Morgunblaðið - 17.06.1994, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
W Bílastæbi
ÁfMösfellshsibi.
v. Öxará
/Bílastæði v.'
vTæpastíg
Bílastæði.v.
Almannágjá
Hátíðarpallur-i
"ógleiksvið^l-. -
■Lögbérg
BílastæSKöq tjald- -
^stæði _!■Skóg'arholum
Lögrétfá--,-
rþlFtgpállur
Lfnari.H3
irnbílar o.fl.
Bílastæði v. Leira
Stjófnstöj
Þlnílvállabærv^K
Sýningajvae&i-áT
EfrioaNe&jrivöl
10BÖm:
LYÐVELDIÐ ISLAIMD
50 ARA
Teikning/Gylfi Gíslason
Fjölsýningin
Þjóðleikur
á Þing-völlnm
Fjölsýning hefst klukkan níu um morguninn
á Þingvöllum 17. júní, og stendur fram eft-
ir degi. Hún verður haldin um allt hátíðar-
svæðið og verður sambland gamans og al-
vöru, fyrir unga sem aldna.
Þingfundur á
Lögbergi og ávörp
LÝÐVELDISAFMÆLIÐ hefst
klukkan 8.25 í dag þegar
kirkjuklukkum verður hringt
um land allt, íslenski fáninn
og þjóðhátíðarfáninn verða
dregnir að húni og lúðrastef
þjóðhátíðar eftir Jón Ásgeirs-
son hljómar.
Hálftíma síðar hefst Þjóð-
leikur á Þingvöllum og verður
hugvekja í Almannagjá undir
stjórn Hönnu Maríu Péturs-
dóttur, prests og þjóðgarð-
svarðar, kl. 9.30. Eftir að tón-
verk þjóðhátíðar hafa verið
leikin, verður lýðveldisklukk-
um hringt í Þingvallakirkju og
þingfundur settur við Lög-
berg. Salome Þorkelsdóttir,
forseti Alþingis, flytur setn-
ingarávarp en þá verður af-
greidd þingsályktunartillaga
um endurskoðun VII. kafla
sljórnarskrárinnar, sem tekur
meðal annars á mannréttind-
um. Einnig verður síðari um-
ræða um þingsályktunartil-
lögu sem felur í sér að stofnað-
ur verði hátíðarsjóður í tilefni
af afmæli lýðveldisins, sem
ætlað er að styrkja rannsóknir
á lífríki sjávar og efla íslenska
tungu. Formenn þingflokk-
anna taka til máls og atkvæði
verða greidd um tillögurnar.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, flytur þá ræðu
yfir þingheimi.
Ræður og kórsöngur
Klukkan 13.05 hefstformleg
hátíðardagskrá með söng há-
tíðarbarnakórs, sem skipaður
er eitt þúsund börnum víðs
vegar af landinu, og stendur
kórsöngur og hljóðfæraleikur
til kl. 13.43 þegar Matthías Á.
Mathiesen, formaður þjóðhá-
tíðarnefndar, setur þjóðhátið
með ávarpi sínu. Að lokinni
ræðu Davíðs Oddssonar, for-
sætisráðherra, flytja þjóðhöfð-
ingjar hinna Norðurlandanna
ávörp sín. Milli allra ávarpa,
ræða og annarra dagskráratr-
iða syngur hátíðarkórinn, sem
settur er saman úr kór ís-
lensku óperunnar, Karlakór
Reykjavíkur og Karlakórnum
Fóstbræðrum, íslensk sönglög
eftir helstu tónskáld þjóðar-
innar á liðinni öld og fyrri
hluta þessarar aldar. Fyrst
erlendra þjóðhöfðingja til að
ávarpa þjóðhátíðargesti er
Margrét Þórhildur II., Dana-
drottning, en þá kemur Karl
XVI. Gústaf Svíakonungur,
Haraldur V. Noregskonungur
og forseti Finnlands, Martti
Ahtisaari.
íslandsklukkan og
þjóðkórinn
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
sýnir dansa að loknum ávörp-
um þjóðhöfðingja. Klukkan
14.40 flytía Halldóra Björns-
dóttir, Helgi Skúlason, Ingvar
Sigurðsson, Jóhann Sigurðar-
son og Pálmi Gestsson kafla
úr íslandsklukkunni eftir Hall-
dór Laxness. Þjóðkórinn, sem
settur er saman úr áðurnefnd-
um kórum auk þess sem hátíð-
argestum er velkomið að taka
þátt í söngnum, flytur Öxar
við ána, Hver á sér fegra föð-
urland og ísland ögrum skorið.
