Morgunblaðið - 14.11.1992, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992
B 3
Blörgvin Björgvinsson skrifar frá Finnlandi og kynoir
listasafnið Ateneum í Helsinki, finnsk listaverk öess og neðir við
Halldór Björn Runólfsson listfræðing um finnska myndlist
Silja Rantenen (1955): Facsimile, 1989, olía.
STÆRSTA og glæsilegasta listasafn Finnlands, Ateneum, stendur í miðborg Helsinki
nálægt aðaljárnbrautarstöð borgarinnar. Byggingin var opnuð fyrir ári, eftir margra
ára endurbætur, og er nú þegar orðin vinsælasta „musteri“ finnskrar myndlistar. Enda
hýsir húsið meistaraverk hinna svokölluðu finnsku gullaldarmálara, t.d. Albert Edelfelt,
Akseli Gallen-Kallela, Hugo Simberg, Helene Schjerfbeck o.fl.
Akseli Gallen-Kallela: Démasquée, 1888, oiía, 65x55 sm.
Frá því að Ateneum var opnað hafa hundr-
uð þúsunda gesta streymt að til að skoða
listaverkin sem þar eru til sýnis, t.d. komu
yfir tvö hundruð þúsund manns á nýlega
yfirlitssýningu á verkum finnsku lista-
konunnar Helene Schjerfbeck. Var þar
um að ræða aðsóknarmet á einstaka myndlistarsýn-
ingu í Finnlandi. Ateneum er þjóðarlistasafn Finna
og myndað af málverkum, skúlptúrum, teikningum
og grafík, en yfírgripsmesta safnið af finnskri list
er frá 1750 til 1960.
Finnska nútímalistasafnið hefur aðsetur á efstu
hæð Ateneum um þessar mundir, en mun síðar fara
í eigið húsnæði sem ráðgert er að reisa beint á
móti fínnska þinghúsinu. En þegar það gerist mun
rýmkast enn frekar um klassíska list í Ateneum.
Það var arkitektinn Theodor Höijér sem teiknaði
Ateneum. Nafn hússins kom til þegar smíði bygging-
arinnar lauk árið 1887, en upphaf listasafnsins má
rekja til ársins 1849.
Eftir endumýjun Ateneum er byggingin rýmri
en nokkru sinni fyrr, og stórir og glæsilegir salir
safnsins bera vönduðu handbragði fagurt vitni.
Gullaldarlist Finna hefur nú fengið verðugan
aðbúnað í Ateneum. Þar hanga á veggjum fínnskar
gersemar, sem í felst mikill fjársjóður fyrir finnsku
þjóðina. Sama er að segja um finnska list í fjölmörg-
um öðrum söfnum Finnlands.
En finnsk nútímalist er einnig mjög athyglisverð
og þar ríkir mikil gróska. Slíka grósku má sjá í
sölum nútímalistasafnsins í Ateneum, sem og.í hin-
um fjölmorgu galleríum í Helsinki og víðar. Einnig
í hinum glæsilegu borgarlistasöfnum, sem svo til
hver einasta borg í Finnlandi getur státað af. Finnsk
myndlist er sannarlega gróskumikil og hugmynda-
rík, og aðbúnaður hennar til mikillar fyrirmyndar.
Það kom því greinarhöfundi nokkuð á óvart að sjá
í viðtali sem birtist sl. vor í Lesbók Morgunblaðs-
ins, við finnska listamanninn Markku Malmivaara,
að hann hélt hinu gagnstæða fram, þ.e.a.s. hann
lét hafa þar eftir sér að finnsk myndlist væri fjö-
truð og ófrumleg. Nokkuð undarleg ummæli sem
eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Til að upp-
lýsa lesendur Morgunblaðsins um finnska myndlist
hitti greinarhöfundur Halldór Björn Runólfsson list-
fræðing að máli og spjallaði við hann um þessi
mál, og þá meðal annars í tengslum við fínnska
myndlist í listasafninu Ateneum, en Halldór Bjöm
hefur kynnst finnskri myndlist nokkuð vel, því sl.
