Morgunblaðið - 24.01.1990, Síða 1
48 SIÐUR B
19.tbl. 78. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1990_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rúmenía;
Þjóðarráðið
í framboði
sem flokkur í
kosmngunum
Búkarest. Reuter.
Þjóðarráðið I Rúmeníu til-
kynnti í gær að ráðinu yrði breytt
í flokk og að hann yrði í framboði
i kosningunum, sem áformaðar
eru 20. maí. Aðrar stjórnmála-
hreyfingar í landinu gagnrýndu
þessa ákvörðun harðlega.
Silviu Brucan, talsmaður fram-
kvæmdanefndar Þjóðarráðsins,
sagði að ráðið væri reiðubúið að
bjóða Sameinuðu þjóðunum að senda
nefnd til að fylgjast með kosningun-
um. Talsmenn Þjóðarráðsins, sem
tók við völdunum í landinu eftir
byltinguna um jólin, höfðu áður sagt
að ráðið tæki ekki þátt í kosningun-
um og yrði leyst upp að þeim lokn-
um.
PVjálslyndi flokkurinn sakaði
Þjóðarráðið um að hafa misnotað
aðstöðu sína og svikið rúmensku
þjóðina. „Þetta vekur alvarlegar efa-
semdir um hvort kosningamar verða
í raun frjálsar," sagði í yfirlýsingu
flokksins. Bændaflokkurinn tók í
sama streng og sagði ákvörðunina
ólöglega. Doina Cornea, einn af
fáum andófsmönnum landsins á 24
ára valdatíma Niculae Ceausescus,
fyrrum einræðisherra, sagði sig úr
Þjóðarráðinu í gær til að mótmæla
stefnubreytingunni.
Sjá „Sakaðir um aðild . . .“ á
bls. 20.
Evrópuþingið;
Sjómönnum
verði bætt-
ur aflanið-
urskurður
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞING Evrópubandalagsins (EB)
hefúr samþykkt ályktun þess efnis
að greiða beri sjómönnum bætur
vegna niðurskurðar á aflaheim-
ild-
um á þessu ári. í ályktuninni er
framkvæmdastjórn bandalagsins
átalin fyrir að bera meiri um-
hyggju fyrir fiskistofnunum en
sjómönnum.
Ályktunin gerir ráð fyrir því að í
vemdaraðgerðunum verði tekið auk-
ið tillit til efnahags- og félagslegra
aðstæðna sjómanna og byggðarlaga.
Jafnframt er lögð áhersla á að sjáv-
arútvegur innan EB njóti góðs af
fyrirhugaðri tvöföldun byggðasjóða
bandalagsins og framkvæmdastjóm-
in hafi frekara samráð við þingið
og hagsmunaaðila í sjávarútvegi
þegar heildaraflamörk eru ákveðin.
I ályktuninni er kveðið á um
skyldu bandalagsins til að bæta sjó-
mönnum það tjón sem þeir verða
fyrir vegna verndaraðgerða, sérstak-
lega á svæðum sem byggja að mestu
afkomu sína á sjávarútvegi. Þá er
lögð áhersla á að aukið tillit skuli
tekið til gagnkvæmni í samningum
við ríki sem flytja sjávarafurðir til
bandalagsins, þ.e. að floti EB fái
veiðiheimildir í lögsögum þeirra.
Reuter
Georgíumenn krefjast sjálfstæðis
íbúar Tíflis, höfuðborgar Georgíu, safnast hér saman fyrir utan opinbera byggingu í borginni eftir að
hafa hætt mótmælasvelti í gær. Þeir hófu sveltið á fimmtudag til að krefjast þess að Georgía hlyti sjálf-
stæði frá Sovétríkjunum.
Sovéski heraflinn
í Ungveijaiandi;
Sovétmenn
sagðir fallast á
brottflutning
Búdapest. Reuter.
MIKLOS Nemeth, forsætisráð-
herra Ungverjalands, sagði í gær
að sovésk stjórnvöld hefðu fallist
á að kalla alla hermenn sína í
Ungveijalandi heim og að unnt
yrði að flytja þá á brott á „n\jög
skömmum tíma“.
Nemeth kvaðst hafa rætt málið
tvisvar á sex vikum við Níkolaj
Ryzhkov, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna. „Við vorum á sama máli
um að vera sovéska heraflans í
Ungveijalandi bygðist á úreltum
stjómmála- og hernaðarhugmynd-
um og forsendurnar væru algjörlega
brostnar," sagði hann. Meira en
50.000 sovéskir hermenn hafa verið
í Ungveijalandi frá því Ungveijar
reyndu að segja sig úr Varsjárbanda-
laginu í uppreisninni árið 1956.
Sjá „Innanríkisráðherrann seg-
ir af sér“ á bls. 20.
Azerar krefjast brottflutnings sovéskra hermanna úr Azerbajdzhan;
Hóta skæruhernaði og að
sprengja olíuskip í loft upp
Moskvu. Reuer.
VOPNAÐIR menn sátu í gær um herflutningabíla, skipstjórar olíu-
skipa sögðust ætla að sprengja skip sín í loft upp og herskáir Azer-
ar hótuðu að hefja „alvöru skæruhernað" í dag ef sovéski heraflinn
í Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan yrði ekki sendur burt. Tálsmaður
Þjóðfylkingarinnar í Azerbajdzhan, samtaka þjóðernissinna, kvað
þó Azera reiðubúna að hefja viðræður við Kremlverja og sovéskur
hershöfðingi, Jevgeny Netsjajev, sagði að sovésk sljórnvöld og þjóð-
ernissinnar í Azerbajdzhan þyrftu að jafna ágreining sinn með gagn-
kvæmum tilslökunum.
í gær til að mótmæla íhlutun sov-
éska hersins í lýðveldinu. Þá eru
félagar í kommúnistaflokki lýðveld-
isins sagðir hafa kveikt í flokks-
skírteinum sínum í mótmælaskyni.
Talsmaður Þjóðfylkingarinnar í
Armeníu fordæmdi hernaðaríhlutun
Sovétstjómarinnar í Azerbajdzhan
og sagði hana brot gegn „sjálfs-
ákvörðunarrétti lýðveldisins".
Bandaríkjastjórn hvatti sovésk
stjórnvöld til þess að hefja viðræður
við Azera og taka tillit til krafna
þeirra og stjórnmálaskoðana.
Sjá fréttir á bls. 21.
Netsjajev kvaðst telja að Þjóð-
fylkingin í Azerbajdzhan væri ekki
viðriðin „hryðjuverk" gegn sovésku
hermönnunum er réðust inn í Bakú,
höfuðborg Azerbajdzhans, á laug-
ardagsmorgun. „Áð minni hyggju
þurfum við að hefja samningavið-
ræður við þessi samtök og sættast
á málamiðlun,“ sagði hershöfðing-
inn á blaðamannafundi á vegum
sovéska innanríkisráðuneytisins.
Þing Azerbajdzhans krafðist þess
á mánudag að hermennirnir, sem
sendir voru til Azerbajdzhans í fyrri
viku, yrðu kallaðir heim og hótaði
að segja lýðveldið úr lögum við
Sovétríkin ef það yrði ekki gert.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði að Sovétstjórnin hefði ekki
svarað þeirri kröfu. Þjóðfylkingin
gaf stjómvöldum tveggja daga frest
til að verða við kröfunni og rennur
hann út í dag. „Við bíðum til morg-
uns og síðan hefjum við alvöru
skæruhernað, beijumst til síðasta
manns,“ sagði félagi í Þjóðfylking-
unni í gær.
Sovéska innanríkisráðuneytið
sagði að „öfgamenn" hefðu þrisvar
hafið skothríð á hermenn í Bakú í
fyrrinótt. Þrír hefðu fallið í árásun-
um, þar af tveir hermenn. Útvarps-
Varnarmálaráðherra V-Þýskalands;
Varar við hugsan-
legu falli Gorbatsjovs
fréttamaður sagði að vopnaðir
menn hefðu setið um bílalestir, sem
fluttu konur og börn hermanna frá
Bakú. Gerasímov sagði að fjölskyld-
ur hermanna hefðu verið fluttar
sjóleiðis frá höfuðborginni en Azer-
ar hefðu stöðvað skipin á smábátum
og krafist þess að fá að leita að
líkum í þeim. Það hefðu þeir fengið
en engin lík fundið. Þrálátur orð-
rómur hefur verið á kreiki í Az-
erbajdzhan um að hermenn kasti
líkum Azera í Kaspíahaf til að halda
tölu látinna í árásinni á Bakú niðri.
Sovésk stjórnvöld segja að 83 hafi
beðið bana í árásinni en Azerar
segja að mun fleiri hafi týnt lífi.
Sovéska dagblaðið Komso-
molskaja Pravda skýrði frá því í
gær að skipstjórar fimmtíu olíu-
skipa hefðu sent yfirmanni sovéska
heraflans í Azerbajdzhan skeyti,
þar sem þeir hefðu hótað því að
sprengja skip sín í loft upp yrði
herinn ekki sendur á brott. Þeir
munu þó ekki hafa gefið stjórn-
völdum neinn ákveðinn frest til að
verða við kröfunni.
Herskáir Azerar, sem ofsóttu
Armena í fyrri viku, eru nú sagðir
ráðast á Rússa, sem búsettir eru í
Bakú. Efnt var til funda og Verk-
falla víðs vegar um Azerbajdzhan
Bonn. Reuter.
HAFT var eftir Gerhard Stolten-
berg, varnarmálaráðherra Vest-
ur-Þýskalands, í gær að Vestur-
landabúar þyrftu að búa sig
undir þann möguleika að
Mikhaíl Gorbatsjov Sovétforseta
yrði steypt af stóli.
„Framtíðin er öldungis óráðin.
Við verðum að búa okkur andlega
undir það að þróunin verði til hins
verra,“ sagði hann í viðtali við
vestur-þýska dagblaðið Die Welt
Hann sagði að Vesturlandabúum
væri akkur í umbótastefnu Gorb-
atsjovs en staða hans væri veik
vegna ástandsins í Kákasuslönd-
unum og aðskilnaðarkrafna
Eystrasaltsþjóðanna. Búast mætti
við langvarandi kreppu og þjóða-
ólgu í landinu.
Varnarmálaráðherrann sagði og
að stefna Sovétstjórnarinnar í her-
málum væri á margan hátt þver-
Gerhard Stoltenberg
sagnakennd. Augljóst væri að hún
hefði hug á afvopnun en héldi þó
áfram að útvega hersveitum sínuni
- meðal annars i öðrum Varsjár-
bandalagsrikjum - nýrri og öf lugri
vopn.