Morgunblaðið - 04.03.1990, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 4. MARZ 1990
30 C
ÆSKUMYNDIN ...
ER AF ÓLÖFU KOLBRÚNU HARÐARDÓTTUR.
Duglegog
til fyrir-
rnyndar
Hún syngur Neddu í óperunni Pagliacci
eftir Leoncavallo í uppsetningu Islensku
operunnar í Ganda bíói. Á síðustu árum
hefúr hún túlkað margar frægustu kven-
persónur óperusögunnar og hlotið lof og
vinsældir fyrir. Ólöf Kolbrún heitir hún
og fæddist i Reykjavík 20. febrúar árið
1949, dóttir hjónanna Harðar Haralds-
sonar húsasmíðameistara og Aðalheiðar
Jónasdóttur hjúkrunarkonu. Auk söng-
menntunar heima og erlendis er hún
kennari að mennt. Eiginmaður Ólafar
er Jón Stefánsson organisti og söngsljóri
i Langholtskirkju.
*
Olöf Kolbrún ólst upp í Lang-
holtshverfi, þar sem hún hefur
búið allar götur síðan. Hún er elst
fjögurra alsystkina, en á auk þess
tvö hálfsystkini. Á heimili hennar
var almennur tónlistaráhugi. Fjöl-
skyldan fór í leikhús og sá óperur
þau fáu skipti sem tækifæri gafst
til í þá daga. Á heimilinu tíðkaðist
ekki að skrúfa niður í sígildri tón-
list í útvarpinu. Það lá kannski
beint við að ung stúlka frá slíku
heimili færi í Listdansskóla Þjóð-
leikhússins. Þar hóf hún ballettnám
sjö ára gömul og stundaði það til
18 ára aldurs, en þá var ekki um
annað að ræða en velja á milli
ballettsins og söngsins.
Hún var mjög dugleg, lét að sér
kveða hvar sem hún var. Snemma
fór hún að syngja í Langholtskirkju
og gerir enn og á skólaskemmtun-
um í Vogaskóla söng hún og spilað
á gítar. Hún var formaður æsku-
lýðsfélagsins í Langholtskirkju í
eitt ár og einnig formaður skólafé-
lagsins. „Það hefur alltaf verið mjög
mikið að gera í kringum hana, en
hún hefur alltaf gefið sér tíma
fyrir vini sína,“ segir Anna Guð-
mundsdóttir, vinkona Ólafar Kol-
Upptekin
Átti samt alltaf
tíma fyrir vini sína
brúnar frá 8 ára aldri. Anna segir
aðspurð að Ólöf hafi síður en svo
verið frek. „Hún hefur alltaf verið
sanngjörn, þótt hún hafi verið
ákveðin og vitað hvað hún vildi.“
Þegar hún var í Vogaskóla taldi
hún ekki eftir sér að mæta á æfing-
ar áður en skólinn hófst á morgn-
ana. Reyndar var hún árrisul mjög
og leiddist ef aðrir í fjölskyldunni
sváfu frameftir. Hún var full af
orku. „Ég get ekki ímyndað mér
að foreldrar geti óskað sér betri og
heilbrigðari ungling en hún var,“
segir Elín Bergs vinkona Ólafar
Kolbrúnar frá 11 ára aldri.
Vinir Ólafar segja hana aldrei
hafa ofmetnast þrátt fyrir vinsældir
og velgengni. Hún varð strax eftir-
sóttur félagi og áreiðanleiki hennar
og trygglyndi áttu sinn þátt í því.
-!
ÚR MYNDASAFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Hægri umferð
tekur gildi
Hægri umferð tók gildi á íslandi
sunnudaginn 26. maí árið
1968. Skoðanir manna um nauðsyn
breytingarinnar frá
vinstri til hægri voru í
fyrstu skiptar, en eftir
að endanleg ákvörðun
var tekin lögðu flestir
sig fram til að tryggja
að breytingin mætti
takast sem best, enda
varð sú raunin. Fá um-
ferðaróhöpp urðu þótt
þúsundir landsmanna færu út á
götumar á bílum sínum fyrsta dag-
inn. Menn höfðu líka verið hvattir
til að sýna tillitssemi og líklega
hefur jákvæðara hugarfar ekki fyrir-
fundist hjá íslenskum ökumönnum í
annan tíma en einmitt þennan dag.
Kjörorð dagsins vom
líka: „Brosum í umferð-
inni“ og „Við emm öll
byijendur“, og fleira í
þeim dúr. Löggæslu-
menn um land allt unnu
líka mikið og gott starf
við að leiðbeina öku-
mönnum og sýndu mikla
þolinmæði, sem og aðrir
vegfarendur. Meðfylgjandi myndir
vom teknar á þessum merku tíma-
mótum í maí 1968.
