Morgunblaðið - 17.06.1994, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
Yfirburðir
meistara ÍA
Bibercic með þrennu gegn nýliðunum
ÍSLANDSMEISTARAR Skagamanna sýndu allar sínar bestu hlið-
ar, þegar nýliðar Breiðabliks komu í heimsókn í gærkvöldi, og
höfðu algjöra yfirburði á öllum sviðum. Meistararnir unnu örugg-
an 6:0 sigur, en hefðu getað unnið með enn meiri mun, ef þeir
hefðu nýtt öll þau dauðafæri, sem þeir sköpuðu sér. En sigurinn
var stór og Skagamenn eru með þriggja stiga forystu eftir sex
umferðir í 1. deild.
Sigþór
Eiríksson
skrifar
frá Akranesi
Það var ljóst strax í byijun hvert
stefndi og eftir aðeins 20. mín-
útna leik var staðan 2:0. Heimamenn
spiluðu hreint frá-
bærlega á köflum,
knötturinn gekk
manna á milli og
sóknarloturnar
buldu á nýliðunum. Fyrir utan mörk-
in þrjú í fyrri hálfleik varði Guð-
mundur meistaralega skalla frá Ólafi
þdolfssyni og Pálmi Haraldsson
komst inn fyrir vörn gestanna en
skaut framhjá. Breiðablik fékk nán-
ast sitt eina marktækifæri um miðj-
an hálfleikinn, en þá skaut Guð-
mundur Guðmundsson framhjá úr
dauðafæri eftir fyrirgjöf frá Lasorik.
Örlítið jafnræði var með liðunum
í byijun seinni hálfleiks, þegar
Knattspyrnuráð
Reykjavíkur
Skagamenn tóku lífinu með ró. En
fljótlega skiptu þeir um gír og náðu
öílum völdum á ný og afgreiddu
nýliðana endanlega með þremur
mörkum á níu mínútna kafla.
Heimamenn hefðu getað bætt enn
við í lokin, en þá brenndu Sigur-
steinn Gíslason og Bibercic af úr
■ dauðafæri og Kári Steinn Reynisson
átti skot í stöng.
Skagamenn sýndu fyrri styrk og
hafa ekki leikið betur í sumar. Liðið
var mjög samstillt og oft á tíðum
var hrein unun að sjá hvernig boltinn
gekk manna á milli án þess að mót-
heijarnir fengu rönd við reist.
Hins vegar átti Breiðablik aldrei
möguleika að þessu sinni enda við
ofurefli að etja, þegar meistaramir
eru í þessum ham.
íþróttabandalag
Reykjavíkur
Hátíðarhöld 19. júní
Liður í 50 ára afmæli lýðveldisins,
50 ára afmælis ÍBR og 75 ára afmæli KRR.
Laugardalsvöllur — aðalleikvangur ld. 14.00
REYKJAVÍKURÚRVAL — LANDSLIÐ STÚLKNA
Laugardalsvöllur — aðalleikvangur kl. 16.00
REYKJAVÍKURÚRVAL — LANDIÐ meistarafl. karla.
Valbjarnarvöllur kl. 10.00-16.00
ÚRSLITALEIKIR í REYKJAVÍKURMÓTI 6. FL. KARLA.
KRR/ÍBR
W
m
c ,
Dunnudaginn 119. JUDHl á
Keilisvellinum í Hafnarfirðl
Keppnisfyrirkomulag:
Höggleikur með og án forgjafar
Glæsileg uerðlaun fyrír I. 2. og 3 saeti.
Aukaverðlaun:
Næst holu á öllum par 3 brautum
Ræst verður út frá kl 8.00
Kynníng verður á MAARUD
snahki og PRIPPS
bjór.
Skráning er j golfskála í síma 653360
Mlhjalo Biberclc stóð sig vel í gærkvöldi eins og allir hjá IA og var með
þrennu gegn nýliðum Breiðabliks.
1B^\Haraldur Ingólfsson tók hornspymu frá vinstri á 7. mínútu
■ \#og Olafur Adolfsson skallaði af öryggi í markið rétt utan
markteigs.
2* JVÁ 18. mínútu óð Sigursteinn Gíslason upp vinstri vænginn
■ %#og renndi inn á miðjuna á Bibercic. Hann sendi viðstöðu-
laust á Harald á vinstri kantinum, sem lék að endamörkum og sendi
síðan fastan jarðarbolta fyrir markið. Þar sneiddi Bjarki Pétursson
boltann innanfótar í fjærhomið. Glæsilega að verki staðið.
