Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.08.1989, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 B 3 Manúela Wiesler flautuleikari og Pascal Verrot hljómsveit- arsljóri. Hunda- dögum lýkur með glæsibrag Morgunblaðið/Emilía Eftir helgina verða síðustu tónleikar á Hundadögum 89 í íslensku óperunni. Á mánudagskvöld leika þau Manuela Wiesler, Einar Jóhannesson og Þorsteinn Gauti Sigurðsson tríó og einleiksverk og á miðvikudagskvöld verða lokatónleikar Hundadaga þegar hátíðarhljómsveit undir stjórn þeirra Pascals Verrot og Hákons Leifssonar leikur fjögur verk eftir Satie, Boulez, Þorkel Sigur- björnsson og Grisey. Einleikari á flautu er Manuela Wiesler. Afyrri tónleikunum sem hefjast klukkan 20.30 á mánudags- kvöld munu þau Einar, Manuela og Þorsteinn Gauti leika tvö tríó fyrir klarinett, flautu og píanó eftir Leif Þórarinsson og Hjálmar R. Ragn- arsson. Síðan leikur Einar einleiks- verk fyrir klarinett eftir Karólínu Eiríksdóttur og Manuela leikur flautueinleiksverk eftir Magnús Blöndal Jóhannsson. Hátíðartónleikarnir á miðviku- dagskvöld hefjast klukkan 20.30 með flutningi 3. sinfóníu Schuberts undir stjórn Hákons Leifssonar. Hákon hefur undanfarin ár stundað nám í hljómsveitarstjórn við New England Conservatorie í Boston í Bandaríkjunum og hefur átt dijúg- an þátt í undirbúningi tónlistardag- skrár Hundadaga 89. Hinn stjóm- andinn, Pascal Verrot, kemur ein- mitt hingað fyrir atbeina Hákons, en Verrot hefur um þriggja ára skeið starfað sem hljómsveitarstjóri við Sinfóníuhljómsveitina í Boston, þó hann sé aðeins þrítugur að aldri. Verrot er franskur að þjóðerni og vakti fyrst athygli er hann sigraði í alþjóðlegri keppni fyrir unga hljómsveitarstjóra sem haldin var í Japan árið 1985. Hann hefur síðan starfað í Boston en einnig verið gestastjórnandi hjá Parísarhljóm- sveitinni og sinfóníuhljómsveitum' í Japan. Verkin sem Verrot stjórnar eru tvö hljómsveitarverk eftir Satie og Boulez, þá konsert fyrir flautu, strengjasveit og ásláttarhljóðfæri eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Verkið nefnir Þorkell Ljónahliðið og er þetta frumflutningur þess hérlendis en verkið hefur aðeins einu sinni verið flutt áður, í Kanada fyrir nokkrum ámm. Síðasta verkið sem flutt verður á tónleikunum er eftir franska tónskáldið Grisey. Stjórn- andinn Verrot sagði að hann hefði valið þetta verk sérstaklega þar sem það væri mjög aðgengilegt fyrir áhorfendur og notið mikilla vin- sælda á tónleikum. Grisey er vax- andi tónskáld, rétt fertugur að aldri, og hafa tónsmíðar hans vakið athygli í Evrópu á undanfömum árum að sögn Verrots. Ný nöfin og ný andlit birtast reglulega á listasviðinu og fer þá saman forvitni þeirra sem gerst fylgjast með og eftirvænting lista- mannsins sjálfs þegar hann leggur verk sín í fyrsta sinni fyrir sjónir almennings. Gígja Baldursdóttir myndlistarmaður stígur fram fyrir almenningssjónir í dag er hún opnar sína fyrstu einka- sýningu í Ásmundarsal. ígja er Reykvíkingur, fædd 1959 og að loknu stúdents- prófi 1979 stundaði hún nám einn vetur við Myndlistaskóla Reykjavíkur. Veturinn eftir var hún við nám í Noregi í Oslo Malerskole en hóf síðan nám við kennaradeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands haustið 1982 og lauk námi þaðan 1986. „Ég var svo praktísk í hugsun að ég hugsaði mér að ná fyrst í starfs- réttindi og fara seinna í málaradeildina. En nú er búið að loka fyrir það svo ég verð að fara út ef ég ætla í framhalds- nám,“ segir Gígja um námsferil sinn. Hún hef- ur svo sannarlega farið sér hægt við að koma verkum sínum á fram- færi og segir þetta hafa verið erfiða ákvörðun í vor að ákveða að halda sýningu. „Mér fannst ég verða að ákveða hvort ég vildi halda þessu áfram eða hreinlega hætta þessu. Ég hef aldrei viljað sýna neinum myndimar mínar — varla vinum mínum — og tilfinningin gagnvart sýning- Gígja Baldursdótfir opnar sína fyrstu eínkasýningu I í Ásmundarsal unni núna er svona svipuð og ef ég þyrfti að koma fram nakin opinberlega. Mér fmnst ég vera að sýna eitthvað af sjálfri mér sem enginn hefur séð áður. Sýningin er samt sem áður nauðsynleg til þess að vita hvar maður stendur og fá fram einhver viðbrögð. Það er ekki hægt að halda áfram að mála fyrir sjálfan sig endalaust." — Skiptir þá álit ann- arra miklu máli í þessu samhengi? „Það hlýtur að skipta máli hvernig aðrir taka því sem maður er að gera þó ég sé ekki að segja að maður standi og falli með áliti ann- arra. Ég held að ég myndi ekki hætta að mála þó viðbrögðin yrðu neikvæð, því þá kemur annað til sögunnar. Og það er hversu skemmti- legt þetta er. Ég gleymi mér iðulega við mál- verkið og þá ánægju tekur manni.“ - Og mála? >.Ég enginn frá hvað ertu að mála manna- myndir — andlit — nakið fólk. Ég er þó ekki að mála módel eða með fyrirmyndir heldur eru þetta vangaveltur um fólk. Mér finnst gam- VINÁTTA 1989. „Tengslin á milli fólks og hvemig það kemur fram við. hvert við annað ...“ Morgunblaðið/Emilía an að spekúlera í fólki, hvernig persónur það er — hvernig það er fyrir innan. Tengsl- in á milli fólks og hvernig það kemur fram hvert við annað. Þetta eru mín meginvið- fangsefni og ég hef verið að fást við þetta alveg síðan ég var í Noregi. Einstaka sinn- um er ég með lifandi fyrirmyndir í huga én myndirnar verða þá aldrei neitt líkar fólkinu." Hún sýnir mér mynd sem hún segir af sér og vinkonu sinni og myndina kallar hún Vináttu. „Það erekki hægt að sjá hvor er hvað enda skiptir það engu máli. Myndin er túlkun mín á vináttu okkar sem staðið hefur í 26 ár og það er tilfinning- in sem skiptir máli en ekki útlitið á fígúrun- um.“ Gígja málar með akrýllitum á pappír og fólkið á myndum hennar er kantað, línur allar skarpar og litir sterkir og hún segir þetta vera leik með formin, „ . . . maður getur kannski leyft sér þetta eftir að hafa fengið mjög stranga kennslu í módelteikn- ingu og anatómískri teikningu. Ég hef mál- að mikið af annars konar myndum þar sem formin eru mýkri en ég er bara ekki nógu ánægð með þær. Mér finnst þær ekki vera ég sjálf. Ég reyni að vera einlæg og koma ákveðnum tilfinningum til skila í myndunum og það gengur betur upp í þessum formum. Já, ég er hrifin af sterkum Iitum, blár og gulur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Sérstaklega guli Iiturinn. Suma liti nota ég alls ekki einsog t.d. brúnan en ég er að reyna að færa út kvíamar og auka litanotk- unina.“ Gígja segir að myndefnið hafi fylgt henni allt frá Noregi 1982 en eru myndirnar á sýningunni núna frá því tímabili? „Nei, þetta eru allt myndir málaðar á síðustu tveimur árum. Ég henti nú flestum myndunum sem ég málaði úti í Noregi því mér fannst þær vera handónýtar. Eg sé dálítið eftir þeim núna, það hefði verið gam- an að skoða þær og bera saman við nýjustu myndirnar. Eg hef verið að mála með hléum undanfarin ár en síðan ég ákvað í vor að halda sýningu hef ég unnið á hveijum degi í allt sumar. Það er auðvitað mikil spenna í mér fyrir sýninguna þó að ég viti að mál- verkasýningar eru nánast daglegt brauð í Reykjavík allt árið um kríng.