Morgunblaðið - 18.11.1993, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
„Kossheldir"
varalitir á markað
NIJ geta konur áhyggjulaust
borðað, reykt, drukkið og síðast
en ekki síst kysst án þess að skilja
varalitinn eftir á viðkomandi
snertiflötum. Þetta fullyrða
a.m.k. talsmenn snyrtivörufyrir-
tækja og segja að varalitur á
skyrtukrögum karlmanna þurfi
ekki lengur að vera vandamál.
Varaliturinn endist í allt að 12
tíma samfleytt eftir að hann hef-
ur verið settur á og sérstakan
heinsi þarf til að ná honum af.
Sumir telja þetta góðar fréttir
fyrir konur og jafnvel enn betri
fyrir karlmenn en feministar benda
á að enginn hagnist af „kossheld-
um“ varalitum nema e.t.v karl-
menn, sem hyggja á framhjáhald.
„Karlmönnum er fremur illa við að
vera merktir varalit í bak og fyrir
og þeim er heldur illa við varalit á
glösum og sígarettum yfir róman-
tísku borðhaldi. Nýja varan er því
gott mál og mun leiða af sér minni
kostnað við fatahreinsun," segir
einn framleiðandinn, en þess má
geta að aðalnýjungin við nýju vör-
una er að hlutfall litarefna hefur
verið aukið verulega. Fyrir utan
ýmis litabrigði af „kossheldum"
varalitum fæst nú varalitafestir í
glæru formi sem heldur venjulegum
varalit föstum á sínum stað. ■
Súkkulaðikaka frá Danmörku
og nægan tíma þarf til að búa hana til
SUKKULAÐIKAKAN sem við
gefum uppskrift að í dag, fékk
verðlaun í danskri uppskrifta-
keppni nýlega. Félagsskapur
sem nefnir sig Súkkulaðiklúbb-
inn var meðal þeirra sem stóðu
að keppninni og greint var frá
úrslitum hennar í danska blað-
inu Politiken.
£Jj{ Kakan er allsérstök, meðal
annars fyrir þær sakir að í
henni er ekki gramm af
p hveiti. Súkkulaði er vita-
skuld áberandi og einnig
^ möndlur. Nýbökuð er kakan
_ beinlínis vond en tveimur
dögum eftir bakstur er hún
lostæti. Hún er ólík „gömlu
góðu“ súkkulaðikökunum og
SSI er tilvalinn eftirréttur. Of
stór skammtur gæti farið illa
með magann og 1 kaka ætti
að duga fyrir 12 manns.
CL í upprunalegu uppskrift-
inni er ekki tekið fram hvaða
3 appelsínulíkjör er notaður,
en eftir að hafa farið í gegnum
fremur fátæklegt vöruúrval
ÁTVR, þótti mér besti kosturinn
sá að notast við danskan bragðm-
ikinn appelsínulíkjör. Cointreau
er t.d. of sætur og bragðlítill í
þessa köku.
Kakan er í eðli sínu blaut og
til að losa hana úr bökunarmóti
og snúa á disk, þarf að fara var-
lega og notast t.d. við pönnuköku-
spaða. Uppgefínn bökunartími
hentar ekki endilega öllum, og ég
lengdi hann í 50 mínútur þegar
kakan var bökuð án blásturs.
Ef fólk vill skerpa appelsínu-
Morgunblaðið/Emilía
Sannkölluð súkkulaðikaka sem reynir á þolinmæði þess sem bakar.
bragðið, er tilvalið að bæta svolitl-
um appelsínuberki við uppskrift-
ina. 1-2 tsk. af rifnum berki
kryddar hana svolítið án þess að
bragðið verði óþægilegt. Áður en
appelsínubörkur er rifínn þarf að
láta hann liggja í sjóðandi vatni
um stund til að ramma bragðið
hverfí.
Hráefni í kökuna er dýrt og því
meiri synd en ella að kasta til
höndum við gerð hennar. Þetta
er ekki kaka sem hægt er að gera
á síðustu stundu en tilvalið að
gera 1-2 dögum áður en ætlunin
er að borða hana. Þeyttur rjómi
fer ágætlega með henni, en þó
er það smekksatriði. Munið að egg
og smjör er best að geyma í stofu-
hita í '/2-1 klst. fyrir bakstur.
Súkkulaðikaka
5 dl möndluflögur
3 appelsínur
150 g suðusúkkulaói
1 Vi msk. kanil
6 egg (oðskilin)
1 'Ádl sykur
3 msk. nýkreistur appelsínusofi
3 msk. oppelsínulíkjör
1. Smyijið springmót
2. Ristið möndlur á þurri pönnu
eða bökunarplötu
3. Afhýðið appelsínur og maukið
í rafmagnsblandara
4. Myljið súkkulaði og ristaðar
möndlur í rafmagnsblandara
5. Blandið appelsínumauki og kan-
il saman við
6. Hrærið eggjarauður og sykur
þar til blandan er ljós og létt (u.þ.b.
