Morgunblaðið - 04.07.1989, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989
Howe illa tek-
ið í Hong Kong
Hong Kong. Reuter.
GEOFFREY Howe, utanríkisráðherra Bretlands, fékk kaldar kveðjur
í Hong Kong þegar hann var þar á ferð um helgina. Hafa sendimenn
erlendra ríkja í Hong Kong á orði að aldrei hafi breskur ráðherra
fengið þar jafii slæmar viðtökur. Howe lýsti afstöðu breskra stjórn-
valda til framtíðar Hong Kong eftir 1997 þegar Pekingstjórnin á að
taka við nýlendunni. Sagði hann að ekki kæmi til greina að þær rúm-
ar þijár milljónir Hong Kong-búa, sem rétt eiga á bresku vegabréfi,
ættu tilkall til búsetu í Bretlandi. „Þú ætlar að fleygja þeim í hendurnar
á blóði drifinni kúgunarstjórn," hrópaði einn ræðumanna á hádegisverð-
arfúndi sem Howe var boðið til í gær.
Reuter
„Ég skil angist ykkar — líf ykkar
og lífskjör eru í húfi.. Staðreyndin
er sú að ekki er nokkur leið til þess
að breska stjórnin geti veitt nokkrum
milljónum manna hæli,“ sagði Howe
á fundinum í gær og þvertók fyrir
að þessi afstaða væri í ætt við kyn-
þáttamismunun eins og sumir hafa
gefið í skyn. Howe sagði ennfremur
að Bretar myndu skipuleggja al-
þjóðlega hjálparstarfsemi ef eitthvað
færi úrskeiðis þegar Kína tekur við
stjórn Hong Kong árið 1997. í sam-
komulagi Bretlands og Kína um
Hong Kong hafa Kínveijar heitið að
engar stórfelldar breytingar verði á
Kínverskir hermenn sveija kommúnistaflokknum hollstueið á Torgi hins himneska friðar í Peking á
laugardag. Þá var þess minnst að 68 ár voru liðin frá þvi að kínverski kommúnistaflokkurinn var stofriaður.
Forsætisráðherra Kína um fjöldamorðin í Peking:
Hermennirnir beittu byss-
um vegna skorts á táragasi
Einn af leiðtogum námsmanna vísar fiillyrðingum Lis Pengs á bug
Peking. Reuter.
LI PENG, forsætisráðherra Kína,
segir að kínverskir hermenn hafi
neyðst til þess að skjóta á mótmæl-
endur á Torgi hins himneska frið-
ar í Peking 4. júní vegna skorts á
táragasi, gúmmíkúlum og vatni í
háþrýstidælur. Þetta hafði Banda-
ríkjamaður af kínverskum upp-
runa, Daniel Wong, sem staddur
er í Kina, eftir forsætisráðherran-
um á sunnudag. Námsmaður, sem
hefúr verið á flótta frá því mót-
mælin voru brotin á bak aftur,
vísaði fúllyrðingum forsætisráð-
herrans á bug og sagði þær algjör-
an tilbúning.
Wong sagði Li hafa tjáð sér að
hermennimir hefðu ekki viljað blóðs-
úthellingar heldur frið og þeim hefði
fundist kröfur námsmannanna sann-
gjarnar. Þeir hefðu látið til skarar
skríða gegn „slæma fólkinu innan
um það góða“ eftir að fólk hefði tek-
ið að stela vopnum og ráðast á her-
Byltingin í Súdan:
Mahdi sagður hafa
komist hjá handtöku
Kaíró. Reuter.
ÚTVARPIÐ í súdönsku borginni
Omdurman hafði f gær eftir Omar
Hassan al-Bashir hershöfðingja,
er rændi völdum í landinu á föstu-
dag, að Sadeq al-Mahdi forsætis-
ráðherra hefði enn ekki verið
handtekinn og færi huldu höfði
ásamt nokkrum ráðgjöfúm sínum.
Allt virtist með kyrrum kjörum í
höfúðborginni í gær og útvarpið
sagði að millilandaflugvöllurinn í
höfúðborginni Kartúm hefði verið
opnaður á ný. Símasamband við
landið, sem rofið var í sólarhring
á föstudag, er aftur komið á.
