Morgunblaðið - 11.06.1992, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 11 JÚNÍ 1992
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1992
B 7
nuiiiULMHJ
Fræðsla og h vatning mikil-
væg til að hugmyndir geti
orðið að veruleika
Rætt við Árna Zophoníasson, framkvæmdastjóra Miðlunar hf.,
sem fyrirhugar að flytja út Gulu línuna
MIÐLUN hf. fékk fyrir nokkru
verðlaun fyrir markaðsáætlun
um útflutning á Gulu línunni til
Hollands á námskeiðinu Útflutn-
ingsaukning og hagvöxtur sem
Útflutningsráð íslands stóð fyr-
ir í vetur. Gula línan hefur ver-
ið starfrækt í fimm ár og notkun
á henni hefur aukist ár frá ári.
I bígerð er að selja hugmyndina
erlendis og standa yfir samn-
ingaviðræður við nokkra aðila,
þar á meðal fyrirtæki í Dan-
mörku. Hvort af þeim samning-
um verður ræðst á næstunni en
Árni Zophoníasson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, er
sannfærður um að námskeið
eins og það sem Útflutningsráð
hefur í tvígang boðið upp á sé
mikilvægt til að ná árangri í
markaðssetningu íslenskra vara
erlendis.
í Miðlun hf. eru starfræktar
þrjár deildir; Gula línan, Fjölmiðla-
vaktin og Upplýsingasímamir
99-1000. Gula línan var sett á lag-
girnar 1. júní árið 1987 og felst
starfsemin í því að neytendur
hringja í síma Gulu línunnar til að
fá upplýsingar um vörur og þjón-
ustu. Notkun hefur aukist ár frá
ári og tekur Gula línan nú við um
170.000 hringingum á ári eða um
700 hringingum á dag. í gagna-
safni Gulu línunnar er að finna
/ I $torno
Tohtu engo óhsttu
d ferðolögum
og hofðo loníiuunn með
Verö frá kr. 79-580
stgr. m. vsk. (tilbúinn íbílinn)
Verð í maí 1992
Storno farsíminn tryggir þér gott
samband við umheiminn þegar þú ert á
ferðalagi, hvort sem þú ert í óbyggðum,
sumarbústaðnum eða bara í umferðinni.
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörutn þér sporiti
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og simstöövum um land allt.
upplýsingar um vörur og þjónustu
yfir 1.000 íslenskra fyrirtækja.
Starfsmenn Gulu línunnar eru sex
en hjá Miðlun starfa 18 manns.
Guli markaðurinn, eins og Arni
nefnir hann, er markaður þar sem
neytandinn sækir sjálfur upplýs-
ingar um vöru og þjónustu. Gular
bækur hafa verið ráðandi á þessum
markaði en vegna stöðugra breyt-
inga í viðskiptalífinu um allan heim
er gula bókin að missa gildi sitt.
Upplýsingarnar verða úreltar og
neytendur gera meiri kröfur til
gæða og magns upplýsinganna.
„Fyrir 10 árum var ætlunin að
leysa þetta með nýrri elektrónískri
heimsmynd þar sem allir væru með
tölvur á heimilinu og í stöðugu
gagnasambandi. Þetta hefur ekki
gerst og þessi nýja tækni hefur
brugðist vonum manna. Gula línan
nýtir hins vegar kosti tveggja
miðla, símann sem allir kunna á
og tölvur sem geyma mikið magn
upplýsinga."
Árni segir að Miðlun hf. hafi
ávallt leitað eftir að vera í sam-
skiptum við aðila erlendis til að
fræðast og skiptast á skoðunum
því það sé óþarfi að finna sífellt
upp hjólið hér á íslandi. En þegar
Gula línan var stofnsett 1987 fund-
ust engin fyrirtæki með svipaða
starfsemi erlendis. „Við vorum
nánast ein í heiminum. Lítils hátt-
ar starfsemi á þessu sviði var í
Bandaríkjunum en engin í Evrópu.
Þá byrjuðu að þróast hugmyndir
um að markaðssetja Gulu línuna
erlendis og síðustu tvö árin hefur
verið unnið skipulega að undirbún-
ingi markaðssetningar. Ég tel að
Gula línan eigi fullt erindi á erlend-
an markað og með það í huga tók-
um við þátt í námskeiðinu Utflutn-
ingsaukning og hagvöxtur.“
Þ.Þ0RSRÍMSS0N&C0
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640
Fjármagn til
framkvæmda
Sumartími
jum-juli-agust
kl 8:00-16:00
SUÐURLANDSBIl. 22
108 REYKJAVÍK
SÍMI 689050-FAX 812929
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GULA LINAN — Árni Zophoníasson, framkvæmdastjóri Miðlunar hf., telur að Gula línan eigi fullt erindi á
erlendan markað en ferillinn við að selja vöru erlendis sé tímafrekur, langur og erfiður og því nauðsynlegt að tileinka
sér þolinmæði.
