Morgunblaðið - 18.11.1993, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
Fiðlukonsert Tsjajkofskíjs á sinfóníutónleikum í kvöld
Jennifer Koh fiðluleikari. Morgunbiaðið/Þorkell Osmo Vanska
Einleikarinn ný-
orðinn sautján ára
HÚN er nýorðin sautján ára stúlkan sem spilar fiðlukonsert Tsjaj-
kofskíjs með Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikum í Iláskólabíói í
kvöld. Jennifer Koh kveðst hafa komið fram opinberlega frá
þriggja ára aldri, alveg frá því hún byijaði að spila á fiðlu. Hún
hefur á síðustu árum unnið til gull- og silfurverðlauna í fleiri
en einni alþjóðlegri fiðlukeppni og ferðast víða til tónleikahalds.
A efnisskrá kvöldsins eru auk fiðlukonsertsins verk Jórunnar
Viðar, Eldur, og Sinfónía nr. 5 eftir Prokofíeff. Stjórnandi verð-
ur Osmo Vanská.
Tónleikarnir, sem hefjast
klukkan 20, eru í rauðri tónleika-
röð þar sem áhersla er lögð á ein-
leikara er náð hafa alþjóða hylli.
Koh hefur leikið einleik með sinfó-
níuhljómsveitum í Bandaríkjunum
og Evrópu og er þó rétt að byija.
Henni er spáð glæstum ferli.
Morgunblaðið spjallaði stuttlega
við hana fyrir æfingu í gær.
„Ég er frá Chicago,“ segir Koh,
„af kóreskum uppruna. Fjölskylda
mín er engin tónlistarfjölskylda
þótt ég hafi byijað að spila þriggja
ára. Þá strax fór ég að koma fram
opinberlega, enda lærði ég í
Suzuki-kerfínu sem hvetur til
þess. Kannski voru ákveðin tíma-
mót þegar ég var ellefu ára og
lék Paganini-konsertinn með
Chicago-sinfóníunni í sjónvarpi.
Svo vann ég fyrstu Tsjajkofskíj-
keppnina fyrir unga tónlistar-
menn í Moskvu á síðasta ári og
nokkrum vikum áður fékk ég silf-
urverðlaun í alþjóðlegu Nielsen-
keppninni. Og 1991 vann ég verð-
laun í Menuhin-keppninni, sem er
alþjóðleg líka.“
Koh talar hratt af því hún er
að fara af hótelherberginu á æf-
ingu, virðist ákveðin og blátt
áfram eins og hver önnur sautján
ára stelpa sem veit hvað hún vill.
„Þau sögðu mér að ég ætti að
spila Tsjajkofskíj-konsertinn,"
segir hún um tónleikana eins og
ekkert sé sjálfsagðara. Ekki orð
meira um það enda miklu betra
að heyra tónlistina.
Koh segist hafa ferðast um
Rússland og leikið á tónleikum
og nú sé hún nýkomin frá Dan-
mörku. „Ég ætla í tónleikaferð
um Evrópu með sinfóníuhljóm-
sveitinni í Oðinsvéum í vor,“ segir
hún og ég spyr hvort hún hafi
leikið mikið með sinfóníuhljóm-
sveitum. „Ég hef tvisvar komið
fram ásamt Chicago-sinfóníunni
og svo fór ég í tónleikaferðalag
með sinfóníunni frá Detroit. Ann-
ars hef ég gaman af kammermús-
ík og hef leikið á víólu í strengja-
kvartett.“
Aður en Koh kemur fram leikur
Sinfóníuhljómsveitin verk sem
Jórunn Viðar samdi árið 1950 við
ballett eftir Sigríði Ármann. Hann
var á fjölum Þjóðleikhússins þetta
fyrsta starfsár þess. Næst kemur
að fiðlukonsert Tsjajkofskíjs, sem
er afar vinsæll þótt hann hafi í
fyrstu hlotið óblíðar móttökur og
þótt næstum óspilandi. Tónleikun-
um lýkur á fimmtu sinfóníu Pro-
kofíeffs frá árinu 1944. Höfund-
urinn stjórnaði sjálfur frumflutn-
ingi verksins og það var í síðasta
sinn sem hann kom fram opinber-
lega með þeim hætti. Sinfóníunni
var ákaflega vel tekið og talað
um hinn göfuga þjóðlega tón.
Kór Langholtskirkju æfir Sesseljumessuna í fyrrakvöld
Messa heilagrar Sesselju flutt
KÓR Langholtskirkju er þessa dagana að undirbúa flutning á messu
heilagrar Sesselju eftir Joseph Haydn. Tónleikarnir verða í Lang-
holtskirkju laugardaginn 20. nóvember og sunnudaginn 21. nóvem-
ber klukkan 16.30.
Einsöngvarar á tónleikunum verða
þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Elsa
Waage, Eiríkur Hreinn Helgason og
Garðar Cortes, en að auki tekur
kammersveit Langholtskirkju þátt í
flutningi verksins. Stjórnandi er Jón
Stefánsson og er forsala aðgöngum-
iða í Langholtskirkju, Kirkjuhúsinu
og Eymundsson.