Félagi í 15 manna hóp hershöfð-
ingja, sem nú fer með völdin, hvatti
í gær almenning til að segja til Mah-
dis. Albert Taban, fréttaritari Reut-
ers-fréttastofunnar, sagði á föstudag
að hann hefði séð Mahdi leiddan inn
í Kobar-fangelsi í Kartúm skömmu
eftir að skýrt var frá valdaráninu.
Að sögn erlendra stjómarerindreka
velta margir því nú fyrir sér hvort
búið sé að lífláta forsætisráðherrann
en því sé haldið leyndu af ótta við
heiftarleg viðbrögð fylgismanna ráð-
herrans. Taban sagði í gær að allt
virtist rólegt í Kartúm og viðskipt-
alíf með eðlilegum hætti. í Kartúm
búa nær sjö milljónir manna.
Mahdi hefur verið við völd frá
1986 er fyrstu lýðræðislegu kosning-
amar í landinu á tveim áratugum
fóru fram en borgarastyrjöld hefur
geisað þar um margra ára skeið.
Bashir hefur hótað þvf að stjóm-
málaflokkar verði ekki leyfðir á ný
og sakar leiðtoga þeirra um spillingu
og þjófnað á opinberum fjármunum.
Egyptaland viðurkenndi stjóm
Bashirs á laugardag.
mennina. Mótmælin á Torgi hins
himneska friðar ættu sér ekki for-
dæmi í sögu Kína frá því kommúnist-
ar komust þar til vaída fyrir 40 ámm
og hermennimir hefðu því ekki verið
viðbúnir þeim. Þeir hefðu reynt að
beita táragasi, en það hefði reynst
ónothæft. Herinn hefði ekki átt
gúmmíkúlur og þrýstingurinn í
vatnshönum við torgið hefði ekki
verið nógu mikill fyrir háþrýstidælur.
Kínversk stjómvöld hafa fyrirskip-
að umfangsmikla leit að leiðtogum
námsmanna, en Dagblað alþýðunnar
hafði eftir Li að aðrir námsmenn, sem
þátt tóku í mótmælunum, yrðu ekki
handteknir. „Þótt við getum ekki
fallist á aðferðir þeirra - kröfugöng-
ur, setuverkföll og mótmælasvelti -
ætlum við ekki að refsa þeim, að því
tilskildu að þeir hafi ekki gerst sekir
um glæpi," sagði forsætisráðherr-
ann. Hann sagði að þeir sem beðið
hefðu bana er hermennimir ruddu
torgið hefðu hundsað ítrekaðar við-
varanir hersins.
„Þessar fullyrðingar Lis eru lyg-
ar,“ sagði námsmaður, sem hefur
verið á flótta frá því kínverskir her-
menn réðust á skriðdrekum inn í
Torg hins himneska friðar. „Það var
nóg af öflugum vatnshönum til
slökkvistarfa við torgið, enda eru
þama allar helstu stjórnarbygging-
arnar og mikilvæg minnismerki,"
sagði námsmaðurinn. Hann sagði
ennfremur að fjölmargir Kínveijar
hefðu verið teknir höndum, bæði
þátttakendur í mótmælunum og
stuðningsmenn þeirra.
Lögreglan í Peking handtók í gær
tævanskan blaðamann, Huang Deb-
ei, sem sagður er hafa náð tali af
andófsmanninum Wang Dan, er hef-
ur verið á flótta undan lögreglunni.
Tævanskir blaðamenn sögðu að
Wang og Huang hefðu verið að aka
um Peking þegar þeir hefðu tekið
eftir að þeim var veitt eftirför. Hu-
ang hefði farið úr bifreiðinni en
Wang ekið burt og ekki hefði sést
til hans síðan.
Sovétríkin:
Andrej Gromyko fyrr-
verandi forseti látinn
Moskvu. Reuter.
ANDREJ Gromyko, fyrrum utanríkisráðherra og forseti Sovétríly-
anna, lést á sunnudag, 79 ára að aldri. Hann var stjórnarerind-
reki af gamla sovéska skólanum, sem hóf störf í utanríkisþjónustu
á tima Jósefs Stalins og var utanríkisráðherra í þijá áratugi.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti einuðu þjóðunum alls 25 sinnum
tilkynnti sjálfur um lát Gromýkos
á fundi Æðsta ráðsins í gær og
þingfulltrúar minntust hans með
einnar mínútu þögn. Gromyko hóf
feril sinn í utanríkisþjónustunni
árið 1939 og varð síðar aðstoðar-
maður Vjatseslavs Molotovs ut-
anríkisráðherra sem líklega mót-
aði framtíðarstörf Gromykos fyrir
Sovétríkin á erlendum vettvangi.