3B#%Haraldur Ingólfsson var með fyrirgjöf frá vinstri á 37.
■ \#mínútu. Bibercic skallaði að marki, en boltinn fór i Guð-
mund markvörð og aftur út í teiginn. Þar var Bjarki Pétursson rétt-
ur maður á réttum stað og skoraði af öryggi.
61. mínútu var Haraldur enn á ferðinni upp vinstri væng-
■ ^#inn. Hann átti góða sendingu beint fyrir fætur Bibercic,
sem þrumaði knettinum upp í þaknetið.
á 67. mínútu
öryggi í netið.
5«^\Óiafur Þórðarson gaf fyrir markið frá hægri á
■ \#og Bibercic, sem var við vítapunkt, skaliaði af ö
6B#\Mikil mistök áttu sér stað í vörn Breiðabliks á 70. mínútu.
■ ^#Einn vamarmanna ætlaði að hreinsa frá marki, en renndi
knettinum þess í stað beint fyrir fætur Ólafs Þórðarsonar, sem var
rétt utan vítateigs. Hann sendi strax á Bibercic, sem var fyrir opnu
marki og átti ekki í vandræðum með að gera þriðja mark sitt í leiknum.
UM HELGINA
Knattspyrna
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Ásvellir kl. 14...........Haukar - Höttur
Kópavogurkl. 14.............UBK - Valur
KR-völlur kl. 14................KR - ÍA
Dalvikkl. 16...........Dalvík - Stjarnan
2. deild kvenna:
Selfosskl. 14...........Selfoss - Reynir
Varmárvöllurkl. 14......Afturelding - Bl
Siglufj. kl. 16................KS - ÍBA
Sauðárkr. kl. 17.....Tindastóll - Leiftur
4. deild kl. 14:
Helgafellsv......Smástund - Afturelding
Þorlákshöfn.................Ægir - Grótta
Grýluvöllur............Hamar - Árvakur
Ólafsvík.................. Víkingur - GG
Njarðvík........._.Njarðvík - Framheijar
Laugavöllur.................HSÞb - Neisti
Siglufjörðurkl. 15.............,KS - Hvöt
Sauðárkrókur...............Þrymur - Magni
Djúpavogsv...................Neisti - KBS
Vopnafjörður..............Einheiji - UMFL
Seyðisfjörður.............Huginn - Sindri
■Nýr grasvöliur verður vígður á Eskifirði
kl. 14 á laugardaginn. Þá tekur styrkt lið
heimamanna í Austra á móti íslands- og
bikarmeisturum ÍA. Þeir sem fengnir verða
heimamönnum til aðstoðar eru Þorvaldur
Örlygsson leikmaður með Stoke í Englandi
og Lárus Sigurðsson markvörður Vals.
Einnig verða Austramenn með leynivopn
sem teflt verður fram á siðustu stundu.
Sunnudagur:
1. deild karla:
Garðabærkl. 17............Stjarnan - fBV
2. deild karla:
Þróttarv. kl. 14.........Þróttur - Selfoss
Neskaupst. kl. 14...........Þróttur - KA
Ólafsfjörður kl. 14.........Leiftur - HK
Einheiji
Höttur
4. deild kl. 14:
Leiknisvöllur..........Leiknir - Snæfell
■í tilefni 75 ára afmælis KRR leikur úr-
valslið Reykjavíkur gegn úrvalsliði lands-
byggðarinnar á Laugardalsvelli kl. 16 á
sunnudag. Kl. 14 hefst viðureign U-16 ára
landsliðs kvenna gegn blönduðu liði Vals
og KR á Laugardalsvelli og er þetta loka-
undirbúningur landsliðsins fyrir Norður-
landamótið, sem verður sett 23. júní á
Akureyri.
Mánudagur.
3. deild karla:
Valbjarnarv. kl. 20.....Fjölnir - Haukar
Frjálsar
Reykjavíkurleikar
Reykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum
verða haldnir á Laugardalsvelli laugardag-
inn 18. júní. Þeir hefjast klukkan 13 og
lýkur klukkan 17. Allt sterkasta fijáls-
íþróttafólk landsins tekur þátt auk um 70
erlendra keppenda. Meðal keppenda verða
Raymond Hecht spjótkastari sem á lengsta
kast ársins, kúluvarparinn Dragan Peric,
kringlukastararnir Mike Buncic og Nick
Sweeney. Búist er við spennandi keppni í
flestum greinum, t.d. í 3000 metra hlaupi
kvenna þar sem Martha Emstsdóttir keppir
við margar sterkar erlendar hlaupakonur.
