Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 4
4 B
B 5
Vésteinn Hafsteinsson.
Vésteinn
heldur sínu
striki
Vésteinn Hafsteinsson heldur sínu
striki í kringlukastinu og hefur
nú sýnt stöðugleika á þremur mótum
í röð. Um helgina mældist lengsta
gilda kast hans 62,10 m á móti í
Walnut í Kalifomíu og varð hann í
fjórða sæti.
Romas Ubartas frá Litháen sigr-
aði, kastaði 68,18 m, sem er besti
árangur ársins. Bandariski meistar-
inn í fyrra, Antony Washington, varð
annar með 63,28 m, en Nígeríumað-
urinn Ade Olukoju hlaut bronsið fyr-
ir 63,14 m langt kast.
Vésteinn sagðist hafa verið óhepp-
inn, fengið krampakippi í kálfana í
útkastinu í tveimur síðustu köstun-
um, misst jafnvægið og gert ógilt,
en síðasta kastið hefði verið um 64,50
metrar.
Margir keppendur voru með í mót-
inu og tók það því langan tíma, en
hitastigið var um 30 gráður á sels-
íus. Vésteinn kastaði yfír ólympíulág-
markinu (63 metrar) á tveimur síð-
ustu mótum og þó hann hafi ekki
náð því í gildu kasti að þessu sinni
var hann ánægður með árangurinn
og sagði keppnina góðan undirbúning
fyrir Ólympíuleikana í Barcelona í
sumar. Hann keppir aftur um næstu
helgi.
KARFA
Lakers slapp
fyrir hom
Los Angeles Lakers tryggði sér á
ævintýranlegan hátt sæti í úr-
slitakeppni NBA-deildarinnar um
^■■1 helgina. Liðið sigraði
Frá í tveimur síðustu
Gunnari leikjunum, en Hous-
Valgeirssyni ton sat eftir með sárt
/ Bandaríkjuhum ennjg _ tapaði óvænt
síðasta leiknum á heimavelli. Atlanta
missti einnig af farseðlinum á síðustu
stundu, en Miami hrósaði happi í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
Gífurleg spenna var um síðustu
sætin. Atlanta þurfti að sigra Cleve-
land í síðasta leik til að komast áfram
í austurdeild, en tapaði 112:108 og
þar með var draumurinn úti. í vestur-
deild þurfti Lakers á kraftaverki að
halda, hið ótrúlega gerðist og liðið
leikur 16 árið í röð í úrslitakeppninni.
Lakers mætti Portland á útivelli á
laugardaginn og vann 109:101, fyrsti
sigur Lakers gegn Portland á tímabil-
inu. Á sunnudag fékk Houston Pho-
enix í heimsókn og tapaði óvænt
100:97. Um kvöldið var síðan ná-
grannaslagur í Los Angeles, þegar
Lakers tók á móti Clippers og varð
Lakers að sigra til að komast áfram.
Spennan var geysileg, en þegar ein
og hálf sekúnda var eftir af framleng-
ingu skoraði bakvörðurinn Sedale
Threatt og tryggði Lakers sigur,
109:108.
Úrslitakeppnin hefst í nótt að ís-
lenskum tíma og verður lið að sigra
í þremur leikjum til að komast áfram.
Það lið, sem er ofar í töflunni eftir
deildarkeppnina, á fyrst tvo heima-
leiki og síðan oddaleikinn ef á þarf
að halda, en eftirtalin lið mætast:
Austurdeild:
Chicago - Miami/New York - Detroit,
Boston - Indiana/Cleveland - New Jersey.
Vesturdeild:
Portland - LA Lakers/Phoenix - San
Antonio, Utah - LA Clippers/Golden State
- Seattle.
SOKNAR-
NÝTING
rslitakeppnin í
handknattleik 1992
Selfoss Haukar'
Mðrií Sóknk % Mðri< Sóknir %
KA IBV
Mðrk Sóknir % Mörk Sóknir %
8 24 33 F.h. 13 25 52
12 28 43 S.h. 13 28 46
20 52 39 ALL.S 26 53 49
6 Langskot 8
1 Gegnumbrot 0
2 Hraðaupphlaup 8
4 Horn 2
2 Lína 5
5 Vrti 3
'tf.
