Morgunblaðið - 17.06.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Lífvörðurinn
og forsetafrúin
KVIKMYJNDIK
Stjömubíó
TESSí PÖSSUN
(„Guarding Tess“) ★ ★ ★
Leikstjóri: Hugh Wilson. Handrit:
Wilson og Peter Torokvei. Framleið-
andi: Ned Tannen og Nancy Graham
Tannen. Aðalhlutverk: Shirley
MacLaine, Nicolas Cage, Austin
Pendleton, Edward Albert, James
Rebhorn. Tri Star. 1994.
ÞAÐ ER ekki oft sem bandarískar
myndir koma jafn ánægjulega á
óvart og Tess í pössun. Lengst af
hefur maður ekki hugmynd um hvert
hún stefnir en áður en líkur hefur
henni tekist á einhvern undarlegan
hátt að vera sambland af ellismellin-
um Ekið með Daisy og lífvarðamynd-
inni I skotlínu. Lengi framan af,
reyndar alltof lengi því hún tekur
sinn tíma að snúa sér að efninu,
stefnir hún í nokkurskonar ellidrama
þar sem ungur forsetalífvörður (Nic-
olas Cage) gætir roskinnar fyrrum
forsetafrúar (Shirley MacLaine), sem
álitin er þjóðargersemi. Hún hefur
allt á hornum sér og samskipti þeirra
eru í besta falli stirðleg en lýst á
gamansaman hátt. Hann hatar það
að sitja fastur í neti kerlingar, sem
vill alls ekki láta hann fara, hún
hatar lífverði yfirleitt og það að fá
aldrei að vera í friði fyrir þeim. En
uppúr miðri mynd er skassinu rænt
og við tekur hin ánægjulegasta
spennumynd.
Slíkar sviptingar í frásögn eru í
hæsta máta óvenjulegar því myndin
fær allt annan svip og þá magnast
kraftur stuðsins. Fyrri hlutinn ein-
kennist af gamansömum naggstíl þar
sem sambandi lífvarðarins og forset-
afrúarinnar er líst á grínaktugan
máta en síðari hlutinn er afar alvöru-
gefin mannránssaga þar sem brúna-
þungir FBI-menn i öllu sínu veldi
taka við stjórn. Þessi svipting í frá-
sögninni er áhættusöm en gengur
ágætlega upp hér því spennan í
seinni hlutanum reiðir sig algerlega
á það samband aðalpersónanna sem
búið var að byggja upp í fyrri hlutan-
um.
Gamansemin stólar mikið á þá
stöðu sem aumingja lífvörðurinn
finnur sig í þegar sjálfur forsetinn
þarf sífellt að vera að hringja í hann
vegna umkvartana fyrrum forset-
afrúar. Cage gerir góða hluti sem
maður á milli steins og sleggju; frúin
verður að fá sínu framgengt þótt
slaka verðh á kröfum annars bíður
forsetinn í símanum. Shirley MacLa-
ine er líka skemmtileg sem forset-
afrúin fyrrverandi og hún lýsir vel
konu, sem skyndilega er horfin úr
sviðsljósinu og hefur einangrað sig
með minningum sínum. Gamninu hér
fylgir talsverð alvara, sem er enn ein
íjöður í hattinn, og einmitt á réttu
andartaki lætur leikstjórinn og hand-
ritshöfundurinn, Hugh Wilson, mann
skilja af hveiju hún rembist við að
halda í lífvörð sem greinilega vill
ekkert hafa með hana að gera.
Tess í pössun reynir að forðast
klisjurnar sem mest hún má og tekst
það með óvenjulegri sögu og góðri
persónusköpun. Og það er gaman
að henni þótt teygjast vilji á frásögn-
inni í fyrri hlutanum. Það sakar ekki
mikið þegar allt er komið í kring.
Arnaldur Indriðason
iviurgunuiaoio/ rvnsuni)
Fyrsta eintakið afhent
GUÐJÓN Magnússon, formaður Rauða krossins, afhendir frú Vig-
dísi Finnbogadóttur, forseta Islands, eintak af Mannréttindabók-
inni. Hrafn Bragason, forseti Hæstaréttar og Salome Þorkels-
dóttir, forseti Alþingis, fengu einnig afhent eintök.
íslensk kennslubók um alþjóðleg mannréttindi
Mannréttindakennsla
stuðlar að betra mannlífi
RAUÐI krossinn hefur gefið út fyrstu íslensku kennslubókina um ajþjóðleg
mannréttindi, sem nefnist einfaldlega Mannréttindi og Agúst Þór Arnason
setti saman. Einnig koma út verkefnahefti og verður upplag þeirra og bókar-
innar 5.000 eintök, en Námsgagnastofnun mun annast dreifingu í efri bekkj-
um grunnskóla. Bókin hefur verið aflient forseta Islands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, og einnig tveimur af þremur handhöfum forsetavalds, þeim
Salome Þorkelsdóttur, forseta Alþingis, og Hrafni Bragasyni, forseta Hæsta-
réttar.
