Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
B 7
Verstq dýriö er sporó
drekinn en verstl moður
inn sq lærði semlcqnn
ekki qö fnrn með kunn
qftu sinq_____________
ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR
Fimm búsund ferskvatns-og
sjávardýr uttdir einn þaki þaki
LITSKRÚÐUGIR fískar, líflegir höfrungar, selir, hvalstennur og kol-
krabbar. Rúmlega fímm þúsund ferskvatns- og sjávardýr eru saman
komin í mjög skemmtilegu og stóru húsi sem stendur við höfnina í
Baltimore og hefur að geyma margar milljónir lítra af fersku vatni
og sjó. Safnið sem heitir National Aquarium er semsagt sjávar- og
ferskvatnsdýrasafn sem var sett á stofn fyrir liðlega tólf árum.
Hugmyndin varð til þegar svæðið
við höfnina var gert upp. Borgin á
landið og húsnæðið. Safnið er ekki
rekið í hagnaðarskyni heldur sitja
sjálfboðaliðar í stjóm og stefna að
því að reksturinn stahdi undir sér.
Við safnið starfa hinsvegar á laun-
um næstum þrjú hundruð manns
sem sjá um reksturinn.
Flestir ferðamenn sem fara til
Baltimore skoða safnið enda eru
gestir um að bil ein og hálf milljón
á ári. Safnið sem er eitt stærsta
sinnar tegundar í heimi er mjög
skemmtilega hannað og þeir sem
hyggjast heimsækja Baltimore á
næstunni ættu endilega að ganga
þar í gegn og sjá allan þann fjölda
dýra sem búa við eða í vatni og sjó.
Þegar forráðamenn safnsins eru
að auglýsa hvemig andrúmsloft
þeim hefur tekist að skapa frá heim-
kynnum dýranna nefna þeir til
dæmis hinar ísköldu íslandsstrend-
ur og regnskóga Afríku. ■
grg
Heiðursskjal í fjallaskarði
HÆSTI fjallvegnr Evrópu er ekki í Austurríki eða Sviss, eins og
margir gætu haldið, heldur í suðurhluta Alpanna í Frakklandi. Leið-
in um fjallaskarðið Col de Restefond-La Bonette frá bænum Barcelon-
nette í Alpafjöllunum til Nizza á Miðjarðarhafsströnd fer upp í 2.802
metra og er aðeins opin yfir hásumarið.
Ferðamenn fara ekki á hveijum
degi svo hátt og eiga því kost á að
fá heiðursskjal fyrir afrekið, hvort
sem þeir aka, hjóla eða fara á
múlasna um skarðið. Ubaye og
Tinee dalirnir norðan og sunnan við
það eru afar fallegir og vel þess
virði að fara um þá, jafnvel þótt
ekkert heiðursskjal væri í boði. ■
Á pðbbarápi með M-3 og
litast um á rithöfundasafni
„Ertu frá íslandi! Guð almáttugur! Og ég hef ekki frétt af þessu,“
hrópaði verslunarkona í verslunarmiðstöðinni skammt frá Stefáns-
garðinum í Dublin. Ég hafði rölt þar inn og fannst ekki skaða að
kíkja á verðlagið með það í huga hvað íslendingar hafa sótt ákaft
til borgarinnar að gera innkaup á haustin. Ég sagði konunni að
það væri svo sem engin ástæða til að hún hefði frétt af komu
minni, ég væri hér bara ein á ferð. Hún varp öndinni léttar. „Ham-
ingjan góða, hvað ég er fegin, ég hélt að íslendingarnir væru komn-
ir og við ekkert farin að lækka verðið eins og við gerum áður en
þeir koma.“
[g Hún jafnaði sig af geðshrær-
■■ ingunni og sýndi mér vörur
m sínar, peysur og kjóla og
5% blússur, og varð kaupkonuleg
í framan. Ég sagðist ekki sjá
mikinn verðmun á Dublin og
Reykjavík. En hún fullvissaði mig
um hún skyldi láta mig fá hvað
sem ég vildi á „Íslandsverði" bara
ef ég keypti eitthvað.