'FH
Mðrk Sóknir %
Stjarnan
Mðrk Sóknir %
15 25 60 F.h. 9 24 38 15 26 58 S.h. 17 27 63 14 24 58 F.h. 13 25 52 11 21 52 S.h. 10 21 48
30 51 59 ALLS 26 51 51 25 45 56 ALLS 23 46 50
7 Langskot 4 8 Langskot 7
3 Gegnumbrot 4 7 Gegnumbrot 2
5 Hraðaupphlaup 7 3 Hraðaupphlaup 3
9 Horn 7 3 Hom 4
4 Lina 3 4 Lfna 2
2 Vfti 1 0 Vfti 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR
22. APRIL 1992
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1992
Vemharð
kommest
á óvart
- saððiVachun
landsliðsþjálfari
Vernharð er sá keppandi sem kom mér
mest á óvart. Ef hann leggur sig
betur fram við æfingar þá getur hann
átt bjarta framtíð," sagði Michal Vachun
hinn tékkneski landsliðsþjálfari íslenska
júdóliðsins.
„Þegar á heildina er litið er hægt að
vera sáttur við frammistöðu fslensku
keppendanna. Bjarni Friðriksson kom vel
út á þessu móti. Hann hefur verið að ná
sér af slæmum hnémeiðslum en hann
hefur sýnt ótrúlegan viljastyrk og tekið
miklum framförum á stuttum tíma.
Sigurður (Bergmann) er mjög líkamlega
sterkur og hefur náð að koma sér í raðir
sterkustu júdómanna. Hann verður hins
vegar að leggja áherslu á tæknina fram
að Ólympíuleikunum. Þá sýndi Preyr
Gauti (Sigmundsson) að hann er til alls
líklegur. Hann náði Ólympíulágmarkinu
og vann síðan öruggan sigur í unglinga-
flokki.
hjá Bjama
BJARNI Friðriksson vann til tvennra gullverðlauna á Norðurlanda-
mótinu íjúdó um síðustu helgi. Bjarni sem vann allar glímur
sínar á mótinu, vann til gullverðlauna í -95 kg flokknum á laugar-
dag þegar hann skellti Finnanum Petri Sandell með glæsilegu
bragði í úrslitaglímunni. Á sunnudag sigraði hann Sigurð Berg-
mann f úrslitaglímu opna flokksins. Finnskir júdómenn voru óum-
deilanlega sigurvegarar mótsins. Þeir unnu til fimm gullverð-
launa af átta í karlaflokki.
Það tók Bjarna Friðriksson aðeins
hálfa mínútu að. leggja Petri
Sandell frá Finnlandi í úrslitaglímu
95 kg flokksins.
Frosti Bjarni vann fullnað-
Eiðsson arsigur í glímunni
s_krifar með skemmtilegu
bragði sem margir
áhorfenda kölluðu „Bjarna Special".
„Þetta bragð hefur verið að þróast
hjá mér í gegn um tíðina en það er
ekki til neitt nafn á þessu,“ sagði
Bjarni sem greip um annan fót
Finnans og skellti honum í gólfið við
góðar undirtektir áhorfenda sem
flestir höfðu beðið í ofvæni eftir úr-
slitaglímunni í þessum flokki.
Úrslitaglíman í opna flokknum á
sunnudaginn var ekki jafn mikið fyr-
ir augað. Þeir Bjarni og Sigurður
þekkja hvorn annan eins og lófana á
fatim
FOLX
■ DANIR sendu ekki hóp á Norð-
urlandamótið. Landsliðsnefnd
Dana ákvað í samráði við pólskan
þjálfara liðsins að taka aðeins þátt
í mótum af a-styrkleikafíokki í und-
irbúningi sínum fyrir Ólympíuleik-
ana. Norðurlandamótið var í C-
styrkleikaflokki mestmegnis vegna
þess að minni spámönnum var boð-
ið að taka þátt í mótinu. Hefðu
Danir mætt með lið sitt þá hefði
mótið verið í B-styrkleikaflokki.
■ FINNINN Marko Malinen sem
lagði Sigurð Bergmann að velli í
úrslitaglímu + 95 kg flokksins á
laugardag skráði sig ekki til keppni
í opnum flokki daginn eftir. Malinen
sagði að viðureignin gegn Sigurði
á laugardag hefði tekið mikið á sig
og hann hefði engan áhuga á því
að mæta honum á næstunni.
■ VERNHARÐ Þorleifsson og
Freyr Gauti Sigmundsson, ný-
krýndir Norðurlandameistarar í
unglingaflokki hafa báðir sett
stefnuna á ferð til Argentinu á
Heimsmeistaramót unglinga.