Forseti fslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, og biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason,
ávarpa síðan gesti en þessum
hluta dagskrárinnar lýkur um
klukkan 15.15 með því að þjóð-
arkórinn syngur íslenska þjóð-
sönginn, O, guð vors lands.
Um 110 fjölmiðlamenn
viðstaddir hátíðina
Álfakóngur og álfadrottning birt-
ast meðal mannfólksins ríðandi á
gæðingum, dansað verður á brúar-
gólfum Þingvalla eins og gert vár
í öllum sveitum árið 1944, Flug-
björgunarsveitin verður með sýn-
ingaratriði í Almannagjá, Sigurður
Sæmundsson í Holtsmúla jámar og
smíðar skeifur, Fim-
leikasamband íslands
verður með fimleikasýn-
ingu sem fléttað verður
saman við íslenska
glímu, 12 ungar leik-
konur í hlutverki §all-
konunnar fara með ætt-
jarðarljóð, fjöldi lítilla flugvéla flýg-
ur yfir svæðið og fombílar verða á
sérstöku fornbílaplani. Einnig mun
hljómsveitin Skárra en ekkert
flakka um svæðið, harmonikkuleik-
arar spila, sunginn verður fim-
mundarsöngur og tóvinna og söðla-
smíði sýnd, svo eitthvað sé nefnt.
Þjóðleg
fjölskyldureið
Hópur málara með trönur og
krumpaða hattkúfa verður úti um
grundir að mála myndir af hrauninu
og álfunum að hætti Kjarvals. Einn-
ig munu konur snúa heyi og Hjalti
Gestsson búnaðarráðunautur Suð-
urlands skipuleggur húsdýrasýn-
ingu. Auk þess verður skipulögð
þjóðleg fjölskyldureið í sauðalitun-
um; hestamenn í gömlum búning-
um, hreppstjóri, oddviti, prestur,
maddama, bændur og hjú sem ríða
munu gegnum svokölluð landbún-
aðar- og sjávarútvegssvæði, til
dæmis binda í bagga og sækja
skreið og ríða svo upp í Almanna-
gjá. Einnig verður haldin sýning á
tækjum og tólum Ríkisútvarpsins
og Pósts og síma á árum áður og
gamlar upptökur leiknar stöðugt,
þar að auki verða kvikmyndasýn-
ingár með gömlum heimildamynd-
um í sérstöku kvikmyndatjaldi.
Dómkórinn og Skagfirska söng-
sveitin hefja upp raustir sínar í
Stekkjargjá hvort í sínu lagi, en
Kvennakór Reykjavíkur syngur
tregasöngva við Drekkingarhyl.
Skemmtun fyrir
börnin
Barnagaman er yfirskrift síðdeg-
isdagskrár á hátíðarpalli, sem hefst
klukkan 16. Þar koma fram Radd-
bandið, leikaramir Edda Heiðrún
Backman, Gísli Rúnar Jónsson, Jó-
hann Sigurðarson og
Randver Þorláksson.
Ronja ræningjadóttir og
félagar ásamt dvergun-
um úr Skilaboðaskjóð-
unni láta ljós sitt skína.
Leikhópurinn Augna-
blik mun skemmta börn-
unum á þjóðhátíð í tjaldinu Barna-
gulli, og verður leikritið Dimma-
limm sýnt tvívegis yfir daginn, flutt
verður Leitin að mánafiautunni og
fleiri stef úr Júlíu og mánafólkinu.
Sólheimaleikhúsið sýnir Lísu í
Undralandi og leikhópurinn Perlan
býður upp á Mídas konung. Á svæð-
inu verður leikaðstaða fyrir börnin
og leiksvæði með trönuleikjum sem
skátar standa að baki, einnig verð-
ur ungbarnaaðstaða á salernum
sem sérmerkt eru fyrir fatlaða. Auk
þessa verður upplýsingatjald á
staðnum þar sem hægt verður að
hafa upp á týndum börnum, sem
verða munu í góðum höndum fóstra
þar til aðstandendur vitja þeirra.
Auk þessa verður hægt að nálgast
almennar upplýsingar í sama tjaldi.
