Morgunblaðið - 10.05.1994, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
AÐALHEIÐ UR
BJARNFREÐSDÓTTIR
+ Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, fyrrverandi al-
þingismaður og formaður
Starfsmannafélagsins Sóknar,
var fædd á Efri-Steinsmýri í
Meðallandi í Vestur-Skafta-
fellssýslu 8. ágúst 1921. Hún
lést á Vífilsstaðaspítala 26.
apríl síðastliðinn, 72 ára að
aldri. Minningarathöfn um
hana var haldin í Hallgríms-
kirkju föstudaginn 6. maí, en
jarðarför hennar fór fram frá
> - Stórólfshvolskirkju laugar-
daginn 7. maí.
ÉG HEIMSÓTTI hana að Vífils-
stöðum á sumardaginn fyrsta og
við spjölluðum saman í tvo tíma
eða meira. Hún var greinilega veik,
eins og hún hafði lengi verið, en
andlega hress, skýr og skemmtileg.
Undir lokin bað hún mig að koma
sér ekki oftar til að hlæja, það
væri svo erfitt. Annars var enginn
bilbugur á henni. Sem fyrr var hún
full áhuga á þeim málefnum sem
hún bar fyrir bijósti, ekki sízt
málum Sóknar, sem alltaf voru
ofarlega í huga hennar, en annars
ræddum við um heima og geima
og hún sagði mér merkilega sögu,
sem ég skil núna að hún gerði í
ákveðnum tilgangi.
Ég kynntist Aðalheiði Bjarn-
freðsdóttur á vettvangi kjaramála
þar sem tekizt var á um hagsmuni
sem við höfðum ólíkra að gæta.
Ætla mætti að sá jarðvegur sé
ekki til þess fallinn að stofna til
vináttu en sú varð samt raunin á
milli okkar. Áður hafði ég unnið
árum saman að samningum Sókn-
ar með annarri merkiskonu, Mar-
gréti Auðunsdóttur, og með okkur
tekist gagnkvæmt traust og trún-
aður. Margrét hafði látið af for-
mennsku og önnur tekið við þegar
yfir stóð hörð deila á vinnumark-
aðnum og Sóknarsamningar
komnir í sérstakan hnút. Fékk ég
þá fyrir allar aldir hringingu heim
til mín frá Margréti, sem tilkynnti
mér að aftur væri kominn nýr for-
maður í Sókn, Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir. Vafningalaust, eins og
henni var lagið, sagði hún mér að
þessari konu ætti ég að treysta og
að ég yrði að ná sambandi við
hana strax. Síðan lét hún mig
skrifa niður þau atriði sem þyrfti
að ganga frá til að höggva á samn-
ingshnútinn. Fór ég eftir öllu sem
Margrét sagði og síðar þennan
sama dag, eftir að við Aðalheiður
höfðum ræðzt lengi við í einrúmi,
komst skriður á málin,- sem Ieiddi
til niðurstöðu. Upp frá þessu unn-
um við saman málefnalega og vel
og leystum öll mál með samkomu-
lagi.
Reykjavíkurborg er stærsti
vinnuveitandi Sóknar og samskipt-
in mikil. í öllu talinu um að bæta
kjör þeirra lægst launuðu felst
sjaldan vilji til að gera það án þess
að aðrir fylgi á eftir. Þótt Sókn
sé enn láglaunahópur tókst samt
að breyta mörgu til batnaðar með
góðum vilja beggja. Varð þá stund-
um að leita ráða sem dygðu frekar
Sókn en öðrum. Man ég hvað hýrn-
aði yfir Aðalheiði þegar ég bauð
að fyrra bragði að viðurkenna hús-
móðurstörf til starfsaldurs, en það
var þá óþekkt í kjarasamningum.
