Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 8

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Lyfjaframleiðsla Efnahagslögmál lyfjaiðnaðar Lyfjakostnaður er alþjóðlegt vandamál Financial Times, Fortune. Síðastliðinn áratugur var lyfjaiðnaði um allan heim einstakt vaxtar- skeið. Árið 1990 keyptu jarðarbúar ávísunarlyf fyrir 170 milljarða dala (10.200 millljarða ÍSK) og lausasölulyf (án lyfseðils) fyrir 25 milljarða dala (1.500 milljarða ISK). Lyfjaframleiðsla er langarðbæ- rasta atvinnugrein í Bandaríkjunum og jafnvel lánlausum lyfjafram- leiðendum vegnar betur en farsælustu fyrirtækjum í öðrum grein- um. Almennar efnahagssveiflur virðast ekki hafa nein áhrif á við- gang greinarinnar. En nú þykjast menn sjá þess ýmis teikn á lofti að hagnaður lyfja- framleiðenda geti ekki haldið áfram að aukast endalaust. í fyrsta lagi hefur rannsóknar- og þróunar- kostnaður lyfja farið hraðvaxandi. í öðru lagi stækkar hlutur samheit- alyfja og lausasölulyfja á kostnað dýrari sérlyfja og í þriðja lagi er lyfjaverð undir miklum opinberum þrýstingi. Hinir bjartsýnni í faginu minna reyndar á að svipaðir spá- dómar hafi verið settir fram fyrir tíu árum. En að undanfömu hefur alþjóðleg sameiningaralda gengið yfir lyfjaiðnaðinn og greinilegt er að framleiðendur búa sig undir erfiðari tíma og harðari samkeppni. Rannsóknir og einkaleyfi Ef marka má Samtök banda- rískra lyfjaframleiðenda hefur með- alkostnaður við að þróa nýtt lyf hækkað úr 125 milljónum dala (7,5 milljörðum ÍSK) árið 1987 upp í 230 milljónir dala (13,8 milljarða ÍSK) árið 1990. Þar af fer um fjórð- ungur upphæðarinnar í frumrann- sóknir en þrír fjórðu hlutar í þróun og prófanir lyfsins á þúsundum til- raunadýra og hundruðum sjúklinga. Að baki vel heppnuðu lyfi geta leg- ið tilraunir með 60.000 efnasam- bönd. í Bandaríkjunum líða að jafnaði tólf ár frá því að lyf er fundið upp og þar til það kemur á markað. Einkaleyfi gildir í 17 ár frá skrán- ingu, en nýtt lyf er vanalega skráð löngu áður en það fæst samþykkt og því er raunverulegur gildistími einkaleyfís ekki nema 12 ár að meðaltali. Á síðasta ári lagði banda- ríska lyQaeftirlitið blessun sína yfir aðeins 23 ný lyf og þar af höfðu 15 þeirra þegar verið leyfð í Evrópu. Dýrar og tímafrekar prófanir á vegum eftirlitsstofnana um allan heim hækka verulega þróunar- kostnað nýrra lyfja. Að stórum hluta er um að ræða endurtekningu á sömu prófunum. Innan Evrópu- bandalagsins er ætlunin að sam- ræma reglur um lyfjaeftirlit og setja á Iaggimar sameiginlega eftirlits- stofnun. Fáist lyf samþykkt í einu bandalagslandi mun framleiðandi geta sótt um að samþykkið nái einn- ig til annarra landa. Neiti land að taka samþykki frá öðm landi gilt verður hægt að vísa ágreiningnum til hinnar sameiginlegu eftirlits- stofnunar. Á alþjóðavettvangi verður fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um samræm- ingu lyfjaeftirlits haldin í Brussel í nóvember næstkomandi. Skipu- leggjendur ráðstefnunnar eru Evr- ópubandalagið, Matvæla- og lyfja- eftirlit Bandaríkjanna, japanska heilbrigðisráðuneytið og öll helstu samtök lyfjaframleiðenda. Algjör samræming þýddi að einungis þyrfti að prófa nýtt lyf í einu landi til þess að fá það skráð hvar sem er í heiminum. Sparnaðurinn myndi skipta milljörðum dala á ári og lyf kæmust miklu hraðar og víðar á markað. Svo mikil samræming er þó ekki möguleg fyrr en einhvern tímann á næstu öld. Núverandi hindranir hækka kostnað framleiðenda en um leið veita þær einkaleyfishöfum mun meiri vernd en þekkist í öðrum greinum. Einungis fjársterkustu framleiðendurnir eru færir um að þróa og prófa lyf um allan heim. Þótt keppinautur breyti aðeins lítil- lega einni sameind þarf að endur- taka allar prófanirnar. Þegar svar berst loksins frá keppinaut kann einkaleyfistími