þijú ár hefur hann verið sýningarstjóri Norrænu
listamiðstöðvarinnar í Sveaborg, sem er við bæjar-
dyr Helsinki.
Halldór, er finnsk myndlist hlekkjuð og ófrumleg,
eins og kom fram í viðtalinu í Lesbókinni?
„Það tel ég af og frá. Ég held að finnsk myndlist
sé mjög fjölbreytileg, og það er Iangt frá að hún
sé hlekkjuð. Hvað hlekkina varðar þá tel ég að
Markku Malmivaara fínnski myndhöggvarinn sem
var á íslandi fyrir stuttu fari með rangt mál í Les-
bók Morgunblaðsins. Ég hef skoðað borgarsöfn í
helstu borgum Finnlands, og þessi söfn eru að miklu
leyti sjálfstæð, og það sem maður sér í þessum
söfnum er mjög mismunandi frá einu safni til ann-
ars. Auðvitað eru alltaf ákveðnir listamenn í fyrir-
rúmi, svo sem þekktustu listamenn Finna á hveijum
tíma, en að öðru leyti má segja að borgarlistasöfn-
in haldi sjálfstæði sínu, sérstaklega gagnvart Hels-
inki.“
Hvað viltu segja um hið mikla kerfi í kringum
finnska myndlist sem Markku Malmivaara talar um
í viðtalinu í Lesbókinni?
„Það má auðvitað segja að kerfíð í Finnlandi sé
samhæfðara en heima. Ef við tökum t.d. listfræð-
inga, eða málara og myndhöggvara, þá ríkir ef til
vill meira samkomulag um það hér í Finnlandi hveij-
ir séu svona tíu, tuttugu, þijátíu bestu. En það er
af og frá sem Markku Malmivaara heldur fram, að
menn sem vilji fara fram hjá kerfínu komist ekki
framhjá því. Það eru mýmörg dæmi um finnska
myndlistarmenn sem stóðu utan við kerfíð og gerðu
það gott. Má þar nefna t.d. grafíklistakonuna Outi
Heiskanen og listamanninn Olli Lyytikainen. “
Hvernig búa Finnar að myndlist sinni?
♦
Eg held að myndlistarmál Finna séu í miklu betra
formi en t.d. hjá okkur heima á íslandi. Þeir
hlúa ákaflega vel að sínum málum, og þeir koma
mjög fljótlega auga á það sem er merkilegt í eigin
menningu og listum, og það ýta þeir undir og passa
að það drabbist ekki niður. Við gætum lært mikið
af þeim í þessum efnum. Það er miklu betra styrkja-
kerfi hjá þeim, og allt að 15 ára styrkir sem veittir
eru. Finnar standa okkur að því leytinu framar að
þeir viðurkenna menninguna og hlúa mjög vel að
henni, og er ég þá að tala um allar greinar menning-
arinnar; myndlist, leiklist, tónlist, kvikmyndagerð,
arkitektúr, hönnun o.fl.“
Hvað viltu segja um starfsemi listasafnsins Atene-
um í Helsinki?
„Já, ég hef kynnst starfseminni lítils háttar, og
það verður að segja að það er mjög góður andi á
milli safnstjóranna, þess sem stjórnar Ateneum og
þess sem stjómar nútímalistasafninu sem er í sama
húsnæði. En báðir eru konur. Ég sé í Lesbókargrein-
inni að þar tekur Markku Malmivaara upp hansk-
ann fyrir fínnska gagnrýnandann Mallander sem
hefur mest ráðist á finnskt listalíf vegna þess að
konur séu þar í fararbroddi. Mér finnst þetta fyrir
neðan allar hellur. Þessar konur eru góðra gjalda
verðar, og það merkilega er að bestu söfnin í Finn-
landi eru rekin af konum. Og ég held að það sé
ekki neitt hægt að skammast út í það ef konumar
eru svona miklu betri en karlamir, þá verða þær
bara að njóta þess.