Mótið verður haldið í Buones Aires
í október.
■ BJARNI FRIÐRIKSSON varð
tvöfaldur Norðurlandameistari í
fyrsta sinn um helgina. Bjarni sem
hefur orðið Norðurlandameistari til
skiptis í þyngdarflokki sínum og í
opnum flokki árin 1982, 1984 og
1988 hefur áður átt möguleika á
tveimur gmilverðlaunum. Á NM
1982 fékk hanri tækifæri til þess
þegar hann sigraði í þyngdarflökki
sínum og mætti síðan léttari manni
í úrslitum opna flokksins en tapaði.
„Sú glíma var án efa sú erfiðasta
sem ég hef glímt á ævinni," sagði
Bjarni.
■ JÚDÓSAMBANDIÐ tilkynnti
rnótshöldurum Evrópumótsins
sem fram fer í París aðra helgina
í maí að sambandið muni senda
allt að fjóra keppendur á mótið.
Bjarni Friðriksson, Sigurður
Bergmann og Freyr Gauti Sig-
mundsson hafa náð lágmörkum
þeim sem júdósambandið setti fyrir
þáttöku. Halldóri Hafsteinssyni
skorti lítið upp á það fyrir mótið
um helgina en stigin verða reiknuð
út í vikunni.
sér og glíman bar þess merki. Þeir
fengu báðir refsistig snemma í glím-
unni fyrir aðgerðarleysi. Sigurður
fékk síðan fímm refsistig fyrir að
stíga út fyrir völlinn. Bjarni gull-
tryggði sigur sinn í lokin með því að
ná fastataki sem hann hélt í síðustu
sextán sekúndur glímunnar.
„Sigurður er í „banastuði" um
þessar mundir og það tók verulega á
að keppa við hann. Ég reyndi að stíla
inn á það hve hann heldur sig nálægt
rauðu línunum og ég reyndi að halda
honum þar,“ sagði Bjarni eftir viður-
eignjna við Sigurð.
„Ég hef ekki unnið Bjarna síðan
1986 og silfurpeningunum mínum
fjölgar í réttu hlutfalli við gullpening-
ana hjá Bjarna, að minnsta kosti eft-
ir mótin hér heima. Það er gamali
ávani hjá mér að halda mér nálægt
rauðu línunum. Ég gerði þetta mikið
þegar ég var yngri og var ekki jafn
góður í gólfinu og ég er núna. Ánn-
ars er ég í góðu formi en vantar að
glíma við fleiri sterka menn hér
heima,“ sagði Sigurður Bergmann.
„ I fjölmennari flokkum voru veitt
tvenn bronsverðlaun og þeir Vern-
harð Þorleifsson og Halldór Haf-
steinsson kepptu báðir um bronsið í
opnum flokki. Vernharð glímdi við
Niklas Winkvist frá Svíþjóð og sigr-
aði í mikilli baráttuglímu. Vernharð
hlaut fimm stig í glímunni og hefndi
ófaranna frá því deginum áður.
„Ég hefði aldrei fyrirgefið mér það
ef ég hefði tapað fyrir honum aftur,
sagði Vemharð sem missti af mögu-
leikanum á úrslitaglímu með tapi
fyrir Sigurði Bergmann í skemmti-
legri viðureign.
„Ég hef orðið fyrir vonbrigðum
með eigin frammistöðu og það er
svekkjandi að missa tvívegis af brons-
verðlaunum. Glíman í opna flokknum
var jöfn framan af en það sem réði
úrslitum var að ég fékk refsistig um
miðja glímuna. Þá þurfti ég að sækja
meira og gaf of mikil færi á mér,“
sagði Halldór Hafsteinsson sem tap-
aði fyrir Toni Salojárvi í hinni viður-
eigninni um bronsið. Halldór keppti
líka um bronsverðlaun í - 86 kg flokki
á laugardag og tapaði þá fyrir Bárd
Are Hultegren frá Noregi í fjörugri
viðureign.
Morgunblaðið/Alfons
Freyr Gauti fagnar sigri.
í eitt mark, 11:10. Hélst sá munur í
hálfleik er staðan var 14:13 fyrir FH.
FH-ingar höfðu góð tök á leiknum
í seinni hálfleik, en þegar 10 mínútur
voru til leiksloka greip Eyjólfur Brag-
ason til þess kænskubragðs að taka
Kristján Arason úr umferð. Við það
fór bitið úr sókn FH og fyrir bragðið
tókst Stjömunni áð jafna, 22:22, þeg-
ar hálf fjórða mínúta var eftir. En
Garðbæingar misstu mann útaf
vcgna leikbrots og þá fékk Kristján
aftur að leika láusum hala og náðu
FH-ingar því aftur undirtökum.
