Morgunblaðið - 10.05.1994, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994 39
+ Páll Sigurðsson,
fyrrverandi toll-
fulltrúi, fæddist í
Vík í Mýrdal 11. jan-
úar 1918. Hann lést
á Borgarspítalanum
hinn 8. mai 1994.
Foreldrar hans voru
Sigurður Einarsson
söðlasmiður í Vík og
Valgerður Pálsdótt-
ir, og áttu þau eina
dóttur fyrir, Ingi-
björgu. Páll kvænt-
ist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Ragn-
hildi Geirsdóttur frá
Vilmundarstöðum í Reyk-
holtsdal í Borgarfirði, hinn 17.
júní 1947. Þau eignuðust eina
dóttur, Ástríði, f. 2. apríl 1948.
Hún er gift Páli Hersteinssyni
og eiga þau tvo syni, Herstein,
f. 13. ágúst 1978, og jPál Ragn-
ar, f. 19. júní 1980. Útför Páls
fer fram frá Bústaðakirkju í
dag.
í DAG er til moldar borinn Páll
Sigurðsson, eða Palli frændi eins
HALL-
GRÍMUR
Ó. LÚÐ-
VÍKSSON
+ Hallgrímur Óskar Lúðvíks-
son var fæddur í Keflavík
17. febrúar 1962 og lést í Kaup-
mannahöfn 30. apríl 1994. Út-
för hans fór fram frá Keflavík-
urkirkju 7. apríl.
Kveðja frá félögxim hjá Sól
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál.)
Á MÁNUDAGINN barst okkur
sú harmafregn að Halli væri dáinn.
Halli vann með okkur í mörg ár.
Hann var einstaklega geðgóður og
ósérhlífinn. Fyrir rúmu ári lenti
hann í slysi og varð að hætta störf-
um. Þá kom vel í ljós hvaða mann
hann hafði að geyma. Aldrei kvart-
aði hann, heldur barðist af fádæma
hörku og dugnaði. Árangur hans
var ótrúlegur.
Hann var vinur okkar og félagi
og sýndi okkur hvað það er að vera
maður.
Við sendum ættingjum og vinum
Halla innilegar samúðarkveðjur.
Jón Scheving Thorsteinsson.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta. Á grænum grundum lætur hann
mig hvflast, leiðir mig að vötnum, þar sem
ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns
síns. Jafnvel þó ég fari um dimman dal ótt-
ast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(23. Davíðssálmur.)
Ég vil í fáum orðum kveðja mág
minn, Hallgrím Ó. Lúðvíksson, sem
var hrifinn burt frá okkur alltof
fljótt. Við hljótum að spyrja af
hverju, en vegir guðs eru órannsak-
anlegir. Við verðum að trúa því og
treysta, að það sé tilgangur með
dauðanum, því ef við gerum það
ekki er enginn tilgangur með lífinu.
Elsku Halli minn, þín verður sárt
saknað og tveir litlir frændur eiga
eftir að leita og spyija mikið um
þig, þar sem þú áttir takmarkalausa
aðdáun þeirra. Við kveðjum þig hér
að sinni, en hittumst aftur hinum
megin. Megi Guð leiða þig til ljóss-
ins.
Hanna, Daði Freyr og Eyþór Atli
og við systkinin í
Drápuhlíð kölluðum
hann.
Þau voru bara tvö
systkinin, Páll og
móðir okkar Ingi-
björg, og var því mik-
ill samgangur á milli
heimilanna. Ástríður,
dóttir Páls og Ragn-
hildar, er á svipuðum
aldri og við eldri
systkinin.
Margs er að minn-
ast frá heimsóknun-
um í Stórholtið og síð-
ar í Hvassaleitið þar
sem okkur krökkunum leyfðist
margt, því skammir þekktust ekki,
og Palli var uppfínningasamur að
búa til leiki og skemmta okkur
krökkunum, sem við kunnum vel
að meta og munum enn þann dag
í dag.
Palli frændi var hafsjór af fróð-
leik um land og þjóð og var mikill
náttúruunnandi. Ljósmyndaði hann
náttúruna af miklum áhuga og
næmleik á ferðum sínum, sem hann
hafði yndi af. Palli ferðaðist mikið
bæði innanlands og utan og ef eitt-
hvert okkar krakkanna var að fara
í ferðalag, var hægt að fá allar
upplýsingar um viðkomandi staði
hjá Palla.