Guðjón Magnússon, formaður
Rauða kross íslands, afhenti bókina
og rakti tilurð hennar og tilgang, og
sagði það í senn ljúft og skylt fyrir
Rauða krossinn að standa að útgáf-
unni. „Rauði krossinn telur að
kennsla í mannréttindum stuðli að
betra mannlífi. Markmið hennar er
að aukna skilning, umburðarlyndi og
vináttu milli þjóða, kynþátta og trú-
arhópa og stuðla þar með að friði í
heiminum," sagði Guðjón.
Mörg samtök aðstandendur
Fyrir u.þ.b. þremur árum hélt
Rauði kross íslands málþing um
mannréttindi og Genfarsáttmálann
um alþjóðleg mannúðarlög, en starf
Rauða krossins í þágu striðsfóma-
lamba byggist á ákvæðum sáttmál-
ans. Meðal annars kom fram sú skoð-
un á málþinginu, að alfarið skorti
heildstætt rit um mannréttindi í land-
inu og þyrfti að ráða bót á þessu og
semja kennsluefni um mannréttinda-
mál fyrir nemendur á grunnskóla-
stigi.
Rauði krossinn boðaði síðan til
fundar með fulltrúum íslandsdeildar
Amnesty lnternational, Þjóðkirkj-
unnar, Félags Sameinuðu þjóðanna,
menntamálaráðuneytisins og Náms-
gagnastofnunar um slíka útgáfu.
Fleiri samtök sýndu málinu áhuga,
og var Ágúst Þór, fréttamaður sem
á að baki nám í réttarheimspeki við
Die Freie Universitat í Berlín, feng-
inn til að skrifa bókina.
Sýningin Kon-
ur við stýrið
Á KVENRÉTTINDADAGINN,
sunnudaginn 19. júní, verður opnuð
ljósmyndasýningin, Konur við stýrið
í Geysishúsinu á 2. hæð.
Sýndar verða ljósmyndir af konum
við stýri margvíslegra farartækja frá
ýmsum tímum og stendur hún til 26.
júní.
Geysishús, SVR og BSÍ bjóða kon-
um í skoðunarferð um samgöngu-
minjastaði borgarinnar. Ókeypis að-
gangur.
A
Þjóðhátíðarhöld í
Kópavogi 18. júní
10:00 Skólahljómsveit Kópavogs leikur við Kópavogshælið og
á sama tíma hefst víðavangshlaup fyrir 16 ára og yngri
við Vallargerðisvöll.
11:00 Verðlaun fyrir víðavangshlaupið verða afhent á Rútstúni.
13:30 Skrúðganga leggur af stað frá Menntaskólanum í
Kópavogi á Rútstún.
Skólahljómsveit Kópavogs leikur fyrir göngunni ásamt
unglingahljómsveit frá Norrköbing, vinabæ Kópavogs í Svíþjóö.
14:00 Útihátíð á Rútstúni.
1. Skólahljómsveit Kópavogs og unglingahljómsveit frá Norrköbing leika.
2. Guöni Stefánsson, forseti bæjarstjórnar, flytur hátíöarræðu.
3. Börn úr dansskóla Hermanns Ragnars dansa þjóölega dansa við
íslenska tónlist.
4. Ávarp fjallkonunnar.
5. Skilaboðaskjóðan - Leikarar úr Þjóðleikhúsinu flytja söngva og dansa
dverganna úr leikritinu.
6. Nýstúdent flytur ávarp.
7. Furðufjölskyldan flytur leikþætti, meðal annars túlkar hún atriði úr
Njálu að eigin hætti.
8. Óperusmiðjan - hópur úrvalssöngvara flytur nokkur lög undir forystu
Sigurðar Bragasonar og við undirleik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur.
Auk þessarar formlegu dagskrár verður margt til skemmtunar á Rútstúni. Þar á
meðal má-nefna: Skátar reka Tívolí. Hjálparsveit skáta verður með sýningu og
aðrar uppákomur á hátíðarsvæðinu og selur veitingar í stóru tjaldi. Börn úr
fimleikadeild Gerplu sýna fimleika. Keppni í götubolta og skotkeppni fyrir alla
aldurshópa verður við Valiargerðisvöll í umsjón körfuknattleiksdeildar Breiðabliks.
Skráð verður í keppnina á staðnum.
21:00 Útidansleikur í Hamraborg.
Þar leika þrjár hljómsveitir fyrir dansi til miðnættis. Þær eru:
Alvaran, söngvarar Rut Reginalds og Örvar Grétarsson,
Spoon, söngkona Emiliana Torrini og
Scope, söngkona Svala Björgvinsdóttir.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND KÓPAVOGS
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994 27