Stjaman fékk aftur tækifæri til að
jafna á lokamínútunni en létu dæma
af sér knöttinn er tveir leikmenn
þeirra hlupu inn í FH-teiginn fyrir
misskilning í sóknaraðgerðum. Hálf-
dán innsiglaði síðan sigur FH 6 sek-
úndum fyrir leikslok.
■ Markaskorar-
ar / B6
FH-ingar tryggðu sér rétt til að
leika í undanúrslitum úrslita-
keppninnar í handknattleik er þeir
lögðu granna sína úr
Garðabæ að velli,
25:23, í þriðja leik lið-
anna. Lengp leit út
fyrir öruggan FH-
sigur en með útsjónarsemi tókst
Stjörnunni að jafna á lokamínútunum
og rauk þá hjartsláttur um 1.500
áhorfenda upp.
FH-ingar léku stórvel framan af
fyrri hálfleik, leikkerfin gengu hvað
eftir annað upp og auk þess var vörn-
in sterk. Eftir rúmlega 11 mínútna
leik var forysta þeirra fimm mörk,
9:4. Seinni hlpta hálfleiksins elti
óheppnin FH-inga á röndum og tókst
Garðbæingum að snúa leiknum sér í
hag, skoruðu fjögur mörk í röð á
skömmum tíma og minnkuðu muninn
Ágúst
Ásgeirsson
skrifar
Morgu nblaðið/Allons
VernharA Þorleifsson.
Morgunblaðið/Alfons
Eyjapeyjar
kjöldrógu
KA-menn
nyrðra
skrifar frá
Akureyri
EYJAMENN fóru á kostum í
þriðja leiknum gegn KA á
Akureyri á laugardag og slógu
norðanliðið örugglega út úr
úrslitakeppninni um íslands-
meistaratitilinn í handknatt-
leik. Lokatölur urðu 26:20, en
staðan á tímabili í seinni hálf-
leik var 24:12 - og segja má
að Eyjamenn hafi hreinlega
niðurlægt gestgjafa sína fyrir
troðfullu húsi áhorfenda, sem
flestir voru á bandi KA.
Lið KA náði sér engan veginn á
strik að þessu sinni, en Eyja-
mönnum óx stöðugt ásmegin í
leikjunum við Akureyringana, og
HBHBB fóru þeir hreinlega
Skapti hamförum á laug-
Hallgrimsson ardag. Það sem
skipti sköpum í
leiknum var að
Sigmar Þröstur Oskarsson stóð sig
stórkostlega í marki ÍBV, varði
alls 21 skot, þar af 8 af línu og 3
vítaköst. Markvarsla KA var hins
vegar í molum, menn í öðrum lykil-
stöðum brugðust einnig og var
sóknarleikur liðsins mjög slakur.
„Þetta var ekki þeirra dagur. Við
vorum einfaldlega betri aðilinn, og
þeir virðast ekki ráða við „passíva“
flata vörn. Svo þegar markvarslan
er í góðu lagi eins og hjá okkur
núna þá fylgir vörnin með og verð-
ur góð,“ sagði Sigurður Gunnars-
son, þjálfari og leikmaður ÍBV.
Lið IBV var jafnt, liðsheildin mjög
góð, hvort sem var í sókn eða vörn
og dreifðust mörkin nokkuð jafnt
á alla útileikmennina. Hjá KA
gerðu hins vegar tveir leikmenn —
Stefán og Alfreð — bróðurpart
markanna.
Leikurinn var KA-mönnum nánast
tapaður þegar í leikhléi, er staðan
var 8:13, og gestirnir veittu þeim
svo rothöggið í byijun síðari hálf-
leiks með því að gera fjögur fyrstu
mörkin. Staðan þá orðin 17:8. Bil-
ið jókst reyndar enn frekar eftir
það og tíu mín. fyrir leikslok höfðu
Eyjamenn tólf marka forystu,
24:12. Ótrúlegar tölur í raun. Síð-
ustu mínúturnar léku KA-menn
maður á mann vörn, leikurinn
leystist upp í vitleysu en með þessu
náðu þeir að lagfæra stöðuna, þó
þeir ættu aldrei möguleika á sigri.
