Morgunblaðið - 17.07.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1994 9
FRÉTTIR
Sameiginleg kynning bankastofnana á notkun debetkorta
Ekkí minnst á annmarka
HVERGI í sameiginlegu kynningar-
efni banka og greiðslukortafyrir-
tækja um debetkort er getið um að
í ýmsum þjóðlöndum er notkun de-
betkorta lítt eða ekki möguleg, eins
og komið hefur fram seinustu daga.
Þannig segir í bæklingnum Deb-
etkort — íjögur kort í einu, að
„bankar og sparisjóðir gefa út Deb-
etkort í samvinnu við greiðslukorta-
fyrirtækin Eurocard og Visa og
tengist korthafi þannig alþjóðlegu
þjónustuneti þeirra“. Korthafi geti
„notað Debetkort sem hraðbanka-
kort og tekið út reiðufé bæði hér á
landi og erlendis" og erlendis geti
hann „tekið út reiðufé upp að
ákveðnu marki í bönkum sem eru
með viðskipti við Eurocard eða Visa
og taka við Debetkortum merktum
Maestro/Cirrus eða Electron“.
Á forsíðu kynningarbæklings um
Maestro-debetkort, er það sagður
„snjall leikur að hafa kreditkort frá
öðru fyrirtæki — en debetkort frá
öðru“. Með því móti tryggi korthafi
sér aðgang að fleiri en einu
greiðsluneti um allan heim. Einnig
að „debetkort eru nýjung á íslandi
en hafa rutt sér mjög hratt til rúms
undanfarin ár erlendis.“
I bæklingnum segir m.a. að kort-
ið sé „lykillinn að tékkareikningi
þínum hvar sem þú ert í heimin-
um“, og: „Hjá söluaðilum erlendis
er víða lögð áhersla á korthafar
noti leyninúmer í stað undirskrift-
ar“ og undir millifyrirsö^ninni
„engin gengisáhætta“ segir að
reikningur korthafa sé „skuldfærð-
ur sama dag og þú greiðir eða tek-
ur út fé með debetkortinu — einnig
ef þú ert erlendis. Þú tekur enga
gengisáhættu því sérhver úttekt er
umreiknuð í íslenskar krónur á al-
mennu gengi dagsins." Önnur milli-
fyrirsögn segir að kortið sé „þægi-
legt sé dvalið langdvölum erlendis"
og sá boðskapur endurtekinn í
texta.
í kynningarbæklingnum segir
ennfremur að með „Maestro debet-
kortinu þínu getur þú greitt fyrir
vörur og þjónustu á íslandi og um
Dagskrá í
Fjölskyldu-
og húsdýra-
garðinum
í FJÖLSKYLDU- og húsdýragarð-
inum í Reykjavík um þessa helgi
er sérstaklega lögð áhersla á fróð-
leik um dýr og vinnslu á ull.
Furðufjölskyldan verður með
sýningu í dag kl. 14.30. Fjölskyld-
an túlkar söguna „Njálu“. Þetta
er kveðjuhelgi Furðuljölskyldunn-
ar. Kl. 16.00 heldur Logi Jónsson
lífeðlisfræðingur fyrirlestur við
selalaugina. Ætlar hann að segja
gestum frá köfun manna og sela
um leið og selunum Snorra, Kobbu
og Sæfinni er gefið að éta. Fyrir-
lesturinn er ætlaður allri ijölskyld-
unni.
Á mánudaginn kl. 20.00 verður
haldið mót í axlatökum á vegum
Glímusambands íslands í fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum. Oll-
um er boðin þátttaka í þessu móti
og er keppt í 3-4 þyngdarflokkum.
Opið er frá kl. 10.00-21.00.
allan heim. Yfir 240.000 fyrirtæki þú getur tekið út reiðufé í öllum
taka við Maestro og þeim íjölgar hraðbönkum í heiminum sem bera
óðum“. Loks segir að „Cirrus merk- sama merki. Næsti Cirrus hrað-
ið á debekortinu þínu tryggir að banki er ávallt skammt undan“.
Saab 9000 Turbo árg. '88
Til sölu vegna brottflutnings á mjög góðu verði bíll hlaðinn aukahlutum.
A sama stað er til leigu hársnyrtistofa. Leigist með tækjum.
_____________________________________________Upplýsingar í síma 650271.
VOLVQ 440/460
Mest seldi bíll í sínum stœrharflokki 1994
Öruggur metsölubíll á
frábæru júlítilboði!
24 bílar með 83.285 kr. kaupauka
Volvo 440/460 var kynntur með 2.0 lítra vél í janúar 1993 og hefur hann átt
vaxandi vinsældum að fagna síðan þá. Árið 1993 var Volvo 440/460 þriðji
mest seldi bíllinn hér á landi en það sem af er þessu ári hefur hann skotið
keppinautunum ref fyrir rass og er nú sá mest seldi í sínum stærðar- og
vélarflokki. Samtals hafa selst 176 bílar af þessari gerð á þessu tímabili og
markmiðið er að ná 200 bíla markinu fyrir næstu mánaðarmót.
3-1- »ult
NioTT^Ap OG
V^OS^&UT
Kaupauki að
verðmæti
83.285 kr.
Volvo 440 kostar frá 1.519.000 kr. stgr.
Volvo 460 kostarfrá 1.569.000 kr.stgr.
Á BETRA VERÐI FYRIR Þ I GI
FAXAFENI 8 * SÍMI 91- 685870
dídé
Kringlunni 8—12, sími 689260.
Utsalan
hefst á morgun
dídó
Kringlunni 8—12, sími 689260.
1