Morgunblaðið - 17.06.1994, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
*
Lagadeilur Islenska útvarpsfélagsins hf. taka nýja stefnu
Ráðherra boð-
ar hluthafa-
fund Stöðvar 2
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur
falið Steingrími Eiríkssyni hrl.
að undirbúa og boða með viku
fyrirvara til hluthafafundar í Is-
lenska útvarpsfélaginu hf., þar
sem stjórn félagsins hafi ekki
farið að samþykktum félagsins
og boðað til hluthafafundar innan
tveggja vikna frá því að lögmæt
krafa kom fram um það frá þeim
hluthöfum sem nú hafa myndað
nýjan meirihluta í fyrirtækinu.
„Þetta er í samræmi við rétta
framkvæmd laga. Mér er falið
að framkvæma Iög,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er viðhorf
núverandi stjórnarmeirihluta það
að stjórn félagsins hafi í sam-
ræmi við samþykktir félagsins
samþykkt þann 10. júní að boða
til fundarins og hafi fundurinn
ekki verið boðaður hafi orðið
misbrestur á að starfsmenn fram-
fylgi ákvörðunum stjórnar. Þá
telja þeir að þeir hafi ekki notið
þess andmælaréttar sem stjóm-
sýslulög tryggi þeim áður en
ákvörðun ráðherra var tekin og
hyggist útskýra sinn málstað í
bréfi til ráðherra við fyrsta tæki-
færi og óska eftir að ákvörðunin
verði endurskoðuð.
Sigurður G. Guðjónsson hrl.
lögmaður hins nýja meirihluta
skrifaði viðskiptaráðherra bréf í
gær þar sem þessa var farið á
leit með vísan til 2. málsgreinar
70. greinar hlutafélagalaganna
þar sem segir að láti félagsstjóm
hjá líða að boða til hluthafafundar
sem halda skuli samkvæmt lögum,
félagssamþykktum eða ákvörðun
hluthafafundar skuli ráðherra láta
boða til fundarins ef stjórnarmað-
ur, fulltrúanefndarmaður, fram-
kvæmdastjóri, endurskoðandi eða
hluthafi krefjist þess. Umboðs-
maður ráðherra skuli stýra fundi
sem ráðherra lætur boða til og
sé félagsstjóm skylt að afhenda
honum hlutaskrá, fundargerðar-
bók og endurskoðunarbók félags-
ins. Ríkissjóður greiði kostnað til
bráðabirgða en félagið beri kostn-
aðinn endanlega.
Starfslokakjör Páls fundarefni
í bréfi Sigurðar G. Guðjónsson-
ar til ráðherra er rakið að hluthaf-
ar sem ráði meiru en 10% hluta-
fjár félagsins hafi 1. júní sent
Ingimundi __ Sigfússyni, stjórnar-
formanni íslenska út-
varpsfélagsins, skeyti
með kröfu um að hald-
inn verði hluthafafund-
ur til að afturkalla um-
boð núverandi stjómar
og kjósa nýja. Sam-
kvæmt samþykktum félagsins
skuli boða til fundar innan tveggja
vikna frá því að krafa komi fram
en sá frestur sé liðinn án þess að
til fundar hafi verið boðað. Þar
sem stjómin hafi látið hjá líða að
boða til félagsfundar þó henni sé
það skylt sé nauðsynlegt að við-
skiptaráðherra boði til fundarins
eins og skylt sé samkvæmt fyrr-
greindri lagagrein.
Fjallað verði um málssókn
gegn stjórnarmönnum
Jafnframt er þess óskað að í
fundarboði verði tilgreint sem
dagskrárefni, auk þess
sem framan greinir,
ráðstöfun stjórnar ÍÚ á
hlutabréfum félagsins í
Sýn hf., starfsloka-
samningur Páls Magn-
ússonar útvarpsstjóra
við íslenska útvarpsfélagið og til-
laga um málshöfðun á hendur
stjórnarmönnunum Ingimundi
Sigfússyni, Ásgeiri Bolla Kristins-
syni, Jóhanni Ola Guðmundssyni,
Stefáni Gunnarssyni og Þorgeiri
Baldurssyni ásamt varastjórnar-
mönnunum Gunnsteini Skúlayni,
Ólafi Njáli Sigurssyni og Páli
Magnússyni til heimtu skaðabóta.
Bréf Sigurðar G. Guðjónssonar
til viðskiptaráðherra er dagsett í
gær og samdægurs féllst hlutafé-
lagaskrá fyrir hönd viðskiptaráð-
herra á erindið og fól Steingrími
Eiríkssyni hrl. að undirbúa og
boða til fundarins, vera umboðs-
maður ráðherra á fundinum og
láta fundinn Ijalla um þá dagskrá
sem Sigurður G. Guðjónsson ósk-
aði eftir.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur einu sinni áður
verið boðað til hluthafafundar með
ráðherravaldi en þar var um að
ræða fund í hlutafélagi um rekst-
ur Tívolís í Hveragerði fyrir
nokkrum árum.