Morgunblaöiö/Alfons
Verðlaunahafar í opnum flokki. Sigurður Bergmann, Bjarni Friðriksson,
Toni Salojárvi, Finnlandi og Vernharð Þorleifsson.
Freyr Gauti Sigmundsson og
Vernharð Þorleifsson fögnuðu
báðir Norðurlandameistaratitli í
unglingaflokki á sunnudaginn.
Vemharð hlaut gull í -95 kg flokkn-
um og Freyr Gauti í -78 kg flokkn-
um. Eins og í fullorðinsflokknum
voru það Finnar sem voru með
sterkasta hópinn en þeir áttu hina
fyóra gullhafana í þessum flokki
sem miðast við keppendur tuttugu
og eins árs og yngri.
Vernharð Þorleifsson sem er að-
eins átján ára gamall sigraði Eirík
Jónsson í úrslitaglímu 95 kg flokks-
ins. Vernharð náði fastataki á Ei-
ríki og var dæmdur fullnaðarsigur
í glímunni.
Norðmaðurinn Odd Sandgren
stóð aðeins uppi í fimmtán sekúnd-
ur gegn Frey Gauta sem náði
óvæntu bragði og r.kellti honum í
gólfíð. „Ég var búinn að æfa þetta
bragð stanslaust fyrir mótið. Þetta
er bragð sem kemur alltaf á óvart,
menn halda að þeir séu óhultir
vegna þess að þeir hafa aðra hönd-
ina á andstæðingnum,“ sagði Freyr
Gauti sem kastaði Norðmanninum
í gólfið með annarri hendinni.
Bjarnl Ás. FriAriksson leggur Finnann Petri Sandell að velli - -95 kg flokki.
íslendingar fengu tvenn silfurverð-
laun. Sigurður Bergmann tapaði úr-
slitaglímu þyngsta flokksins gegn
Marko Malinen frá Finnlandi í tilþrif-
alítilli glímu sem Finninn vann með
því að skora fimm stig. Landi hans,
Rami Myllymaki, sigraði Frey Gauta
Sigmundsson í úrslitum í - 78 kg
flokknum. Finninn náði svokölluðu
„pick up“, hann greip um fætur
Gauta og náði að fella hann í gólfið.
Fyrir það fékk hann sjö stig og
tryggði sér sigurinn.
Svíar sterkir í kvennaflokki
Ilse Vuyster frá Svíþjóð vann löndu
sína Anniku Nilsson í úrslitum í opn-
um flokki kvenna. Ilse náði fastataki
og það færði henni sigurinn í jafnri
glímu. Gígja Gunnarsdóttir var ís-
lendingurinn sem tók þátt í opna
flokknum. Vuyster vann fullnaðarsig-
ur á Gígju í fyrstu glímunni og Gígja
mátti einnig þola tap í uppreisnar-
glímunni, gegn Gry Imsgárd frá Nor-
egi.
Svíar voru með sterkasta liðið í
kvennaflokki. Svíar unnu þrenn gull-
verðlaun af sjö en voru auk þess með
fulltrúa á palli í öllum þyngdarflokk-
um.
120 júdómenn reyndu með sér á
mótinu. Fjöldinn var mestur í karla-
flokki, 73 keppendur. Sautján kven-
menn tóku þátt í mótinu og, þijátíu
kepptu í unglingaflokki. ;
57 júdómenn frá íslandi tóku þátt
í mótinu, þrjátíu Finnar, 23 Svíar og
tíu Norðmenn.
Urslit / B7
GuAjón Árnason lék mjög vel með FH-liðinu og skoraði átta mörk.
Morgunblaðiö/Bjarni Eiríksson
m
Fögnuður á SeHossi
Geysileg stemmning og fögnuður
ríktu í íþróttahúsinu á Selfossi
þegar Selfossliðið sigraði Hauka og
■■■■■ tryggði sér þátttöku
Sigurður í undanúrslitum úr-
Jónsson slitakeppninnar í
skrifar handknattleik. Sel-
fyssingar spiluðu af miklu öryggi og
höfðu traustatak á Haukum ■ allan
tímann. Það var aldrei spuming hvort
liðið myndi sigra. Lokatölumar voru
30:26 fyrir Selfoss. Ríflega 500
áhorfendur voru í húsinu og
hvatningaróp þeirra sköpuðu sann-
kallaða ljónagiylju fyrir andstæðing-
ana.
„Þetta var leikur upp á líf og dauða
og hann bar þess greinilega merki.