frumkvöðulsins að vera á enda hvort sem er. Framleiðandi, sem kemur nýju lyfi á markað, er því ekki í neinni beinni samkeppni fyrstu árin og verðlagningin ber þess merki. Al- gengt er að heildsöluverð nýrra lyfja sé þrisvar til sex sinnum hærra en framleiðslukostnaður. Framlegð- in getur skipt hundruðum milljóna dala á ári. Mest selda sérlyf í heim- inum er magasárslyfið Zantac frá breska stórfyrirtækinu Glaxo. í fyrra nam heildarsala Zantac 2,4 milljörðum dala (144 milljörðum ÍSK) og hagnaður Glaxo var 26% af veltu. En vegna þess hve einka- íeyfistíminn er skammur verða framleiðendur stöðugt að finna upp ný og betri lyf. Fjöldi samruna og aukið sam- starf lyfjaframleiðenda endurspegla þá trú manna að einungis stór fjöl- þjóðafyrirtæki geti þróað ný lyf og komið þeim á stærstu markaði heims, nógu fljótt til að hagnast áður en einkaleyfin renna út. Miðað við margar aðrar framleiðslugrein- ar eru lyíjaframleiðendur tiltölulega margir og smáir. Stærsti lyfjafram- leiðandinn, bandaríska fyrirtækið Merck, hefur aðeins um 4% af heimsmarkaði. Robert Cawthorn, stjómarformaður frönsku sam- steypunnar Rhone-Poulenc Rorer, segir að fyrirtæki muni á komandi árum þurfa 2% markaðshlutdeild til þess að geta staðið undir rann- sóknar- og þróunarkostnaði. Sam- kvæmt því eru nú einungis 12 fram- leiðendur í heiminum megnugir þess að keppa á hinum ábatasama einkaleyfismarkaði. Samheitalyf Þegar einkaleyfi rennur út er öllum frjálst að framleiða lyfið und- ir samheiti. Fyrir lagabreytingu árið 1984 voru samheitalyf í Banda- ríkjunum prófuð með sama hætti og ný lyf. En nú þarf framleiðandi einungis að sýna fram á að virk efni í lyfinu séu hin sömu og í fyrir- myndinni og að efnin berist um lík- amann með sama hætti. Þegar einkaleyfi útbreiddra lyfja renna út má búast við því að verð- ið lækki verulega og að samheitalyf taki til sín helming sölunnar á einu til tveimur árum. Hagnaður fyrrver- andi einkaleyfishafa snarminnkar eða hverfur jafnvel alveg á skömm- um tíma. Framleiðendur samheita- lyfja skipta hundruðum og þeir kosta litlu til rannsókna og kynn- ingar og sætta sig þar af leiðandi við töluvert lægra verð. Frá 1981 til 1988 hækkaði heildsöluverð sér- lyfja í Bandaríkjunum að meðaltali um 8,6 prósent á ári eða rúmlega tvöfalt meira en vísitala neysluvara. Á sama tíma hækkaði heildsöluverð samheitalyfja aðeins um 2,7 prósent á ári. Framleiðendur samheitalyfja geta litið bjartari augum til náinnar framtíðar. Nú er komið að þeim að njóta undanfarandi vaxtarskeiðs. Á næstu þremur árum renna út mörg þeirra einkaleyfa sem færðu lyfja- framleiðendum mestan hagnað á níunda áratugnum. Árið 1992 renna út einkaleyfi lyfja með fjórum sinnum meiri sölu í Bandaríkjunum en þau lyf sem missa einkaleyfis- vemd á þessu ári. Sjálfslyfjagjöf Lausasölulyf hafa þá sérstöðu að þau er hægt að kaupa án lyfseðils. Þessi sölumáti hefur líka verið kall- aður sjálfslyfjagjöf. Reglur um lausasölu eru mjög mismunandi frá einu landi til annars og því er mark- aðurinn margskiptur. Kvefmeðal frá Vicks-Sinex fæst í breskum stórmörkuðum, í lausasölu í þýskum lyfjaverslunum og einungis gegn lyfseðli í Frakklandi. Af rúmlega 15.000 skráðum lausasölulyfjum í Evrópu fást aðeins tíu þeirra í sjö eða fleiri löndum. Með tilkomu innri markaðar Evr- ópubandalagsins og samræmingu reglugerða verður bæði auðveldara og ódýrara að selja lausasölulyf. Flestir sérfræðingar eru þeirrar skoðunar að markaður fyrir lausa- söiulyf muni á komandi árum stækka hraðar en markaður fyrir ávísunarlyf. Sumir ganga svo langt að spá því að markaðirnir verði orðnir svipaðir að stærð snemma á næstu öld. Nokkrir stórir lyfjaframleiðendur hafa töluverð ítök á lausasölumörk- uðum. Má þar nefna þýska fyrir- tækið Bayer sem framleiðir meðal annars