Jón Stefánsson organisti og stjóm-
andi segir m.a. um Sesseljumessuna
eftir Joseph Haydn:
„Sesseljumessan var samin mun
fyrr en áður var álitið. Seinni tíma
rannsóknir hafa leitt í Ijós að ártalið
er 1766. Tvö handritabrot eru varð-
veitt, annað í Þjóðarbókhlöðunni í
Búdapest en hitt í Búkarest. Áður
var álitið að messan hefði verið sam-
in fyrir „Bræðralag heilagrar Sess-
elju“ í Vínarborg fyrir hátíð hennar
sem er 22. nóvember. Það mun þó
ekki vera rétt. Á titilblað hinnar svo-
nefndu „Sesseljumessu" ritaði Haydn
„Missa Cellencis - in honorem Beat-
issime Virginis Mariae“. Messan er
samin til heiðurs hinni blessuðu Mar-
íu mey. Sökum þess hve umfangs-
mikil messan er, en hún er lengsta
messa Haydns, var hún ekki heppileg
sem „messumessa". Glorían ein sér
er 821 taktur í 7 köflum. Haydn
stytti því bæði Kyrie og Gloríukafl-
ann. Fyrsta óstytta útgáfan kom út
árið 1951 og þá með nafninu „Missa
Sanctae Caeciliae". Það fer því vel á
því að flytja hana um þetta leyti, en
dagur Heilagrar Sesselju, verndara
blindra og tónlistarinnar, er hinn 22.
nóvember og sá dagur er jafnframt,
henni tii heiðurs, alþjóðlegur tónlist-
ardagur.“
Hala-leikhópurinn
Frumsýnir Róm-
eó og Ingibjörgu
HALA-leikhópurinn, sem stofnaður var fyrir rúmu ári, er nú að hefja
sitt annað starfsár. Á síðasta leikári setti hópurinn upp leikritið „ Aura-
sálina" eftir Moliere og var það frumraun hópsins. Á morgun, föstudag-
inn 19. nóvember, mun hópurinn frumsýna nýtt leikrit „Rómeó og
Ingibjörgu" eftir Þorstein Guðmundsson.
Leikritið var samið nú í sumar,
sérstaklega fyrir Hala-leikhópinn, en
inn í þaðð fléttast nokkur atriði úr
„Rómeó og Júlíu“ eftir Shakespeare
í þýðingu Helga Hálfdánarsonar.
Leikritið fjallar um leikhóp sem er
að setja upp sýningu og segir frá
samskiptum og uppákomum innan
hópsins í tengslum við verkefnið.
Leikstjóri þessarar sýningar Hala-
leikhópsins er Edda V. Guðmunds-
dóttir og leikendur eru tólf. Tónlist
er eftir Stefán Stephensen.
Sýningar verða í húsnæði sem
Hala-leikhópurinn hefur fengið til
afnota í kjallara Sjálfsbjargarhúss-
ins, Hátúni 12. Þar hefur hópurinn
verið að innrétta lítið leikhús. Hús-
næðið verður vígt með frumsýning-
unni þann 19. nóvember kl. 20.30.
Önnur sýning verður sunnudaginn
21. nóvember og þriðja sýning mið-
vikudaginn 24. nóvember.
Höfundur leikritsins, Þorsteinn
Guðmundsson, lauk prófi frá Leik-
listarskóla íslands 1991 og hefur síð-
an unnið að ýmsum verkefnum.
Hann hefur m.a. leikið í „Emil í
Kattholti“ og um þessar mundir leik-
ur hann í uppfærslu Borgarleikhúss-
ins á „Spanskflugunni“.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Anna Þóra sýnir
flókateppi
Sveinbjömsdóttir og Halla Jónasdóttir.
Píanóleikari er Sigurður Marteinsson
og stjórnandi kórsins er Björgvin Þ.
Valdimarsson. Tónleikarnir verða
fimmtudagskvöldið 18. nóvember og
hefjast kl. 20.30.
Anna Þóra Karlsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Nýlistasafninú,
Vatnsstíg 3b, laug-
ardaginn 20. nóv-
ember kl. 16.
Á sýningunni
eru flókateppi úr
íslenskri ull þar
sem náttúralegir
litir ullarinnar og
eiginleikar njóta
sín.
Vinna við ís-
lensku ullina var
mikilvægur hluti af Anna þóra
lífi fólks til sveita
áður fyrr. Sérkenni ullarinnar eru þau
að hún skiptist í tvær hárgerðir, tog
og þel, og notar Anna Þóra það í verk-
um sínum.
Þetta er þriðja einkasýning Önnu
en hún hefur tekið þátt f samsýningum
hér á landi, í Evrópu og f Bandaríkjun-
um.
Anna Þóra stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1963-67
og 1969-70. Þá lagði hún stund á fram-
haldsnám við Konstfackskolan í Stokk-
hólmi 1970-71.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-18. Henni lýkur 5. desember.
Uppákomur og gjörn-
ingar í Nýlistasafninu
Hópurinn Saatana Perkele verður
með uppákomur og gjöminga í efri
sölum Nýlistasafnsins dagana 20. nóv-
ember til 5. desember.