Ég held að það sé vottur um heilbrigði í fínnskri
myndlist hve Ateneum er vinsælt, það er alltaf stöð-
ugur straumur af fólki í safnið. í Ateneum er
skemmtileg kaffistofa, og góð bóksala. Ég fæ ekki
betur séð en að þetta sé orðinn fastur miðpunktur
í bæjarlífmu í Helsinki."
Greinarhöfundur bað Halldór Bjöm að tjá sig um
nokkra fmnsku listamannanna sem Ateneum kynn-
ir um þessar mundir:
„Fyrstan vil ég nefna Hugo Simberg, sem var
mjög sérstæður listamaður um síðustu aldamót.
Um hann hefur verið skrifuð stór doktorsritgerð
við Parísarháskóla. Það gerði franskur maður sem
talar afbragðsgóða finnsku, og hefur stúderað mik-
ið verk Hugos Simberg. Simberg er að mínu mati
einhver frumlegasti listamaður Finna af þessari
aldamótakynslóð. Nú, Magnus Enckell sem var
uppi á sama tíma var kannski ekki síðri myndlistár-
maður og ákaflega næmur listamaður. Það er t.d.
gaman að skoða dómkirkjuna í iðnaðarborginni
Tampere hér í Finnlandi, og sjá þar myndskreyting:
ar bæði eftir Hugo Simberg og Magnus Enckell. í
kirkjunni er stór altaristafla eftir Magnus Enckell,
björt og falleg, á meðan hliðarsalimir em skreyttir
af Hugo Simberg, sem jafnframt málaði stóran orm
í miðri kirkjunni. Hann sætti reyndar miklu ámæli
fyrir að hafa málað slöngu í kirkjuna, þ.e.a.s. kring-
um hvelfinguna, vegna þess að það þótti tákn hins
illa. En það sýnir kannski best hvað Finnar hafa
verið opnir fyrir myndlistinni, að þeim datt aldrei
í hug að fjarlægja þennan orm úr kirkjunni. Þótt
þeim væri meinilla við táknið töldu þeir Hugo Sim-
berg svo merkilegan listamann, að ekki mætti eyði-
•eggja þetta listaverk hans.
Næst skal nefna Akseli Gallen-Kallela, en það
er ekki hægt að ganga framhjá þessum merka
brautryðjanda symbolismans.
Gallen-Kallela er þekktastur fyrir myndskreyting-
ar sínar á Kalevala-ljóðunum. Hann var mikill lista-
maður þótt mér finnist hann stundum ganga of
langt í myndskreytingunni, en í bestu verkum hans
má sjá frábær tilþrif.
Albert Edelfelt er kannski ólíkur Gallen-Kallela
að því leytinu að sá síðamefndi er stórbrotinn og
dramatískur, á meðan Albert Edelfelt er þessi mjúki
málari. Edelfelt er svona eins og Renoir þeirra
Finnanna, gerði afar fagrar konumyndir, þar sem
hann sýnir konur mjög munaðarfullar. En þegar
maður fer að skoða verk hans betur, kemur í ljós
að hann ræður yfir frábærlega fínni tækni sem ligg-
ur einhvers staðar á mörkum impressionisma og
raunsæis. Svo er Helene Schjerfbeck, sem er mjög
sérstæð listakona, hún er kona sem stendur á mörk-
um tveggja tíma, því hún er fædd þegar klassísk
list er ennþá við lýði í Finnlandi, en gerist siðan
módernisti. Ég er ekki frá því að Schjerfbeck hafí
leikið álíka stórt hlutverk í finnskri myndlist og
Wirginia Woolf í breskri ritlist. Helene Schjerfbeck
málaði eins og manneskja sem hefur mikinn vilja-
styrk, og vill bijóta blað, og gerði það svo sannar-
lega. Og þennan einfaldleika sem hún náði fram í
sínum bestu myndum leikur enginn eftir henni, hún
var frábær teiknari."