Mínir menn spiluðu mjög vel og náðu
góðri baráttu í leik sínum. Betra lið-
ið vann þennan leik. Framhaldið hjá
okkur verður frekar erfitt. Víkingar
eru sterkir og með mjög gott lið en
við munum gera okkar besta og við
spyijum bara að leikslokum," sagði
Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfossl-
iðsins.
„Leikurinn var opinn og fjörugur
og sannkallaður úrslitaleikur. Við
byijuðum mjög illa og skutum illa á
Gísla Felix sem varði mjög vel í leikn-
um. Ég óska Selfyssingum til ham-
ingju. Þeir eru með mjög skemmti-
legt lið og spila skemmtilegan hand-
bolta. Einar Gunnar er orðinn stór-
skytta á heimsmælikvarða og hann
varð okkur að falli í þessari úrslita-
keppni,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka.
Haukar reyndu að leika hraðan
bolta og komu langt fram á móti
sóknarmönnum Selfoss. Þetta varð
til þess að lítið fór fyrir skemmtileg-
um handknattleik. Þessi leikaðferð
Haukanna opnaði snöggum sóknar-
mönnum Selfoss leið til þess að taka
frumkvæði og skora. Um miðbik síð-
ari hálfleiks virtist þó sem Selfyss-
ingar hefðu verið slegnir út af lag-
inu. Þá gerði Baumruk tvö mörk í
röð og minnkaði muninn í tvö mörk
en það þurfti meira til, liðið náði
ekki að fylgja þessum kafla eftir.
Haukar höfðu tak á Selfyssingum
þegar tæpar tíu mínútur voru eftir,
voru með boltann og áttu möguleika
á að minnka muninn í eitt mark en
misstu boltann í þessari sókn. „Það
fór mikið þrek í fyrstu tuttugu mínút-
urnar í seinni hálfleik, enda var
grunnurinn að sigrinum lagður þá.
Undir lokin var komin þreyta í mann-
skapinn og einbeitingin ekki sem
skyldi. Ég get viðurkennt það að það
fór nú aðeins um mann þegar við
vorum tveimur mörkum yfir og þeir
höfðu boltann. En við áttum skilið
að vinna," sagði Sigurður Sveinsson
um þessar mínútur leiksins.
Þegar tvær mínútur voru til leiks-.
loka léku Haukar fjórir inná því
Baumruk fékk rautt spjald fyrir að
mótmæla dómi og annar leikmaður
Hauka brottrekstur. I darraða-
dansinum í lokin fékk Einar Gunnar
einnig rautt spjald en þá voru Sel-
fyssingar fimm mörkum yfir.
„Ég er auðvitað alls ekki ánægður
með að að tapa og detta út en við
getum kennt okkur sjálfum um. Við
misstum þá of langt frá okkur og
misnotuðum fjölda dauðafæra,"
sagði Páll Ólafsson, fyrirliði Hauka.
Þannig vörðu þeir
Þannig vörðu markverðimir - innan sviga skot sem fóru aftur til mótheija:
Gísli Felix Bjarnason, Selfossi - 20(8) (8(3) langskot, 5(4) af línu, 6(1) úr homi,
1 gegnumbrot).
Magnús Óskarsson, Haukum - 10(2) (2 hraðaupphlaup, 2(2) úrhorni, 3 langskot,
2 gegnumbrot, 1 af línu).
Þorlákur Kjartansson, Haukum - 1(1) (1(1) hraðaupphlaup). Árni Stefánsson,
KA - 8(2) (3(1) langskot, 1 _af línu, 1 gegnumbrot, 2 úr horni, 1(1) vftakast).
Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV - 21(8) (7(1) langskot, 8(2) af Knu, 1(1) gegnum-
brot, 2(1) úr horni og 3(3) vítaköst).
Ingólfur Amarson, IBV - 1/1 (1 vitakast).
Bergsveinn Bergsveinsson, FH - 10(2) (4 langskot, 3(1) gegnumbrot, 2(1) úr
homi, 1 hraðaupphlaup).
Brynjar Kvaran, Stjörnunni - 6(1) (2(1) langskot, 1 af línu, 1 gegnumbrot, 1 horni,
1 hraðaupphlaup).
FH-ingar sluppu
með skrekkinn
Freyr Gauti 15 sek.
að tryggja sér gull
JUDO / NORÐURLANDAMOTIÐ
TvöfaK
HANDKNATTLEIKUR/URSLITAKEPPNIN