Söngur á gellsku
Annars var litlum tíma þessa
daga eytt í verslunum. Það fór
dijúgur tími í að ganga um borg-
ina, rifja upp að hingað hafði ég
ekki komið í 30 ár og skemmta
mér við að sjá hvort ég fyndi gamla
staði og hvað væri nýtt. Grafton-
gatan er göngugata og hefur
kannski verið í háa herrans tíð,
þar eru verslanir og veitingastaðir
og þar voru nokkrir krakkar að
syngja írsk þjóðlög. Það vakti at-
hygli mína að þau fluttu textina á
gelisku og sums staðar sáust áletr-
anir á málinu. Þegar ég var hér
1963 vildi ekki nokkur maður anda
út úr sér orði á gelisku. Skólastelp-
an á pensjónatinu sat skapstygg
yfir lexíunum og bölvaði gelisku-
námi í sand og ösku. Þáverandi
konsúll okkar í Dublin sagði að
það væri bara tímaspursmál hve-
nær írar tækju þá einu skynsam-
legu ákvörðun að leggja niður
þetta steindauða mál. Enskan er
framtíðin, sagði hann og barði sér
á bijóst.
En það hefur orðið vakning á
þessu sviði sem mér finnst einkar
sjarmerandi og veitti athygli þegar
inn í Aer Lingus-vélina kom að þar
var byijað á að ávarpa okkur á
gelisku. Og unga fólkið sækir í að
læra málið, endurvekja gamla
I Stefánsgarðinum voru brúð-
hjónin mætt í myndatöku.
texta við sönglög. Það verður sjálf-
sagt bið á að geliskan öðlist jafn-
ræði með enskunni en hún er að
vakna með nýrri kynslóð.
AA sjð DA í Olympia
Leikhúsin höfðu ýmislegt að
bjóða þessa daga, í gamla Olympia-
leikhúsinu með öllum sínum
glæsta, gamla og dálítið þreytta
útskurði var t.d. verið að sýna
frægt verk eftir Hugh Leonard
„Da.“ Það var frumsýnt fyrir 20
árum og var tekið til sýninga nú
í tilefni þess.
„Da“ segir frá miðaldra manni
sem kemur heim til Dublin að vera
við útför föður síns og síðan birt-
ast foreldrar hans og aðrar persón-
ur úr fortíð hans og hann reynir
að gera upp hug sinn um sam-
skipti sín einkum við föðurinn.
írska enskan vafðist fyrir mér ofan
af sviðinu framan af en það kom
Morgunblaðið/JK
ett eða Brendan Behan. Þarna eru
myndir og handrit og múnir, ágæt
kaffistofa og bókabúð. Best er að
skoða safnið með því að leigja
heymartæki og hlusta á kasettu
þar sem segir glögga og skemmti-
lega sögu af höfundunum.
Ég spurði ýmsa hvernig væri
með írska nútímahöfunda. Ættu
þeir yfir höfði sér að bækur þeirra
væru bannaðar í írlandi nú um
stundir, eins og gerst hefur æ ofan
í æ í fortíðinni, og svo var að
mörgum kreppt að þeir flýðu land
og settust að utan Irlands til að
geta stundað ritstörf. Menn sögðu
að írar væm að færast inn í 20.
öldina hvað þetta snerti. Ég benti
á að það mætti þá ekki seinna
vera því sú 21. væri senn að hefj-
ast. „Við stökkvum yfir nokkra
áratugi og náum réttu tempói um
nýju öldina miðja,“ sögðu þeir og
hlógu grallaralega.
Irar hafa löngum skipað sér-
stakan sess hjá Islendingum. Það
er ótvíræður andlegur skyldleiki
milli þjóðanna og sé maður á göngu
um Dublin eftir O’Donnel-götunni,
þar sem hvað mestur erill og ferill
er allan daginn, gæti annar hver
maður verið íslendingur. Það er í
yfirbragðinu og fasinu. Og svo á
pöbbunum^á kvöldin. Nema Irar
eru kannski ívið skemmtilegri og
syngja betur en við þegar vínáhrif-
in eru farin að leika um þá. ■
Jóhanna Krístjónsdóttir
Hús í glöðum litum eru víða í Dublin.
ekki verulega að sök því mjög
skemmtileg grein var um leikritið í
leikskránni.