/ nútímalistasafninu í Ateneum hafa fjölmargir
af bestu myndlistarmönnum Finna verið kynntir frá
því safnið var opnað. Halldór Björn var beðinn um
að tjá sig um nokkra afþessum finnsku nútímalista-
mönnum:
„Já, ég tel að menn eins og Juhana Blomsted séu
á meðal bestu málara Finna. Þetta er ákaflega
traustur málari, sem hefur alltaf unnið innan geó-
metrískrár abstraktsjónar, en víkkað þennan ramma
langt út fyrir það sem kallast má venjuleg geómet-
rísk abstraktsjón. Hann hefur þessi finnsku ein-
kenni sem felast í seiglunni. Hann tekur kannski
ekki neinum stórstígum breytingum frá einni sýn-
ingu til annarrar. En þegar maður fer að skoða
verk hans betur er alltaf um einhveijar nýjungar
að ræða. Á undanförnum árum fínnst mér Juhana
Blomsted hafa blómstrað, að því leyti að það er
komið í handbragð hans ákaflega mikil mýkt, sem
ekki var þar áður. Og þessi mýkt er að mínu viti
ákaflega fín, vegna þess að hún er eðlislæg, en
ekki tilgerðarleg, heldur sprottin upp af langri leit
að dýpkun í meðferð litar og línu.
Silja Rantanen er miklu yngri manneskja, og ef
til vill má segja að hún sé að sínu leyti mistækari, en
í sínum bestu verkum nær hún fram feikilega fínu
litaspili. Rantanen byggir upp verk sín á mjög klass-
ískum gildum, og sömuleiðis gerir eiginmaður henn-
ar, Carolus Enckell, slíkt hið sama, en Ratanen er
sýnu nær grísk-rómverskum bakgrunni sem hún
leitar í. En það er dálítið sérkennilegt með Finnana
að það er í þeim ákaflega klassískur strengur, sem
ef til vill kemur í gegnum arkitektúr, og það hvað
þeir eru vanir að skoða klassískar byggingar sem
Helsinki er uppfull af. Silja Rantanen hefur starfað
í Róm og við Miðjarðarhafíð og dregur greinilega
klassísku gildin frá Pompei-málverkinu og bræðir
þau samap við nútímalegan myndlistarstíl.
Ef ég held aðeins áfram og nefni unga listamenn
sem sýnt hafa í nútímalistasafninu í Ateneum, þá
vil ég segja að Marja Kanervo og Jussi Niva séu í
hópi bestu myndlistarmanna Finna af yngri kynslóð-
inni, hvort á sinn hátt. Maija Kanervo gerir samsetn-
ingar eða svokallaðar „installasjónir". Hún vinnur
með ljósmyndir, gler, vax og kertaljós, og setur upp
stemmningar sem eru ákaflega næmar, reyndar
fullar af þunglyndi og jafnvel eftirsjá, þó það þurfi
ekki að túlka það á þann hátt. En hún vinnur á
ákaflega næman hátt, og ég held að nafn hennar
hafi nú þegar borist töluvert út fyrir landamæri
Finnlands."
Jussi Niva sem er kornungur listamaður hefur á
stuttum tíma öðlast feykilega mikinn virðingar-
sess. Hann hefur unnið út frá geómetríunni, en
fært þar inn algjörlega nýjar víddir. Hann notar
líka ljósmyndir og töflur og annað þvíumlíkt. Ef
Jussi Niva heldur áfram af sama krafti og hingað
til, væsir ekkert um hann. Ég vil bæta við að bæði
Maija Kanervo og Jussi Niva hafa verið þáttakend-
ur í sýningum sem Norræna listamiðstöðin hér í
Sveaborg hefur staðið fyrir.“
Eins og komið hefur fram hefur Halldór Björn
verið sýningarstjóri listamiðstöðvarinnar í Sveaborg
sl. þijú ár. En miðstöðin hefur miklu hlutverki að
gegna, og á m.a. stóran þátt í að koma erlendum
listamönnum, þar á meðal íslenskum, á framfæri
við fínnskt listalíf, svo þeir hljóti varanlegan sess
þar.