Mikilvægt að tileinka sér
þolinmæði
Árni segir að á námskeiðinu sem
stóð yfir í eitt ár hafi hann fengið
ómetanlega fræðslu. „Það sem
stendur upp úr var að fá tækifæri
til að heyra hvernig aðrir hafa
farið að. Kynnast því hvað sá fer-
ill að flytja út og selja vöru erlend-
is er langur, tímafrekur og erfið-
ur. Enda kom skýrt fram mikil-
vægi þess að tileinka sér þolin-
mæði. Einnig var gagnlegt að fá
að vera í samskiptum og samfélagi
með öðrum sem standa í nákvæm-
lega sömu sporum og geta skipst
á skoðunum við þá.“
Námskeiðinu fylgja miklar
vinnukvaðir og segir Arni að rýnt
hafi verið I öll skúmaskot til að
sannfærast um að varan væri góð
fyrir þann markað sem á að mark-
aðssetja hana á. En það nægir
ekki að skoða vöruna, það þarf
einnig að kanna væntanlegan
úflutningsmarkað sem var í þessu
tilviki Holland. „Setja verður niður
nákvæmar áætlanir, bæði hvað
varðar tímasetningu og kostnað.
Skýr mynd verður að vera af því
hvernig vinna á að því að koma
vörunni á markaðinn áður en haf-
ist er handa,“ segir Árni. Gerð var
áætlun um að finna samstarfsaðila
í Hollandi sem er tiíbúinn að setja
þjónustu eins og Gulu línuna upp,
kaupa hugbúnað, þjálfun,
handbækur og annað sem til þarf.
Þessi áætlun Miðlunar var síðan
verðlaunuð í lok námskeiðsins
ásamt markaðsáætlun fyrirtækis-
ins Bakkavör hf. „Það var mikil
hvatning að fá þessi verðlaun. Það
er enginn fæddur í útflutning eða
sölu á erlendum markaði frekar
en í önnur hlutskipti í lífinu. Ef á
að ná árangri verður að afla sér
menntunar og er þetta námskeið
ein leið til þess. Mér finnst þetta
vera góð leið þótt hún sé tímafrek
og reyni á mann hvað vinnu varð-
ar.“
Útflutningstækifæri í stórum
og smáum fyrirtækjum
Árni hefur ákveðnar skoðanir á
því hvert hlutverk opinberra aðila
og annarra sem vilja styðja við
bakið á íslensku atvinnulífi eigi að
vera. „Hlutverk þeirra er ekki að
ákveða hvað á að flytja út eða
taka aðrar ákvarðanir um gerð
atvinnulífsins heldur að sjá til þess
að til staðar sé eðlilegt rekstrarum-
hverfi og nauðsynlegt stoðkerfi
eins og fullnægjandi menntunar-
möguleikar. Það þarf ekki að leita
eftir tækifærum íslendinga til
verðmætasköpunar, útflutnings-
tækifæri eru í allskyns stórum og
smáum fyrirtækjum. Því er mikil-
vægt að hafa fræðslu og hvatningu
til að hugmyndir verði að veruleika
og geti þannig orðið þjóðinni tekju-
stofn. I hópi fyrirtækjanna sem
voru á námskeiðinu voru margir
mjög færir viðskiptamenn. Þar
komu fram virkilega góðar hug-
myndir og vörur sem eiga örugg-
lega eftir að seljast vel erlendis."
Þekkingin og reynslan mikils
virði
Miðlun hefur ekki í höndunum
áþreifanlega vöru heldur ætlar að
selja hugmynd og' þekkingu. En
er ekki auðvelt fyrir erlenda aðila
að setja upp starfsemi eins og
Gulu línuna án þess að kaupa hug-
myndina — með öðrum orðum að
„stela“ hugmyndinni?
„Hugmyndin sem slík er lítils
virði ein og sér. Það sem er mikils
virði er þekking, reynsla og hugvit
sem starfsfólk Gulu línunnar hefur
lagt til. Ég get fullyrt að hvergi í
Evrópu er til eins mikil þekking á
miðlun upplýsinga um vörur og
þjónustu með síma eins og í Miðl-
un. Það er þessi þekking sem
tryggir okkur sæmilega fyrir því
að hugmyndinni verði ekki „stolið“
en auðvitað er ekki hægt að koma
í veg fyrir að þessi aðferð sé notuð
án þess að spyija okkur ráða.“
Ymsar nýjungar eru á döfinni
hjá Gulu línunni og má nefna að
nú í júní hófst námskeið fyrir smá-
fyrirtæki og iðnaðarmenn sem
skráðir eru í Gulu línunni. Nám-
skeiðunum er ætlað að styrkja
getu aðilanna til að veita betri
þjónustu og þar með að heildar-
þjónusta Gulu línunnar verði betri.