Aspirin. En aðrir í hópi hinna stærstu, svo sem Glaxo, forð- ast alfarið lausasölu. Markaðsstarf- ið er með allt öðrum hætti þegar selt er beint til neytenda en ekki fyrir fyrir milligöngu lækna. Annar meginmunur er sá að mörg leiðandi lausasölulyf hafa verið til sölu ára- tugum saman, á meðan arðbærustu einkasölulyfin er miklu nýrri. Engu að síður er búist við því að að stóru framleiðendurnir muni í vaxandi mæli sækja inn á lausasöl- umarkaðinn þegar bestu einkaleyf- in renna út. Lyfin hafa þá verið svo lengi í notkun að í ljós er komið hvort óhætt er að leyfa sölu þeirra án lyfseðils. Lyfjaverð Lyfjaframleiðendur bjóða hundr- uð lyfja sem bjarga mannslífum, draga úr þörfinni fyrir sjúkrahús- vist og dýrar skurðaðgerðir og minnka fjarvistir vegna veikinda. Hlutfall lyfjakostnaðar í heilbrigðis- útgjöldum hefur líka víðast hvar lækkað á undanförnum árum, reyndar vegna þess að önnur út- gjöld hafa hækkað enn meira. Hagnaðarvonin hvetur lyfjafram- leiðendur til dáða og besta hagnað- arleiðin er að finna upp byltingar- kennd lyf. Þetta finnst mörgum þó ekki réttlæta himinhátt lyfjaverð og gífurlega háar arðgreiðslur til eigenda lyfjafyrirtækja. Á markaðnum fyrir ávísunarlyf gilda nefnilega engin venjuleg markaðslögmál. Þegar hefur verið fjallað um mikla einkaleyfisvernd og opinberar hindranir. Mestu skiptir þó að sá, sem tekur ákvörð- un um kaupin, greiðir ekki fyrir vöruna. Læknar líta á það sem skyldu sína að bæta heilsu og bjarga mannslífum en ekki að spara kostnað. Þess vegna hefur aldrei verið raunVeruieg verðsamkeppni á markaðnum fyrir ávísunarlyf á Vesturlöndum. Verðlækkun kann þvert á móti að hafa þau áhrif að sala lyfs minnki. Dr. Jerry Avron, prófessor við Harvard-háskóla, segir að í mjög mörgum tilvikum geri eldri sam- heitalyf eða jafnvel smásölulyf al- veg sama gagn og miklu dýrari sérlyf. Avron heldur því fram að vörukynningar, bæklingar, auglýs- ingar og gjafir lyfjaframleiðenda hafi meiri áhrif á marga lækna en hlutlausar lyfjafræðilegar og lækn- isfræðilegar upplýsingar. Fyrir Framkvæmdanefnd Evrópubanda- lagsins liggur nú tillaga um að læknum verði bannað að þiggja hvers kyns gjafir og duldar greiðsl- ur frá lyfjaframleiðetidum. Þótt Iyíjaframleiðendur veiji hlutfallslega stórum hluta tekna sinna til rannsókna er markaðs- kostnaður þeirra allt að tvisvar sinnum meiri. Sölumenn sitja fyrir læknum á hveiju homi og oft fleiri en einn frá sama framleiðanda. Velgengni margra lyfja er öðru fremur að þakka öflugu markaðs- starfi. í Bandaríkjunum kostar til dæmis áðurnefnt Zantac 50% meira en annað lyf sem hefur næstum því nákvæmlega sömu áhrif. Einstakir sjúklingar eru yfirleitt ekki í neinni aðstöðu til að mót- mæla ávísunum lækna og í þeirra eyrum kann líka að hljóma betur að vera settir á nýjustu lyf. Almenn kostnaðarvitund er þó greinilega að vakna, en skipulögð andstaða gegn notkun dýrustu sérlyfja kemur fyrst og fremst frá heilbrigðisyfir- völdum, tryggingarfélögum og stór- fyrirtækjum. Á tímum almenns niðurskurðar opinberra útgjalda er lyfjakostnað- Helstu lyfjafyrirtækin Heima- Sala 1990 í Vöxtur Iand í pundum 1990/89 % Merck Bandaríkin 3,610 9,4 B-Myers Squibb Bandaríkin 3,360 8,0 Glaxo Bretland 2,970 9,2 SmithKline Beecham Bretland 2,810 0,0 Hoechst Þýskaland 2,600 18,2 Ciba-Geigy Sviss 2,580 11,7 J&J Bandaríkin 2,360 12,4 AHP Bandaríkin 2,260 -3,0 Sandoz Sviss 2,250 8,7 EliLiIly - Bandaríkin 2,090 16,8 Bayer Þýskaland 2,090 8,3 F’fizer Bandaríkin 2,070 10,7 Rh o ne-Poulenc Rorer Frakkland 2,030 7,4 Roche Sviss 1,950 19,6 Takeda Japan 1,500 -23,9 Schering-Plough Bandaríkin 1,490 6,4 ICI Bretland 1,390 8,6 Marion M-Dow Bandaríkin 1,370 3,0 Upjohn Bandaríkin 1,360 3,8 Wellcome Bretland 1,270 15,5 Heimild: FT.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.