“ Én fyrir listamanninn sjálfan er sýning á eigin verkum alls ekkert daglegt brauð; sýningin er hápunktur langrar og strangrar vinnu, eins konar kaflaskil þar sem hægt er að taka skref afturábak og virða fyrir sér sköpun sína með hlutlægara auga en í miðju verki með pensilinn á lofti. Sýning er sál listamannsins borin á borð fyrir áhorf- endur og þannig skyldu menn umgangast slíka opinberun, minnugir þess að „aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Viðtal: Hávar Siguijónsson „Segi ég eitthvað er það af því þú átt að heyraw Hver er Ragnar Strömberg? Skáld? „Já, það er leiðarljós. En það er engin lausn. Ekkert svar. Það er það sem ég geri. Hver ég er? Eins og allir aðrir þá nota ég lífið til að kom- ast að því.“ „Við bijálæðingar hræðum hina, þá sem eiga þau sameiginlegu örlög að vera margir. Það er hin fullkomna lítilsvirðing gagnvart öllum manneskjum og öllu tungumáli, sem þeir halda sig sjá í augum okkar, orðum okkar og ferð- um okkar í þögninni, það er það sem hræðir þá. Langt, langt í burtu og innan í. Söng það. Það söng: Að horfa út yfir hafið og uppgötva að maður sjálfur er sá sem horft er á.“ Úr „Virilia“ (1989) Hveiju ertu að lýsa í Virilia? „Lífí hins fullorðna manns. Hún íjallar um mann sem verður tvífari sjálfs sín. Um mann sem ekki þekk- ir sjálfan sig, finnst hann vera blekktur. Hann rekst á mann sem er tíu árum eldri en hann sjálfur og það er hann sjálfur. Vitund sem ekki er fær um að sjá spegilmynd sína og afneitar henni því. Hvor þeirra er raunverulegri? Það er sú barátta sem ég lýsi. Þetta er fyrsta bók mín í óbundnu máli og útgefandinn (Norstedts För- lag) vill endilega kalla þetta skáld- sögu. Ég skil nú ekki hvers vegna það er nauðsynlegt. Bókin er sam- sett úr styttri og lengri þáttum sem ég flétta saman í eina heild, kafla þar sem ég hreinrækta ólík stílbrigði og aðra þar sem atburðarásin tekur yfirhöndina. í uppbyggingunni leik ég mér svolítið að aðferð spennu- sagnahöfunda, einhver sem eltir ein- hvern sem eltir einhvern." Ragnar Strömberg er viðurkennt og umdeilt skáld í heimalandi sínu. Tíunda Ijóðabók hans „Munnens bok“, kom út 1988 hjá Norstedts í Stokkhólmi og Virilia kom út nú í ágústlok. Þegar „Göteborgs-Posten" úthlutaði honum bókmenntaverð- launum 1987, varð það fyrir skáld- skap litaðan öflugri lífstilfínningu, fyrir þýðingar hans á völdum dönsk- um skáldskap, fyrir skapmikla bók- menntagagnrýni og frumsamið efni sem einkenndist af sterkri nærveru og mikilli breidd. Hann er þekktur greinahöfundur og hlífir sér ekki við ritdeilum um ólík efni, ég minnist þess að minnsta kosti að hafa lesið bráðskemmtilegar greinar eftir hann, þar sem deilt var um hugmynda- fræði hnefaleikja. í fyrsta sinn mun Ragnar Strömberg Ragnar þiggja boð „Bok och Biblio- teks“ nú í byijun september, og kynna þar bæði eigin verk og ann- arra. „Ég verð þarna með upplestur. Les á móti danskri skáldkonu, sem ég held mikið upp á, og sem é£ hef þýtt yfir á sænsku. Ég hef gaman af því. Pia Tafdrup heitir hún. Svo þykir sjálfsagt að maður sé til staðar og áriti bækur og ekkert við því að segja, þannig er þetta bókaþing. En eitt er það sem ég hlakka verulega til og það er að fá að kynna Elmore Leonard, þennan ameríska spennu- sagnahöfund. Hann er sérfræðingur í sakamálum, frægur fyrir bækur eins og „La brava“, „Glitz“ og „Freaky Deaky“. Svo er ég harð- ákveðinn í að fara mér til skemmtun- ar að hlusta á metsöluhöfundinn Jackie Collins. Hún verður líka með- al gesta, að kynna bók sína „Rock Star“.