Morgunblaðið - 17.06.1994, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SYSTURNAR íris og Anný vildu fermast saman á Islandi. Þær
höfðu orð á því að þeim þætti gaman að kona fermdi þær.
Ferming á Þingvöllum
Vildum ferm-
ast á Islandi
Þriggja daga hátíð á
50 ára lýðveldisafmæli
ÞRIGGJA daga hátíðarhöld í tilefni
50 ára afmælis lýðveldisins hefjast
á Akureyri í dag. Hátíðarhöldin byrja
á Hamarkotsklöppum fyrir hádegi.
Þaðan færast þau í Lystigarðinn og
niður í bæ um kvöldið. Um helgina
er stefnt að því að gróðursetja jafn
margar plöntur og Akureyringar eru
á Rangárvöllum. A sunnudaginn fer
Kvennahlaup ÍSÍ fram. Hátíðarhöld-
unum lýkur svo með tónleikum í
íþróttahöllinni um kvöldið.
Hátíðarhöldin hefjast á Hamar-
kotsklöppum kl. 9 fyrir hádegi.
Kynnt verður minnismerki um 50
ára lýðveldi á íslandi, flutti ávörp,
haldin helgistund, hlýtt á ávarp fjall-
konu, sungið og spilað.
Að því loknu fer blómabíll í broddi
fylkingar bíla í Bílaklúbbi Akureyrar
um bæjarhverfin og endar við opnun
bílasýningar við Oddeyrarskóla kl.
10.30.
Aðalhátíð í Lystigarði
Eftir hádegi, um kl. 14.30, leggur
skrúðganga af stað frá Kaupangi
við Mýrarveg áleiðis í vesturenda
Lystigarðsins. Þar fer fram samfelid
skemmtidagskrá frá kl. 15 til 16.30.
Meðal skemmtiatriða verður töfra-
maður og eldgleypir frá Bretlandi,
gamanþáttur eftir Dario Fo og þjóð-
dansar. í göngugötunni og á Torginu
hefst unglingaskemmtun kl. 17 og
dansleikir kl. 21.
Að morgni 18. og 19. júní er skor-
að á Akureyringa að mæta upp á
Rangárvöllum til gróðursetningar í
gilið ofan Giljahverfis. Takmarkið
verður að gróðursetja jafn margar
plöntur og Akureyringar eru margir
eða um 15.000. Skátar setja upp
tívolí í Glerárþorpi 18. júní og sama
dag verður íslandsmeistaramót í
spyrnu á Tryggvabraut. Fjölskyldu-
hátíð verður í Kjarnaskógi á sunnu-
dag. Hún hefst með Kvennahlaupi
kl. 12 og lýkur með risagrilli milli
kl. 18 og 19. Blásarasveit æskunnar
heldur tónleika í íþróttahöllinni um
kvöldið. Með tónleikunum sem hefj-
ast kl. 20.30 lýkur hátíðarhöldunum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„VIÐ VORUM útskrifuð 15. júní til þess að við gætum verið viðstödd stofnun lýðveldisins á Þingvöll-
um,“ sagði Gunnar Steindórsson, 50 ára stúdent, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann bauð bekkj-
arsystkinum sínum í heimsókn í tilefni af stúdentsafmælinu á miðvikudag. Þau eru í efri röð (f.v.)
Guttormur Þormar, Guðlaugur Þorvaldsson, Einar H. Eiríksson, Guðmundur Skaftason, Júlíus Daní-
elsson, Sverrir Markússon, Jón Þorsteinsson, Magnús T. Olafsson, Karl Jónasson, Rögnvaldur Finn-
bogason, þá kemur Gunnar og nafni hans Gunnar K. Björnsson. Sitjandi eru (f.v) Víkingur Heiðar
Arnórsson, Margrét Björgvinsdóttir, Runólfur Þórarinsson, Soffía Magnúsdóttir og Eggert Steinsen.
FERMINGARDAGUR systranna írisar og Annýjar Kjærnested á senni-
lega eftir að verða þeim afar minnisstæður því þær fermast í Þingvalla-
kirkju í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Systurnar og foreldrar þeirra,
Júlía og Harry Kjæmested, hafa verið búsett í Svíþjóð í fjögur ár.
