Morgunblaðið - 04.07.1989, Blaðsíða 31
MORGIMBLABIÐ 'ÞRIÐJUDAGUR 4L JÚLÍ H989
31
Skipasmíði
Rennihurðir
útihurdir
fellihurdir
rennigluggar
gluggar
skjólveggir
o.m.fl.
piekert víðhald__
aiitafsem nýtt
ÍSBOLTAR HF. — Nýtt fyrirtæki hefur tekið til starfa að
Strandgötu 75 í Hafnarfirði, ísboltar hf. Er það í eigu íslenskra aðila
með eignaraðild hollenska fyrirtækisins Borstlap b.v., einu stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu, að sögn forsvarsmanna hins nýja
fyrirtækis. Frá upphafi verða yfir 15.000 vörunúmer á lager, m.a.
boltar úr ryðfríu og sýruheldu stáli ásamt festingum sem hafa ekki
fengi3t afgreiddar beint af lager. Að auki er boðið upp á verkfæri frá
Gedore ásamt rafmagnsverkfærum, borum, snittverkfærum og fleiru.
Selt er bæði í heildsölu og smásölu. A myndinni, sem tekin var við
opnunina, sjást (f.v.) Karl Sigurðsson framkvæmdastjóri og Alan
Winrow verslunarstjóri.
fcituggar og (jardhús hf.
Smiðsbúð 8, 210 Garðabæ, sími 44300.
íslendingar hafa keypt
skip á uppsprengdu
verði síðastliðin ár
- segir Sævar Birgisson framkvæmdastjóri Skipasmíða-
stöðvar Marsellíusar á ísafirði
SKIPASMÍÐASTÖÐ Marsellíusar á Ísafírði hleypti um daginn af
stokkunum 140 lesta togskipi. Það var 56. nýsmíði stöðvarinnar sem
hóf starfsemi 1939, eða fyrir 50 árum. Upphaflega hét fyrirtækið
M. Bemharðsson, en 1983 urðu eigendaskipti og heitir það síðan
Skipasmíðastöð Marsellíusar eftir stoftianda og upphafsmanni stöðv-
arinnar, Marsellíusi Bernharðssyni. Tréskip voru smíðuð til 1960,
40 að tölu. Eftir það hafa verið smíðuð stálskip í stöðinni. Stærsta
skipið ft-á þessari skipasmiðastöð er Heiðrún frá Bolungarvík, 40
metra langur togari. Það er orðið sjaldgæft að íslenskar skipasmíða-
stöðvar hleypi nýsmíði af stokkunum og því var Sævar Birgisson
framkvæmdastjóri Skipasmiðastöðvar Marselliusar tekinn tali og
spurður um þessa atvinnugrein og samkeppnina við erlendar stöðv-
ar. Það kemur fram í máli hans að ekki gekk þrautalaust að koma
þessu verkefhi af stað, sem nú sér fyrir endann á, fyrirgreiðslan er
treg þegar íslenskar skipasmiðastöðvar eiga í hlut, en liðug fyrir
erlendar stöðvar. Hann fiillyrðir að skip smíðuð hér á landi þurfi
alls ekki að vera dýrari heldur en ef þau væra smíðuð erlendis og
vísar á bug fullyrðingum um annað, enda séu skip keypt erlendis á
uppsprengdu verði.
Samningar um smíði þessa nýja
báts, sem nú var hleypt af stokkun-
um, voru undirritaðir í janúar í
fyrra, en verkefnið var þó ekki í
höfn með því. Sævar segir: „Málið
veltist í Fiskveiðasjóði þangað til
um miðjan júní, þá stuttu seinna
gat smíðin hafist. Við vorum auðvit-
að afar ósáttir við þennan drátt sem
varð á afgreiðslunni hjá Fiskveiða-
sjóði.“
Portúgalir fengu
forgangsafgreiðslu
Sævar segist ekki vita hvað olli
drættinum. „Það er engar skýringar
að fá á því, reyndar drógust af-
greiðslur allra mála í fyrra, af ýms-
um ástæðum. Oft liggja ekki fyrir
öll gögn, það vantar eitthvað frá
bönkum kaupandans, ábyrgðir og
þess háttar. En, ég hygg nú að
með þetta.mál hafi allt verið komið
á hreint í febrúar. Við vorum auðvit-
að mjög ósáttir við þetta, en sættum
okkur við það þangað til Fiskveiða-
sjóður afgreiddi fimm báta sem er
verið að smíða í Portúgal, hálfum
öðrum mánuði á undan okkar sam-
þykkt, á þeirri forsendu að skipa-
smíðastöðin gæti ekki beðið lengur.
Þetta er nú svolítið lýsandi fyrir
vinnubrögðin, stuðning við íslensk-
an skipaiðnað. En, Fiskveiðasjóður
segir náttúrulega sem svo að þetta
sé sjóður útgerðarmanna og þeim
komi iðnaðurinn ekkert við, það eru
þeirra rök og ekkert við því að
segja.