“ Talið berst að því hvernig búið sé að sænskum ljóðskáldum, og Ragnar heldur því fram að fáir lesi ljóð, en margir hampi ljóðskáldum. „Þessi virðing gagnvart þeim sem skrifa Ijóð byggir á svolítið væminni og ég held dæmigerðri norrænni hugmynd um hvað ljóð er. Hásæti tilfinninganna. Og skáldið við púltið sem yrkir og finnur til og yrkir. Sértu á annað borð kominn inn í styrkjakerfið þá getur það orðið hættulega þægileg tilvera að vera ljóðskáld í Svíþjóð. Félagslega vel- ferðarkerfið vefur ljóðið örmum. Þess vegna verður forvitnilegt að sjá hvað gerist nú þegar þetta velferðarkerfí okkar er að hrynja. Það kemur í ljós á næstu áratugum þegar ekki verður lengur af neinu að taka. Þegar hinir ólíku sjóðir til handa rithöfundum og listamönnum verða tæmdir og ríkisstyrkir ekki lengur fyrir hendi, þá grunar mig að þeim fækki sem fást við listir og ljóðagerð. Þegar ekki verður neitt til skiptanna handa hveijum og einum. Engir skjólvegg- ir. Bara kaldur veruleikinn. Mig grunar að þeir einir haldi áfram að skrifa, sem skrifa af nauðsyn." Skrifar þú af nauðsyn? „Jaá. Það geri ég. Æ, svona spekúlasjónir um hvað ef hvað hefði verið ef. Hvað veit ég? Ég hélt út mín hundsár og mín fyrsta bók kom út (Utan önskningar 1975), og það er sama nauðsyn _sem knýr mig til að skrifa í dag. Su sama og þá. Og það má íjandinn vita hvort ég er ekki alltaf að skrifa sama ljóðið.“ Um hvað fjallar Ijóðið? „Um að gera sig raunverulegan. Um að endurfæðast hvern dag. Ég þarf alltaf að geta bent á eitthvað og sagt: Þetta gerði ég, þess vegna er ég til. Ég læt sem ég sé og ég bregst við, þess vegna er ég til. Þetta er grunnurinn, ástæðan fyr- ir því sem ég geri. Hvað ég er er svo annað mál. Það er verkefni sem felur í sér feril sem er fólginn í ólíkum skeiðum, sem felur í sér ólík tak- mörk.“ Stjaman þunga Þú hefur komið of nálægt stjömunni þungu og skuggi þinn sekkur hljóðlaust gepum gólfið Nú eru nætumar svo langar og hægfara að það slær loku fyrir eyrun þegar síminn hringir hjá nágrannanum Þú hefur komið of nálægt stjörnunni þungu og lokar glugganum til að sogast ekki út Á eftir verðurðu að leggjast útaf Ekki til að sofa heldur til að hrapa ekki En þú sofnar í öllum fötunum Og þú hrapar alveg fram á morgun gegnum snjó og draum og blóð alveg fram á morpn Þú hefur komið of nálægt stjömunni þungu Ur „Munnens bok“ 1988 Ef þú yrðir beðinn um að skrifa sögu sænskra bókmennta einhvern tíma í framtíðinni, hvað ímyndarðu þér að þú myndir leggja áherslu á í kaflanum um skáldskap níunda ára- tugarins? „Ég hugsa að maður komi til með að líta á níunda áratuginn — ekki sem neina gullöld, ekki einu sinni silfuröld, en sem uppvakningartíma- bil. Níundi áratugurinn var á ein- hvern hátt .. .prinsinn sem kyssir Þyrnirósu. Skáldskapur og listir vakna aftur til lífs eftir skelfilegt tímabil. Svo er níundi áratugurinn félagslega, sögulega og hugmynda- fræðilega það tímabil þegar fjöímiðl- un menningarlegra viðhorfa verður áberandi og áugljós. Skáld eru vinsæl á síðum vikublaðanna og þá er smart að vera skáld, en það þýðir ekki endilega að ungskáldin séu lesin af almenningi. Fyrir tíu til tólf árum ríkti púritanskur andi yfir bók- menntaheiminum og ný skáldverk áttu engan rétt á sér fyrir það eitt að vera skáldverk. Þá voru gerðar kröfur um félagsleg og pólitísk vöru- merki. Verk urðu að réttlæta sjálf