Morgunblaðið - 18.11.1993, Side 1
80 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
263.tbl.81.6rg.____________________FIMMTUDAGUR18. NÓVEMBER1993______________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Leiðtogar deiluaðila í Suður-Afríku samþykkja drög að nýrri sljórnarskrá
Þríggja alda alræði minnihluta
hvítra manna liðið undir lok
London, Jóhannesarborg, Pretoríu. Reuter, The Daily Telegraph.
SAMKOMULAG náðist í gær í Suður-AJríku um drög að nýrri bráða-
birgðastjómarskrá sem kveður á um jafnrétti allra kynþátta í land-
inu eftir rúmlega 300 ára yfirráð hvítra. Litir íbúar landsins fá
kosningarétt á við hvíta og em fyrstu frjálsu kosningarnar fyrirhug-
aðar 27. apríl á næsta ári. Stjórn F.W. de Klerks forseta og Afríska
þjóðarráðið, samtök Nelsons Mandelas, náðu málamiðlun um skipt-
ingu valda í bráðabirgðastjórn sem fer með völdin fram að kosning-
um á næsta ári. Samkomulag náðist einnig um tilhögun lögreglu-
og varnarmála fram að kosningunum. Verða skæruliðar sem barist
hafa gegn stjórn hvítra nú liðsmenn suður-afríska hersins.
Málamiðlun náðist um starfs-
hætti verðandi þings sem mun setja
landinu endanlega stjórnarskrá og
var ákveðið að tillögur yrðu að ná
a.m.k. 60% fylgi á þinginu til að
hljóta framgang. ANC hafði áður
krafist þess að einfaldur meirihluti
yrði látinn nægja en samtökin gera
sér vonir um að hljóta rúman helm-
ing atkvæða í kosningunum.
Sérstakt framkvæmdaráð, TEC,
með fulltrúum allra kynþátta mun
annast eftirlit með undirbúningi
kosninganna, innlimun svonefndra
heimalanda svartra í sambandsríkið
á ný, stofnun stjórnlagadómstóls
og samningu mannréttindaskrár.
Stjómarskrárdrögin verða borin
undir suður-afríska þingið sem
kemur saman til sérstaks fundar í
Höfðaborg eftir helgina.
Samningaviðræðurnar hafa stað-
ið í rúm tvö ár og alls tóku 21 flokk-
ur og samtök þátt í þeim.
Þótt de Klerk og Mandela séu
Spá tvöföld-
un í ferðaút-
veginum
London. Reuter.
ÁÆTLAÐ er, að ferðaútvegur-
inn tvöfaldist að umfangi á næstu
10 árum en þó því aðeins, að
haftastefna ýmissa rikja í flug-
málum komi ekki í veg fyrir það.
Þessi atvinnuvegur er nú sá
stærsti í heiminum, stendur und-
ir 10,2% landsframleiðslunnar
yfirleitt og einu af hverjum 10
störfum. Kom þetta fram hjá
Alþjóða ferðamálaráðinu i gær.
Búist er við, að verðgildi ferðaút-
vegsins, og er þá allt tínt til sem
honum tengist, fari úr 3,4 billjónum
dollara á næsta ári í 7,9 billjónir
árið 2005. Hvetur Alþjóða ferða-
málaráðið ríkisstjórnir til að standa
vörð um fijálsræði í flugmálum og
segir að hafta- og verndarstefna á
þeim vettvangi geti að öðrum kosti
haft alvarleg áhrif á þróun atvinnu-
greinarinnar.
350 milljón störf 2005
Ferðaútvegurinn veitir nú meira
en 200 milljónum manna atvinnu
og búist er við, að talan verði kom-
in í 350 milljónir 2005. Á næsta
ári verður eitt af hverjum níu störf-
um tengt honum beint eða óbeint.
Sem dæmi má nefna, að einn af
hveijum fímm Spánverjum hefur
framfæri sitt af ferðaútveginum og
einn af hveijum sjö Bretum.
hylltir fyrir að binda í sameiningu
enda á yfirráð hvítra er ljóst að enn
eru mörg ljón á veginum. Inkatha-
frelsisflokkur zúlúmanna undir
stjóm Mangosuthus Buthelezis
stendur utan við samkomulagið.
Sama er að segja um samtök öfga-
fullra hægrimanna úr röðum hvítra
og hreyfingu öfgafullra vinstri-
manna meðal blökkumanna, PAC.
Buthelezi og fleiri héraðshöfðingjar
krefjast þess að hin nýja Suður-Afr-
íka verði sambandsríki þar sem
hvert hérað hafi mikla sjálfstjórn
en de Klerk og Mandela eru sam-
mála um að hafna þeirri kröfu. PAC
, telur Mandela hafa slegið of mikið
af í viðræðum við hvíta.