En Halldór var spurður að lokum hvaða þýðingu
Norræna listamiðstöðin í Sveaborg hefði fyrir
finnska myndlist:
„Já, það er kolrangt sem Markku Malmivaara
hélt fram i títtnefndri Lesbókargrein, að listamið-
stöðin í Sveaborg skipti fínnska list engu máli.
Norræna listamiðstöðin í Sveaborg er mjög mikil-
væg, ekki síst í huga fjölmargra finnskra lista-
manna, sem kjósa frekar að sýna hér en í sölum í
Helsinki. Sem dæmi um viðurkennda listamenn sem
lögðu mikla áherslu á að sýna hér vil ég t.d. nefna
þá Annki Tanttu, Jari Juvonen og Lauri Laine.“
MENNING/LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Listasafn Islands
Finnsk aldamótamyndlist. Sýning 20 '
finnskra listamanna stendur yfir.
Skúlptúrar Jóhanns Eyfells. Sýningin
stendur til-22. nóvember.
Listasafn tslands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12 - 19.
Kjarvalsstaðir
í Austursal er yfirlitssýning á verkum
Hrólfs Sigurðssonar, listmálara. í Vest-
ursal sýning á nýjum verkum Eiríks
Smith. I Vesturforsal er sýning á marm-
ara- ög granítskúlptúrum Thór Barðdal,
myndhöggvara. Sýningamar standa til
15. nóvember.
Norræna húsið
Sýning á verkum Guðrúnar Kristjáns-
dóttur í kjallara Norræna hússins er
opin til 15. nóvember.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
Sýningin -Orðlist Guðbergs Bergssonar-
stendur yfir til 24. nóvember.
Leikdagskrá f tengslum við sýninguna
verður flutt miðvikudaginn 18. nóv. og
fimmtudaginn 19. nóv. kl. 20.30.
Sýning á skúlptúrverkum og veggmynd-
um Kristins E. Hrafnsson í Effinu stend-
ur til 8. desember.
Sýningarnar eru opnar mánud. til
fimmtud. kl. 10-22, föstud. 10-16 og
laugard. 13-16. og sunnud. kl. 14-17.
Hafnarborg
í aðalsal stendur yfir sýning á verkum
úr safni stofnunarinnar fram til 16. nóv.
í Sverrissal stendur yfir sýning á mynd-
skreytingum f bamabækur til 29. nóv.
Opið frá 12-18 alla daga nema þriðju-
daga.
Listasafn A.S.Í.
Hin árlega fréttaljósmvndasýning
WORLD PRESS PHOTO stendur yfír
til 22. nóv.
FÍM-salur, Garðastræti
Sýning á verkum Guðrúnar Kristjáns-
dóttur stendur til 15. nóv. Opið frá kl.
14 - 18
Geysishúsið
Sýning á ijörutfu grafíkmyndum frá
Mexikó og Suður-Amerfku stendur til
15. nóvember.
Safn Ásgrims Jónssonar, Bergstaða-
stræti
Sýning á þjóðsagna- og ævintýramynd-
um Ásgrfms Jónssonar stendur til 29.
nóvember. Safnið er opið um helgar kl.
13.30-16.
Eldsmiðjan
Sýning á olíumálverkum Sesselju Björns-
dóttur stendur til 15. nóv.
Þjóðminjasafn íslands
Á þriðju hæð er sýningin JÓMSVÍKING-
AR, sem stendur til 13. des.
í Bogasal verður sýning á óþekktum Ijós-
myndum Jóns Guðmundssonar og Guð-
mundar Jónssonar frá Ljárskógum frá
14.-22. nóv. Fólk sem geturþekkt mynd-
efnið, er sérstaklega hvatt til að koma.
