Morgunblaðið - 02.12.1992, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1992
51
URSLIT
Handknattleikur
ÍBV-Valur 26:26
íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, ís-
landsmótið í handknattleik, þriðjudaginn
1. desember 1992.
Gangur leiksins: 2:1, 4:4, 5:8, 8:9, 11:10,
15:12, 19:16, 20:18, 23:22, 24:23, 26:26.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 8/4, Svavar
Vignisson 6, Magnús Amar Amgrímsson
4, Guðfmnur Kristmannsson 4, Björgvin
Þór Rúnarsson 2, Sigurður Gunnarsson 1,
ISigbjöm Óskarsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 8/3
(þaraf 2 til mótheija), Hlynur Jóhannesson
5 (þaraf 2 til mótheija).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 6/2, Dagur
Sigurðsson 5, Júlíus Gunnarsson 5, Geir
Sveinsson 5, Valdimar Grímsson 4, Ólafur
Stefánsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 8/1
(þar af 3 til mótheija).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Þorlákur 'Kjartansson og Guð-
mundur Sigurbjömsson. Ekki sannfærandi.
Áhorfendur: Um 300.
Körfuknattleikur
ÍR-ÍBK 46:63
Seljaskóli, íslandsmótið í körfuknattleik, 1.
deild kvenna, mánud. 30. nóvember 1992.
J Gangur leiksins: 5:6, 12:12, 13:19, 24:25,
27:36, 32:36, 36:49, 40:52, 46:63.
Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 12, Hrönn
IHarðardóttir 8, Hildigunnur Hilmarsdóttir
7, Guðrún Árriadóttir 7, Þóra Gunnarsdótt-
ir 6, María Leifsdóttir 3, Sigrún Hauksdótt-
ir 2, Fríða Torfadóttir 1.
Stig ÍBK: Hanna Kjartansdóttir 19, Anna
María Sveinsdóttir 11, Kristín Blöndal 10,
Olga Færseth 9, Sigrún Skarphéðinsdóttir
7, Guðlaug Sveinsdóttir 4, Anna María Sig-
urðardóttir 2, Elínborg Herbertsdóttir 1.
BLeikurinn var jafn í upphafi og lengi
framan af en um miðjan síðari hálfleikinn
kom slæmur kafli ÍR þar sem þær sendu
hvað eftir annað f hendumar á Keflavíkur-
stúlkunum sem nýttu sér það vel og náðu
ömggu forskoti. Linda Stefánsdóttir og
Guðrún Ámadóttir vora bestar í liði heima-
manna en Anna María Sveinsdóttir lék best
í liði fBK. Hún tók mikið af fráköstum og
„stal“ nokkram sinnum knettinum. Hanna
var atkvæðamikil og Kristín átti góða
spretti í fyrri hálfleik en lenti f villuvandræð-
um og lék lítið í þeim síðari.
Hildigunnur Hilmarsdóttir
KR-UMFT 55:41
Hagaskóli, íslandsmótið í körfuknattleik,
1. deild kvenna, 28. nóvember 1992.
Gangur leiksíns: 7:0, 11:11, 15:15, 23:18,
29:20, 37:22, 47:26, 55:34, 55:41.
ÍStig KR: María Guðmundsdóttir 13, Helga
Þorvaldsdóttir 12, Anna Gunnarsdóttir 12,
Hildur Þorsteinsdóttir 10, Valgerður Jónas-
dóttir 4, Alda Valdimarsdóttir 2, Sólveig
B Ragnarsdóttir 1, Kristín Jónsdóttir 1.
Stig UMFT: Kristfn Elva Magnúsdóttir 14,
Valgerður Erlingsdóttir 8, Inga Dóra Magn-
úsdóttir 6, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir
6, Ásta Margrét Benediktsdóttir 5, Krist-
jana Jónasdóttir 2.
BLeikurinn fór frekar rólega af stað. Jafn-
ræði var með liðunum í byijun, en í seinni
hluta fyrri hálfleiks tóku KR-stúlkur Ieikinn
í sfnar hendur og juku forskotið jafnt og
þétt. Helga Þorvaldsdóttir, sem tók við hlut-
verki Bjargar Hafsteinsdóttur, stóð sig mjög
vel ásamt Maríu Guðmundsdóttur og Önnu
Gunnarsdóttur. í liði Tindastóls stóð Kristín
Elva Magnúsdóttir sig best ásamt Valgerði
Erlingsdóttur.
Guðbjörg Norðfjörð
Knattspyrna
Enska deildarbikarkeppnin
PS.umferð (aukaleikur):
Arsenal - Derby..................2:1
Ian Wright (6.), Kevin Campbell (13.) -
Pembridge (vsp. 44.).
j Ahorfendur: 24.500.
BArsenal mætir Scarborough f 4. umferð.
4. umferð:
PLiverpool - Crystal Palace...........1:1
Mike Marsh (vsp.) - Chris Coleman.
BLiðin leika aftur 16. desember.