Krossborg hlaðin
Hleðslumeistari mun hlaða kross-
borg til að sýna verklag við hleðslu,
og mun borgin síðan standa sem
minnisvarði um hátíðina um
ókomna tíð. Kvæðamannafélagið
Iðunn kveður rímur, leikið verður á
langspil og íslenska fiðlu, síld verð-
ur söltuð af vönum mönnum og síld-
arsöngvar sungnir. Einnig verður
efnt til sérstakrar ljóðadagskrár
sem fjallar um formbyltingarskáld-
in sem settu mestan svip á íslenska
ljóðagerð á árunum eftir lýðveldis-
stofnun. Fólk getur einnig tekið sk.
tívolímyndir, þar sem höfðinu er
stungið í gegnum spjöld með þekkt-
um persónum úr þjóðlííinu og sög-
unni. Þjóðdansafélag Reykjavíkur,
börn og fullorðnir, dansa á gesta-
palli við Lögberg og kvenfélagskon-
ur bjóða upp á kleinur og klatta.
Lögreglumenn verða klæddir bún-
ingum frá 1944 og lögreglubílar frá
sama tíma verða á svæðinu. Fjórar
lúðra- og skólahljómsveitir leika
baráttusöngva af ýmsum toga og
kór bama syngur. Ferðafélag ís-
lands og Utivist bjóða fólki í
göngutúra og 100 hestamenn á
gæðingum stilla sér upp við hyllingu
fánans. Á hátíðarpalli flytur hópur-
inn Valinkunnir áhugaleikarar leik-
þátt sem kallast Hann á afmæli
hann Jón.
Dægurlög í hálfa öld
Þekktir íslenskir tónlistarmenn
munu koma saman á Þingvöllum á
þjóðhátíðardaginn og flytja óð til
dægurtónlistar síðastliðinna 50 ára.
Lögin sem flutt verða eru valin með
tilliti til vinsælda. Munu þekktir
söngvarar troða upp á hátíðarpallin-
um, syngja ásamt hljómsveit og
stjóma fjöldasöng, þar á meðal
Ragnar Bjarnason, Ellý Vilhjálms,
Bubbi Morthens, Sigríður Bein-
teinsdóttir og Björgvin Halldórsson.
Flutt verða lög eftir Ijölda höfunda
af bæði yngri og eldri kynslóð.
Hljómflutningskerfið sem notað
verður er eitt hið öflugasta sem flutt
hefur verið til landsins, en það veg-
ur 6VÍ2 tonn og kom sjóleiðis í 40
feta gámi í fylgd þriggja breskra
tæknimanna sem stjórnuðu upp-
setningu tækjanna og annast tækn-
iaðstoð. Átta hátalarar verða við
þingpallinn við Lögberg, eða um
4.000 wött, og við hátíðarpallinn á
Efri-völlum verða 26 hátalarar, eða
um 25.000 wött. Einnig verða
hengdir upp 60 hljóðnemar.
Margt annað verður á boðstólum
á Þingvöllum í dag, fólki til yndis
og ánægju, og er of langt mál að
rekja allar þær uppákomur og
skemmtiatriði sem dreifast um víð-
an völl. Stefnt er að því að Steinn
Lámsson, framkvæmdastjóri þjóð-
hátíðamefndar, slíti þjóðhátíð
klukkan 17.30.
LIÐLEGA 110 starfsmenn erlendra
fjölmiðla koma hingað til lands til
að vera viðstaddir 50 ára afmæli
lýðveldisins íslands. Langflestir
þeirra eru frá Norðurlöndunum en
einnig koma hingað fréttamenn alla
leið frá Rússlandi og Japan. At-
hygli vekur að engir fréttamenn
hafa boðað komu sína hingað frá
Bandaríkjunum.
Sett hefur verið upp sérstök
fréttamannamiðstöð á vegum utan-
rikisráðuneytisins ogúthluta starfs-
menn hennar fréttamönnum, inn-
lendum sem erlendum, sérstökum
fréttamannaskírteinum. Að sögn
Bolla Valdimarssonar, eins starfs-
manna miðstöðvarinnar, hafa
margir erlendu fréttamannanna
óskað eftir viðtölum við forseta ís-
lands, forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra.
Flestir fréttamenn komu hingað
til lands frá Finnlandi, eða 26, og
hafa þeir þegar ferðast mikið um
landið.
Söngur, dans
og ýmis
skemmtiatriði