Morgunblaðið - 10.05.1994, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
104. TBL. 82. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nelson Mandela leiðtogi Afríska þjóðarráðsins kjörinn forseti Suður-Afríku
„Manni aldannnar44 var
vel fagnað í Höfðaborg
Norska
stjórnin
í vanda
Ósló. Morgunblaðið.
STJÓRNARKREPPA er
hugsanlega í uppsiglingu í
Noregi vegna skipunar Tor-
steins Molands í starf seðla-
bankastjóra. Sigbjorn John-
sen fjármálaráðherra og
stjórn Verkamannaflokksins
glíma við vantrauststillögur
frá Hægriflokknum, Fram-
faraflokknum og Miðflokkn-
um. Þessu til viðbótar hefur
Sósíalíski vinstriflokkurinn
hótað vantrausti.
Ákvörðun Johnsen að skipa
Moland hefur sætt harðri
gagnrýni allar götur frá í fyrr-
asumar. Upplýstist að Moland
hafði keypt sér umdeilda
skattaafslætti með því að
leggja fé í fyrirtæki sem hugð-
ist fjármagna þotukaup. Áætl-
anirnar urðu að engu vegna
samdráttar í flugi en bankinn
Kreditkassen kom Moland og
fjölda annarra nafnkunnra
fjárfesta til bjargar með því
að kaupa þá og nokkur fyrir-
tæki út úr félaginu. Um sama
leyti var Moland valinn í stjórn
Kreditkassen.
Forsetaskipti í Suður-Afríku
F.W. DE KLERK fráfarandi forseti Suður-Afríku, óskar Nelson
Mandela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins, til hamingju með for-
setakjörið í gær. De Klerk verður annar varaforseta Mandela í
nýju þjóðstjórninni. Sverja nýju valdhafarnir embættiseiða í dag.
Breytum Suður-Afríku í land þar sem
fólkið getur lifað og starfað með reisn
Höfðaborg. Reuter.
TUGIR þúsunda Suður-Afríkumanna af öllum kynþáttum fögn-
uðu kjöri Nelsons Mandela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins, sem
forseta landsins á fyrsta fundi nýja þingsins í gær. Mandela
varaði við of mikilli bjartsýni og sagði að verkefni nýju valdhaf-
anna yrðu ekki auðveld viðfangs. „Hér er maður dagsins, mað-
ur aldarinnar,“ sagði friðarverðlaunahafinn Desmond Tutu erki-
biskup þegar hann kynnti næsta forseta Suður-Afríku formlega
fyrir um 40.000 manna sem höfðu safnast saman við þinghúsið
í Höfðaborg, þar sem aðskilnaðarstefnan var tekin upp fyrir
rúmum fjórum áratugum og síðan afnumin.
„Verkefnin verða ekki auðveld
viðfangs," sagði Mandela. „En þið
hafið veitt okkur umboð til að
breyta Suður-Afríku úr landi þar
sem meirihlutinn lifði með litlar
vonir, í land þar sem fólkið getur
lifað og starfað með reisn, með
sjálfsvirðingu og trú á framtíðina."
Mandela sagði að ný stjóm undir
forystu Afríska þjóðarráðsins
myndi einbeita sér að því að draga
úr fátæktinni í landinu og skapa
ný atvinnutækifæri. Afríska þjóðar-
ráðið myndi hvetja innlenda og er-
lenda fjármálamenn til að fjárfesta
í Suður-Afríku og beita sér fyrir
því að smáfyrirtæki Suður-Afríku-
manna af öllum kynþáttum gætu
dafnað.
Hljómsveitir léku og kórar sungu
þegar mannfjöldinn fagnaði kjöri
Mandela við þinghúsið. Fólkið hélst
í hendur, söng friðarsöngva og sjá
mátti hvíta fjármálamenn standa
við hlið vinnukvenna frá hverfum
blökkumanna.
■ Þetta er dagurinn/17
Ný kreppa
í Færeyjum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA landstjórnin missti í
gær meirihluta á þingi er Lasse
Klein forseti Lögþingsins sagði
skilið við þingflokk Sjálvsstýris-
flokksins og sagðist ekki lengur
styðja landstjórnina.
Ástæðan fyrir þessari ákvörðun
Kleins er að hann hefur ekki kom-
ið ýmsum breytingum á skattalög-
um í gegnum þingið og ekki heldur
notið stuðnings landstjórnarinnar
eða lögþingsmanna eigin flokks.
Nýjar kosningar
Fulltrúar stjórnarandstöðu-
flokkanna sögðu í gær að eðlileg-
ast væri að ganga til nýrra kosn-
inga en fyrir liggur að þeir vilja
ekki ganga til samninga um mynd-
un nýrrar meirihlutastjórnar.
Rútskoj spáír
falli Jeltsíns
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Rútskoj fyrrum varaforseti spáði því í gær að stjórn Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta yrði ekki við völd eftir ár þegar hálf öld yrði
liðin frá sigri Rússa á nasistum. Þessa sigurs var minnst í Moskvu í gær.
Reuter
Rútskoj gefur blóm
ALEXANDER Rútskoj fyrrum varaforseti Rússlands afhenti
stríðshetjum úr seinna stríðinu blóm í Moskvu i gær í tilefni
sigurs Rauða hersins á hersveitum nasista.
Allt er þá
þrennt er
Ósló, Wellington. Reuter.
NORÐMAÐ-
URINN Erl-
ing Kagge
komst á tind
Everest,
hæsta fjalls
heims, í gær
og varð þar
með fyrstur
manna til
þess að fara
fótgangandi
á bæði heimskautin og Everest.
Kagge er 31 árs lögfræðing-
ur. Hann komst á tind Everest
við áttunda mann í gær. Meðal
þeirra var Nýsjálendingurinn
Rob Hall og stóð hann þar með
í fjórða sinn á tindinum en það
hefur enginn vestrænn maður
leikið eftir.
„50 ára afmæli sigursins á
þýsku fasistunum eftir ár verður
haldið við allt aðrar aðstæður.
Lögreglustjórnin fjandsamlega
verður ekki til þá,“ sagði Rútskoj
í ræðu sem var útvarpað á Ekho
JlíosAvy-útvarpsstöðinni. „Alvöru
sigur vinnst, um það er ég sann-
færður, sigur alþýðunnar," sagði
varaforsetinn fyrrverandi.
Sigursins á Þjóðveijum var
minnst á mörgum stöðum í
Moskvu. Jeltsín forseti flutti ræðu
við hin opinberu hátíðahöld sem
tugþúsundir manna sóttu þrátt
fyrir hið versta veður.
„Sigurdagurinn var líklega
mesti gleðidagur 20. aldarinnar og
það voru liðsmenn Rauða hersins
sem færðu heimsbyggðinni þá
hamingju,“ sagði Jeltsín. „Menn
skyldu minnast þessa og tala með
virðingu um Rússland," bætti hann
við.
Jeltsín notaði tækifærið til að
hvetja til einingar meðal almenn-
ings og stjórnmálamanna í Rúss-
landi en helstu stjórnmálafjendur
hans hafa neitað að ganga til sam-
starfs þar að lútandi. Hann sagði
að Stalín hefði mistekist að eyði-
leggja samheldni þjóðarinnar með-
nauðarflutningum og hreinsunum.
„Við stóðum saman í stórstyijöld-
um, við getum staðið saman á frið-
artímum," sagði Jeltsín.