Morgunblaðið - 17.07.1994, Qupperneq 26
r 26 SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR MAACK
+ Gunnar Maack
fæddist I
Reykjavík þann 14.
mars 1954. Hann
lést á Landspítalan-
um hinn 8. júlí síð-
astliðinn. Gunnar
var yngsti sonur
hjónanna Karls
Maack húsgagna-
smiðs, f. 15.2. 1918,
og Þóru Maack hús-
móður, f. 31.10.
1919, d. 2. mars
1994. Gunnar
kvæntist 16. sept-
ember 1978 eftirlif-
andi eiginkonu sinni Eygló
Baldursdótur, f. 27.9. 1954, og
eignuðust þau tvo syni, Baldur,
f. 9.6. 1979, og Karl, f. 9.2.
1983. Eldri bræður Gunnars
eru verkfærðingarnir Pétur, f.
1.1. 1946, og Runólfur, f. 15.11.
1949. Gunnar lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1974 og prófi í við-
skiptafræðum frá Háskóla Is-
lands 1978. Strax að
loknu námi árið
1978 hóf hann störf
hjá ráðgjafafyrir-
tækinu Hagvangi og
upp úr því félagi
stofnaði hann ásamt
þremur samstarfs-
mönnum sínum nýj-
an Hagvang hf. árið
1986. Gunnar varð
framkvæmdasjóri
þessa nýja félags og
rak það ásamt fé-
lögum sínum allt til
dauðadags. Sér-
grein hans var
markaðsrannsóknir og kánnan-
ir viðskiptalegs eðlis. Gunnar
var mikill útivistarmaður og
stundaði stangveiði, ferðalög til
fjalla og íþróttir allt þar til hann
kenndi sjúkdómsins fyrir fimm
mánuðum síðan. Hann keppti
og starfaði í skíðadeild KR eins
og báðir synir hans gera. Utför
Gunnars verður gerð frá Há-
teigskirkju á morgun.
VIÐ FRÁFALL Gunnars Maeek
rifjast upp minningar um kraftmik-
inn og spaugsaman vin. Leiðir okk-
ar lágu saman í M.H. og í bekk
*"Mneð Gunnar innbanborðs myndað-
ist engin lognmolla. Stundvísi,
dugnaður og lúmskt skop voru
megineinkenni hans. Ógleymanleg-
ir voru t.d. tímar í vélritun og
stjömufræði. Þá var erfitt að segja
fyrir um hvort við værum stödd í
menntastofnun eða á æfíngu fyrir
gamanleikrit.
Gunnar var með afbrigðum fé-
lagslyndur, léttur í lund og sinnti
fjölmörgum áhugamálum. Hann var
öflugur íþróttamaður og þá sérstak-
^Mega á skíðum og hafði einstakt lag
við að ná upp ijöri á kvöldvökum.
Gunnar var liðtækur bridsspilari
rh — Krossar á leiði
I viSarlit og m Mísmunandi mynsnjr, Sími 91-35929 □bðir. vönduo vinna. og 35735
og það var ekki ónýtt að hafa hann
við hlið sér þegar leikið var gegn
landsliðsköppum úr öðrum skólum.
Á síðari árum sótti hugur hans
æ meira í laxveiði og þá gjarnan
með fjölskyldunni, en það var ein-
kennandi hve vel hún hélt saman.
í stúdentsprófunum gengum við
í röð að græna borðinu og hvöttum
hvor annan til dáða og var það
ómetanlegur styrkur.
Ég vil að lokum þakka ánægju-
lega samfylgd um leið og ég sendi
föður hans, Eygló, sonum og skyld-
fólki mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Björn Árnason.
Ég viðkvæmt man, hvað varstu mér í heimi,
Og víst til dauðans aldrei því ég gleymi.
(Steingrímur Thorsteinsson.)