Þau hjónin komu sér upp sælu-
reit í Reykholtsdalnum, á æskuslóð-
um Ragnhildar, og átti Palli margar
ánægjustundir þar við ræktun, sem
hann hafði brennandi áhuga á. Er
árangurinn af því starfi mjög mik-
ill og mörg trjánna þar orðin stór
og gróskumikil. Eyrarkot, en það
heitir bústaðurinn, stóð okkur
systkinunum ávallt opinn og ósjald-
an var hringt og sagt að lykillinn
væri á lausu, ef við vildum nýta
okkur aðstöðuna.
Við minnumst þess að þegar fað-
ir okkar dó var Palli frændi eins
og klettur sem stóð upp úr og við
gátum leitað til, ekki síst yngsti
bróðirinn sem var barn að aldri þá.
Það var mikil vinátta með þeim
systkinunum, Páli og móður okkar,
og reyndist hann henni ávallt vel.
Fyrir það þökkum við honum.
Elsku Ragga, Ásta, Páll, Her-
steinn og Páll Ragnar, við sendum
ykkur öllum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur og biðjum Guð að
styrkja ykkur í sorginni.
Sigurður, Ása, Ingunn og
Smári.
t
Bróðir minn,
HARALDURGUNNLAUGSSON
frá Kolugili,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 11. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ása Gunnlaugsdóttir.
t
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
VALGEIRS Á. EINARSSONAR,
Torfufelli 1,
áðurtil heimilis
íSkipholti 55,
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 11. maí kl. 15.00.
Þeir, sem vildu minnast hans, eru beðnir að láta Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna njóta þess.
Jóhanna Valgeirsdóttir, Benedikt Axelsson,
Guðrún Jóna Valgeirsdóttir, Hjörtur Guðnason
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur og bróðir,
ÍVAR ARNÓRSSON,
Lundarbrekku 16,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í
Kópavogi í dag, þriðjudaginn 10. maí,
kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega af-
þakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á líknarfélög.
Jóhanna Steinsdóttir,
Silia, Katrin og Eva Karen,
Betsy Ivarsdóttir, Arnór Pálsson,
Páll, Ágúst og Elísabet.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og stjúpfaðir,
RAGNAR MAGNÚSSON,
Keldulandi 11,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 11. maí kl. 13.30.
Ingibjörg Margrét Jónsdóttir,
Gunnlaugur Ó. Ragnarsson, Svanfríður Kjartansdóttir,
Helga Rósa Ragnarsdóttir,
Ragnar Ragnarsson,
Grettir Gunnlaugsson,
Jón Steinar Gunnlaugsson,
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Rúnar Jakobsson,
Þuríður Ingimundardóttir,
Kristín Pálsdóttir,
Sveinn Björnsson,
PALL SIG URÐSSON
+ Hjartkær móðir okkar, KATRÍN HREINSDÓTTIR, lést á Hrafnistu 6. maí. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 10. maí, kl. 15.00. Þeir, sem vildu minnast hennar, eru beðnir á láta líknarfélög njóta þess. Ingigerður og Unnur Ágústsdætur. '
+ Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON fyrrverandi tollvörður, Álfaskeiði 46, Hafnarfirði, verður jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 15.00. Þórdís Steinsdóttir, Maria Þ. Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Vilborg Sigurðardóttir, Geir A. Gunnlaugsson, Kristín Ragnarsdóttir og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug við fráfall ADOLFS BJÖRNSSONAR fyrrverandi bankafulltrúa. Aðstandendur.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SKÚLA ÁRNASONAR, Kringlunni 51, Reykjavík. Anna Maack og fjölskylda.
+ Hugheilar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúö og vinarhug vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ALBERTS S. GUÐMUNDSSONAR fyrrverandi ráðherra. Fyrir hönd aðstandenda, Brynhildur Hjördfs Jóhannsdóttir.
+ Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BERGMUNDAR STÍGSSONAR, Vesturgötu 131, Akranesi. Jóna Björg Guðmundsdóttir, Bergþóra Bergmundsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Þórir Bergmundsson, Guðríður Guðmundsdóttir og barnabörn. 4P
+ Þökkum auðsýnda samúð við andlát ELÍSU JÓNSDÓTTUR frá Dynjanda, Arnarfirði. ^ Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. f
Lokað Lokað eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 10. maí, vegna jarðarfarar ÍVARS ARNORSSONAR. ALP bflaverkstæðið, ALP bflaleigan, Borgarfell hf. *
Lokað Lokað í dag, þriðjudacjinn 10. maí, milli kl. 12 og 16 vegna jarðarfarar IVARS ARNORSSONAR. íslakk hf.