Morgunblaðið - 04.03.1990, Síða 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ MENIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 4. MARZ 1990
MELVIS Presley lést fyrir
13 árum, en er enn ofarlega í
hugum fjölmargra Bandaríkja-
manna. Æsifréttablöð birta í
sífellu fregnir af því að sjáist
í stórmörkuðum víða í Banda-
ríkjunum, aukinheldur sem
risavaxið líkneski hafí sést á
mars. Nú er búið að setja upp
fyrstu sjálfvirku Elvis-kirkj-
una. Kirkjan er sjálfsali sem
opinn er allan sólarhringinn.
Hann birtir orð goðsins á sjón-
varpsskjá og leikur viðeigandi
tónlist eftir athöfnum. Það er
þvi tilvalið fyrir þá sem hyggj-
ast láta splæsa sig saman að
bregða sér til Bandaríkjanna,
en kirkjan er á 219 South
West Ankeny Street, Portland,
Oregon.
FRONSK/MALISK
LISTAHÁTÍÐ
EINS og fram kemur ann-
arsstaðar á síðunni leita
aðstandendur Listahátí-
ðar nú að dægiirtónlistar-
mönnum til að troða upp
fyrri hluta júní. Ekki hafa
þeir enn allir komið i leit-
irnar en næsta öruggt er
að Les Negresses Vertes
og Salif Keita munu troða
upp.
Negresses Vertes er
frönsk ska/rai/flamen-
co/rokk/þjóðlagasveit sem
vakið hefur allmikla athygli
á undanfömum mánuðum
fyrir plötu sína Mlah, sem
selst hefur allvel hér á landi.
Þeir sem sáu sveitina á Hró-
arskelduhátíðinni síðasta
sumar bera henni vel söguna
og segja hana með frískari
tónleikasveitum.
Les IMegresses Vertes Franskir niðurrifsmenn og háð-
fuglar.
Salif Keita Maliskur griot
af aðalsættum.
Salif Keita er malískur
albinói sem vakið hefur mikla
athygli í Frakklandi fyrir
tónlist sína sem er hátækniv-
ædd þjóðleg afrísk popptón-
list. Hann hefur sent frá sér
tvær breiðskífur og seldist
nýrri platan, Ko-Yan, vel
ytra, þó ekki hafí borið eina
á henni hér. Kunnugir segja
að tónleika með Keita séu
ógieymanleg upplifun, en
hann þykir með sérstæðari
söngvurum sem komið hafa
frá Afríku seinni ár. Hann
kemur með sautján manna
sveit með sér.
TONLISTAR-
ÆVISAGA
EINN hæfileikamesti útsetjari („producer") Banda-
rílganna í dag er án efa Quincy Jones. Um það vitna
plötur sem hann helúr stýrt upptökum á seinni ár, s.s.
plötur Michaels Jacksons Off the Wall, Thriller og Bad.
En Quincy er þó þekktari sem tónlistarmaður og fyrir
stuttu sendi hann frá sér breiðskífú þar sem nokkrir af
fremstu tónlistarmönnum Bandaríkjanna leggja honum -
lið.
Platan nýja heitir Back
on the Block og ekki
hans fyrsta. Síðan hann
sendi frá sér fyrstu plötuna
1959 hefur hann sent frá sér
45 plötur af öllum gerðum.
Samstarfsfólk Quincy á
plötunni nýju er ekki af verri
endanum; George Benson,
Ray Charles, Miles Davis,
Kool Moe Dee, Geeorge
Duke, Sheila E., Ella Fitz-
gerald, Bobby McFerrin, Ice
T og Barry White, svo ein-
hveijir séu nefndir. A plöt-
unni bregður fyrir brasilískri
tónlist, jass, hipphop, poppi
og afrískri tónlist, enda seg-
ist Quincy hafa langað til að
ná fram því sameiginlega í
DÆGURTONLIST
Sigrar dansrokkib heiminnf
Quincy Jones
öllum þessum tónlistarstefn-
um. Hann segir og að Back
on the Block sé einskonar
tónlistarævisaga hans, þar
sem bregði fyrir öllum þeim
afbrigðum tónlistar sem
hann hafi fengið dálæti á
síðan 1950.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Aðstandendur plötunnar nýju Hilmar, Hjörtur, Megas
og Gulli.
Plata í áskrift
UM þessar mundir eru liðin tvö ár síðan Megas var í
hljóðveri að taka upp tímamótaplötuna Höfúðlausnir. Sú
plata kom út vorið 1988 og týndist, þrátt fyrir góðar
viðtökur gagnrýnenda. Að mati Megasar brást dreifíng
á plötunni illilega. 1 lagi á Höfúðlausnum segir að
„drukknuð börn leiti í brunninn", en hann hyggur þó á
nýjar aðferðir við að koma plötu til kaupenda.
Nýja platan, sem verður
tvöföld plata/tvöfaldur
geisladiskur, kemur út í enda
apríl ef allt gengur eftir og
verður dreift til áskrifenda
eingöngu. Aðeins verða gefin
út af plötunni 2.999 eintök,
1200 diskar og 1799 plötur,
eintökin verða ekki fleiri til
að forðast gullplötugjöf. En
hvers vegna að gefa plötuna
út í áskrift?
Megas: „Reynslan með
Höfuðlausnir sýndi það svo
ekki verðum um villst að það
ríkir stríðsástand á plötu-
markaðnum og ég hef ekki
hug á að lenda í þeim slag
sem saklaus áhorfandi."