Sýningin er opin á opnunartfma safnins.
Listhús í Laugardal
í Listgalleríi sýna Magdalena Margrét,
grafík; Sverrir Ólafsson, skúlptúr, Þórð-
ur Hall, grafík; Valgerður Hauksdóttir,
blandaða tækni og Þorbjörg Þórðardótt-
ir, myndvefnað. Opið daglega kl. 14-18.
Vinnustofur hússins opnar alla daga
nema sunnudaga.
Hulduhólar, Mosfellssveit
Keramikverkstæði Steinunnar Marteins-
dóttur er opið er frá 14 til 19 alla daga
nema fimmtudaga og fostudaga, þá er
opið frá 17 til 22.
Vinnustofur Álafossi
Vinnustofur listamanna í verksmiðjuhús-
inu Álafossi eru opnar almenningi á
laugardögum og aðra daga eftir sam-
komulagi.
Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti
Sýning á verkum Guðmundu Andrés-
dóttur stendur til 18. nóv.
Lóuhreiður, Laugavegi 59
Jón Páll Vilhelmsson, ljósmyndari sýnir
svart-hvftar landslagsmyndir. Sýningin
stendur til 14. nóvember.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
Sýning á nýlegri listaverkagjöf Þórs
Vigfússonar, myndlistamanns.
Sýning á 104 bókverkum sem Níels
Hafstein setti saman og gaf safninu
1978.
Sýning á verkum Steingrims Eyfíörð
myndlistamanns.
Sýningamar standa yfír til 22. nóv.
Opið alla daga kl. 14-18.
Snegla - Listhús, Grettisgötu 7
Sýning á grafíkverkum Hrafnhildar Sig-
urðardóttur stendur til 30. nóv. Opið
virka daga 12-18, og laugardaga 10-14.
Galleri Umbra, Amtmannsstíg
Sýning á myndverkum Einar Guðvarðar-
sonar stendur til 18. nóv. Christian
Mehr sýnir ljósmyndir frá 19. nóv. til
9. des.
Hlaðvarpinn, Vesturgötu
Sýning á dúkristum Katrínar Bílddal
stendur til 22. nóv. Sýningin er opin
virka daga kl. 14-17, um helgar kl.
13-16.
Galleri G15, Skólavörðustig
Sýning á andlitsmyndum og teikningum
Kjartans Ólasonar stenduryfír. Sýningin
er opin virka alla daga kl. 10-18, nema
á laugardögum kl. 11-14. Henni lýkur
7. des.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Sýning á verkum Elfnar Magnúsdóttur
stendur til 4. des.
Listmunahúsið
Sýning á verkum ýmissa fslenskra mál-
ara, þar sem Reykjavíkurhöfn og ná-
grenni er mótívið, opnuð sunnud. 15.
nóv. Sýningin stendur til 13. des. List-
munahúsið opið virka daga, nema
mánud. kl. 12-18, um helgar kl. 14-18.
Galleri Slunkaríki, ísafirði
Sýning á verkum Halldórs Ásgeirssonar
myndlistamanns verður opnuð laugard.
14. nóv. og stendur til 6. des. Opið
fímmtud. til sunnud. kl. 16-18.
Byggðastofnun, Egilsstöðum
Sýning á verkum Louise Heite stendur
til áramóta.
TONLIST
Laugardagur 14. nóv.
Gerðuberg kl. 17.00:
Ljóðatónleikar: Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran; Jónas Ingimundarson, pfanó.
Ljóðasöngvar eftir Bemstein, Turina,
Donizetti og íslensk tónskáld.
Sunnudagur 15. nóv.
Hallgrímskirkja kl. 17.00:
Mótettukór Hallgrímskirkju: Stjórnend-
ur Bemharður Wilkinson og Hörður
Áskelsson. Ensk kirkjukórahefð frá end-
urreisnartímanum til fyrri hluta 20. ald-
ar.
íslenska óperan kl. 20.00:
Lucia di Lammermoor.