Brautskráning 136 stúdenta
íris, sem er 14 ára, segir að
aldrei hafi annað komið til greina
en að fermast á íslandi. „Við vild-
um fermast á íslandi því þar er
fjölskylda okkar,“ segir hún og
Anný, sem er árinu yngri, segir
að þær hafi ekki getað fermst
fyrr í sumar vegna skólagöngu
sinnar í Svíþjóð. Vegna hátíðar-
haldanna á Þingvöllum hafi síðan
orðið úr að fermingin færi fram á
Þingvölium. Séra Hanna María
Pétursdóttir fermir systurnar.
Undirbúningur í Svíþjóð
Stelpurnar segjast hafa tekið
þátt í fermingarundirbúningi í
Svíþjóð. „Við tókum þátt í öllu
nema athöfninni. En presturinn
tók fram að við hefðum ekki hætt
við á síðustu stundu heldur mynd-
um við fermast á íslandi," segir
íris og bætir við að þær verði að
læra trúarjátninguna upp á nýtt á
íslensku. Hún sagðist ekki kvíða
fyrir fermingunni, a.m.k. ekki enn-
þá, hvað sem yrði þegar kirkjan
yrði orðin full. Á eftir er ferming-
arveisla á Hótel Loftleiðum. Upp-
hlutar systranna eru saumaðir af
Berthu Bruvík á Akureyri.
Sumarleiga á stúdentagörðunum
á Akureyri
Leiguverð á herbergi
Leiguverð er kr. 23.400 á mánuði. Verðið miðast við að
lágmarksleiga sé einn mánuður. Leiguverð er kr. 9.900 á
viku, lágmark ein vika. Leiguverð á sólarhring er kr. 2.300.
Leiguverð á sólarhring með uppbúnu rúmi og ræstingu er
kr. 2.600 fyrir einstakling, en kr. 3.500 fyrir par.
Gerum einnig tilboð fyrir hópa.
Farsími allan sólarhringinn 985-40787.
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri.
Ljósmyndasýning
Þá og nú
LJÓSMYNDASÝNING þar sem
Akureyrarmyndir frá 4. og 5.
áratugnum eru bornar saman
við nýjar myndir frá sama sjón-
arhorni verður í Listhúsinu Þingi
dagana 17. til 19. júní.
Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu að úr samanburði gömlu
og nýju myndanna megi lesa
mikla sögu vaxtar og breytinga.
íbúatala bæjarins hafi þrefald-
ast og athafnasemi síðustu 50
til 60 ár hafi sett mark sitt á
bæinn enda séu sum sjónarhorn
gömlu myndanna naumast
þekkjanleg lengur.
Sýningin er unnin og sett upp
af Áhugaljósmyndaraklúbbi Ak-
ureyrar, ÁLKA, í samvinnu við
Minjasafnið á Akureyri, sem lið-
ur í hátíðardagskrá vegna lýð-
veldisafmæHs.
Aðgangur að sýningunni sem
ber yfirskriftina Þá og nú er
ókeypis.
HÁTT á annað þúsund manns
sækja Akureyringa heim í tilefni
af skólahátíð Menntaskólans á
Akureyri. Hátíðin hefur staðið
í tvo daga og verður þjóðhá-
tíðardagurinn hápunktur henn-
ar. Brautskráðir verða 136 ný-
stúdentar og er áætlað að rúm-
lega 740 manns sæki hátíðar-
fagnað þeirra í kvöld. Hundruð-
ir afmælisstúdenta taka þátt í
skólahátíðinni.
Hátíðarhöldin hefjast með því
að nýstúdentar ganga fylktu liði
og undir fána Gamla skólans að
íþróttahöllinni. Dagskráin hefst
síðan kl. 10 og byijar á því að
nemendur af tónlistarbraut
leika nokkur lög. Þar á eftir flyt-
ur Tryggvi Gíslason, skólameist-
ari, ávarp, og afmælisstúdentar
ávarpa viðstadda. Því næst fer
fram brautskráning 136 nýstúd-
enta og nýstúdent heldur ávarp.