Á pöbbaráp með þremur M-um
Svo var náttúrlega pöbbaröltið
sem er ómetanleg leið til að kynn-
ast Dublin. í föruneyti 3-M, þ.e.
þriggja íra sem ég hitti í Kambod-
íu fyrir rösku ári og nöfn allra
byijuðu á M-i, var nú farið á heij-
ans mikið flakk á alla elstu pöb-
bana. M-in skiptust á að panta
kampavín og þegar við loks komum
í glæsilegt veitingahús M-2, Mart-
ins Keene, sem heitir „The Oliver
St. John Gogarty" lá við að kampa-
vínið væri farið að sprautast út
um eyrun. Þar var sest að hinu
fegursta veisluborði og mátti velja
úr ýmsum réttum eins og „Seafood
Molly Malone“ eða „Trinity College
Chicken" og allt þar á milli. Ég
skoðaði verðið og sá að það var
yfirleitt innan við 10 pund fýrir
aðalrétti og flestir forréttir kostuðu
2,50-4 pund.
Á nýja rithöfundasafninu
Það eru ýmis fýsileg söfn í Dubl-
in en hrifnust varð ég af nýja rit-
höfundasafninu sem er við Parnell
Sq. 18. Það er sérlega skilmerki-
lega sett upp, með munum úr eigu
hinna ýmsu rithöfunda írskra,
hvort sem eru Shaw, Wilde, Beck-
Rithöfundasafnið lætur lít- Söngfuglar í Grafton-götu.
ið yfir sér.
Sumarsýningar hafnar hjá
Ferúaieíkhúsinu í Tiamartnóí
SÝNINGAR Ferðaleikhússins á „Light nights“ eru hafnar og verða
í allt sumar og er sýnt fjórum sinnum í viku í Tjarnarbíói og hefst
sýning kl. 21 og er í tvær klst. Efnið er allt íslenskt og skiptist í
24 atriði sem eru ýmist færð í leikbúning eða sýnd með fjölmynda-
tækni. Sýningin er að mestu flutt á ensku að undanskildum nokkrum
leikatriðum og sungnum þjóðlagatextum.
Atriðin í fyrri hlut-
anum gerast í bað-
stofu og eru einkum
úr þjóðsögunum.
Seinni hluti er um
landnámsmenn og
víkinga og einnig at-
riði úr sögunni um
Sæmund fróða og fl.
Þetta-er 24. sumarið
sem Ferðaleikhúsið
starfar. Með stærsta
hlutverk sýningarinn-
ar fer Kristín G.
Magnús sem hefur
verið annar frum- Kristín G. Magnús segir sögur af Sæmundi fróða
kvöðull leikhússins í Light Nights og á myndinni eru einnig Þóra
frá upphafi þess. Katrín Gunnarsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir,
■ Magnús Ragnarsson og Sigurður Örn Eiríksson.
Nýja hótelið á Kirkjubæjarklaustri
Djass og myndlist í nýju
bútell á Kirkiubæiarklaustri
Á DÖGUNUM var tekið í notkun nýtt og glæsilegt hótel á Kirkju-
bæjarklaustri. Það er 640 fm að grunnfleti. Á neðri hæðinni er
veitingasalur, eldhús, setustofa, fundaherbergi og bar auk aðstöðu
fynr starfsfólk. A efri hæð verða
lega tilbúin á næsta ári.
Með nýja húsinu opnast betri
möguleikar til ráðstefnuhalds á
Klaustri enda hafa margar fyrir-
spurnir borist þar að lútandi. Um
leið lengist ferðamannatíminn því
ráðstefnur eru helst vor og haust.