Oddakirkja i Rangárþingi k. 15.00:
Margrét Bóasdóttir og Chalumeaux trfó-
jð með tónleika. Verk eftir Graupner,
Bach, Jón Leifs og Mozart.
Mánudagur 16. nóv.
Gerðuberg kl. 20.30:
Ljóðatónleikar: Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran; Jónas Ingimundarson, píanó.
Ljóðasöngvar eftir Bemstein, Turina,
Donizetti og íslensk tónskáld.
Miðvikudagur 18. nóv.
Listasafn Islands kl. 20.30:
Píanótónleikar: Johan Duijck. Verk m.a.
eftir César Franck, Liszt, Schumann.
Breiðabólsstaður í Rangárþingi kl.
21.00:
Chalumeaux tríóið og Margrét Bóasdótt-
ir með tónleika. Verk eftir Graupner,
Bach, Jón Leifs og Mozart.
Fimmtudagur 19. nóv.
Iláskólabfó kl. 20.00:
Sinfóníuhljómsveit íslands. Einleikari:
Frans Helmerson. Stjómandi: Petri Sak-
ari. Páll P. Pálsson: Hugleiðing um L;
Shostakovich: Sellókonsert no. 1; Stra-
vonski: Petrashka.
Laugardagur 21. nóv.
íslenska óperan kl. 14.30:
Tónlistarfélagið, Martynas Svegzde- von
Bekker, fiðla; Guðríður St. Sigurðardótt-
ir, píanó: Verk eftir Tartini, Prökofieff,
Brahms, Ravel.
Hafnarborg kl. 17.00:
Tónleikar kennara Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar.
LEIKLIST
Þjóðleikhús
Stóra sviðið kl. 20.00:
Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson lau.
14. nóv.- mið. 18. nóv.- lau. 21.nóv.
Kæra Jelena fös. 20. nóv.
Uppreisn -3 ballettar með íslenska dans-
flokknum sun. 15. nóv.- fím. 19. nóv.
Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjöm Egn-
er kl. 14.00: lau. 14. nóv.; -sun. 15.
nóv.; -lau. 21.nóv.
Litla sviðið kl. 20.30:
Rita gengur menntaveginn lau. 14. nóv.;
-sun. 15. nóv.; -mið. 18. nóv.; -fim. 19.
nóv.; -fös. 20. nóv.; -lau. 21. nóv. .
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
Stræti eftir Jim Cartwright lau. 14. nóv.;
-lau. 21. nóv.
Borgarleikhús
Stóra sviðið kl. 20.00:
Dunganon eftir Björn Th. Björnsson,
lau. 21. nóv.
Heima hjá ömmu eftir Neil Simon, lau.
14. nóv.; -fim. 19. nóv.; -fös. 20. nóv.
Litla sviðið:
Sögur úr sveitinni eftir Anton Tsjékov:
Platanov lau. 14. nóv. kl. 17.00; sun.
15. nóv. kl. 17.00. Vanja frændi lau.
14. nóv. kl. 20.00; sun. 15. nóv. kl. 20.00.
Nemendaleikhúsið, Lindargötu 9:
Clara S. kl. 20.30: lau. 14. nóv; sun.
15. nóv; þri. 17. nóv.
Alþýðuleikhúsið, Hafnarhúsi:
Hryllileg hamingja eftir Lars Norén kl.
20.30: lau. 14. nóv.; sun. 15. nóv.; fim.
19. nóv.; fös. 20. nóv.
Leikbrúðuland, Fríkirkjuveg 11:
Bannað að hlæja kl. 15.00: sun. 15.
nóv. lau. 21. nóv.
Til umsjónarmanna listastofnana og
sýningarsala
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði t þessum dálki
verða að hafa borist bréflega fyrir kl.
16 á miðvikudögum. Merkt: Morgun-
blaðið, menning/listir, Hverfisgötu 4,
101 Rvk. Myndsendir 91-691294.