Terre Blanche herskár
Eugene Terre Blanche, leiðtogi
AWB, flokks hægriöfgamanna úr
röðum hvítra manna af hollenskum
uppruna eða Búa, vill að Suður-Afr-
íku verði skipt milli kynþáttanna
og sett verði á laggirnar sérstakt
riki hvítra manna. Hann var her-
skár í gær og sakaði helstu valda-
menn svertingja og fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar um að skapa and-
rúmsloft styijaldar; þeir hefðu ekk-
ert gert til að leysa vandamál lands-
ins.
Danir
féllu
SÍÐUSTU leikir
undankeppni
heimsmeistara-
mótsins í knatt-
spyrnu fóru fram
í gær. Evrópu-
meistarar Dana
töpuðu á Spáni,
1-0 og verða því
ekki með. Á
myndinni sést
Daninn Michael
Laudrup detta
eftir brot
spænska mark-
varðarins, Zubiz-
arreta.
Sjá fréttir á
Reuter íþróttasíðum.
Jeltsín gagnrýnir
Gmtsjov harkalega
Sigurvissa íHvíta húsinu
MIKIL bjartsýni ríkti í Hvíta húsinu í gærkvöldi og töldu fulltrúar
stjórnar Bills Clintons Bandaríkjaforseta tryggt að NAFTA, fríversl-
unarsamningur Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó, yrði samþykktur
á þingi. Fulltrúadeild þingsins átti að greiða atkvæði um samninginn
skömmu eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma en mikil óvissa hefur
ríkt um úrslitin. Víða um heim biðu menn með öndina í hálsinum;
talið var að væntanlegir GATT-samningar um aukin alþjóðaviðskipti
myndu bíða skipbrot ef NAFTA félli. Clinton sleppti ekki morgunskokk-
inu í gær og klæddist bol NAFTA-sinna.
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, heimsótti í gær úrvalssveit
fallhlífarhermanna sem aðstoðaði við að kveða niður uppreisn
kommúnista og þjóðernissinna í byrjun október. Nokkru áður
birti rússneska sjónvarpið viðtal við forsetann þar sem hann
gagnrýndi Pavel Gratsjov varnarmálaráðherra harðlega fyrir
að hafa brugðist of seint við uppreisninni.
Jeltsín klæddist grænum her-
mannabúningi þegar hann heim-
sótti hermennina í Túla, vöggu
rússneska hergagnaiðnaðarins um
150 km sunnan við Moskvu. Þetta
er í fyrsta sinn sem fréttamenn
sjá forsetann í hermannabúningi
og virtist tilgangurinn sá að minna
menn á að Jeltsín er æðsti yfir-
maður hersins.
Stuðningur hersins réði úrslit-
um 3. október þegar stuðnings-
menn harðlínukommúnista og
þjóðernissinna á gamla þinginu
reyndu að ná höfuðstöðvum rússn-
eska sjónvarpsins á sitt vald og
bijótast til valda. Jeltsín fór hörð-
um orðum um varnarmálaráðherra
og öryggismálaráðherra Rúss-
lands fyrir að bregðast of seint
við uppreisninni. Ummæli hans
staðfestu fregnir um að æðstu
menn hersins hefðu verið afar
tregir til að kveða uppreisnina nið-
ur. Jeltsín sagði að öryggismála-
ráðherrann hefði aðeins hugsað
um eigið skinn, en Gratsjov
varnarmálaráðherra kynni að hafa
brugðist seint við vegna þess að
hann hefði óttast að yfirmenn
hersins myndu óhlýðnast honum.
Kommúnistar vara við alræði
Leiðtogi Kommúnistaflokks
Rússlands, Gennadíj Zjúganov,
Reuter
sagði í gær að ef Rússar sam-
þykktu drög Jeltsíns forseta að
nýrri stjórnarskrá myndi það leiða
til alræðisstjórnar í landinu. Zjúg-
anov sagði að það væri forgangs-
verkefni kommúnista að hvetja
fólk til að hafna stjórnarskrár-
drögunum.
Hátíðnibolt-
inn ógnar
þvottavélum
ÞÝSKIR verkfræðingar hafa
fundið upp þvottavél á stærð
við tennisbolta sem lemur
óhreinindin úr tauinu með há-
tíðnihljóðum án þess að þvotta-
efni komi nokkuð við sögu, að
sögn danska blaðsins Berl-
ingske Tidende.
Tauið er látið í volgt vatn, raf-
hlöðum sem hægt er að endur-
hlaða er komið fyrir í boltanum
umrædda og hann látinn ofan í.
Boltinn sendir frá sér hátíðnihljóð,
20.000 sinnum á sekúndu, sem
valda því að óhreinindin losna af
tauinu. Gert er ráð fyrir að
„þvottaboltinn" muni aðeins kosta
um 41.000 íslenskar krónur.
Danska blaðið segir að framleið-
endur þvottavéla og þvottaefnis
séu skelfingu lostnir yfir tíðindun-
um.