Morgunblaðið - 07.04.1994, Page 32
32
+
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. i lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Hagstæður vöru-
skiptajöfnuður
Vöruskiptin við útlönd voru
hagstæð um 3,3 milljarða
króna á fyrstu tveimur mánuð-
um líðandi árs. Verðmæti vöru-
útflutningsins þessa tvo mán-
uði reyndist 14% meira á föstu
gengi en á sama tíma árið
áður. Verðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu tvo mánuði árs-
ins var á hinn bóginn nær hið
sama á föstu gengi og á sama
tíma í fyrra, en árið 1993 dróst
innflutningur vöru og þjónustu
saman um 8,6%.
Þetta eru jákvæð teikn á
kreppuhimninum, enda hefur
viðskiptahallinn við umheiminn
— og tilheyrandi skuldsetning
erlendis — verið einn erfiðasti
hagstjórnarvandi íslendinga
um árabil. Viðskiptahallinn við
umheiminn var, svo dæmi sé
tekið, nálægt 18 milljörðum
króna árið 1991 og 12 milljörð-
um árið 1992.
Viðskiptin við útlönd komust
á hinn bóginn í nokkurt jafn-
vægi árið 1993 í fyrsta skipti
síðan 1986. Árið 1993 jókst
útflutningur vöra og þjónustu
um 6,1% frá árinu 1992 en
innflutningur dróst á sama
tíma saman um 8,6% sem fyrr
segir. Vöruskiptin voru hag-
stæð um 12,3 milljarða króna.
En á móti vó halli á vaxtajöfn-
uði, vegna skuldsetningar er-
lendis, sem skekkti myndina.
Þessi mikilvægi árangur í
viðskiptum við umheiminn náð-
ist þrátt fyrir erfið efnahags-
skilyrði, sem leitt höfðu til
stöðnunar í þjóðarbúskapnum.
í aðalatriðum hefur nær eng-
inn hagvöxtur verið hér á landi
í sjö ár. Þetta hagvaxtarleysi,
ásamt atvinnuleysi, eru helztu
efnahagsvandamál okkar. En
gagnstætt því sem venja hefur
verið við slík skilyrði hafa
bæði verðbólga og viðskipta-
halli minnkað umtalsvert.
Skammt er að minnast hins
gagnstæða á erfiðleikaáranum
um miðjan áttunda áratuginn
og á fyrri hluta þess níunda.
Þá fór hvort tveggja, verðbólga
og viðskiptahalli, verulega úr
böndum.
Það verður einnig að teljast
til jákvæðra teikna að verð-
stöðugleiki og hagstæð þróun
utanríkisviðskipta hafa skapað
skilyrði til þess að slaka á
taumhaldinu í peningamálum
og stuðla þannig að vaxta-
lækkun. Þetta var gert seint á
síðasta ári og lækkuðu vextir
strax í kjölfarið. Að baki þess-
ara jákvæðu teikna í verðlagi,
viðskiptajöfnuði og vöxtum
liggur meðal annars aðhalds-
söm hagstjórn og raunsætt
mat aðila vinnumarkaðarins á
efnahagslegum forsendum.
Raunvextir gætu lækkað enn
frekar ef dregið væri úr láns-
fjárþörf hins opinbera með
minnkandi ríkissjóðshalla.
Erfitt er að spá í hver fram-
vindan verður í viðskiptum við
umheiminn. Sú staðreynd að
vöruskiptajöfnuðurinn var
hagstæður um rúmlega þrjá
milljarða króna á fyrstu tveim-
ur mánuðum þessa árs vekur
á hinn bóginn vonir um, að sá
árangur, sem náðist í þessum
efnum á síðastliðnu ári, verði
festur í sessi. Spá Þjóðhags-
stofnunar er þó ekki ýkja bjart-
sýn: „Vöruviðskiptin [1993]
voru hagstæð um 12,3 millj-
arða króna en á móti vó halli
á vaxtajöfnuði. Ekki er búizt
við miklum breytingum á þessu
ári. Þó er reiknað með að vöra-
viðskiptin verði ívið óhagstæð-
ari en í fyrra.“
Ekki er hægt að að horfa
fram hjá þeim veruleika að sjö
ára samdráttur í þjóðarbú-
skapnum og tekjum lands-
manna hefur dregið úr kaup-
mætti, eftirspurn og innflutn-
ingi. En fleira kemur til. Jafn-
vægi í vöruskiptajöfnuði, sem
nú hefur náðst, stöðugleiki í
verðlagi, vaxtalækkun og við-
nám gegn aukningu erlendra
skulda rekja fyrst og fremst
rætur til aðhaldssamrar hag-
stjórnar og ábyrgs mats aðila
vinnumarkaðarins á efnahags-
legum forsendum. Þessi árang-
ur, ásamt niðurfellingu að-
stöðugjalda og lækkun tekju-
skatts á atvinnurekstur, veldur
því, að atvinnuvegir okkar eru
betur í stakk búnir til að snúa
vörn í sókn þegar og ef ytri
aðstæður breytast til hins
betra.