Fyrsta skóflustunga nýbygg-
ingar skólans verður tekin i
Stefánslundi kl. 13.15. Að því
tilefni flytja formaður bygging-
arnefndar og skólameistari
ávörp. Strax á eftir verða ný-
stúdentar myndaðir.
Opið hús verður í Gamla skól-
anum á milli kl. 15 og 17. Gest-
um og gangandi er boðið að
skoða húsið og muni þess, svo
og sýninguna Hús skólans í 100
ár. Bornar verða fram kaffiveit-
ingar á sal.
Hátíðarfagnaður nýstúdenta
hefst í íþróttahöllinni kl. 19.30
í kvöld. Nýstúdentar, fjölskyld-
ur þeirra og kennarar fagna
tímamótunum við hátíðarborð-
hald, dansleik og aðra skemmt-
un. Um miðnætti bregða nýstúd-
entar sér í miðbæ Akureyrar,
marsera þar og dansa um stund,
en halda að því loknu i höllina
áný.
Eins og áður segir eru nýstúd-
entarnir 136 að þessu sinni og
eru tæpur helmingur þeirra
búsettur utan Akureyrar.
B-listi og I-hsti mynda meiri-
hluta bæjarstíórnar á Dalvík
Dalvík - Nýkjörin bæjarstjórn á
Dalvík kom saman til fyrsta fundar
á sl. þriðjudag. Á fundinum lýstu
fulltrúar B- og I-lista því yfír að tek-
ist hefði samkomulag milli framboö-
anna um myndun meirihluta í bæj-
arstjóm og kynntu samstarfssamn-
ing þar að lútandi.
Samningurinn er grundvallaður á
33 atriðum er lúta að ýmsum stefnu-
Óskum eftir
leirbrennsluolni
Upplýsingar í síma 96-22711
frá kl. 10-17 alla virka daga.
Punkturinn,
handverks- og
iWTOV^BiiiffiiiAo^A iiu WlBHIií
eða framkvæmdamálum sem meiri-
hluti hyggst beita sér fyrir á kjör-
tímabilinu. í kosningum til bæjar-
stjómar hlaut B-listi þrjá menn
kjörna og I-listi tvo en bæjarstjórn
er skipuð sjö fulltrúum. Minnihluta
skipa tveir fulltrúar D-lista en hann
hafði áður þijá menn í bæjarstjórn
og hefur setið í meirihluta undanfar-
in tvö kjörtímabil.
Bæjarstjóri ráðinn fyrir
mánaðamót
Á fundinum var gengið til kjörs
forseta og bæjarráðs og var Svan-
fríður I. Jónasdóttir af I-lista kjörin
forseti bæjarstjómar og Kristján
Ólafsson af B-lista kjörinn fyrsti
varaforseti. í bæjarráð hlutu kosn-
ingu Bjarni Gunnarsson af I-lista,
Kristján Ólafsson af B-lista og Svan-
hildur Árnadóttir af D-lista. Til vara
■BHWMMHnMlnMf ó t:t r
(B), Svanfríður Jónasdóttir (I) og
Birgir Össurarson (D). Formennska
í bæjarráði fellur í hlut I-lista. Starf
bæjarstjóra verður auglýst laust til
umsóknar en ráðgert er að bæjar-
stjóri verði ráðinn fyrir mánaðamót.
Á fundi bæjarstjómar var jafnframt
samþykkt að fela endurskoðanda að
gera úttekt á fjárhagsstöðu bæjar-
sjóðs og meta ábyrgðarskuldbinding-
ar og verðgildi hlutabréfa bæjar-
sjóðs. Kjöri í nefndir á vegum bæjar-
ins var frestað til næsta fundar.
Guðsþjónusta
GUÐSÞJÓNUSTA í tengslum
við lýðveldishátíð verður í Akur-
eyrarkirkju sunnudaginn 19.
júní í kl. 11 Sungnir verða sálm-
ar 519y 526, 527, 350 og 523.
______________