Morgunblaðinu tókst ekki að
ná tali af Ingimundi Sigfússyni
stjómarformanni íslenska út-
varpsfélagsins í gær en viðmæl-
andi blaðsins sem tengist núver-
andi stjórnarmeirihluta sagði
Morgunblaðinu að menn í þeim
hópi hefðu frétt af kröfu Sigurðar
G. Guðjónssonar í fréttum í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hyggst núverandi stjóm-
armeirihluti óska eftir að fá að
koma að athugasemdum við af-
greiðslu ráðherra og óska eftir að
hún verði endurskoðuð. Þeim hafi
ekki gefist kostur á að koma að
andmælum, eins og rétt sé sam-
kvæmt stjórnsýsliilögum og auk
þess hafi það ekki verið í sam-
ræmi við meðalhófsreglu stjórn-
sýsluréttar að ráðherra hafi
ákveðið að boða til fundarins í
stað þess að beina tilmælum til
stjórnar eða starfsmanna fyrir-
tækisins að boða til fundarins.
Misbrestur hjá
framk væmdastj óra
Viðhorf núverandi stjórnar-
meirihluta mun vera það að á
stjórnarfundi 10. júní, 10 dögum
eftir að krafa nýja meirihlutans
barst, hafi verið ákveðið að boða
til hluthafafundar þann 8. júlí og
þar með hafi skylda stjórnarinnar
í samræmi við samþykktir félags-
ins verið uppfyllt. Hafi síðan ekki
verið boðað til fundarins sé skýr-
ingin sú að misbrestur hafi orðið
á því að framkvæmdastjóri hafí
framfylgt ákvörðun stjórnar.
I samræmi við
rétta fram-
kvæmd
Gerðardómur vegna kröfu Skandia á
hendur Fjárfestingarfélagi Islands
Skandia fær um
25 milljónir
króna í bætur
NIÐURSTAÐA gerðardóms vegna kröfu Skandia í Svíþjóð á hendur
Fjárfestingarfélagi íslands hf. vegna uppgjörs á kaupverði hlutabréfa
í Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins fékkst síðastliðinn þriðjudag.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var niðurstaðan hagstæð Skan-
dia sem fær greiddar 25 milljónir króna í bætur.
AT&Tteng-
istímarg-
miðlun
New York. Reuter.
AT&T-símafélagið í Bandaríkj-
unum hefur boðið upp á þjón-
ustu, sem mun flýta fyrir teng-
ingu tölvu, fjarskipta og mynd-
bands. Með WorldWorx-þjón-
ustu AT&T verður hægt að
senda myndbandsmerki eftir
sama streng og upplýsingar og
tal. Þannig mun fólk, sem vinnur
við tölvur á ólíkum stöðum, geta
skipztá upplýsingum, séð hvort
annað á myndhandi og talað
saman. Svokallaðar myndbands-
ráðstefnur verða þar með auð-
veldari. Um leið mun WorldW-
orx-kerfi AT&T stækka markað
nokkurra tölvu- og hugbúnaðar-
ATVINNULAUSUM í Finnlandi
fækkaði í 19% í maí úr 19,5%
mánuðinn á undan samkvæmt
opinberum tölum.
Alls voru 478.700 án atvinnu í
Finnlandi, þar sem við mikinn
fyrirtækja. Apple er eitt átta
tölvufyrirtælga, sem hafa heitið
hinu nýja kerfi ÁT&T stuðningi
auk fjölda annarra þekktra
fyrirtækja.
ríkjunum sálugu varð að engu.
Fram að þeim tíma var meiri
hagvöxtur í Finnlandi en flestum
öðrum Vesturlöndum og atvinnu-
leysi 3-4%.
Búizt er við hagvexti á ný á
Skandia keypti Verðbréfamark-
aðinn af Fjárfestingarfélagi ís-
lands vorið 1992. 1. október sama
ár tilkynnti Skandia um riftun á
kaupsamningi þar sem félagið
taldi að eignir verðbréfasjóða í
umsjón Verðbréfamarkaðarins
hefðu verið ofmetnar um 163 millj-
ónir króna. Sjóðunum var lokað
nokkrum dögum eftir að Skandia
tilkynnti um riftunina og þegar
þeir voru opnaðir aftur tveimur
vikum síðar var gengi þeirra fellt
um þriðjung.