Sund
Opna Reykjavíkurmótið
Opna Reykjavíkurmótið í sundi verður hald-
ið í Laugardalslauginni um helgina. Það
hefst klukkan 10 laugardaginn 18. júní og
því verður síðan framhaldið sunnudaginn
19. kl. 15. Tólf erlendir sundmenn mæta
til leiks ásamt nær öllu besta sundfólki
landsins.
Götuhjólreiðar
2. umferð bikarkeppninnar
2. umferð bikarmeistarakeppninnar í götu-
hjólreiður fer fram sunnudaginn 19. júní
go hefst kl. 10. Hjólað verður frá Reykja-
vík til Akraness í A-flokki en að rir flokkar
byija við Botnsskála í Hvalfirði. Mæting
hjá öllum við Húsgagnahöllina kl. 9.
Fylkisvöllur kl. 18 Fyl 2. deild kvenna kl. 14:
Reyðarfj 3. deild karla kl. Valur 14: BÍ
Garðsvöllur Víðir - T
MT
Ofært frá Vestmannaeyjum
Ekki var hægt að fljúga frá Vestmannaeyjum í gær vegna þoku og
varð því að fresta fyrirhuguðum leik Stjörnunnar og ÍBV í Garðabæ.
Leikurinn hefur verið settur á kl. 17 á sunnudag.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
IMew York jafnaði aftur
NEW York Knicks vann Houston Rockets 91:82 ífjórðu viðureign
liðanna um „heimsmeistaratitilinn" í körfuknattleik. Staðan er
því 2:2 og leika liðin að nýju aðfararnótt laugardagsins í New
York en halda si'ðan til Houston þar sem þau leika sjötta, og ef
til vill síðasta leikinn, aðfararnótt mánudags.
Eins og svo oft áður var það
bakvörðurinn John Starks sem
bjargaði heimamönnum því’hann
gerði 10 af 20 stigum sínum síð-
ustu fjórar mínútur leiksins. Derek
Harper, sem gerði 21 stig, átti einn-
ig góðan dag, og hann ásamt Starks
átti mestan þátt í að Knicks vann
síðustu mínúturnar 19:10. Oakley
gerði 16 stig og tók 20 fráköst en
Ewing gerði 16 stig en hitti aðeins
úr 8 af 28 skotum. Hann tók einn-
ig 15 fráköst áður en hann fékk
sjöttu villu sína. Hjá Hoústön ýar
Olajuwon með 32 stig og þar af
gerði hann 14 af 21 stigi liðsins í
síðasta fjórðungi. Maxwell gerði 12
stig og Thorpe tók 10 fráköst.
„Eg held að miðherjarnir Ewing
og Olajuwon jafni hvorn annan út
þannig að það verði leikur bakvarð-
anna sem skiptir mestu máli í þeim
leikjum sem eftir eru,“ sagði bak-
vörðurinn Starks eftir leikinn.
Knicks leiddi frá byijun en í
þriðja leikhluta skoruðu gestirnir
14:1 og komust yfir, en Knicks
náði forystunni fyrir síðasta fjórð-
ung og síðan skiptust liðin á um
að hafa hana.
Rudy Tomjanovich, þjálfari Roc-
kets var bjartsýnn á framhaldið.
„Mínu liði hefur alltaf gengið vel
eftir að það hefur leikið einn leik
illa, ég er því bjartsýnn," sagði
hann.
Ewing lék vel fyrir Knicks og
af mun meiri ákveðni en í fyrri leikj-
um. Knicks tók 50 fráköst en Roc-
kets aðeins 33 og munar þar mestu
í sóknarfráköstunum en þar tóku
heimamenn 21 á móti 7 fráköstum
gestanna. Leikmenn reyndu mik-
ið að skora úr þriggja stiga skotum
og samtals voru reynd 37 slík skot
sem er nýtt met í úrslitaleik í NBA.
Bakverðir Knicks gerðu 45 stig en
bakverðir Houston aðeins 22.