sig. Urðu að vera gagnleg einhveiju málefni, betrumbæta lífið hjá ein- hveijum ákveðnum tilteknum hópi fólks. Þá átti að taka afstöðu. „Angasémang" var Iykilorðið. Út- koman varð verk sem beittu sér fyr- ir öllu öðru en sjálfum sér. List sem ekki er sköpuð af innri nauðsyn held- ur af ytri nauðsyn. Verk skrifuð sem eftir beiðni án þess að nokkur hefði beiðni um þau. Sú verkamannastétt eða sú róttækni sem átti að hafa staðið fyrir pöntuninni var eiginlega bara til á pappírnum. Var ekki til sem virkur pólitískur kraftur. Ein hlið níunda áratugarins er sú að um miðbik hans er Olof Palme myrtur. Og við sjáum þetta land eins og það er og hvers virði það er. Svíþjóð hefur ekki breyst, en Svíar hafa breyst. Svíþjóð hefur alltaf ver- ið hart og stirt stéttaþjóðfélag og nú sýnir það sig. Daglega. Það er eins og við séum búin að slíta barnsskónum og getum verið með í sögunni aftur. Við erum samtíma sögu samtímans, sjáum hvað gerist þegar það gerist. Þetta gæti þýtt afturhvarf til skáldskapar sem berst fyrir einhveiju. „Angasémang" á nýjum grundvelli. Og ástæða til að vona að síðasti ára- tugur þessarar aldar og fyrstu ára- tugir næstu aldar verði sú gullöld sem níundi áratugurinn hefur skapað grundvöll fyrir. Það eru nú ekki inargir mánuðir eftir af honum. En þróunin á níunda áratugnum gerði það mögulegt að skrifa án þess að maður þyrfti að réttlæta verk sín. Svo má segja að nú sé enginn vandi að koma fram á sjónarsviðið sem ungt skáld, það kemur út fjöldinn allur af ljóðabókum, sem sagan mun þegja yfir. Og við því er ekkert að segja því hinn eini mögulegi skaði sem skeður er að það miðlungsgóða og það lélega flæði yfir sjálfstæðan og mikilvægan skáldskap. En slíkt gerist bara tímabundið. Það sem er gott það lifir. Það getur verið í hvarfi og legið í dvala, en fyrr en síðar ljúkast upp augu einhvers gáf- aðs lesanda. Þá er það áberandi að meðal þeirra skálda sem hafa verið stefnumótandi á níunda áratugnum og skarað fram úr eru fleiri konur. Sterk skáld og ljóð þeirra „universell“. Eins og Kat- arina Frosténson og Anna Jáderlund og fleiri. Á áttunda áratugnum var mikið skrifað sem hverfur í gleymsku en sem var ómissandi forvinna með öllum þeim ýkjum sem þarf til þegar ný róttæk hreyfing berst fyrir fót- festu. Og þá er eðlilegt að millistétt- arrótæklingar gangi í broddi fylking- ar, eins og gerðist, og labbi svo út úr lestinni og aðrir fái að halda áfram. Jafnvel þótt uppskerutíminn sé varla kominn, þá má sjá konur á ritvellinum sem eru ekki merktar þessari baráttu, heldur geta leyft sér að vera þær sjálfar og skrifa á þeim grundvelli. Það finnst mér áberandi þegar maður lítur á síðari hluta níunda áratugarins. Þau skáld sem njóta sín eru kannski yngri systkini þeirra sem ruddu brautina." Texti: KRISTÍN BJARNADÓTTIR Ljósm.: C. GABRIELSSON Atvinnulaus momentalmálari Listamannahúsið, Hafharstræti 4, í Reykjavík er sýningarsalur sem opnaði fyrir stuttu og í dag opnar Dagur Sigurðarson málverkasýningu þar. Á sýningunni eru 30 akrílverk og fimm teikningar. Er þetta 9. einkasýning Dags, en þær síðustu voru í Djúpinu 1985 og 1983, og eru öll verkin unnin á síðastliðnum tveimur árum. Listamannsferill Dags hófst fyrir þijátíu árum, þegar hann mynd- skreytti skólablöðin í Gaggó Aust, með framúrstefnulegum abstraksjónum, sem hneyksluðu bæði kennara og for- eldra. En líklega er Dagur þekktari fyrir Ijóð sín og þýðingar á suður- amerískum skáld- um og hann hefur gefið út Ijölda ljóðabóka. Ég spurði hann hvort tengsl væru milli ljóða hans og mynda. „Oftast ekki,“ var svarið, „og ef það er, þá er það lítið meðvitað. Þó kemur það fyrir að ég krota einhverjar hendingar í mynd- irnar. En þótt ekki sé samband á milli, þá eru myndirnar skáldskapur. Þegar ég var ungur, var einu sinni sagt við mig: „Þú átt ekkert að vera að mála, afþví þú ert skáld.