Morgunblaðið - 25.01.1991, Qupperneq 27
-Mok'GÖNMÍéíé FOStUDAGUR 25. ír
Utgerðarfélag Akureyringa:
Alþýðufiokkurinn: ^
Aflaverðmæti togar-
anna ríflega millj-
arður á síðasta ári
AFLAVERÐMÆTI togara Útgerðarfélags Akureyringa nam rúmlega
1,1 milljarði króna á síðasta ári. Togaramir veiddu samtals rúmlega
22.500 tonn á árinu eða um 500 tonnum meira en á árinu á undan,
en veiðiferðirnar voru 140. Framleiðsla hraðfrystihússins var heldur
minni á árinu 1990 en 1989, eða 6.237 tonn á móti 6.882 tonnum. Salt-
fiskframleiðsla minnkaði nokkuð, framleiðsla hausa jókst, en engin
skreiðarverkun var á síðasta ári hjá ÚA.
Afiaverðmæti frystitogarans
Sléttbaks EA jókst á milli áranna
1989 og 1990 úr 291,7 milljónum í
418,4 milljónir. Sólbakur EA- 307,
sem félagið keypti á síðasta ári fór
fjórar veiðiferðir undir merkjum ÚA
og var verðmæti aflans 77,8 milljón-
ir króna.
Kaldbakur veiddi mest ísfisktogar-
anna tæplega 4.300 tonn að verð-
mæti 170,8 milljónir króna. Harð-
bakur landaði tæplega 4.200 tonnum
að verðmæti 156,2 milljónum og
Svalbakur kom að landi með rúmlega
3.400 tonn að verðmæti tæplega 129
Kvikmyndin
Ryð sýnd á
Norðurlandi
KVIKMYNDIN Ryð verður sýnd
víða um Norðurland á næstu vik-
um, en sýningar hófust í fyrra-
kvöld í Borgarbíói á Akureyri.
Að loknum sýningum þar verður
myndin sýnd á Dalvík, í Ólafs-
firði, að líkindum í Siglufirði og
síðan á Ilúsavik.
Það er Lárus Ýmir Óskarsson sem
gerði myndina eftir handriti Ólafs
Hauks Símonarsonar, en það er
byggt á leikriti hans „Bílaverkstæði
Badda“. Framleiðandi myndarinnar
er Siguijón Sighvatsson, leikmynd
og búninga gerði Karl Júlíusson,
Wim Mertens samdi tónlistina en
Göran Nilson sá um kvikmyndatöku.
í aðalhlutverkum em Bessi
Bjamason, Egill Ólafsson, Sigurður
Sigurjónsson, Christine Carr og Stef-
án Jónsson.
milljónir. Sólbakur landaði tæplega
2.700 tonnum og nam verðmæti af-
lans 103 milljónum króna, en
Hrímbakur aflaði 2.500 tonna á
síðasta ári og var verðmæti hans
tæplega 106 milljónir. Aflaverðmæti
allra skipa ÚA var á síðasta ári
1.161.000 milljón króna.
Hraðfrystihúsið framleiddi rúm-
lega 6.200 tonn á síðasta ári sem
er nokkru minna en var á árinu á
undan þegar framleidd voru tæplega
6.900 tonn. Um borð í Sléttbaki voru
framleidd rúmlega 2.300 tonn af
frystum afurðum eða svipað magn
og árið á undan, en um borð í Sól-
baki voru framleidd 474 tonn. Salt-
fiskframleiðsla minnkað á milli ár-
anna 1989 og 1990, úr 622 tonnum
1358 tonn, engin skreiðarverkun var
hjá ÚA á síðasta ári, en 10 tonn árið
á undan. Nokkur aukning varð í
framleiðslu hausa hjá félaginu, en
hún fór úr 207 tonnum í 350.
Morgunblaðid/Rúnar Þór
Arnór Þorsteinsson starfsmaður Útgerðarfélags Akureyringa raðar
hausunum í kassa.
Engin af-
staðatekin
um skipan
í 2. sætið
AFSTAÐA hefur enn ekki verið
tekin til þeirrar óskar Hreins
Pálssonar lögmanns á Akureyri
að skipa ekki 2. sæti á lista Al-
þýðuflokksins i Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Hreinn lenti í öðru sæti í próf-
kjöri flokksins sem haldið var í
nóvember síðastliðnumm, á eftir
Sigbirni Gunnarssyni kaupmanni á
Akureyri. Niðurstaða prófkjörsins í
fyrstu tvö sætin var bindandi, en
nokkru eftir að úrslit lágu fyrir
óskaði Hreinn Pálsson eftir því að
hann yrði leystur undan því að skipa
2. sætið.