Hilmar: „Við teljum það
víst að platan verði að safn-
grip á tveimur mánuðum eft-
Mánudagar
til...
DANSÆÐIÐ í Bretlandi sem reis fyrir tveimur til þrem-
ur árum hefur nú skilað sér inn í rokkið og þeim sveit-
um fjölgar sem leika „dansrokk“. Efnilegustu sveitir
Bretlandseyja eru á dansrokklínunni, Stone Roses og
Happy Mondays, og reyndar má segja að þær sveitir
hafí þegar náð almennum vinsældum. Stonc Roses er
spáð ámóta velgengni og U2, en tónlist Happy Monda-
ys þykir ekki eins auðtekin.
ir útgáfu."
Verða þá ekki bara press-
aðar fleiri plötur?
Hilmar: „Mótunum verður
sökkt í Norðursjó um leið og
búið er að steypa 2.999 ein-
tök.“
Alls koma um 30 manns
við sögu á plötunni, en kjam-
inn er hijómsveit sem skipuð
er þeim Hilmari, Birgi Bald-
urssyni, Guðlaugi Óttarssyni
og Haraldi Þorsteinssyni.
Bakraddir skipta einnig
miklu og meðal bakradda-
söngvara má nefna Björku
Guðmundsdóttur og Sigrúnu
Jónsdóttur, sem ekki hefur
sungið inn á plötu í fjölda
ára. Einnig voru til kallaðar
átta „gellur“ af Gauknum,
sem hóað var í föstudags-
kvöld fyrir stuttu.
■ LISTAHÁTÍÐ er framund-
an í Reykjavík og nú er verið
að ganga frá því hvaða popp-
goðar komi fram. Minnugir
þess þegar Leonurd Cohen
fyllti Laugardalshöllina ák-
váðu aðstandendur hátíðar-
innar að bæta um betur og
fá Bob Dylan til að troða upp
með sveit sinni. Eftir langa
mæðu tókst að fá svar frá
umboðsmanni Dylans, sem
sagði að Dyian myndi gjarnan
spila í á íslandi í byijun júní,
en vildi fá 250.000 dali, um
15 milljónir ísl. kr., fyrir við-
vikið. Varla þarf að taka það
fram að ekki er Bob Dylan
væntanlegur að sinni.
Happy Mondays heldur
tónleika hér á landi í
hátíðasal Menntaskólans við
Hamrahlíð 17. mars nk. Það
er mikili fengur fyrir
dansfífl
íslensk,
ekki síður
en fyrir
rokká- -
huga-
menn. Ég
— . náði tali
eftir Árna af tals-
Matthíasson manni
sveitarinnar, söngvaranum
Shaun Ryder, fyrir stuttu.
Shaun hefur mikið á sinni
könnu og það gekk brö'sug-
iega að fínna hentugan tíma
fyrir spjallið sem var um
síma. Shaun var vel afslapp-
aður og gerði sér greinilega
ekki mikiar grillur um alla
veigengnina í seinni tíð,
enda sagði hann sveitina
hafa starfað saman í níu ár
og kæmi því fátt á óvart.
„Við stofnuðum þessa
hljómsveit upphaflega okk-
ur til skemmtunar og í átta
ár hefur það gengið vel.
Vinsældirnar á síðasta ári
komu ekki flatt upp á okk-
ur, en fyrst og fremst gera
þær okkur kleift að
skemmta okkur enn betur.
Að öðru leyti breyta þær
ekki svo miklu."
— Tónlistin sem sveitin
leikur hefur verið kölluð
dansrokk, en ekki bar eins
HaPpyMondays
Við stofnuðun, hljómsveitina okfcur til skemmtunar.
á slíku á fyrstu plötunni,
sem John Cale [áður með
Velvet Underground m.a.]
útsetti.
„Þegar við byijuðum að
spila voru fönkáhrifin sterk
og við höfðum sérstakt dá-
læti á bandarískur fönk-
sveitum eins og Funkadelic.
Það bar ekki á því á fyrstu
piötunni, enda vissum við
ekkert hvað var að gerast í
hljóðverinu og Cale réð öllu.
Það var ekki fyrr en við
fórum að taka upp Bummed
að okkur tókst að fá það
fram sem við vildum í góðu
samstarfi við Hannet.“
Á tónieikum sveitarinnar
er með henni á sviðinu dans-
ari, sem kallaður er Bez og
setur mikinn svip á það sem
fram fer. Shaun sagði Bez
hafa verið með sveitinni
nánast frá byijun og byijað
að dansa vegna þess að
hann hafi hrifist af tónlist-
inni.
Eins og áður sagði nýtur
svejtin nú mikillar hylli í
Bretlandi og er við það að
ná fótfestu í Bandaríkjun-
um. Breskir plötukaupendur
þykja hrifnæmir og að sama
skapi fljótir að fá leið á
nýjungum. Hvað verður um
Happy Mondays ef sveitin
verður gleymd að ári?
„Ég tek hvetjum degi eins
og hann kemur fyrir og velti
ekki mikið fyrir mér vin-
sældunum. Ef þær hefðu
skipt meginmáli, hefðum við
líklega aidrei haldið út að
spila í öil þessi ár. Það eitt
skiptir máli að við getum
haldið áfram að spila eins
og hingað til.“