Það er sérkennilegt að setjast
niður og rifja upp liðnar stundir
með Gunnari, og minningin er ein-
ungis samsetning gleði og þess sem
er skemmtilegt. Unglings- og
menntaskólaárin voru okkar sam-
\
Seilugrandi 7 - Opið hús
Falleg og björt 120 fm íb. á tveimur hæðum (3. og 4.
hæð). Saml. borð- og setustofa, 3 svefnherb. (mögul.
á 4). Suðaustursv. Stæði í bílskýli. Áhv. 5,9 millj. Skipti
á minni eign mögul. íb. verður til sýnis í dag, sunnu-
dag, frá kl. 14-17. Allar nánari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
Sumarbústaður, Grímsnesi
Til sölu nýr sérlega glæsilegur bústaður sem staðsett-
ur er á landi Miðengis, Grímsnesi. Bústaðurinn er 55
fm að grunnfleti auk millilofts 27 fm sem er mann-
gengt. Bústaðurinn er fullfrágengin að öllu leyti m.a.
er 100 fm verönd, allar innréttingar sérsmíðaðar o.fl.
Lóðin er eignarlóð 8.000 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir:
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA,
Hafnargötu 17, Keflavík,
símar 92-11700 og 13868.
MINNIIMGAR
verutími. Lífið virtist vandamála-
laust, það þurfti að taka stöðuna á
náminu öðru hvoru til að halda þar
sjó. Þess á milli var bjástrað við
eitthvað ánægjulegt. Og lífið geisl-
aði af gleði í kringum Gunnar
Maack.
Hann var afskaplega mikill hu-
moristi, laðaði fram það fyndna og
jákvæða í lífinu og deildi því með
öðrum. Hann var hraustur, snjall
skíðamaður, spilaði vel á gítar og
samdi sín eigin lög. Æskuheimili
hans var myndarlegt, síðkvöldin í
eldhúsinu hjá frú Þóru gleymast
ekki, við vorum sísvangir og hlæj-
andi.
Eins og gengur skildust leiðir á
háskólaárum, frekara nám og
barnauppeldi tók við. Alltaf var jafn
gaman að hittast og rifja upp gömlu
góðu árin. í seinni tíð hafði endur-
fundum fjölgað þó ekki yrðu þeir
nógu margir. Sem fyrr var Gunnar
hrókur alls fagnaðar, nú með fal-
lega fjölskyldu sér við hlið, Eygló
og strákana sína tvo, Baldur og
Karl.
Það er því napurt að fá ekki leng-
ur að njóta Gunnars. Barátta hans
við krabbamein var snörp. Kjarkur
hans var óbilandi, lífsþráin algjör.
Brosið og kímnin á sínum stað, sí-
gefandi öðrum af styrk sínum.
Gunnar Maack var ímynd heilbrigði
og hins góða í þessu lífi. Lao-Tse
segir um vöxt dyggðarinnar: „Það
sem gróðursett er á réttan hátt
verður ekki rifið upp; það verður
aldrei á braut borið, það sem vel
er varðveitt. Það vekur virðingu
niðjanna."
Við Guðleif þökkum samfylgdina.
Okkar hlýjustu hugsanir leita til
Eyglóar og strákanna, einnig Kalla
og bræðranna í Skipholtinu sem
fyrir stuttu misstu Þóru. Góður Guð
gefi þeim og okkur styrk.
Haraldur Sigurðsson.
Komin er kveðjustund, fyrr en
nokkurn grunaði. í dag kveðjum
við hinstu kveðju kæran vin og
samstarfsfélaga til margra ára,
Gunnar Maack, aðeins fertugan að
aldri. Fram í hugann streyma hlýj-
ar minningar, þakklæti fyrir sam-
fylgdina og góð kynni sem aldrei
bar nokkurn skugga á. Það er erf-
itt að horfa á eftir ungum manni
í blóma lífsins, sem bæði var góður
starfsmaður, vinhollur félagi sem
alltaf var hægt að leita ráða hjá
og var í senn hugmyndaríkur og
drífandi persónuleiki, sem hreif fólk
með sér til góðra verka.