Þegar litið er til næstu ára
í þjóðarbúskapnum er einkum
þrennt sem kemur til með að
setja mark sitt á atvinnustig
og efnahag landsmanna:
Hvernig til tekst með styrkingu
þorskstofnsins, hver hagvöxtur
verður í helztu viðskiptaríkjum
okkar og hvort líklegur hag-
vöxtur í umheiminum leiðir til
aukins áhuga erlendra fjár-
festa á orkufrekum iðnaði hér
á landi. En hvern veg sem þau
mál þróast styrkir það stöðu
okkar til að nýta þau tæki-
færi, sem framtíðin felur í sér,
ef okkur tekst að varðveita
þann árangur, sem náðst hefur
í hjöðnun verðbólgu, lækkun
vaxta og viðskiptum við um-
heiminn.
Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka
Með þessu sérstaka átaki
verður tapið að baki
VALUR Valsson, bankastjóri og formaður bankastjórnar íslands-
banka, segir að ástæður þess að bankaráð og bankastjórn hafa við
uppgjör síðasta árs ákveðið að leggja tæplega 600 milljónir króna
til hliðar í almennt framlag á afskriftareikningi til viðbótar 1.600
milljóna króna framlagi sem áður hafði verið ráðgert séu eftirfar-
andi: „Við teljum tímabært að nýta mjög sterka eiginfjárstöðu bank-
ans til að snúa afkomudæminu við. Við höfum verið með tap á
rekstrinum síðastliðin tvö ár, vegna mikilla afskrifta. Nú teljum
við tímabært að mæta útlánavandanum, sem skapast hefur vegna
efnahagslægðarinnar með þessu sérstaka átaki og marka þannig
þáttaskil í rekstrinum. Tapið er að baki með þessum hætti og bank-
inn er kominn í hagnað,“ sagði Valur í samtali við Morgunblaðið
í gærkveldi.
- Eruð þið þá sannfærðir um að
taprekstur sé að baki?
„Við erum sannfærðir um það
núna, að bankinn er kominn í hagn-
að. Fyrstu mánuði ársins hefur
bankinn verið rekinn með 30-40
milljóna króna hagnaði á mánuði.
Það er margt sem styður þá skoðun
okkar að við séum nú komnir í
varanlegan rekstrarhagnað. Eitt er
jákvæð þróun í rekstrinum seinni
hluta árs 1993, annað er að við
lækkuðum rekstrarkostnað um 400
milljónir króna á liðnu ári og í þriðja
lagi fer það rekstrarumhverfi sem
við búum við batnandi. Allt þetta
styður þá skoðun okkar að viðsnún-
ingurinn sé þegar orðinn og okkur
hafi tekist að snúa blaðinu algjör-
lega við.“
Valur bendir á, að þrátt fyrir
þetta sérstaka 600 milljóna króna
framlag í afskriftasjóð, sé eiginfjár-
staða Islandsbanka 10,3%, eða vel
yfir þeim mörkum sem lög kveða á
um, sem er 8%. „Við leggjum mik-
ið uppúr því að eiginfjárstaðan sé
sterk. . íslandsbanki getur tekið
svona hraustlega á málum sínum,
af því að eiginfjárstaðan er svona
traust,“ segir Valur.