Sl. mánudag hélt tríó Peter Gull-
in djasstónleika á hótelinu við góðar
undirtektir. Nú stendur þar yfir
22 herbergi sem verða væntan-
málverkasýning Þórdísar Árnadótt-
ur og fleiri listamenn munu sýna
þar í sumar. Lifandi tónlist er um
flestar helgar svo með sanni má
segja að hótelið sinni líka menning-
arhlutverki í héraðinu. ■
Hanna Hjartardóttir,
Kirkjubæjarklaustrí.
wm WIM
STAÐINN 1
Eldhnsverkin
unnin í matsalnum
ÝR Gunnlaugsdóttir fékk starfsreynslu á hótel Rebstock í Luzern þeg-
ar hún var í námi í hótelrekstri í Sviss. Eigandinn er hörkudugleg kona
á besta aldri sem hefur haslað sér völl í veitingahúsarekstri í ferða-
mannabænum á 10 árum. Hún opnaði nýtt hótel í vor og Ýr var forvit-
in að sjá staðinn. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum.
Hótel Hofgarten er við hliðina á sem eru búin gömlum húsgögnum
Rebstock sem stendur við Hof-kirkj-
una í miðbæ Luzern. Hótelið er í
gömlu húsi sem var að hruni komið
áður en það var gert upp á mjög
skemmtilegan hátt. Ekkert herbergj-
anna er eins. Mörg eru nýmóðins
með berum steingólfum og stáli á
húsgögnum en nokkur eru í gömlum,
hlýlegri stíl.
Það eru þrír matstaðir á hótelinu
þótt það sé lítið. Þeir eru ætlaðir fleir-
um en hótelgestum. Það er hægt að
borða úti í skjólgóðum garði, inni í
löngum sal og þar má fylgjast með
öllum eldhúsverkum yfír salat- og
vinnubar sem aðskilur borðin frá eld-
húsinu eða í nokkrum borðstofum
úr ýmsum áttum.
Við kusum „eldhússalinn“. Ýr var
eitt sinn aðstoðarkokkur á veitinga-
húsi og hafði strax orð á að það hlyti
að vera erfitt að vinna í svona opnu
eldhúsi. Kunningjakona hennar á
staðnum staðfesti það. „Ég endist
héma ekki lengi,“ sagði hún.
Það eru bara grænmetisréttir á
boðstólum og okkur leist báðum best
á rétt dagsins; maíssúpa með spínati
og avókadó með Gorgonzola-osta-
sósu, tómati og grænkomsfræjum.
Súpan var góð og aðalrétturinn
ágætur og ótrúlega seðjandi. Ávöxt-
urinn var heitur og skorinn í sneið-
Tómas Númi,
sonur Ýrar og
Sigurðar
Grétarssonar,
virtist ekki
alltof hrifínn
af avókadó-
réttinum sem
mamma hans
pantaði sér.
Matargestir
geta fylgst
með eldhús-
verkunum á
hótel Hof-
garten.
ar, sósan var ekki mjög minnisstæð.
Hvorug okkar kannaðist við græn-
kornsfræ. Þau reyndust vera dökk-
brún á lit og borin fram í hrúgu á
diskinum. Bragðið var sem betur fer
betra en útlitið. Yfirþjónninn sagði
að þau væru snöggsteikt og síðan
gufusoðin. Þau eru örugglega holl
og góð fyrir meltinguna. Yr fékk sér
karamellubúðing í eftirrétt en ég
pantaði döðlufrauð með pistachio-
hnetum. Það var ljómandi gott og
hverrar kaloríu virði. Við drukkum
vatn með og maturinn kostaði um
2.500 ÍSK fyrir báðar.
Það em heilmargir matstaðir í
Luzern. Rebstock er vel þekktur og
það fer gott orð af honum. Hofgart-
en er þegar orðinn vinsæll. Þeir sem
vilja borða á „rétta“ staðnum í Luz-
em ættu að velja Rebstock eða Hofg-
arten. Maður getur verið viss um að
fá góðan mat á báðum stöðum og
notið hans í skemmtilegu umhverfí.
■
Anna Bjarnadóttir
Lamahof í Yonghegong.