Um mitt sumar 1993 lagði
Skandia síðan fram kröfur á hend-
Ur Fjárfestihgarfélaginu vegna
uppgjörs á kaupverði hlutabréfa í
Verðbréfamarkaðnum Eins og
kom fram í fréttum á þeim tíma
taldi stjórn Fjárfestingarfélagsins
kröfur Skandia í engu samræmi
við samninga aðila og með öllu
óaðgengilegar. í kjölfarið var
ágreiningi félaganna vísað til sér-
staks gerðardóms, eins og kveðið
hafði verið á um í kaupsamningi.
Upphaflega var búist við að niður-
staða gerðardóms lægi fyrir haust-
ið 1993 en það var hins vegar
ekki fyrr á þriðjudag sem hún
fékkst. Þeir aðilar sem að málinu
komu vildu ekki tjá sig um það í
samtali við Morgunblaðið í gsér.
19% Fimm án atvinnu
Helsinki. Reuter.
samdrátt hefur verið að etja síðan þessu ári, en líklega mun lítið
1991 þegar markaðurinn í Sovét- draga 'úr átvinhúléýsi.
Hagnað-
arvon hjá
IATA
Genf Reuter.
FLUGFÉLÖG heims reyna að
vinna bug á samdrætti og
kunna að hafa skilað hagnaði í
fyrsta skipti í fimm ár í fyrra
að sögn eins æðstu stjórnenda
Alþjóðasambands flugfélaga,
IATA.
Tom Murphy fjármálastjóri
sagði á blaðamannafundi að
bætt ástand í fyrra benti til
þess að hagnaður af millilanda-
flugi á árinu hefði numið einum
milljarði dollara. „Vísbending-
arnar eru mjög uppörvandi,"
sagði hann, „en smávegis breyt-
ingar á þeim góðu tölum, sem
eru að berast, gætu breytt
heildarmyndinni.“
Murphy sagði að farþega-
fjöldi fyrstu fjóra mánuðina
hefði aukizt um 8% og lausum
sætum fjölgað um 5%. Hann
sagði að ef þessi aukning hefði
haldizt út árið kynni nettóhagn-
aður í árslok að hafa numið
einum milljarði dollara, en hann
lagði áherzlu á að um ágizkun
væri að ræða.
í fyrra töpuðu 224 aðilarfélög
IATÁ — það er hartnær öll flug-
félög heims — 4,1 milljarði doll-
ara á millilandaflugi. Á undan-
förnum fíórum árum hefur tap-
ið numið 15,6 milljörðum doll-
ara.
Verkföll hjá
Hyundai
Suður-Kóreu. Reuter.
EFNAHAGSBATI hefur verið
örari en við hefur verið búizt í
Suður-Kóreu, en óttazt er að til
ólgu komi á vinnumarkaði í
sumar þegar verkalýðsfélög
munu leggja áherzlu á kröfur
um kjarabætur í árlegum iauna-
viðræðum. Bendingar um yfir-
vofandi óigu eru greinilegastar
hjá mörgum helztu dótturfyrir-
tækjum hinnar voldugu Hy-
undai-fyrirtækjasamsteypu.
Sífellt dregur úr líkum á því
að Hyundai takist að ná því
takmarki að losna í fyrsta skipti
við verkföll í eitt ár. Félag
verkamanna Hyundai, FLHU,
kveðst reiðubúið til baráttu
gegn stjórn fyrirtækjasam-
steypunnar ef launaviðræður við
einstök dótturfyrirtæki fari út
um þúfur. FLHU krefst þess að
laun starfsmanna verði hækkuð
um 99,478 won (122.80 dollara)
eða 12.6%, en enginn árangur
hefur náðst á átta samninga-
fundum.
Hag’fræði-
brautryðj-
andi allur
Amsterdam. Reuter.
JAN TINBERGEN, hollenzkur
Nóbelsverðlaunahafi og braut-
ryðjandi í hagfræði, er látinn,
91 árs að aldri.
Nóbelsverðlaun sín hlaut Tin-
bergen 1969 ásamt Norðmann-
inum Ragnar Frisch fyrir að
hleypa stærðfræðilegum sjónar-
miðum inn í hagfræðina.
Þegar Tinbergen starfaði í
Genf fyrir Þjóðabandalagið á
fjórða áratug aldarinnar samdi
hann mikið tölfræðilegt rit um
hagsveiflur. Hann varð braut-
ryðjandi hagmælinga og rann-
sókna og brezki hagfræðingur-
inn John Maynard Keynes gagn-
rýndi bók hans. Sjónarmið Tin-
bergens nutu ekki virðingar fyrr
en laust fyrir 1960.
Bróðir Tinbergens hlaut Nó-
belsverðlaun í líffræði og annar
bróðir hans dýrafræðiprófessor.