Seinna hringdi hún í mig frá
Alþingi til að segja mér að hún
væri búin að koma því inn í þingtíð-
indi að ég væri höfundur þess ama
og kunni ég henni litlar þakkir
fyrir því ég hafði sagt öllum að
þetta hefði verið krafa Sóknar.
Ekki veit ég hvað það var öðru
fremur sem leiddi til þess að utan
við dagleg störf og annir tókst vin-
áttusamband með okkur Aðalheiði.
En við áttum skap saman; hún var
hreinskiptin, heiðarleg og
skemmtileg, en umfram allt virti
ég hana fyrir djúpa samúð með
þeim sem minna máttu sín og ein-
beittan vilja til að hjálpa þeim sem
hún gat. Engin leið var að stand-
ast hana þegar hún bar upp slík
mál. Stundum gat ég haldið undir
hom með henni og einnig leitað
til hennar og var þá ekki að sökum
að spyija. Skilningur hennar á
högum þeirra sem höllum fæti
stóðu var hertur í eigin lífsreynslu
sem hún beiskjulaust minntist og
rak hana áfram til að láta gott af
sér leiða.
Fátt er meira virði í lífinu en
kynni af góðu fólki. Ég hef kynnzt
mörgu og vil ekki gera upp á milli
þess en lifandis ósköp þótti mér
vænt um að þekkja haíia Aðalheiði
vel og eiga hana fyrir vin. Það var
heiður og upphefð og fyrir það er
ég þakklátur. Eiginmanni hennar
og aðstandendum öllum færi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Magnús Óskarsson.
RAÐAUGl YSINGAR
Vantar konu
Hjartahlýja, geðgóða, einhleypa konu um
fimmtugt vantar í sveit til ekkjumanns sem
býr einn.
Upplýsingar í síma 96-41942.
ft
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi.
Verið velkomin að koma og kynna ykkur
heimilið, vinnutíma og vinnuhlutfall.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn-
um og í síma 26222 alla virka daga.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
SAUÐÁRKRÓKSBÆR
Fóstrur - fóstrur
Leikskólinn Furukot óskar eftir leikskóla-
stjóra í 100% stöðu. Einnig vantar yfirfóstru
í 100% stöðu og deildarfóstrur að Furukoti.
Sömuleiðis vantar deildarfóstru að leikskól-
anum Glaðheimum.
Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar,
Furukot Herdís Jónsdóttir, sími 95-35945,
Glaðheimar Helga Sigurbjörnsdóttir,
sími 95-35496.
Umsóknarfrestur er til 14. maí.
Umsóknum ber að koma til féiagsmálastjóra,
Stjórnsýsluhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21,
550 Sauðárkróki.
Félagsmálastjóri.
Uppboð
Framhald uppboðs á ms. Hafey SK-194, talinni eign Steindórs Árna-
sonar, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, fer fram á skrif-
stofu embsettisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, föstudaginn 13. maí
1994 kl. 10.00.
Sýslumaðurirm á Sauðárkróki.
Uppboð
munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki,
föstudaginn 13. maí 1994 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Birkimelur 16, Varmahlíð, þingl. eig. Guðmundur Ingimarsson og
Sigurlaug Helga Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Húsnæðisstofnun ríkis-
ins.
Fornás 13, Sauðárkróki, þingl. eig. Guðbrandur Frímannsson, gerðar-
beiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins og Lífeyrissjóður rafiðnaðar-
manna.
Hvannahlíð 8, Sauðárkróki, þingl. eig. Björn Ottósson, gerðarbeið-
endur innheimtumaður ríkissjóðs og Lífeyrissjóöur múrara.
Kringlumýri, Akrahreppi, þingl. eig. Sigurður Hansen, gerðarbeið-
andi Húsnæðisstofnun ríkisins.
Lambanesreykir, Fljótahreppi, íbúðarhús, þingl. eig. Fljótahreppur,
gerðarbeiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins.