10 mín.)
7. Stífþeytið eggjahvítur
8. Hrærið eggjarauðum varlega
saman við súkkulaðiblönduna
ásamt helmingnum af eggjahvít-
um.
9. Hrærið afgangi af eggjahvítum
varlega saman við og síðan ný-
kreistum appelsínusafa
10. Bakið í miðjum ofni í smurðu
móti í 35-40 mín. við 175 gráðu
hita
11. Látið kökuna kólna á kökudiski
í 10-15 mínútur og hellið þá líkjör
yfír hana
Krem
165 g suðusúkkulaði
1 'h msk. kakó
1 msk. Ijóstsíróp
175 g ósaltað smjör
1. Bræðið súkkulaði í vatnsbaði
2. Hrærið smjör, súkkulaði, síróp
og kakó saman þar til blandan er
jöfn
3. Um klukkutíma eftir að kakan
er bökuð er óhætt að byija að setja
kremið á. Setjið þriðjung-helming
kremsins á miðja köku og jafnið
út yfír köku og barma
4. Látið líða aðra klukkustund
áður en afgangi af kremi er smurt
á kökuna.
5. Berið hana ekki fram strax, því
kakan þarf nokkum tíma til að
,jafna sig“.
* 30 súluaðilar undir sama
* Nýjar vörur daglega
* Stórkostlegt vöruúrval
* Besta verðið - Bestu jólalnnkaupln
Tilboð fflstudag og laugardag
20 stk. leðurjakkar á kostnaðarverðí
Hippamussur kr. 990,-
15 stk. hippaskyrtur kr. 990,- stk.
15 stk. vandaðar kvenúlpur (Flash) kr. 6.990,- stk.
Kynningarverð á Lífsmyndir með Magnúsi og Jóhanni
Ódýrasta verkfærabúð iní Faxafeni 10:
30 stk. topplyklasett kr. 290,- stk.
10 stk. stórar hjólbörur kr. 2.990,- stk.
100 stk. 2 metra tommustokkar kr. 90,- stk.
10 stk. Bosh Ijósahundar kr. 890,- stk.
40 stk. verkfærakassar (járn) kr. 300,- stk.
MagnÍ
flytja lög
af
5 °0 Jóhann
"Wmunni
frá kl.
se/cfá
Lífsmyi
14-U
I
ntíir
1 sinni
OrvarKt
kl.
harmó,
13.30■
ristjánsso
'Hikuleika
VIDEO■
14.00
skemmti
n.
°9 14.30
ir
horn fyi
15.00.
KaffiVl
rir
mtingar
börnin i
Opið: Mánudag - fimmtudag kl. 13-18, föstudag kl. 13-18.30, laugardag kl. 11-17
f
Við hvaða aðstæður
þrífst nóvemberkaktusinn?
Á mörgum heimilum stendur
nú í blóma nóvemberkaktus. En
við hvaða aðstæður þrífst þessi
planta best?
Hafsteinn Hafliðason neytenda-
fulltrúi og garðyrkjufræðingur hjá
Blómavali segir að nóvemberkakt-
usinn þoli hvorki mikinn hita né
ofstopa þurrk. Samt eru þeir harð-
gerðir og hafa mikið þanþol. Nóv-
emberkaktusinn dafnar best í loft-
ríkri og fijórri pottamold á björtum
stað en samt á sól ekki að skína
mikið á hann.
Hann þarfnast hvíldar eftir
blómgun. Þá fer hann á „10 vikna
kúr“ frá janúar og fram í mars.
Hafsteinn segir að þá sé dregið
úr vökvun og hiti lækkaður í 12-15
gráður. Þegar dag fer að lengja
hefst nýtt vaxtarskeið sem varir
fram í september og þá þarf kakt-
usinn venjulegan stofuhita, góða
vökvun og áburð vikulega.
Seinnipart septembermánaðar
sýna plönturnar blómhnappa. Þá
er dregið úr vökvun og hiti
lækkaður í 12-15 gráður.
Sé þetta ekki gert segir Haf-
steinn að hætta sé á að blómgun
verði léleg og stijál. Þegar greina
má blómalit er hiti hækkaður á ný
í eðlilegan stofuhita og vökvun
aukin. I þessu horfí er haldið á
meðan blómgun varir.
Hringnum má halda áfram ár
frá ári. Það er ekki ráðlegt að
skipta um mold á haustkaktusum
en gott að stækka pottana í upp-
hafi vaxtarskeiðs. Verði plöntum-
ar óviðráðanlega stórar er auðvelt
að endurnýja þær með græðling-
um á yorin.