Fundur var í kjördæmisráði Al-
þýðuflokksins í fyrrakvöld þar sem *
m.a. var fjallað um þetta mál, en
Gunnar Salómonsson formaður
ráðsins sagði að endanleg niður-
staða hefði ekki fengist á þeim
fundi. Hann reiknaði með að fram-
boðslisti flokksins í kjördæminu
yrði tilbúinn um næstu mánaða-
mót, þannig að málið yrði útkljáð
fyrir þann tima.
Hefðum þurft á virkilega góðu
loðnuári að halda eftir uppbyggingu
- segir Hólmsteinn Hólmsteinsson formaður stjórnar Krossaness
„ÞAÐ er þungt hljóð í mönnum, því ástandið er vissulega mjög alvar-
legt,“ sagði Hólmsteinn Hólmsteinsson formaður stjórnar Krossanes-
verksmiðjunnar. Mjög hefur verið dregið úr vinnu í verksmiðjunni,
starfsmenn vinna að ýmiss konar lagfæringum á milli þess sem brædd
eru bein. Hólmsteinn segir að menn séu ekki endanlega búnir að
gefa upp alla von um að einhver loðna berist á vertíðinni.
Kostnaður vegna uppbyggingar þar varg fyr;r rúmu ári liggur ekki
verksmiðjunnar eftir eldsvoða sem fyriri en Hólmsteinn gerði ráð fyrir
Bílaþvottur í blíðviðri
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Einstök veðurblíða var á Akureyri í gær og reyndu menn að nýta sumaraukann á þorranum til útivistar.
Víða mátti sjá starfsmenn bæjarins fylla upp í holótt malbikið, en þeir Þór Árnason og Haukur Berg
notuðu tækifærið og skoluðu af bifreiðum sínum jafnframt því sem þeir ræddu af kappi um málef«i Sund-
laugar Akureyrar.
að síðla í næsta mánuði yrðu línur
famar að skýrast þar að lútandi.
Gert var ráð fyrir að um 20 þús-
und tonn af loðnu bærust til Krossa-
ness á vertíðinni og að veltan yrði
um 140 milljónir króna. „Við erum
ekki alveg úrkula vonar um að fá
loðnu á vertíðinni, en eftir því sem
lengra líður versnar ástandið. Við
höfum þegar misst úr tvo mánuði
og framhaldið alveg óráðið, en verði
einhveijar veiðar á næstunni þá er
okkur ljóst að við þurfum að greiða
hærra verð fyrir loðnuna þar sem
hún er á svæðinu fyrir sunnan,“
sagði Hólmsteinn.
Ákvörðun um uppsagnir hefur
ekki verið tekin, en starfsemi er í
lágmarki í verksmiðjunni, dregið
hefur úr vinnu bæði starfsmanna
og verktaka sem þar voru að störf-
um. Bein eru brædd í verksmiðjunni
einu áinni til tvisvar í viku,'en að
öðru leyti er unnið að lagfæringum
og frágangi. Reiknað var með að á
vertíðinni yrðu brædd um 10 þúsund
tonn af beinum og að verðmæti
þeirra yrði á bilinu 50-60 milljónir
króna. Undanfarið hefur ekki fallið
til mikið af beinum á Eyjafjarðar-
svæðinu.
„Eftir uppbyggingu verksmiðj-
unnar hefðum við þurft á virkilega
góðu loðnuári að halda og helst
tveimur eða þremur. Það er því
vissulega erfitt fyrir okkur að glíma
við þetta loðnuleysi. Það er þó lán
í óláni að fallið var frá því að byggja
upp stærri verksmiðju, eins og í
fyrstu var áætlað," sagði Hólm-
steinn.
Hrísey:
Ólafur Vals-
son settur
dýralæknir
ÓLAFUR Valsson hefur verið sett-
uy dýralæknir í Einangrunarstöð-
inni í Hrísey. Hann mun gegna
starfinu fram til marsloka, en þá
verður staðan auglýst laus til
umsóknar.
Frá því Sigurborg Daðadóttir
dýralæknir sagði starfi sínu við Ein-
angrunarstöðina lausu síðasta haust
hefur ekki verið starfandi dýralækn-
ir við stöðina, þar til nú að Ólafuff**
hefur verið settur þar tímabundið.
Ólafur sagði að nú væri verið að
vinna að framtíðarskipulagi varðandi
Einangrunarstöðina, en auk þess sem
í stöðinni eru holdanaut af
Galloway-kyni verður þar tekin í
notkun sóttkví fyrir smádýr. Gert er
ráð fyrir að sóttkvíin verði tilbúin
um mánaðamótin mars-apríl.
§
_SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...
1W YORK
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söfuskrifstofum Flugíeiða. hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
HELGARFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐJUDAGS
HÓTEL EDISON
TVEIR í HERB. KR. 46.020Á MANN
*
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið