Morgunblaðið - 10.05.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994 41
FRÉTTIR
Bætt hafnaraðstaða
í Helguvík
Hafnar-
stj órn sam-
þykkir að
leita eftir
fjármagni
HAFNARSTJÓRN Keflavíkur og
Njarðvíkur hefur ákveðið að vinna
að því að koma fyrir stálþili við
höfnina í Helguvík til að þar verði
hægt að starfrækja loðnubræðslu.
Samstarfsaðilar um stofnun og
rekstur loðnubræðslu í Helguvík
telja nauðsynlegt að byggja hafn-
argarð við höfnina til að hægt sé
að þjóna bræðslunni. Þeir rituðu
hafnarstjórn bréf um málið og að
sögn Kristjáns Pálssonar, for-
manns hafnarstjórnar, tók nefndin
mjög jákvætt í erindið. „Við þurf-
um að sjálfsögðu að hafa samráð
við bæjarstjórnirnar á svæðinu,
Hafnarmálastofnun, samgöngu-
ráðherra og þingmenn svæðisins.
Við munum á næstu dögum kynna
þetta mál og reyna að koma því á
þann rekspöl að loðnubræðsla geti
risið þarna á sem skemmstum
tíma,“ sagði Kristján.
Vel þekkt framkvæmd
Kristján sagði að kannaðir hefðu
verið möguleikar á að koma fyrir
150 metra stálþili í höfninni í
Helguvík og gerðar rannsóknir þar
að lútandi. Hann sagði að slíkar
framkvæmdir væru þekktar víða
að, stálþil hefðu verið rekin niður
í fleiri höfnum á Suðumesjum.
Þess vegna væri ekkert við fram-
kvæmdina sem þyrfti að koma á
óvart, þetta væri spurning um að
fjármagna hana en að sögn Krist-
jáns mun kostnaðurinn nema tæp-
lega 200 milljónum króna.
Matur og matgerð
Kanilkleinur
o g karrífiskur
Að morgni sumardagsins fyrsta gæddu
Kristín Gestsdóttir og fjölskylda hennar
sér á kanilkleinum með heitu súkkulaði
og rjóma. Um kvöldið var karríýsa á
borðum. Kristín gefur hér uppskrift af
hvoru tveggja.
ÞAÐ var kalt
fyrsta sumardag
en fallegt veður,
ÞeSar fjölskylda
W mín settist að borð-
if um kl. 10 að morgni.
Þar voru nýsteiktar
kleinur og heitt súkkulaði með
ijóma
Ungur dóttursonur kom til
mín og sagði: „Amma, það er
stór hvítur fugl í snjóskaflin-
um.“ Mikið rétt, þarna var ein-
mana stór rjúpa í snjóhvítum
vetrarbúningi að óska okkur
gleðilegs sumars. Kl. 7 hafði
ég vaknað við söng lóunnar og
í fjarlægð heyrðist í stelk. Þeg-
ar ég rölti niður stíginn til að
ná í Moggann, sáust þrestir og
auðnutittlingar flögra grein af
grein og höfðu hátt, skógurinn
iðaði af lífi. „Já, sumarið er
komið,“ hugsaði ég, hneppti
úlpunni alveg upp í háls og
setti á mig lopavettlinga. Glöð
í bragði steikti ég kleinurnar,
sem uppskriftin er af núna, það
er að mestu sama uppskrift og
birtist hér í fyrra, nema nú
voru kleinurnar kryddaðar með
kanil en ekki kardimommum.
Einnig er hér uppskrift af físk-
réttinum sem við borðuðum um
kvöldið.
Karríýsa
2 dl hrísgrjón
4 dl vatn
Vi tsk. salt
500 g stórar kartöflur (bökunar
kartöflur)
3 rask. matarolía
1 msk. smjör
500 g ýsuflök
1 msk. sítrónusafi (má sleppa)
1 tsk. saltáflakið
nýmalaður pipar
3 msk. hveiti
1 Vi tsk. karrí
1. Setjið hrísgijón, salt og
vatn í pott og sjóðið við hægan
hita í 12 mínútur. Slökkvið á
hellunni, takið ekki lokið af pott-
inum, en látið pottinn standa á
hellunni í aðrar 10-12 mínútur.
2. Stráið salti og pipar á fisk-
flakið og hellið yfír það sítrónu-
safa, látið bíða í 10 mínútur eða
lengur.