“ En ég svaraði þess- uminanni:„Þú átt ekki að mála, afþví þú ert ekki skáld.“ Skáld sem mynd- skreytir ljóðin sín, hættir ekkert að vera skáld afþví hann fer að mála. Ég vil að myndirnar mínar segi sögu, og að hver og einn geti lesið þær. Stundum veit ég ekki hvaða sögu ég er að mála, stundum er það ákveð- in saga.“ Og víst er að myndir Dags eru litrík- ar, fullar af fólki og kynjaverum á sveimi um náttúruna. Þegar ég spyr Dag út í aðdraganda sagnanna, svarar hann: „Ég er atvinnulaus momental- málari, ég vil að fólk lesi sjálft út úr myndunum. En ég verð örugglega ekki atvinnulaus mjög lengi. Það er þannig, að ég hef ekki fengið neitt nógu stórt um tíma. Þessvegna hef ég farið út í að mála litlar myndir. En ég sé ákaflega stórt. Ef fólk sér einhveija mynd eftir mig og stærri mynd eftir annan málara og er síðan spurt hvor myndin sé stærri, segirþað: „Myndin hans Dags.“ Stærð myndar fer ekki eftir fer- metrum." Þú notar sterka og glaða liti. „Já, ég er nátt- úrulega glaðvær. En ég er ekki laus við dramatík og segi frá einhveiju skuggalegu, svona stundum." Þegar ég spyr Dag hvort hann sé að skapa kynjaveröld, segist hann vera að segja- sögur og þegar ég spyr hvort það sé ekki spurning um sköpun, segist hann ekkert vita* hvað sköpun er, „og það veit eng- inn, hvorki prestar né sálfræðingar. Myndirnar eru handverk mitt af sögunum." Líturðu á mynd- list sem handverk? „Nei. En það verður enginn mik- ill meistari, sem ekki getur gert smáu hlutina sína. Þú getur ekkert gert, án þess að í því felist handverk — ekki einu sinni tekið í nefíð.“ Skáldið yrkir eitt og málarinn málar einn. Ertu ekki einmana? „Menn eru til sem einangrast afþví þeir gleyma að lifa — og þegar þeir líta upp vita þeir ekkert hvar þeir eru staddir. Svo eru aðrir, sem vinna innan um fólk og vantar einveru. En ég gleymi ekki að lifa. Maður er manns gaman og ég fer út á meðal manna. Ég er ekki einmana." Sýning Dags, sem opnar klukkan. 15.00 í dag, verður opin klukkan 10-18 daglega næstu þijár vikurnar. ssv Spjallaö viö Dag Siguröar son, sem opnar listsýn- ingu í Listamonnahúsinu ídag íslenska brúðuleikhúsið Starf semin hafin aftur, eftir sumarfrí íslenska brúðuleikhúsið heftir nú hafið starfsemi sína aftur, eftir sumarfrí. Þetta smávaxna leikhús tekur um 30 manns í sæti, og er til húsa við Flyðrugranda hér í Reykjavík. Að sögn Jóns E. Guðmundsson- ar, eiganda leikhússins, sem jafnframt býr til brúðu.rnar og stjórn- ar þeim, er hægt að panta sýningar fyrir hópa í síma 16167. Aðspurður sagði hann að mikið væri um að sýningar væru pantaðar fyrir dag- heimili og leikskóla, auk þess sem sýningarnar virtust vera orðnar vin- sæll liður í afmælisveislum og við önnur slík tækifæri. Hver sýning hjá Islenska brúðu- leikhúsinu tekur um eina klukku- stund í flutningi og hefst á því að píanóleikari leikur eitt verk, þá tekur við gítarleikari. Að því loknu kemur gömul kona af Snæfellsnesi sem seg- ir sögu sína. Þá leikur slöngutemjari listir sínar og fuglar fljúga um svið- ið. Rúsínan í pylsuendanum er svo leikritið Rauðhetta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.