Níkíta Krúsjeff gerði Gromýko að
utanríkisráðherra árið 1957 og því
embætti gegndi hann í nær 30 ár.
A sjötta áratugnum beittu Sovét-
menn neitunarvaldi sínu hjá Sam-
og fékk Gromyko þá viðurnefnið
„Herra Njet“ í vestrænum fjöl-
miðlum. Hann átti þátt í að koma
Gorbatsjov til valda árið 1985 en
varð fljótlega að víkja úr embætti
fyrir Edúard Shevardnadze. Gro-
myko átti sæti í stjórnmálaráði
kommúnistaflokksins frá 1973
þangað til í september á síðasta
ári þegar hann lét af störfum sem
forseti Sovétríkjanna. í apríl sl.
var hann látinn víkja úr miðstjórn
kommúnistaflokksins ásamt 109
öðram eldri miðstjómarmönnum.
Gromyko gegndi um tíma emb-
lifnaðarháttum né sjálfstæði Hong
Kong-búa næstu 50 árin eftir 1997.
Sex milljónir Kínveija búa í Hong
Kong og á rúmur helmingur þeirra
eða 3,250 milljónir manna rétt á
breskum Hong Kong-vegabréfum
sem veita vissa vernd en ekki sjálf-
krafa rétt til búsetu í Bretlandi.
Bandaríkin:
Takmörk
við fóstur-
eyðingum
Washington. Reuter.
Hæstiréttur Banda-
ríkjanna þréngdi í gær
möguleika kvenna til fóstur-
eyðinga er hann breytti lítil-
lega sögulegum dómi frá
1973 er lögleiddi fóstureyð-
ingar.
Rétturinn hafnaði beiðni Ge-
orge Bush forseta um að banna
fóstureyðingar með því að
ógilda svokallaðan „Roe gegn
Wade“-úrskurð frá 1973 sem
heimilaði fóstureyðingar í
Bandaríkjunum. Aðeins ejnn
dómari af níu tók undir óskir
forsetans.
Rétturinn staðfesti með at-
kvæðum fimm dómara gegn
fimm flest ákvæði umdeildra
laga Missouri-ríkis sem setja
auknar takmarkanir við fóstur-
eyðingum. Samkvæmt úrskurði
hæstaréttar geta læknar því
aðeins heimilað fóstureyðingu
að þeir hafi áður rannsakað
þyngd og lungnaþroska fósturs
með tilliti til þess hvort það
gæti hugsanlega þroskast utan
legs. Ennfremur banna lögin
að fóstureyðingar fari fram á
kostnað ríkisins. Lögin banna
fóstureyðingar í opinberum
stofnunum og opinberum
starfsmönnum að framkvæma
þær.
ætti sendiherra í Bandaríkjunum
og Bretlandi og hann var formað-
ur sovésku sendinefndarinnar hjá
Sameinuðu þjóðunum í kalda
stríðinu. Hann naut virðingar fyrir
víðtæka þekkingu á alþjóðamálum
og síðustu árin, þegar hann gegndi
embætti forseta Sovétríkjanna,
mýktist ímynd hans nokkuð. Eftir
að hann var gagnrýndur fyrir að
vera einangraður frá sovéskri al-
þýðu fór hann og heimsótti versl-
anir og ræddi við sovéskar hús-
mæður og verkamenn.
Gromyko gekkst nýlega undir
hjartaaðgerð en ekki hefur verið
opinberlega tilkynnt hver dánaror-
sök hans var. Talið er næsta víst
að útför hans fari fram á vegum
Reuter
Andrej Gromyko, fyrrum forseti
og utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna.
ríkisins og að hann verði grafinn
í Kremlarmúrnum. Útförin verður
þó líklega ekki fyrr en í næstu
viku þegar Gorbatsjov er kominn
heim af fundi leiðtoga Varsjár-
bandalagsríkjanna í Búkarest.