3. Afhýðið kartöflurnar og
skerið í þunnar sneiðar. Setjið
matarolíu og smjör á stóra
pönnu, hafið meðalhita og steik-
ið kartöflurnar í 7 mínútur á
hvorri hlið. Setjið á fat og haldið
heitum.
4. Setjið karrí saman við feit-
ina, sem eftir er á pönnunni,
veltið fískinum upp úr hveiti og
steikið við meðalhita í karrífeit-
inni í um 5-6 mínútur á hvorri
hlið.
5. Setjið hrísgijónin á fat, setj-
ið kartöflusneiðarnar ofan á og
loks fiskinn. Berið á borð.
Kanilkleinur
1 kg. hveiti
200 g smjörlíki
200 g sykur
4 egg
2tsk. kanill
3Vt tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
3V2-4 dl súrmjólk
2-3 kg plöntufeiti
1. Bræðið smjörlíki, kælið ör-
lítið, setjið í hrærivélarskál
ásamt sykri og hrærið smástund.
Bætið einu eggi í senn út í og
hrærið á milli.
2. Setjið hveiti, kanil, lyftiduft
og hjartarsalt í skál. Setjið
hveitiblönduna og súrmjólk á víxl
út í deigið. Hnoðið saman. Deig-
ið þarf að vera frekar lint.
3. Stráið hveiti á eldhúsborðið
og fletjið deigið út um Vi sm
þykkt. Skerið með kleinuhjóli í
aflanga búta, setjið rauf í miðj-
una. Snúið upp á kleinurnar.
4. Hitið feitina. Hún þarf að
vera vel heit, setjið smábút af
kleinudeigi út í til að aðgæta
hitann. Steikið 8 kleinur í senn
í feitinni. Snúið meðan á steik-
ingu stendur. Setjið eldhúspappír
á fat, leggið kleinurnar þar á
um leið og þær eru teknar upp
úr feitinni.
Athugið: Hægt er að nota feit-
ina tvisvar eða þrisvar til að
steikja úr, en ef hún er notuð
oftar, verður hún óholl og því
best að henda henni. Feitina má
frysta.
Sltlfl ouglýsingor
skólar/námskeið
I.O.O.F. Rb. 1 = 1435108 - 9.I.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Þriðjud. 10. maf kl. 20.30:
Opið hús í Mörkinni 6
Kynnt verða úrslit og viðurkenn-
ingar veittar fyrir 15 myndir í
Ijósmyndasamkeppni Ferðafé-
lags íslands, Ferðaklúbbsins
4x4, íslenska Alpaklúbbsins og
Jöklarannsóknafélags Islands.
Myndunum hefur þegar verið
kpmið fyrir í fundarsalnum í ris-
inu og eru þær þar til sýnis.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir
meðan húsrými leyfir.
Fimmtud. 12. maf kl. 13.00:
Lýðveldisgangan,
4. áfangi
Gengið frá Silungapolli á Sand-
skeið. Göngunni lýkur um fimm-
leytið. Einnig verður fjölskyldu-
ganga er lýkur fyrr.
Laugard. 14. maí kl. 10.00:
Fuglaskoðunarferð
á Suðurnes
Árleg fuglaskoðunarferð. Nú
hafa fuglaskoðunarferðir F.l. og
Náttúrufræöifélagsins verið
sameinaðar I eina. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Brottför í ferðirnar
frá BSÍ, austanmegin og Mörk-
inni 6. Nánar auglýst síðar.
Helgarferðir 13.-15. maí
a. Eyjafjallajökull - Þórsmörk.
Gengið yfir jökulinn að Selja-
vallalaug.
b. Þórsmörk - Langidalur.
Gönguferðir við allra hæfi. Gist
í Skagfjörðsskála, Langadal.
Brottför föstud. kl. 20.00.
Munið hvftasunnuferðirnar
20.-23. maí:
1. Snæfellsnes - Snæfellsjök-
ull. 2. Öræfajökull - Skaftafell.
3. Skaftafell - Öræfasveit.
4. Þórsmörk. 5. Tindfjöli -
Emstrur - Þórsmörk.
Einnig Fimmvörðuháls og Þórs-
mörk með brottför laugard. 21.
maí kl. 8.00. Farmiðar og uppl.
á skrifst., Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
Innflytjendurtil
Bandaríkjanna
Þú gæti oröið einn af þeim
55.000, sem valdir verða úr til
að flytja til Bandartkjanna, sam-
kvæmt nýja (USINS) fjölbreyti-
lega vegabréfsáritunar-happ-
drættinu.