Melur, Staðarhreppi, þingl. eig. Sigurður Jónsson, gerðarbeiðandi
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Narfastaðir, Viðvíkurhreppi, þingl. eig. Ólöf Þórhallsdóttir, gerðar-
beiðendur Lind hf. og Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Reykir, Hólahreppi, þingl. eig. Jarðakaupasjóður ríkisins, gerðarbeið-
andi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Stokkhólmi, Akrahreppi, þingl. eig. Halldór Sigurðsson, gerðarbeið-
endur Búnaðarbanki (slands og Húsnæðisstofnun ríkisins.
Suðurbraut 19, Hofsósi, þingl. eig. Sjöfn Skúladóttir, gerðarbeiöend-
ur innheimtumaður ríkissjóðs, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Sam-
einaði lífeyrissjóöurinn, Tryggingastofnun ríkisins og Húsnæðisstofn-
un ríkisins.
Suðurgata 22, Sauðárkróki, þingl. eig. Sigurður Kárason, gerðarheið-
andi Guðbjörg Kristín Jónsdóttir.
Sæmundargata 5, íbúð, verkstæði og geymsla, Sauðárkróki, þingl.
eig. Pétur Helgason, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs.
Túngata 10, Hofsósi, þingl. eig. Pétur Arnar Unason, gerðarbeið-
andi Lffeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði.
Túngata 8, Hofsósi, taldir eig. Stefán Jón Óskarsson og Anna Guð-
rún Tryggvadóttir, gerðarbeiðandi Haukur Ingólfsson.
Víðigrund 16, íbúð 1.h. t.v., Sauðárkróki, þingl. eig. Eiríkur Hansen,
gerðarbeiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Aðalfundur
Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar verður haldinn í Átthagasal Hótels Sögu
miðvikudaginn 11. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Félagar, mætum vel á aðalfundinn.
Stjórn Dagsbrúnar.
B 0 0 »>
Eftirfarandi útboð eru til sölu eða afhend-
ingar á skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7,
Reykjavík:
1. Útboð 10034 forval, spelkur, gervi-
limir og skór. Umbeðnum upplýsingum
skal skila 16.05. 1994.
2. Útboð 4097-4 gólfteppi fyrir Þjóðar-
bókhlöðu.
Opnun 17.5. 1994 kl. 11.00.
Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk.
3. Útboð 10043 leigubílaakstur fyrir
Ríkisspítala.
Opnun 18.05. 1994 kl. 11.00.
4. Útboð 10038 Sondumatur og fylgi-
hlutir fyrir Ríkisspítala.
Opnun 25.05. 1994 kl. 11.00.
5. Útboð 10063 Forval Svæðisskipulag
fyrir miðhálendið.
Opnun 24.5. 1994 kl. 14.00.
6. Útboð nr. 10014 Kennaraháskólinn
Varmalandi utanhússfrágangur.
Opnun 25.05. 1994 kl. 14.00.
7. Útboð 10048 lín fyrir þvottahús Rík-
isspítala.
Opnun 14.06. 1994 kl. 11.00.
8. Útboð 10065 Tollhúsið Tryggvagötu
viðhald og breytingar utanhúss.
Opnun 31.05. 1994 kl. 11.00.
Gögn seld á kr. 12.450,- frá kl. 13.00
9. maí 1994.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk., nema
annað sé tekið fram.
RÍKISKAUP
Ú t b o ð t k i I a árangrií
BORGARTÚNI 7, I 05 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844,
BRÉFASÍMI 91-626739
Seglskúta Storebro Royal 33
Til sölu er 1/6 hluti í seglskútunni Uglu 1754,
sem nú er á Mallorka. Verðhugmynd kr.
550.000. Gott tækifæri fyrir áhugamenn um
siglingar. Ugla er 33 fet og skráð á íslandi.
Ugla er vel tækum búin og eru innréttingar
sérlega vandaðar. Svefnpláss er fyrir 6.
Nánari upplýsingar í síma 628183 á kvöldin.