Cambrldge - Oldham...............1:0
Gary Rowort -
Skoska úrvalsdeildin
Airdrieonians - Rangers.........1:1
Dundee United - Partick Thistle.2:1
Hibernian - Motherwell...........2:2
Fjáröflunarleikur
Benfica - Manchester Utd.........1:0
Rui Costa (80.).
Þýska bikarkeppnin
Átta liða úrslit:
Hertha Berlin (áhugam.) - Numberg.2:1
Chemnitz - Werder Bremen........2:1
Carl Zeiss Jena - Leverkusen.....0:2
I kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Höllin: Fram-Þór.....kl. 20
Körfuknattleikur
Urvalsdeild:
Stykkish.: Snæfell - UMFG20
Rlak...................
1. deild karla:
Hagas.: Þróttur - Stjamanl9.45
HANDKNATTLEIKUR
Júlíus Gunnarsson jafnaði fyrir Val þegar 30 sekúndur voru eftir.
ÍBVtókstekki
að sigra heima
EYJAMENN gerðu 26:26 jafn-
tefli gegn hinu geysisterka liði
Vals í Eyjum í gærkvöidi. Júlíus
Gunnarsson jafnaði fyrir Val
þegar 30 sekúndur voru eftir og
þar við sat.
Sigurður Gunnarsson þjálfari ÍBV
gerði nokkrar breytingar á liði
sínu, setti inn tvo unga leikmenn,
sem lítið hafa fengið
að spreyta sig í vet-
ur. Þeir Svavar Vign-
isson línumaður og
Magnús Ámar Am-
grímsson skytta, vom greinilega
ákveðnir að standa sig þegar tæki-
færið gafst og gerðu alls 10 mörk.
Leikurinn var í jámum fyrstu tíu
mínútumar en þá komu fímm mörk
í röð frá Val og þeir virtust ætla að
kafsigla heimamenn. Þeir voru þó
ekki hættir, léku mjög ákveðna vöm
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrífar
HK getur spjarað sig
segir Eyjóifur Bragason sem er hættur sem þjálfari liðsins
EYJÓLFUR Bragason er hættur
sem þjálfari fyrstu deiidar liðs
HK í handknattleik, en ekki hefur
verið ákveðið hver tekur við af
honum.
Þetta hefur verið að geijast síð-
ustu vikuna og nú er ljóst að
ég er hættur og það er allt gert í
góðu,“ sagði Eyjólfur við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. „Ég tók að mér
þjálfun HK vegna þess að mér fannst
verkefnið ögrandi en vissi jafnframt
KNATTSPYRNA
Liverpool
gæti
komist
áfram
LIVERPOOL eygir nú mögu-
leika á að komast í þriðju um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa í
knattspyrnu þrátt fyrir að tapa
fyrir Spartak Moskvu í annarri
umferð. Miklar líkur eru á að
einn leimanna rússneska liðs-
ins hafi verið ólöglegur.
| ikail Rusayev, miðvallarleik-
maður sem kom inná í báð-
um leikjunum gegn Liverpool, lék
með Oldenburg í 2. deildinni í
Þýskalandi en fór frá félaginu í
júní — án þess að greiða skuldir
og hvorki félagið né þýska sam-
bandið skrifuðu uppá félagaskiptin.
Rusayev þessi lenti í árekstri
þegar hann var í Þýskalandi og
skuldar félaginu um eina og hálfa
milljón ÍSK vegna skemmda á bíln-
um. „Ég sá síðari leikinn í sjónvarp-
inu og heyrði þá að nafn hans var
nefnt. Ég vissi ekki að hann væri
að leika knattspyrnu," sagði tals-
maður þýska liðsins.
Knattspyrnusamband Evrópu
hyggst taka málið fyrir í vikunni
en Rusayev lék einnig í fyrstu um-
ferðinni gegn Avenir Beggen frá
Luxemborg og vonast menn þar á
bæ til að fá leik við Liverpool. „Það
yrði frábær jólagjöf fyrir áhuga-
mannalið eins og okkar,“ sagði for-
maður félagsins. Lausinin gæti
einnig orðið sú að Liverpool færi
beint f þriðju umferð og mætti þar
Feyenoord frá Hollandi.
að það yrði erfítt. Margir nýir leik-
menn komu til liðsins og kröfumar
voru miklar. Það eru margir góðir
handboltamenn í HK en það þarf
þolinmæði og þrautseigju til að
mynda sterkt lið. Þolinmæðin var
ekki til staðar," sagði Eyjólfur.
„Við lentum í vandræðum strax í
upphafi móts þegar verið var að
ganga frá félagaskiptum síðustu
mínútumar fyrir leiki, en það er
mjög mikilvægt að byija vel í mót-
um. Liðið lék mjög illa í mörgum
FRAKKLAND
leikjum en ágætlega þess á milli.
