Morgunblaðið - 23.09.1989, Page 42
MORGUNBIiAÐffi iÞROTTiRiÆmmmi SBPTEMBER'1989
?A2
HANDKNATTLEIKUR / HM U-21 ÁSPÁNI
Halldór Ingólfsson, Gróttu, var markahæstur íslensku leikmannanna gegn
Pólveijum í gær og gerði átta mörk. Héðinn Gilsson, B’H, hefur gert 41 mark
í keppninni og á möguleika á að verða markakóngur mótsins.
^ Skólamót
í knattspyrnu
íslandsmót framhaldsskóla verður haldið í okt-
óber og nóvember.
Þátttökutilkynningar, ásamt þátttökugjaldi kr.
4.100,-, sendist skrifstofu KSÍ, pósthólf 8511,
128 Reykjvík, sími 84444, fyrir 29. september.
Knattspyrnusambandið.
Laugardagur kl.13:55
38. LEIKVIKA- 23. sept. 1989 1 X 2
Leikur 1 Arsenal - Charlton
Leikur 2 Aston Villa - Q.P.R.
Leikur 3 Chelsea - Coventry
Leikur 4 C. Palace - Nott. For.
Leikur 5 Derby - Southampton
Leikur 6 Everton - Liverpool
Leikur 7 Luton - Wimbledon
Leikur 8 Man. City - Man. Utd.
Leikur 9 Norwich - Tottenham
Leikur 10 Bournemouth- Blackburn
Leikur 11 Oxford - Ipswich
Leikur 12 West Ham - Watford
Símsvarl hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002
Munið hópleikinn !
ísland leikur um 5. sætið:
„Árangur framar
öllum vonum“
- sagði Hilmar Björnsson, þjálfari íslenska liðsins,
sem tryggði sér þátttökurétt í næstu lokakeppni
„VIÐ erum auðvitað mjög án-
ægðir, en því er ekki að neita
að það tók á taugarnar að horfa
á leik Spánverja og Svía, eink-
um síðustu sekúndurnar,"
sagði Hilmar Björnsson, þjálf-
ari íslenska landsliðsins, við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Þá
var fyrrnefndum leik rétt lokið
með 19:17 sigri Spánverja og
um leið Ijóst að ísiand myndi
leika um 5. sætið, sennilega
gegn Rúmeníu, og hafði auk
þess tryggt sér þátttökurétt í
næstu lokakeppni, sem verður
f Grikklandi eftir tvö ár.
Spánverjar sigruðu í riðlinum,
fengu 8 stig og 18 mörk í plús,
og leika til úrslita á morgun. Vest-
ur-Þjóðveijar unnu Ungveija 25:20,
fengu átta stig og átta mörk í plús,
og leika um bronsið í dag. ísland
vann Póliand 30:20 í gær, fékk 6
stig og 11 mörk í plús, en Svíar,
sem fengu sex stig og fimm mörk
í plús, féllu úr hópi a-þjóða.
Taugaspenna
Að sögn Hilmars treysti íslenski
hópurinn sér ekki til að vera áfram
í höllinni og horfa á leik Spánveija
og Svía, en fylgdist þess í stað með
viðureigninni á hótelherbergjunum
ÍÞRÚmR
FOLK
■ HILMAR Björnsson stóð í
sömu sporum í Portúgal árið 1981.
Þá náði íslenska liðið undir hans
stjórn 6. sæti í keppninni. í dag
getur liðið gert betur — sigrað og
hafnað í fimmta sæti.
■ ÍSLENSKI hópurinn átti að
koma heim á þriðjudag. Nú er hins
vegar verið að reyna að komast í
leiguflug á sunnudag og ef það
gengur, koma strakarnir heim ann-
að kvöld.
í beinni útsendingu sjónvarps.
„Þetta var rosalegt. Svíum nægði
jafntefli til að komast áfram, mark-
vörður þeirra varði vel og jafnt var
á öllum tölum. Spánveijar náðu
boltanum, er 20 sekúndur voru eft-
ir og þær voru lengi að líða,“ sagði
þjálfarinn.
„Það er svakalegt að þurfa að
standa í þessum markadansi," sagði
Hilrriar, „en árangur íslenska Iiðsins
er framar öllum vonum. Að sigra
Pólveija, Vestur-Þjóðveija, Ung-
veija og Tékka í svona handbolta-
keppni er meira en að segja það
og að Svíar skuli falla úr hópi a-
þjóða undirstrikar styrkleikann.