Vildum ekki fresta vandanum
- Ef þessi ákvörðun um 600
milljóna króna sérstakt framlag í
afskriftasjóð, til viðbótar þeim
1.600 milljónum sem þið lögðuð í
sjóðinn í fyrra, hefði ekki verið tek-
in, þá hefði niðurstaða ársins í fyrra
verið nálægt núllinu, eða um 50
milljóna króna tap. Hefði slík
rekstrarniðurstaða ekki gefið já-
kvæðari mynd af afkomu og horf-
um íslandsbanka?
„Þá hefðum við verið að fresta
vandanum fram á þetta ár og menn
voru ekki reiðubúnir til þess að
gera slíkt. Við viljum horfast í augu
við þennan vanda og taka á honum
með þessum myndarlega hætti, að
því er varðar 2.200 milljóna króna
framlag í afskriftareikning á sl.
ári. Þar af höfum við þegar afskrif-
að vegna tapaðra útlána 1.700
milljónir króna, þannig að það er
verið að auka innstæður í afskrifta-
reikningi um rúmar 500 milljónir
króna. Afskriftareikningur íslands-
banka í árslok 1993 stendur í lið-
lega 3.000 milljónum króna, sem
er um 6,2% af útlánum bankans."
- Hversu háar upphæðir leggur
íslandsbanki á afskriftareikning á
mánuði á þessu ári?
„Milliuppgjör fyrir fyrstu fjóra
mánuði ársins liggur ekki fyrir af
eðlilegum ástæðum, en við gerum
ráð fyrir að framlag í afskrifta-
reikning gæti numið allt að 120
milljónum króna á mánuði, sem er
næstum þriðjungslækkun mánaðar-
legra afskriftaframlaga, miðað við
sl. ár. Þrátt fyrir það framlag er
bankinn kominn í umtalsverðan
hagnað.“
Valur segir ekki hæjgt að áætla
á þessu stigi hvort Islandsbanki
muni leggja svo háa upphæð í af-
skriftareikning út þetta ár. Slíkt
sé ávallt metið á fjögurra mánaða
fresti. Nú liggi nokkurn veginn fyr-
ir hvernig þetta verði fyrsta árs-
þriðjunginn, en svo verði það bara
að koma í ljós, þegar líða tekur á
vorið, hvert framhaldið verður.
„Við teljum að nú séu að verða
þáttaskil í rekstrarumhverfi bank-
ans. Efnahagslægðin er um það bil
að ná botni að okkar mati og fram-
undan er væntanlega hægur bati
og einhver hagvöxtur. Vaxtalækk-
unin á undanförnum mánuðum hef-
ur líka gert það að verkum að
greiðslubyrði hefur minnkað og þar
með eiga lánþegar auðveldar með
að standa í skilum. Þetta hvort
tveggja mun leiða til þess að smám
saman dregur úr þörf fyrir afskrift-
ir útlána,“ sagði Valur.
Vaxtalækkun í pípunum?
- Þessi jákvæða þróun sem þú
varst að lýsa, gefur hún ekki Is-
landsbanka svigrúm til þess að taka
ákvarðanir um frekari vaxta-
lækkanir?
„Það er augljóst að vextir í dag
Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka hf.
markast að töluverðu leyti af þeim
miklu framlögum í afskriftareikn-
ing, sem lánastofnanir hafa þurft
að glíma við undanfarin ár. Þegar
þeirri byrði léttir, þá gefur það
augljóslega svigrúm til vaxtalækk-
unar.“
- Þið hyggist leggja til við hlut-
hafa á aðalfundi að 4% arður verði
greiddur, eða 150 milljónir króna.
Hvernig telur þú að hluthafar taki
þeirri ákvörðun ykkar að auka
framlag í afskriftasjóð um 600
milljónir króna og hvernig mun
þeim falla tillagan um 4% arð-
greiðslur?
„Það verður að sjálfsögðu að
koma í ljós, en það sem skiptir hlut-
hafa meginmáli er tvennt: Annars
vegar að þeir fái arð af sínu hluta-
fé og hins vegar að fyrirtækið sé
rekið með hagnaði. Með þessu
myndarlega átaki í afskriftamálum
á síðasta ári erum við að tryggja
að þetta hvort tveggja nái fram að
ganga og með þeim hætti er hag
hluthafanna best borgið. Þess
vegna þykir mér líklegt að flestir
hluthafar telji þessa þróun já-
kvæða,“ sagði Valur Valsson,
bankastjóri Islandsbanka.