Við fengum sem sagt skipið sam-
þykkt um miðjan júní og það var
sjósett í byijun þessa júnímánaðar
og við reiknum með að skila því í
byijun ágúst.“
Uppsprengt verð
Smíðasamningurinn hljóðar upp
á 96 milljónir króna, en gert er ráð
fyrir verðlagsbreytingum þannig að
endanlegt verð áætlar Sævar að
verði um 120 milljónir króna.
— Hvernig er það verð í saman-
burði við útlendar skipasmíðastöðv-
ar, standist þið þann samanburð?
„Já fyllilega, við höfum alltaf
staðist hann. Þrátt fyrir allt tal um
ódýrari skip erlendis höfum við ís-
lendingar verið að kaupa skip á
uppsprengdu verði, sérstaklega nú
síðustu ár. Það er ekkert samræmi
á milli smíðaverðsins og skipaverðs-
ins.“
Sævar ræðir um samanburðar-
töflu um smíðaverð skuttogara, sem
birtist í Morgunblaðinu nokkru áður
en viðtalið fór fram. „Ég hef alltaf
haldið því fram að allur saman-
burður, þar sem þjóðir eru bornar
saman, eigi ekki rétt á sér nema
að mjög takmörkuðu leyti, til dæm-
is þegar sagt er dýrt í Noregi og
ódýrt í Danmörku eða öfugt. Þú
getur til dæmis fundið stöð í Frakkl-
andi sem er mun ódýrari en stöð í
Þýskalandi, þótt meðaltal sýni hið
gagnstæða. Þetta sem birtist í
Morgunblaðinu frá A&P Appeldore,
þessu fína fyrirtæki sem þeir réðu
til að gera þessa úttekt, er nánast
ómarktækt og verður að skoðast
með sérstöku hugarfari. Ég hef séð
vinnubrögðin hjá þessu Appeldore
og það er búið að breyta því tölu-
vert frá byijun. Þetta er ekki
nokkru lagi líkt og ekki til að taka
neinar ákvarðanir út frá. Þetta er
svipað eins og að segja að ein þjóð
sé vond en önnur góð.
Ef við leggjum nú þennan saman-
burð til grundvallar, af hveiju
byggjum við þá ekki öll skipin þar
sem það er ódýrast samkvæmt
þessu, í Portúgal? Þessi munur sem
kemur fram á smíðakostnaði hér
innanlands og í þrælniðurgreiddum
löndum eins og Noregi er ekki nema
örfá prósent. Við þurfum ekki að
vera ósáttir við þennan samanburð
að því leyti. Það er hverfandi lítill
munur á innlendu smíðunum og
erlendu, jafnvel í þessu yfirliti. Þar
að auki er breytilegur kostnaður á
milli stöðvanna hér innanlands. Ég
segi bara aftur, ef þetta er rétt,
af hveiju kaupum við þá alltaf skip-
in frá dýrustu löndunum?“
Ekki á allra færi að smíða
fískiskip
— Hvers vegna heldur þú?
„Við erum að tala um ákveðin
gæði og það eru ekki nema ákveðin
fyrirtæki sem geta boðið þau. Fiski-
skip eru óskaplega flókin skip. Þú
gengur ekki inn í hvaða stöð sem
er og lætur smíða fiskiskip."
Þess má geta, að síðan viðtalið
fór fram hafa borist fregnir af því,
að portúgalska skipasmiðastöðin
sem smíðar fyrmefnd skip fyrir ís-
lendinga, hafi krafist hækkunar á
verði skipanna um 30%.
— Hafið þið verkefni til að halda
áfram rekstri þegar þessari nýsmíði
er lokið?
„Við höfum engan samning. Það
er nú búið að smíða ein fimmtíu
skip núna á stuttum tíma, þannig
að það verður kannski litið um ný
skip í næstu framtíð."
— Að hveiju snúið þið ykkur þá?
„Ætli við flytjum ekki í einhvern
bílskúr með þetta, með fimm karla
eða eitthvað svoleiðis. Þær eru nú
að loka hver af annarri þessar
stöðvar held ég.“ ÞJ
fslensk framleiðsla
úr viöhal ösfríu PVC-efni:
Morgunblaðið/Úlfar
VIÐHALD — Viðhaldsvinnan er kropp og ekki hægt að reka
skipasmíðastöð með henni einni, segir Sævar Birgisson framkvæmda-
stjóri Skipasmíðastöðvar Marsellíusar á ísafirði. Þarna er Sævar með
starfsmönnum stöðvarinnar, sem vinna einmitt að einu slíku verki.
OPIÐ í JÚLÍ
★ MÚSÍKLEIKFIMI
Kenn.: Elísabet Guðmundsdóttir
og Agnes Kristjónsdóttir
★ AFRÓ-SAMBA
Kenn.: Agnes Kristjónsdóttir
★ LEIKETMIFYm
ELDBIB0RGARA
Hægar og mjúkar æfingar
★ SJÚKRALEIKFIMI
Fyrir fólk m/álagssjúkdóma
(vövðabólgu, bakverki, stirðleika og streitu.)
Kenn.: Lovísa Einarsdóttir
★ DANSSPUNIF/BÖRN
Kenn.: Guðbjörg Arnardóttir
★ FL0TT F0RM
SÍMAR: 15103 OG 17860