Arangur íslenska liðsins er framar
öllum vonurn."
lOmarkasigur
Strákarnir byijuðu illa gegn Pól-
veijum, voru sex mörkum undir um
tíma, en náðu að jafna fyrir hlé,
11:11. Reyndar gerðu þeir 12.
markið — boltinn fór í gegnum
netið — en dómararnir voru ekki
sammála og markið ekki dæmt.
Piltarnir héldu uppteknum hætti
eftir hlé og voru yfirleitt með
tveggja eða þriggja marka foi-ystu,
þar til um miðjan hálfleikinn að
Pólveijarnir gáfu eftir.
Bergsveinn Bergsveinsson var í
markinu allan leikinn og stóð sig
vel. Halldór Ingólfsson var marka-
hæstur, gerði átta mörk. Konráð
Olavson kom næstur með sjö mörk.
Héðinn Gilsson skoraði fimm, hefur
gert 41 mark og keppir að marka-
kóngstitli mótsins. Þorsteinn Guð-
jónsson og Sigurður Bjarnason
gerðu fjögur mörk hvor og Sigurður
Sveinsson tvö mörk.
HANDKNATTLEIKUR
Dagur hefur kært
handknattleiks-
deild Fram og HSÍ
- fyrir að neita að skrifa undir félagaskipti
Dagur Jónásson, handknatt- Samkvæmt reglum HSÍ um
ieiksmaður, hefur kært handknattleiksmót segir: „Leik-
handknattleiksdeild Fram og maður sem óskar eftir félaga-
Handknattleikssamband Islands skiptum, skal fá undirskrift hins
fyrir að neita að skrifa undir fé- nýja svo og síns gamla félags á
lagaskipti hans úr Fram yfir í félagaskiptaeyðiblað HSÍ. Séu fé-
Víking. lögin ekki sammála um félaga-
Málavextir eru þeir að s.l. skipti viðkomandi leikmanns fyrir
keppnistímabil lék Dagur með 1. ágúst, skal leikmaður sæta leik-
Fram. I júlí óskaði hann éftir sam- banni með sínu nýja félagi í 6
þykki handknattleiksdendar Fram mánuði frá 1. ágúst að telja. Eft-
á félagskiptum yfir í Víking, sem ir þann tíma er leikmanni heimilt
Fram neitaði. Dagur lagði inn að leika með sínu nýja félagi.
umsókn um félagaskiptin á skrif- Leikmaður má ekki leika með sínu
stofu HSI þann 31. ágúst og voru gamla félagi félagi á sama tíma-
þau samþykkt af handknattieiks- bili og hann er í keppnisbanni
deild Víkings. með sínu nýja félagi.“
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Argentínumaðurinn
slær í gegn hjá Stuttgart
Argentínumaðurinn Basvaldo vakti
mikla athygli þegar Stuttgart lagði
Bayern Múnchen að velli, 2:1, á Neckar-
leikvanginum í Stuttgart á miðvikudags-
kvöldið. Hann fór á kost-
um á miðjunni og skoraði
fyrsta mark Stuttgart.
Leikmenn Stuttgart
voru einfaldlega betri en
við,“ sagði Jupp Heynckes, þjálfari Bay-
ern, eftir leikinn. Þrátt fyrir stórgóðan
leik Asgeirs - fyrst gegn Kaiserslautern
og síðan með.íslenska landsliðinu gegn
Tyrkjum, á hann erfitt að vinna sér aft-
ur sæti í Stuttgart-liðinu. V-þýski lands-
liðsmaðurinn Michael Frontzeck, sem
Stuttgart keypti frá Mönchengladbach,
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
hefur tekið stöðu Ásgeirs á vinstri
vængnum. hann er 20 ára og á eftir að
verða miklu betri. Frontzeck er meiri
varnartengiliður heldur en Ásgeir.
Stuttgait hefur saknað sóknarleik-
mannsins Manfred Kastl, sem var keypt-
ur frá Leverkusen. Ilann er meiddur.
Með sigri Stuttgarts er staðan á
toppnum orðin jöfn og spennandi. Bay-
ern, Leverkusen og Köln eru með fjórtán
stig. Frankfurt, Núrnberg og Stuttgart
eru með tólf stig og Mönchengladbach
og Mannheim eru með ellefu stig.
Ásgeir Sigurvinsson
gæti átt erfitt með að
vinna sæti sitt í Stuttg-
artliðinu.