Viðtal Agnes Bragadóttir.
Togarinn Fisherman reyndi að veiða á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða um páskana
Skáru á eigin togvíra er
strandgæslan nálgaðist
„ÞEGAR strandgæsluskipið Grimholm nálgaðist Fisherman á Sval-
barðasvæðinu hjuggu skipverjar sjálfir á togvírana og togarinn
setti á fulla ferð út af verndarsvæðinu,“ sagði Lars Kjoren ofursti
í norsku strandgæslunni í samtali við Morgunblaðið í gær. Einar
Guðmundsson, útgerðarstjóri Fisherman, sagði ekki rétt að skipið
hefði verið að reyna að flýja strandgæsluna. Skipverjar hefðu neyðst
til að skera á togvíra vegna bilunar í spili.
fyrirhugað sé að ná því upp slðar.
Einar viðurkenndi að norska strand-
gæslan hefði gert athugasemdir við
veru Fisherman á Svalbarðásvæð-
inu, en hann taldi fráleitt að strand-
gæslan hefði ætlað sér að taka skip-
ið. Ekkert slíkt hefði komið fram í
samtölum skipstjórans á Fisherman
og skipherrans á Grimholm eftir því
sem hann vissi best. „Ég tel að það
sé bara ekki í myndinni að þeir fari
að taka skip þarna. Þeir hafa ekki
til þess neinn lagalegan rétt,“ sagði
Einar.
Fisherman er nú á leið í land.
Ekki var hægt að fá upplýsingar
um staðsetningu skipsins hjá Til-
kynningaskyldunni og mun það vera
að ósk skipstjórans. Einar sagði að
það hefði verið ákvörðun skipstjór-
ans að reyna veiðar við Svalbarða.
Um það hefði hann ekki haft samr-
áð við útgerðina, enda sé það alfar-
ið ákvörðun skipstjórans hvar veið-
arfærum sé dýft í sjó.
Fisherman er skráður í St. Vinc-
ent, sem er eyja í Karíbahafinu. Það
er í eigu Oxala Shipping í Reykja-
vík. Það fyrirtæki er að mestu í eigu
íslendinga. Skipið hét áður Hjörleif-
ur og var í eigu Granda. Skipveijar
eru 20, allt Islendingar. Þetta var
önnur veiðiferð skipsins eftir að það
skipti um eigendur.
Með grein Aftenposten er birt kort, sem sýnir þau veiðisvæði sem
bitist er um. í skýringum með kortinu segir, að togarar undir fánum
rikjanna Belize og Dómíníska lýðveldisins gætu orðið algeng sjón í
norðri. Möguleikar á veiðum utan kvóta séu miklir í Smugunni (Smutt-
hullet) og Smuguhafinu (Smutthavet). Þá sé einnig óttast að til deilna
komi á verndarsvæðinu við Svalbarða.
Grein norska dagblaðsins Aftenposten
Fiskistríðið í Bar-
entshafi harðnar
Atvikið sem Kjoren sagði frá átti
sér stað á páskadag. „Við höfðum
fylgst með ferðum Fishérman úr
lofti. Hann fór fyrst inn á fiskvernd-
arsvæðið við Svalbarða, var síðan í
Smugunni í vikunni fyrir páska en
hélt síðan aftur inn á fiskverndar-
svæðið.“
„Grimholm fylgdi Fisherman eftir
út af verndarsvæðinu. Hann sigldi
I suðvesturátt, til íslands geri ég ráð
fyrir,“ sagði Kjoren. Hann sagði að
skipverjar hefðu gefið strandgæsl-
unni upp að eftirtekjan af veiðunum
í Smugunni og á fiskverndarsvæðinu
væri 40 tonn af saltfiski.
„Það eru tvö skip að veiðum í
Smugunni þessa dagana. Annað
þeirra, Arctic Eagle, vitum við að er
í íslenskri eigu. Við þekkjum hins
vegar ekki deili á hinu sem heitir
Arctic Fox I,“ sagði Kjoren.
