Morgunblaðið - 07.04.1994, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
MODEL
V erslunarstj óri
í Bónus sigraði
módelkeppni herra
Bjöm Kristinn Sveinbjörnsson,
25 ára verslunarstjóri í Bónus
í Hafnarfírði, var valinn herramód-
el 1994 í keppni sem fram fór á
Hótel íslandi sl. miðvikudagskvöld.
Hann hefur ekki starfað sem mód-
el fyrr en kemst nú eftir úrslitin á
samning hjá Model 79. Auk þess
hlaut Björn ýmiss konar verðlaun
eins og fataúttektir og fleira. „Ég
get vel hugsað mér að vinna sem
módel og væri jafnvel til í að fara
til útlanda ef mér býðst það. Ég
stekk ekki út í hvað sem er en er
alveg tilbúinn að kanna málin.
Maður á aldrei að staðna í lífinu,
það er ekki mín deild,“ sagði hann
í stuttu spjalli við Morgunblaðið.
Alls tóku tíu keppendur þátt í
fyrstu módelkeppni herra sem
fram fór í Reykjavík, en keppnin
hefur tvívegis verið haldin í Kefla-
vík að frumkvæði þeirra Kristínar
Couch og Guðrúnar Reynisdóttur.
í öðru sæti lenti Guðmundur Odds-
son og þriðja sætinu skiptu þeir
Kristján Hreiðar Kristjánsson og
Ingvar Már Ormarsson með sér. I
dómnefnd sátu Jóna Lárusdóttir
frá Model 79, Jóhanns Jóhanns-
dóttir blaðamaður á DV, Axel
Guðmundsson módel sem starfar
einnig í versluninni Sautján, Gút-
staf Guðmundsson ljósmyndari,
Valdís Gunnarsdóttir dagskrár-
gerðarmaður, Simbi hjá Jóa og
félögum og Nanna Guðbergs ljós-
myndafyrirsæta.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Björn Kristinn Sveinbjörnsson hreppti fyrsta sætið, Guðmundur
Oddsson annað sætið en þriðja sætinu skiptu þeir Kristján Hreiðar
Kristjánsson og Ingvar Már Ormarsson á milli sín.
1 Einar Vilhjálmsson, Esther Jónsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Birna
Björnsdóttir og Bragi Brynjólfsson fylgdust með keppninni.
COSPER
Vertu róleg mamma mín, við erum í nærbuxum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson
Það er að jafnaði handagangur í öskjunni í búningsherberginu áður en stúlkurnar koma fram á
sviðið og þá er gott að kunna réttu handtökin.
FEGURÐARSAMKEPPNI
Falleg fljóð á krýningarkvöldi
Mikið var um dýrðir þegar
kjör Ungfrú Reykjavíkur
1994 fór fram á Hótel íslandi
sl. mánudagskvöld, en eins og
fram hefur komið hér í blaðinu
hlaut Margrét Skúladóttir Sigurz
titilinn Ungfrú Reykjavík. Er
mál manna að sjaldan eða aldrei
hafi slíkt kvöld heppnast jafn vel
og átti Battu-danslokkurinn þar
stóran hlut að máli, en félagar
úr hópnum sýndu fjöruga dansa
við mikla lukku gesta. Meðfylgj-
andi myndir voru teknar sl.
mánudagskvöld.
Reynir Kristinsson, Mario Antonio Pashuall, Kristján Ríkharðs-
son, unnusti fegurðardrottningarinnar Margrétar Skúladóttur,
Benedikt Guðmundsson, Gunnar Þór Sveinsson og Guðmundur
Guðmundsson.
Jórunn Karlsdóttir á tali við Katý í World Class
og son hennar, Þór Guðnason.
Anna Björk Birgisdóttir dagskrárgerðarmaður
var kynnir kvöldsins. Hér er hún ásamt maka
sínum, Stefáni Hilmarssyni tónlistarmanni.
LEIKARAR
Æðsta óskín er að dejga á sviði
Leikarinn aldni, John Gielgud,
verður níræður 14. apríl
næstkomandi. Þrátt fyrir að hann
sé farinn að hægja á ferðinni er
hann ekki hættur þátttöku í leikl-
ist. Nýjasta hlutverk hans, sem
tekið var upp í byijun ársins, er
í sjónvarpsþáttunum Á hverfanda
hveli, en þar leikur hann afa Scar-
lett O’Hara.
í blaðaviðtali við The Daily
Mail fyrir nokkru kveðst Gielgud
ennþá vinna töluvert, auk þess sem
hann lesi þó nokkuð af sakamála-
sögum og eyði talsverðum tíma í
að hugsa um dauðann. Hann seg-
ist ennfremur kjósa að halda
áfram að vinna á meðan stætt sé
í stað þess að fá einungis þakkir
fyrir liðna tíð. í rauninni er það
heitasta ósk leikarans að fá að
deyja á sviði í miðri leiksýningu.
Gielgud segist vera furðu lost-
inn yfir því að hann skuli hafa náð
svo háum aldri, en hann reykir
t.d. pakka af tyrkneskum sígarett-
Sir John Gielgud er ekki þekkt-
astur fyrir að leika pönkara eins
og á þessari mynd heldur þvert
á móti hefur hann yfirleitt leikið
virðulegar persónur.
um á dag. Hann kveðst vera við
góða heilsu, en er þó farinn að
missa heyrn og notar því heyrnar-
tæki.
Gielgud lék fyrst á sviði árið
1921 en í fyrstu kvikmyndinni
árið 1923. Hann hefur þó aðallega.
leikið á sviði og varð einn fræg-
asti Hamlet-leikari allra tíma með
tilheyrandi virðingu almennings.
Hann segist sakna liðinna tíma
þegar vinir hans komu hreint og
beint fram við hann án lotningar
og héldu honum þannig niðri á
jörðinni. Nú segir hann að farið
sé með sig sem antík. „Því miður
þorir fólk ekki að leikstýra mér,
en á því þurfa allir að halda. Ég
er hræddur við að vera einhvers
konar lærimeistari, sem allir líta
upp til og enginn þorir að hreyfa
við,“ sagði hann.
Gielgud flutti frá London árið
1974 ásamt vini sínum, Martin
Hensler, og búa þeir nú á herra-
garði uppi í sveit.