Einnig er verið að vinna að nýjum
tölvuforritum sem gera neytendum
kleift að fá upplýsingarnar sendar
beint á faxi.
Gular línur um allan heim?
En er Árni bjartsýnn á að Gula
línan nái fótfestu erlendis eins og
hér á landi?
„Ein af ástæðunum fyrir því að
Gula línan hefur náð fótfestu hér
á landi er að hér er ekki sterk
hefð fyrir að nota gular bækur
eins og erlendis. Það er því ekki
sjálfgefið þrátt fyrir að Gula línan
hafi gengið vel hérlendis að hún
gangi vel í öðrum löndum. Ég er
þó fullviss um að sú leið sem notuð
er í Gulu línunni til að miðla upp-
lýsingum um vöru og þjónustu eigi
eftir að vera í notkun um allan
heim. Rökin fyrir því eru meðal
annars að möguleiki er á að veita
réttari ög ítarlegri upplýsingar en
er í gulum bókum þegar hægt er
að uppfæra gagnasafnið daglega.
Þá má nefna að innan örfárra ára
verður síminn það lítill og meðfæri-
legur að hver einstaklingur verður
með hann í vasanum þannig að
upplýsingamar verða alltaf við
hendina. En hvort gular línur verði
til vegna viðskipta við Miðlun hf.
ræðst af getu okkar og dugnaði
við útflutninginn." MSig.
MENNTUN —■ Innflutnings-fyrirtækið Árvík hf. færði málm-
iðnadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti sett af logsuðutækjum að gjöf
fyrir nokkru. Að sögn kennara er mikil þörf fyrir að bæta tækjakost-
inn hjá deildinni og flest gömlu tækin úr sér gengin. í fréttatilkynn-
ingu segja forsvarsmenn Árvíkur hf. að fyrirtækið hafi flutt inn jogs-
uðutæki frá því fýrir stríð og þau hafi tekið litlum breytingum. Árvík
hefur nú þegar gefið Verkmenntaskólanum á Akureyri samskonar
sett og hyggst gefa tveimur skólum til viðbótar samskonar tæki. Þess
má geta að forsvarsmenn fyrirtækisins segja gjafimar vera svar sitt
við niðurskurði þeim er stjórnvöld standi fyrir innan menntakerfisins
og vonast til að framlag þeirra verði öðrum til fyrirmyndar og eftir-
breytni. Á myndinni eru talið frá vinstri: Árni Árnason, framkvæmda-
stjóri Árvíkur, Ásgeir Ágústsson, nemi, Jón Benediktsson, kennari við
deildina, Eyþór Gíslason, nemi, Siguijón K. Nielsen, kennari við deild-
ina, Jóhannes Guðjónsson, nemi og Haukur Ottestedt, sölustjóri Árvík-
ur.
EIMSKIP KYNNIR
NÝJA ÞJÓNUSTU
- PAPPÍRSLAUS
VIÐSKIPTI
Isal hefur fyrst íslenskra fyrirtækja tekið í notkun
búnað sem gefur möguleika á hinum þægilegu
vinnubrögðum sem felast í pappírslausum viðskiptum.
Aukinn hraði, meiri nákvæmni, sparnaður á tíma og
kostnaði, aukin tengsl milli
viðskiptaaðila, minna rými
vegna vörubirgða og færri
bæjarferðir. Allt eru þetta
dæmi um þá hagræðingu sem pappírslaus viðskipti
leiða af sér.
Pappírslaus viðskipti fela í sér sendingar á stöðluðum
Iupplýsingum milli tölvukerfa
tveggja aðila sem eiga í viðskipt-
um. SMT er skammstöfun á
^ slíkum „samskiptum milli tölva“.
• Viðskiptavinur getur nú fengið komutilkynningu
senda sem SMT skeyti.
• Afhendingarheimild frá Tolli í formi SMT skeytis
getur virkað sem beiðni um heimkeyrslu vöru.
• Afhending farmbréfa er ónauðsynleg ef notaður er
„Sea-Waybill“.
Eimskip er það mikil ánægja að geta nú boðið
viðskiptavinum sínum að nýta sér þessa hagkvæmu
tækni.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ
HVlTA HÚSIÐ / SÍA