Láttu skrá þig núnal Frestur
rennur út 30. júní 1994. Það er
auðvelt og einfalt. Við sýnum
þér hvernig á aö taka þátt í happ-
drættinu með fullnægjandi upp-
lýsingum og leiðbeiningum.
Sendu 25 Bandaríkjadali (tékka
eða póstévísun) til: East-West
Immigrant Services, P.O. Box
1984, Wailuku, Hl 96793, U.S.A.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Nú er rétti tíminn til að sauma sumarföt-
in. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar í síma 17356.
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69
62 1 □ 66
<Q>
NÝHERJI
■ Tölvuskóli í fararbroddi
Úrval vandaðra námskeiða. Reyndir leið-
beinendur. Kynntu þér námsskrána.
■ Enskuskóli nærri York
Alm. námskeið 2-20 vikur. Stöðupróf í
upphafi náms. Fámennir hópar (6-7).
Viðurkennd próf ef óskað er.
Upplýsingar gefur Marteinn M.
Jóhannsson í s. 811652 á kvöldin.
■ Leðurvinna
Námskeið í leðurvinnu verða haldin í
júní. Kennari María Ragnarsdóttir.
Hvítlist,
Bygggörðum 7, Seltjn.,
sími 612141.
tölvur
■ Tölvusumarskóli unglinga
Fjölbreytt og hagnýt námskeið fyrir ungl-
inga á öllum aldri hefjast í júní. Mörg ný
og spennandi framhaldsnámskeið.
Hringið og fáið sendar upplýsingar.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 688090.
■ Vinsælu barna- og
unglinganámskeiðin
Námskeið, sem veita börnum og ungling-
um verðmætan undirbúning fyrir fram-
tíðina. Eftirtalin námskeið eru í boði:
1) Tölvunám barna 5-6 ára.
2) Tölvunám barna 7-9 ára.
3) Tölvunám unglinga 10-15 ára.
4) Framhaldsnám ungl. 11-16 ára.
Námskeiðin verða haldin í júní og ágúst.
Fyrstu námskeiðin hefjast 1. júní. Skráið
fyrir 15. maí og njótið 10% afsláttar.
Hringið og fáið sendar upplýsingar.
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69 <Q)
62 10 66 NÝHERJI
tungumál
■ Enskunám í Englandi
Við bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands.
Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði
hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða: Alhliða ensku - 18 ára
og eldri, 2ja til 11 vikna annir.
Unglingaskóla, júlí og ágúst, 13-17 ára,
4ra vikna annir.
Viðskiptaenska - 2ja og 4ra vikna annir.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Júiíus Snorrason og
og Linda Ragnarsdóttir,
í síma 96-21173,
Bæjarsíðu 3, 603 Akureyri.
Enska málstofan
■ Enskukennsla:
■* Einkakennsla fyrir einn eða fleiri
á afar hagstæðu verði.
★ Aðstoð og ráógjöf til fyrirtækja
vegna þjálfunar og sjálfsnáms
í ensku.
★ Viðskiptaenska, aðstoð við þýðingar
o.fl.
Upplýsingar og skráning
í síma 620699 frá kl. 14-18
alla virka daga.
■ Glerlistarnámskeið
Jónas Bragi Jónasson, glerlistamaður,
heldur námskeið í glerlist, annars vegar
steint gler og hins vegar glerbræðsla
og shpun. Námskeiðin hefjast 13. maí.
Nánari upplýsingar
í síma 15054.
■ Bréfaskriftir
Fátt jafnast á við að fá gott sendibréf.
Bezta aðferðin til að halda við og bæta
ritmál tungmáls er að skrifa bréf.
International Penfriend getur útvegað
þér marga jafnaldra pennavini frá ýmsum
löndum eftir þínum óskum.
I.P.F.,
pósthólf 4276, 124 Reykjavík,
sfmi 988-18181.
■ Vortilboð Bréfaskólans:
10% afsláttur af námsefni í tungumálum.
- Enska 103 og 203.
- Franska, spænska, ítalska, japanska,
þýska, enska, hollenska, arabíska,
norska, danska, sænska o.m.fl.
- fslenska fyrir útlendinga, bréfanám,
20% afsláttur.
Opið allt sumarið.
Sendum ókeypis kynningarefni.
Hringdu!
Hlemmi 5, pósthólf 5144,
125 Reykjavík. Sími 91 -629750.