Morgunblaðið - 04.06.1992, Blaðsíða 53
seej ríííií. .jt'- ajiis^íöifflinMMrí >0iaíUS8[ijaa<M
TOTORGDNBCAÐIÐ FIMMTUDAGUR '4. JÚNÍ 052
fiifn [TTO| 7
jiuy iJJm
SPOTS-
WOOD
Óskarsverð-
launahafinn
Anthony
Hopkins í sinni
nýjustu mynd
Wallace (Anthony
Hopkins) er ráðinn til þess
að auka framleiðslu og
hagnað í skóverksmiðju
smábænum Spotswood.
Hans ráð eru: Reka starfs-
fólkið, hætta framleiðslu
og flytja inn skóna. Þar
kemur mannlegi þátturinn
inn í.
Aðalhlutverk:
Allthony Hopkins
og Ben Mendelsohn.
Leikstjóri: Mark Jof£e.
FÓLKIÐ UNDIR
STIGANUM
Sýnd í C-sal
kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Nokkrar Fákskonur heimsóttu Vigdísi. Finnbogadóttur forseta íslands í vikunni
og færðu henni blómvönd og gjöf í tilefni 70 ára afmæli Fáks.
Hvítasunnumót Fáks:
Haldið upp á sjötugs-
afmæli með hestamóti
FÁKSMENN hafa með ýmsum hætti haldið upp á
70 ára afmæli sitt og nú um Hvitasunnuhelgina
halda þeir sitt árlega hestamót sem verður öllu
veglegra en venja er í tilefni afmælisins. Segja Fáks-
menn það jafnist á við fjórðungsmót að umfangi.
Hvítasunnumótið verð-
ur nú opið utanfélags-
mönnum og hefur öllum
hestamannafélögum
landsins verið boðið að
senda hesta á mótið og
munu stærri félögin senda
tvo keppendur í hvern
flokk. Mikill fjöldi kyn-
bótahrossa, sem dæmd
hafa verið nú í vikunni,
mun koma fram á mótinu.
Þá verður opin töltkeppni
þar sem 22 hestar og
knapar sem náð hafa 80
stigum eða meira munu
reyna með sér.
Dagskrá Hvítasunnu-
mótsins verður sem hér
segir:
föstudagur 5. júní
09.00 B-flokkur gæðinga
og Barnaflokkur
17.00 Kappreiðar
150 m skeið, 350 m brokk
og 800 metra stökk.
Laugardagur 6. júní.
09.00 A-flokkur gæðinga
og Unglingar
16.30 Yfirlitssýning kyn-
bótahrossa
20.00 Tölt-forkeppni
Mánudagur 8. júní annar
í hvítasunnu
12.30 B-flokkur úrslit.
Unglingaflokkur úrslit
A-flokkur úrslit
Barnaflokkur úrslit
Tölt úrslit
15.30 250 metra skeið
fyrri sprettir
Sextán kynbótahross sýnd
og verðlaun afhent
250 metra skeið seinni
sprettir.
££
-53
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson.
Frá afhendingu málverkanna.
Vestmannaeyjar:
Málverkagjöf til
Byggðasafnsins
Vcstraamiaeyjum.
BYGGÐASAFNI Vest-
mannaeyja var í vikunni
afhent stór málverkagjöf.
Málverkin sem gefin voru,
voru áður í eigu Fiskiðjunn-
ar en þessi gjöf er ein sú
stærsta sem safninu hefur
verið færð.
Málverkin sem safninu
voru færð voru 10 talsins.
Flest verkin voru eftir Engil-
bert Gíslason en einnig voru
verk eftir Guðna Hermansen,
Svein Bjömsson og fleiri.
Guðmundur Karlsson, Viktor
Helgason, Guðjón Ólafsson og
Guðjón Rögnavaldsson færðu
safninu gjöfina. Jóhann Friðf-
insson, nýráðinn safnörður,
Byggðarsafnsins tók við gjöf-
inni fyrir hönd safnsins. Jó-
hann sagði að gjöf þessi væri
mjög verðmæt, og ein sú
stærsta sem því hefði borist.
Grímur
Stykkishólmur:
Ferða-
mannaum-
ferð hafin
Stykkishólmi.
FERÐAMANNAHÓPAR
streyma nú allsstaðar að
hingað til Stykkishólms og
hafa verið misjafnlega
heppnir með veður.
Eyjaferðir hafa haft mikil
umsvif og þar á bætist nú
að Baldur er úr leik í bili.
Fyrir utan hótelið er gistiaða-
staða bæði hjá Hótel Eyja-
ferðum og svo er hér vel búið
farfuglaheimili sem hefur
komið sér vel í sumarösinni.
Þeir sem vilja heldur búa í
tjaldi er ágætt tjaldsvæði á
besta stað í bænum.
I flotann bættist nýlega
bátur, mb. Tjaldur, sem Sig.
Ágústsson hf. keypti frá
Hellissandi af Kristjáni Guð-
myndssyni og hefur breytt
um nafn, Svanur SH 111, en
hann kemur í stað nafna síns
sem nú fer í úreldingu eftir
farsæla þjónustu gegnum
árin. - Arni.