Útgerðarstjórinn segir að spilið
hafi bilað
Einar Guðmundsson, útgerðar-
stjóri Fisherman, sagði að alvarleg
bilun hefði komið upp í spili Fisher-
man strax eftir að trollið var sett
út við Svalbarða. Skipveijum hefði
reynst ókleift að gera við bilunina
og því hefði verið gripið til þess
ráðs að skera á togvíra. Hann sagði
að bauia hefði verið sett í trollið oer
AF INNLENDUM
VETTVANGI
ÁSLAUG ÁSGEIRSDÓTTIR
Búast má við páskahreti
sex til sjö ár af hveijum tíu
MARGIR íslendingar standa í
þeirri trú að það sé ófrá-
víkjanleg regla að vont veður
sé um páska. Víst er að oft
hefur slæmt veður borið upp
á þessa daga, líkt og um nýl-
iðna páska, og stundum hefur
gert aftakaveður en það gerð-
ist árið 1963 þegar mikið
mannskaðaveður gekk yfir
landið. Trausti Jónsson, veð-
urfræðingur, hefur reiknað
út að á árunum 1951-93, eða
á 43 ára tímabili, hafi komið
páskahret 25 sinnum, eða í
um 60-70% tilvika.
Páll Bergþórsson, fyrrum veður-
stofustjóri, segir kenningu íslend-
inga um páskahret vera dæmi um
reynsluvísindi almennings. Hret
séu algeng á vorin, því á þeim
árstíma sé meiri munur á norðan
og sunnanátt en á öðrum tímum
árs.
„Fyrir norðan okkur ríkir enn
vetrarkuldi en aftur á móti hefur
hlýnað talsvert sunnan við okkur,“
segir hann. „Þannig eykst munur-
inn á norðan og sunnanátt, hretin
verða meira áberandi því inn á
milli vondra veðra skín sólin og
andstæður aukast."
Reynsluvísindi almennings
Og reynsluvísindin virðast hafa
eitthvað til síns máls því Trausti
segir að líkurnar á því að svona
afturkippur lendi á páskum virðist
vera um 60-70%, eða 6-7 ár af
hveijum 10 má búast við hreti.
í bók sinni Veðurfar á íslandi í
100 ár gerði Trausti athugun á
veðurfari um páska áranna
1951-93, eða í 43 ár. Hann segir
að orðið hret hafi víðtæka merkinu
í íslenskri tungu allt frá því að
þýða él yfir í að vera margra daga
illviðri. Trausti segir að hreti fylgi
ávallt talsverð lækkun á hita og
miðar hann í athugun sinni við 4°
lækkun á hita. Hann tók hæsta
hitastig sem mældist frá fimmtu-
degi fyrir pálmasunnudag og fram
á þriðjudag í dymbilviku og bar
saman við lægsta hitastig á tíma-
bilinu frá miðvikudegi í dymbilviku
til miðvikudags eftir páska. Þegar
tekin voru þau tímabil þar sem
hitastig var lægra en 1° frost kom
í ljós að páskahret bar upp á páska
í 25 skipti, eða á 6-7 árum af
hveijum 10.
Vorið kemur í þrepum
Trausti segir að skýringuna á
páskahretinu vera að vorið komi í
þrepum. Þegar fari að hlýna komi
oft afturkippur, sem sé áberandi
vegna batnandi veðurfars. Hægt
er að búast við þessum afturkipp-
um frá miðjum mars og alveg fram
í júní.
Fólk byijar gjaman að tengja
veður páskunum strax á pálma-
sunnudag og tengir veðurfar við
þá jafnvel fram í miðja vikuna eft-
ir páska. Þar sem hretin komi
gjarnan með tveggja til þriggja
vikna millibili og páskarnir í hug-
um fólks séu allt að tvær vikur
segir Trausti það ekkert óeðlilegt
að hret beri oft upp á þessa hátíð.
Hann segir að straumar í háloft-
unum hafi áhrif á veðurfar á þess-
um árstíma. í janúar dragi tíma-
bundið úr háloftavindum, þegar
meginvindstrengur norðurhvels sé
í sinni syðstu stöðu. Þeir bæti svo
aftur í sig í febrúar eftir að megin-
lægðin er hætt að vaxa og þá komi
vetrarhlákur. Síðan dragi úr flutn-
ingi lofts sunnan úr höfum hraðar
en sem nemi minnkun hálofta-
lægðarinnar og kuldar verði aftur
tíðari.