Ef vanur maður tekur við, og ákveð-
in hugarfarsbreyting verður hjá leik-
mönnum og forráðamönnum liðsins,
getur liðið spjarað sig. Það hefur
burði til þess, en ég bjóst við að það
tæki alla vega þennan vetur að pússa
það saman. Strákamir eru í góðri
æfingu og það hefur verið unnin góð
grunnvinna með liðið. Ég vona bara
að strákunum gangi vel og að liðið
smelli saman og óska þeim góðs
gengis," sagði Eyjólfur.
og eltu Valsara um allan völl. Sókn-
arleikurinn gekk vel og höfðu þeir
náð að snúa leiknum sér í vil fyrir
leikhlé.
Allar flóðgáttir virtust opnast í
síðari hálfleik því fyrstu fjórar mín-
útumar gerði hvort lið fjögur mörk.
Nú hægðist aðeins um og Valsarar
tóku að saxa á forskotið og jöfnuðu
22:22 þegar tíu mínútur vom eftir;
Eyjamenn voru á undan að skora
eftir það en Valsmenn fylgdu í kjöl-
farið og Júlíus átti síðasta orðið eins
og áður segir.
Mikill hiti
íEyjum
lönnum var heitt í hamsi
í Eyjum í gær og eftir
leikinn gerðist það leiðinda atvik
að Jón Logason, sem setið hafði
á varamannabekk Eyjamanna
allan leikinn, rauk inná völlinn
og sló til Dags Sigurðssonar svo
að úr blæddi. Jón skallaði einnig
til Geirs Sveinssonar. Hann ber
því við að Valsmenn hafi haft í
hótunum við sig eftir síðasta
leik Vals og ÍBV.
Eyjamenn voru eitt sinn orðn-
ir átta inná vellinum en Guðfínn-
ur Kristmannsson sá hvað var á
seiði og hljóp útaf. Mikil reki-
stefna var hjá dómurunum eftir
þetta atvik og Valsmenn voru
að vonum ókátir en Eyjamenn
sluppu með skrekkinn og misstu
ekki mann útaf eins og reglur
kveða á um.
Viðtöpuðumá
lokasprettinum
- sagði Júlíus Jónasson hjá PSG
Júlíus Jónasson
Július Jónasson og félagar hans
hjá París St. Germain máttu þola
tap, 19:17, á útivelli gegn Nimes,
sem er eitt af toppliðunum í frönsku
1. deildarkeppninni. St. Germain er
nú í sjöunda sæti. „Enn einu sinni
náðum við ekki að halda út í sextíu
mínútur. Við leiddum í fyrri hálfleik,
en tíu mínútum fyrir leikslok náði
Nimes tveggja marka forskoti, sem
liðið hélt út leikinn," sagði Júlíus,
sem skoraði tvö mörk í leiknum.
„Við höfum tapað fyrir tveimur af
toppliðunum á lokasprettinum á
stuttum tíma á útivelli. Næstu tveir
leikir okkar eru þýðingarmiklir, en
þá leikum við gegn liðum sem eru á
svipuðum stað og við á stigatöfl-
unni,“ sagði Júlíus.
KNATTSPYRIMA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Sextán þjóðir leika í
EM íEnglandi 1996
Englendingar eru mjög ánægðir
með þá ákvörðun Knattspymu-
sambands Evrópu, UEFA, að fjölga
landsliðum úr átta í sextán sem taka
þátt í lokakeppni Evrópukeppni
landsliða 1996 í Énglandi, en þá eru
einmitt liðin þijátíu ár síðan heiras-
meistarakeppnin með sextán liðum
var í Englandi.
Keppni með sextán liðum stendur
aðeins þremur dögum lengur en
keppni með átta liðum. Fyrirkomu-
lagið í EM verður verður þannig að
leikið verður í íjjórum fjögurra þjóða
riðlum og komast tvö efstu liðin úr
riðlunum i átta liða úrslit. Síðan
verða undanúrslit og þá úrslitaleikur-
inn á Wembley. Alls verður leikinn
31 leikur.
Leikið verður á völlum sem bjóða
upp á aðeins sæti fyrir áhorfendur.
Fjórir leikvellir eru klárir fyrir EM.
Það eru Wembley í London, Elland
Road i Leeds, Old Trafford í Manc-
hester og Villa Park í Birmingham.
Á næstu dögum verður ákveðið
hvaða fjórir aðrir leikvellir sem taka
40.000 áhorfendur í sæti verða fyrir
valinu, en leikvellir sem hafa verið
nefndir eru Highbury í London, Goo-
dison Park í Liverpool, Roger Park
í Sunderland og Hillsborough í
Sheffíeld.
Ef þessir vellir verða fyrir valinu,
má reikna með að einn riðillinn verði
leikinn í London, annar í Birmingham
og Sheffield, þriðji í Manchester og
Liverpool og fjórði riðillinn í Le^ds
og Sunderland.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um að EM-keppnin í Englandi
á eftir að verða glæsileg, eða eins
og HM 1966, sem heppnaðist frábær-
lega. Með þessu nýja fyrirkomulagi,
að íjölga landsliðum í lokakeppninni,
á EM eftir að stela senunni frá heims-
meistarakeppninni.