Séð vestur Miklubraut í vinstri umferð, daginn áður en
breytingin tók gildi.
STARFID
STEINAR MÁR GUNNSTEINSSON VERKSTJÓRI
BÓKIN PLATAN
Á NÁTTBORÐINU Á FÓNINUM
Steinar Már Gunnsteinsson
Stundum erum við
ekkert vinsælir
Eflaust hafa margir orðið fyrir
því að finna ekki bíla sína eftir
að hafa lagt þeim ólöglega. Öku-
menn taka gjarnan „sjensinn" á
gangstéttinni, einkastæðinu, inn-
keyrslunni eða brunahananum ef
ekkert sjáanlegt stæði er láust í
grendinni. Hinsvegar getur slíkt
athæfi orðið viðkomandi öku-
manni dýrkeypt því kostnaðurinn
i'ið kranabílsflutning og sekt
hljóðar upp á tæpar fimm þúsund
krónur. Sé bíllinn ekki sóttur
samdægurs í bílageymsluna kost-
ar hver aukadagur 800 krónur.
Yið erum með sex kranabíla á
ferðinni alla daga. Einn helgar
sig miðbænum algjörlega og fjarlæg-
ir hann að meðaltali sjö til átta bíla
daglega. Stundum emm við ekkert
vinsælir. Yfirleitt tekur fólk þessu
vel, það veit upp á sig sökina. En
það em alltaf einhveijir sem skamm-
ast út í okkur,“ segir Steinar Már
Gunnsteinsson, verkstjóri Vöku hf.
Stór hluti af starfsemi Vöku er
hreinsun á númerslausum bílum, sem
skildir hafa verið eftir á víð og
dreif. Á síðasta ári vom 2.000 slíkir
bílar fjarlægðir. „Yfirleitt em þessir
bílar hálfónýtir. Um það bil tveir af
hverjum tíu bílum eru sóttir til okk-
ar, en hinir fara á uppboð eða eru
rifnir í varahluti ef eigendur hafa
ekki látið sjá sig eftir mánaðarg-
eymslu."
ÞETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ...
Seltjamamesið
lítið og lágt...
Reykvíkingum fínst þetta
girnilegur biti og vita,
að þessi sveit er einhver mesta
framfarasveit landsins . . .
Löngun Reykvíkinga í Seltjarn-
ames er ekkert annað en löngun
úlfsins í lambið.
*
Eg var að byija á bók um Morg-
an Kane sem heitir Lögmál
frumskógarins. Kærastinn fer alltaf
á fornbókasölu eftir Morgan Kane-
bókum svo að ég kemst í þær af
og til. Ég les mikið af reyfurum,
en ástarsögumar eru í miklu uppá-
haldi hjá mér á stórhátíðum. Ég
hef til dæmis ekkert á móti því að
fá eina til tvær slíkar bækur í jóla-
gjöf.
*
Eg hlusta á alla tónlist nema
þungarokk. Það finnst mér
ekki vera músík. Annars er sami
plötubunkinn yfirleitt ávallt við
plötuspilarann. í honum má meðal
annars finna plötur með Dire
Straits og Bmce Springsteen. í
bunkanum er líka þjóðlagatónlist
og jass kemur við sögu hjá mér
líka. Þetta er svona úr öllum áttum.
Árni Ein-
arsson 12
ára
Núna er ég að lesa Fátækt fójk
eftir Tiyggva Emilsson. Ég
er líka að fara yfir Brekkukotsan-
nál Halldórs Kiljan Laxness. Sú bók
hefur að vísu áður verið á náttborð-
inu hjá mér, en aldrei er góð vísa
of oft kveðin.
*
Eg hlusta voða lítið á hljómplöt-
ur. Nýlega hef ég þó hlustað
töluvert á nýju plötuna með New
Kids on the Block og nýju plötuna
með HLH-flokknum.
MYNDIN
í TÆKINU
Indriði Ingi
Styrkárson
12 ára
Síðasta myndin sem ég horfði á
hét að inig minnir Tveir á
toppnum og var hún spennumynd.
Ég fæ mér frekar sjaldan mynd-
bönd, en er mest fyrir grín- og
spennumyndir. Það em margar
góðar myndir, sem maður liefur
séð, en ég man aldrei nein nöfn.
Grínmyndin Bugsy Malone var
síðast í tækinu hjá mér. Mér
fannst hún mjög góð. Ég fæ mér
nokkuð oft myndbandsspólur á leig-
unum og þá aðallega grínmyndir.