Páll segir páskahretið oft vera
verra ef það komi fyrr, en þess
eru dæmi að vorhret hafi komið
mjög seint, allt fram í júní. Hiti
er lægri í mars og ef hret kemur
þá er hættara við að því fylgi skaf-
renningur og ófærð, segir Trausti.
Veður tengt tyllidögum
Vorhretin eru ekki verstu illviðr-
in sem yfir landið ganga, það ger-,
ist heldur í desember, janúar og
febrúar, segir Trausti. Þetta sé
meðal annars vegna þess að vind-
hraði minnkar verulega í byijun
mars en á móti komi að snjór á
fjallvegum og hálendinu nær há-
marki í mars og apríl þannig að
umferðarvandamál séu þá algeng-
ari.
En hretin eru ekki eingöngu
tengd við páska. Páll segir að al-
gengt sé tengja veður við tylli-
daga, til dæmis hrafnahret sem
tengist varpi hrafnsins, sumar-
málahret og hvítasunnuhret. Einig
bendir Trausti á trú manna á
hundadögum, höfuðdegi og Páls-
messu og fleiri slíkum.
Yfirleitt eru hretin meinlítil, en
nokkur skera sig úr og ber þá fyrst
að nefna árið 1963 en einnig var
aftakaveður um páska árið 1917.
Á þriðjudag fyrir páska, 9. apríl
1963, gerði aftakaveður um land
allt og segir Páll að þá hafi orðið
verulegar hitabreytingar á einum
sólarhring. Áður en það skall á var
allt að 8° hiti á einstökum stöðum
á landinu en eftir að það var brost-
ið á fór hitinn niður í allt að -14°.
Óveðrið hófst upp úr hádegi og
fórust fimm bátar norðanlands og
eitt stærra fiskiskip undan Reykja-
nesi með þeim alls 16 sjómenn.
Mikið frost fylgdi veðrinu og á
skírdag var svo komið að hægt var
nánast að vaða yfir Þjórsá hjá
brúnni. Hafði vatnsrennslið minnk-
. að úr 300 rúmmetrum á sekúndu
í 20 rúmmetra vegna mikils íss sem
stíflaði hana. Fór veðurhæðin í 11
vindstig á Vestfjörðun þar sem
einnig mældist 11 stiga frost.
Rektors-
kjör í
Háskóla
*.
Islands
KJÖR rektors Háskóla íslands fer
fram á morgun, föstudaginn 8.
apríl, en nýkjörinn rektor tekur við
störfum með byrjun næsta háskóla-
árs. Rektor er kjörinn til þriggja
ára í senn og eru skipaðir prófess-
orar í starfi einir kjörgengir.
Atkvæðisrétt eiga prófessorar, dós-
entar og lektorar og allir þeir sem
fastráðnir eru eða settir til fulls starfs
við Háskólann og stofnanir hans og
hafa háskólapróf. Þá eiga atkvæðis-
rétt allir stúdentar, sem skrásettir
voru í HÍ tveimur mánuðum fyrir rekt-
orskjör. Atkvæði stúdenta gilda sem
einn þriðji hluti greiddra atkvæða alls.
Á kjörskrá eru 488 kennarar og
aðrir starfsmenn og 5.240 stúdentar.
Kjörfundur stendur kl. 9-18 og eru
kjörstaðir tveir: í aðalbyggingu Há-
skóla íslands kjósa kennarar og aðrir
starfsmenn svo og stúdentar, aðrir en
stúdentar i læknadeild og tannlækna-
deild. í Læknagarði kjósa stúdentar í
læknadeild (þar með taldar náms-
brautir í hjúkrunarfræði og sjúkra-
þjálfun svo og lyfjafræði lyfsala) og
tannlæknadeild.
