónvarps-
stöðvanna um aðgang. Einn við-
mælandi Víkveija hafði orð á því,
að sá stjómmálamaður, sem gerði
þetta mundi “slá sér upp“ á þvp.
Stjómmálamönnunum fínnst þetta
ekki svona einfalt. Einn þeirra sagði
við Víkveija, að slík vinnubrögð
yrðu til þess, að fréttamenn settu
þá í bann, sem reyndu að takmarka
umsvif þeirra. Þeir væra í banni
jafnvel í nokkur misseri og hefðu
takmarkaðan aðgang að fjölmiðl-
um. Vel má vera að eitthvað sé til
í þessu. En þá er á það að líta, að
ráðherra t.d. getur svarað fyrir sig
með því að setja fjölmiðilinn í frétta-
bann og sjá til þess að keppinaut-
amir sitji að fréttunum.
Alla veg er Ijóst, að samskipti
stjómmálamanna og Qölmiðla verða
stöðugt meira umhugsunarefni fyr-
ir báða aðila.
XXX
að er nánast með ólíkindum,
hvað nýja hverfið við Grafar-
vog hefur byggzt hratt upp. Það
liggur við að vegfaranda fínnist,
að þama sé komið nýtt hverfi á
stærð við Breiðholt á örfáum árum.
Ifyrir borgarstjómarkosningamar
1978 var frá því skýrt hér í Morgun-
blaðinu, að þetta svæði yrði næsta
byggingahverfí í Reykjavík. Vinstri
meirihlutinn í Reykjavík, sem sat
næstu fjögur árin breytti hins vegar
þeim ákvörðunum og stefndi að því
að byggja upp við Rauðavatn. Sjálf-
stæðismenn undir forystu Davíðs
Oddssonar börðust hart gegn þeirri
stefnumörkun fyrir borgarstjómar-
kosningar 1982 og unnu sigur.
Síðan hefur þetta ævintýri orðið
með ótrúlegum hraða og er auðvit-
að fyrst og fremst til marks um
dugnað þess fólks, sem þama hefur
byggt-
Fólk liggur 3rfír sjónvarpinu að
næturlagi um þessar mundir
og fylgist með Olympíuleikunum í
Seúl. Frammistaða íslenzku íþrótta-
mannanna þar er íhugunarefni.
Raunar ætti fremur að segja, að
þær væntingar, sem forystumenn
íþróttahreyfingarinnar og fjölmiðl-
ar byggja upp um hugsanlegan
árangur þeirra séu til umhugsunar.
Er þetta gert til þess að ná í meira
fjármagn? Er þetta ástæðan fyrir
því, að þessir ungu menn virðast
ekki hafa úthald, þegar til kastanna
kemur, þótt þeir hafi náð frábæram
árangri á öðrum mótum? Það er
mikið sálrænt álag að vita af heilli
þjóð bíða í ofvæni eftir því að menn
komist á verðlaunapall.
XXX
Lesandi hringdi og lagði til að
eftirmælin um stjómarmynd-
unartilraun Steingríms Hermanns-
sonar yrðu þessi með hliðsjón af
sjónvarpsviðtali við Geir Gunnars-
son, þar sem hann var að taka upp
kartöflur Kartöflustjómin andvana
fædd!