Flokkurinn samanstendur af fólki
úr ýmsum áttum, þar á meðai Frakk-
landi, Þýskalandi, Finnlandi, Liechten-
stein og Svíþjóð. Dagskráin verður við-
burðaríkust um helgar en ýmislegt
óvænt mun þó eiga sér stað á virkum
dögum.
„Þátttaka“ í Galleríi 11
Þann 13. nóvember sl. opnaði Sólrún
Guðbjömsdóttir sýninguna „Þátttaka“
í Galleríi 1 1.
Sólrún nam í Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1989-1992 og meðal
verka hennar eru umhverfisverkið
„Velkomin í Breiðholtið, Brancusi", og
„Vagga lífsins" á Óháðri listahátíð.
Sýningu Sólrúnar lýkur 25. nóvem-
ber.
Tónlist
Skagfirska Söngsveit-
in í Njarövík
Í desember verður sett upp nýtt 15
radda orgel í Ytri-Njarðvíkurkirkju
sem smíðað var í Hollandi. Byggðir
hafa verið pallar undir orgelið og kór-
inn og er kostnaður við hvort tveggja
áætlaður um 9 milljónir. Fjársöfnun
hefur gengið ágætlega en enn vantar
upp á.
Nú hefur Skagfirska Söngsveitin í
Reykjavík boðist til halda tónleika til
fjáröflunar fyrir orgelsjóð kirkjunnar.
Á efnisskránni era kórar og dúettar
úr óperum og óperettum, íslensk og
erlend sönglög fyrir kór einsöngvara.
Einsöngvarar með kómum eru: Guð-
mundur Sigurðsson, Fríður Sigurðar-
dóttir, Gylfi Þ. Gíslason, Svanhildur
Sýning á gömlum og
nýjum hljóðfærum
„Hrosshár í strengjum og holað inn-
an tré ...“ er heiti á sýningu sem stend-
ur nú yfír í Geysishúsinu, en Geysishús
í samvinnu við Féiag íslenskra hljóm-
listarmanna stendur fyrir þessari sýn-
ingu. Heitið er fengið úr gamatli þjóð-
vísu, þar segir frá fíðlungi, sem átti
ekki meira fé en svo, að fiðlan hans
var aðeins holað innan tré og hafði
hrosshár fyrir strengi.
Á sýningunni era 150 hljóðfæri,
gömul og ný, af öllum stærðum og
gerðum, frá munnhörpu til pípuorgels
og frá gömlu langspili til nýjasta tölvu-
búnaðar.
Sýningin er opin virka daga kl. 9-18
og um helgar kl. 11-16. Sýningin
stendur til 5. desember.
Aðgangur er ókeypis og er lifandi
tónlist leikin alla dagana.___
Leiklist
Afturgöngur hverfa
brátt af fjölunum
Nú fer hver að verða síðastur að sjá
sýningu Leikfélags Akureyrar á Aftur-
göngum eftir Henrik Ibsen, undir leik-
stjórn Sveins Einarssonar.
Afturgöngur er það leikrit Ibsens
sem er hvað víðast sýnt um þessar
mundir. Umfjöllunarefni þess, hinn
átakalegi ijölskylduharmleikur, þykir
snerta nútímafólk sterkt, auk hinna
sígildu umíjöllunarefna Ibsens, eins og
stöðu konunnar.
Sýning Leikfélags Akureyrar hefur
hlotið góðar viðtökur áhorfenda sem
gagnrýnenda og hefur þótt hæfa leik-
húsi sem er nú að halda upp á tuttugu
ára afmæli atvinnuleikhúss á Akur-
eyri, segir í fréttatilkynningu.
Sunna Borg er í hlutverki frú Al-
ving, son hennar leikur Kristján
Franklín Magnús. Séra Manders er
leikinn af Sigurði Karlssyni, gestaleik-
ari frá Leikfélagi Reykjavíkur. Eng-
strand-feðginin leika Þráinn Karlsson
og Rósa Guðný Þórsdóttir. Leikmynd
og búninga gerði Eltn Edda Árnadóttir
og Ingvar Bjömsson hannaði lýsingu.
Næstsíðasta sýning verður nk. laug-
ardag kl. 20.30 og síðasta sýning laug-
ardaginn 27. nóvember.
Kvikmyndir
Kvikmynd frá Lett-
landi í Norræna hús-
inu
Þjóðhátíðardagur Lettlands er 18.
nóvember, af því tilefni mun Jens
Zvirgzgrands sýna kvikmynd frá Lett-
landi í fundarsal Norræna hússins og
Ijalla um lettneska menningu, sögu
landsins og framtíðarhorfur, þjóðernis-
kennd, sönghátíðir o.fl.
Jens Zvirgzgrands stundar íslensku-
nám við Háskóla íslands. Hann er
kunnugur málefnum Eystrasaltsland-
anna og hefur skrifað greinar um þau,
auk þess sem hann hefur haldið fyrir-
lestra í Norræna húsinu og víðar.
Dagskráin hefst kl. 17. Allir era
velkomnir og aðgangur ókeypis.