Tvær Kfnaferðir í október
TVÆR hópferðir verða farnar til Kína í október sem eru báðar undir
fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur. Sú fyrri er á vegum Kinaklúbbs Unn-
ar frá 1.-23. október. Hún kostar 240 þús. kr. og innifalið í verði er
flug, allar ferðir, gisting í tveggja manna herbergi, flugvallarskattar,
fararstjórn og aðgöngumiðar að skemmtunum, görðum og allar skoðun-
arferðir. Einnig drykkjarföng með mat. Hámarksfjöldi er 19 manns.
Upplýsingamidstöd
opnnð við Mývatn
OPNUÐ hefur verið upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn sem heim-
sækja Mývatn og er þetta nýjung í ferðamálum á svæðinu, að sögn
Friðriks D. Arnarssonar landvarðar. Upplýsingamiðstöðin er í bama-
skólanum við Skútustaði og opin frá kl. 10 til kl. 21 í sumar.
Hin ferðin sem Unnur stýrir er
17 daga ferð á vegum Samvinnu-
ferða/Landsýnar frá 26. okt.-lO.
nóvember. Verð er rúmlega 185 þús.
kr. Innifalið er flug, akstur, gisting,
allar skoðunarferðir nema í Hong
Kong, fullt fæði í Kína og morgun-
verður í Hong Kong
í báðum ferðunum er flogið um
Stokkhólm. Meðal staða sem farið
er til í ferð SL er Peking, Xi’an,
Guangzhou og loks er dvalið þijá
daga í Hong Kong. í ferð Kína-
klúbbsins er m.a. farið til Peking,
Xi’an, Chongqing og Shanghai. ■
Friðrik segir að í miðstöðinni
muni landverðir á Mývatnssvæðinu
hafa bækistöð en stöðinni er ætlað
að þjóna öllum almennum ferða-
mönnum sem leggja leið sína um
Mývatnssvæðið. „Hér verður að
finna ýmsar gagnlegar upplýsingar
fyrir ferðamenn, svo sem myndefni
af svæðinu, uppstoppaða fugla og
egg, jurtir og steina og myndir af
gönguleiðum meðfram vatninu og
í nágrenni þess svo dæmi séu tek-
in,“ segir Friðrik.
Að sögn Friðriks er þetta til-
raunastarfsemi í sumar en ef vel
tekst til er ætlunin að upplýsingam-
iðstöð verði við lýði næstu sumur.
„Við viljum hvetja alla sem leið eiga
um að heimsækja okkur og koma
með ábendingar um hvað þeim finn-
ist skorta á,“sagði Friðrik.
Ferð á heimsleika
íslenska hestsins
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval/Út-
sýn efnir til hópferðar á Heims-
leika íslenska hestsins sem verða
í Spaarvwoude við Haarlem í Hol-
landi dagana 17.-22. ágúst. Verð-
ur farið utan 16. ágúst og komið
heim hinn 23.
Gist er á Mótel Haarlem-Zuid eða
Carlton Square. Verð á mann í tví-
býli er 49.300 kr. ef gist er á fyrr-
nefnda staðnum en 64.700 á Carl-
ton. Innifalið í verði er flug og gist-
ing með morgunverði, flutningur til
og frá flugvelli í Hollandi og íslensk
fararstjórn. Flugvallarskattur er ekki
innifalinn. Sé staðgreitt lækkar verð
um ca 3 þúsund kr. ■
Fjarlægö frá
flunveUiÝNgsg^
Frá Til Km
Hellenikon Aþenu 10
Barcelona Barcelona 15
Tempelhof Berlínar 6
Rebiechowo Gdansk 14
Ataturk Istanbúl 28
Heathrow London 24
Linate Miíanó 6
Sheremetyevo Moskvu 38
Barajas Madrid 16
Marco Polo Feneyja 12
DonMuang Bangkok 25
Kai Tak Hong Kong 5
Galeao Rio de Janeiro 20
Changi Singapúr 20
Narita Tókíó 66
Ruzyne Prag 15
Schiphol Amsterdam 15
Ferihegy Búdapest 16
O'Hare Chicago 29
Ben Gurion Tel Aviv 25