Háskólaráð hefur skipað kjörstjórn
til að annast undirbúning og fram-
kvæmd rektorskjörs og eru í henni:
Jón Ragnar Stefánsson, dósent (for-
maður), Guðvarður Már Gunnlaugs-
son, sérfræðingur, Haraldur Ólafsson,
dósent, Kristín Ingólfsdóttir, dósent,
Guðrún Guðmundsdóttir, stúdent, og
Illugi Gunnarsson, stúdent.
„ÞEIM sjómönnum fjölgar stöðugt
sem ætla sér að sækja á miðin í
viðkvæmu Barentshafinu, því út-
gerðarmenn í Færeyjum og á ís-
landi stefna á „smugufisk" á tog-
urum sem skráðir eru í Karíbahaf-
inu,“ segir í frétt norska dagblaðs-
ins Aftenposten í siðustu viku.
Blaðið fjallar í heilsíðugrein um
„sjóræningjasjómenn“ í Barentshafí
og segir í fyrirsögn að fiskistríðið í
Barentshafi harðni. „Á þessu ári getur
norska landhelgisgæslan átt von á að
rekast á 15-20 togara undir hentifán-
um að veiðum í Smugunni. Eigendur
flestra þessara togara eru Færeyingar
og íslendingar."
13 togarar og
fleiri væntanlegir
Blaðið segir að við könnun þess
hafi komið í ljós að á síðasta ári hafi
útgerðarmenn í þessum löndum keypt
a.m.k. 13 gamla, ódýra togara, sem
eigi að senda á þessi mið. „Samkvæmt
fregnum frá Færeyjum og íslandi
verða fleiri skip keypt á næstunni.
Þá undirbýr hluti íslenska flotans sig
undir að taka þátt í þessum umdeildu
veiðum á alþjóðlegu svæði í Barents-
hafinu, sem hefur kallað á hörð mót-
mæli frá Noregi og Rússlandi,“ segir
Aftenposten.
Skýrsla skiptastjóra þrotabús Mótvægis hf.
Full ástæða til að
rannsaka Mótvægi
FULL ástæða er til að rannsaka gaumgæfilega ýmsar aðgerðir for-
svarsmanna Mótvægis hf., einkanlega hvað varðar greiðslu Framsókn-
arflokksins á 4,7 milljóna hlutafé, sem greitt var með verðlitlum tækj-
um og viðskiptavild, þrátt fyrir ákvæði stofnsamnings um að hluthöf-
um væri óheimilt að greiða hlutafé með öðrum verðmætum en reiðufé.
yfir áhyggjum sínum vegna þessara
atriða.
Skráin seld tvisvar
í skýrslu Brynjólfs er jafnframt
bent á að Tímamót hf., sem tók við
rekstrinum af Mótvægi, hafi sagt að
félagið hafí ekki fengið áskrifenda-
skrá frá Mótvægi, heldur frá Fram-
sóknarflokknum, þ.e. áskrifendaskrá
gamla Tímans. „Ef rétt er þá hefur
Framsóknarflokkurinn selt sömu
skrána tvisvar," segir skiptastjórinn
og lýkur skýrslu sinni með því að segja
að löggiltur endurskoðandi muni fara
yfir þessi atriði. Ljóst sé að rekstrinum
hafi verið haidið áfram löngu eftir að
gefa átti það upp til gjaldþrotaskipta
og án þess að nokkur leið út úr vand-
anum hafi verið í sjónmáli.
Ofangreint mat Brynjólfs Kjartans-
sonar, skiptastjóra þrotabús Mótvæg-
is, kemur fram í skýrslu hans sero
lögð var fyrir skiptafund í gær. Brynj-
ólfur segir að ástæða sé til að athuga
kaupverð þeirra muna og viðskipta-
vildar sem Mótvægi hf. keypti af Tím-
anum. Þá telur hann ástæðu til að
láta reyna á þann samning fyrir dóm-
stólum, sem kvað á um að endurgjald
fyrir notkun á nafninu Tíminn skyldi
vera fólgið í að Framsóknarflokkurinn
fengi auglýsingar fyrir allt að 250
þúsund krónur á mánuði.
Brynjólfur telur einnig að ástæða
sé til að athuga gaumgæfilega lög-
mæti hlutafjáraukningar í félaginu,
svo og greiðslu hlutafjárloforða, en
fyrrum stjórnarmenn hafi ítrekað lýst