Kynni okkar hófust fyrir mörg-
um árum er við réðumst til starfa
hjá Hagvangi hf á mismunandi
tímamótum en þar hafði hann
starfað frá því að námi lauk í Há-
skóla íslands, vorið 1978, þá nýút-
skrifaður viðskiptafræðingur. Hjá
fyrirtækinu hafði hann því starfað
alls í 16 ár er hann lést, lengur en
nokkur annar. í byijun vann hann
að verkefnum á sviði áætlanagerða
og uppgjöra fyrir fyrirtæki, enda
mikill áhugamaður um fjármála-
stjórnun. En áhugasvið hans var
víðtækara og um 1980 tók hann
þátt í þróun og gerð viðhorfs-og
markaðskannana sem var nýjung
hér á landi á þeim tíma og tók
dijúgan þátt í erlendu samstarfí
við Gallup. Á þessum tíma stýrði
hann m.a. einni umfangsmestu
könnun sem gerð hefur verið á við-
horfum íslendinga til margháttaðra
mála, m.a. trúmála.
Á þessum árum kynntumst við
Gunnari vel í starfí og sáum hversu
ábyrgur og traustur starfsmaður
hann var. Því var það sjálfgefið,
þegar við yfirtókum rekstur Hag-
vangs hf um vorið 1986, að hann
yrði framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins. Stjórnunarstíll hans var um
margt sérstakur. Hann kom öllum
sínum skilaboðum á framfæri skýrt
og greinilega, þannig að aldrei lék
hinn minnsti vafi á hver hans vilji
væri, en tókst um leið að ávinna
sér traust og virðingu samstarfs-
manna sinna vegna sinnar eigin
framkomu í starfi. Við minnumst
þannig góðs samstarfsmanns sém
var framúrskarandi ósérhlífinn,
heiðarlegur og mikill drengskapar-
maður. Hann var með afbrigðum
talnaglöggur og mikill nákvæmnis-
maður í öllum sínum verkum. Fyrst
og síðast gerði hann miklar kröfur
til sjálfs sín og var öðrum góð fyrir-
mynd. Að eðlisfari var Gunnar dul-
ur um sínar eigin tilfinningar, hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum en þó duldist engum að
þar fór maður með sterkar tiifinn-
ingar. Fáir voru hlýrri og skilnings-
ríkari en einmitt hann ef eitthvað
bjátaði á hjá þeim sem honum stóðu
nærri. Sjálfan sig tók hann mátu-
lega hátíðlega og tókst ævinlega
að skapa létt andrúmsloft í kring-
um sig á vinnustað.
Gunnar bar hitann og þungann
af undirbúningi og framkvæmd við-
horfs- og markaðskannana sem
Hagvangur hf. hefur gert og var
hann einn reyndasti aðilinn á þessu
sviði hér á landi og naut mikillar
virðingar fyrir. Á þessum tíma hef-
ur hann þróað margar nýjungar á
sviði kannana hér á landi og hafði
hann einmitt nýlokið einu slíku
verkefni fjórum dögum áður en
hann lést. Áuk þessa tók hann virk-
an þátt í öðrum ráðgjafarverkefn-
um sem unnið hefur verið að á
vegum fyrirtækisins.
Gunnar tók einnig þátt í marg-
víslegri starfsemi utan fyrirtækis-
ins og má þar m.a. nefna nám-
skeiðahald fyrir Stjórnunarfélagið
og þátttöku í Spástefnu þeirra, auk
fyrirlestra um markaðsrannsóknir
í Háskóla íslands og Tækniskóla
fslands. Hann sat einnig í stjórn
Félags íslenskra rekstrarráðgjafa
og undirbúningshópum Verslunar-
ráðs fyrir ársfundi þeirra.
í vinahópi var hann jafnan hrók-
ur alls fagnaðar, greip þá gjarnan
í gítarinn og flutti okkur þá lög
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN ALFONSSON
fyrrv. flugumferðarstjóri,
lést föstudaginn 15. júlí.
Eyrún Eyjólfsdóttir,
Alfons Jónsson, Ágústa Guðmundsdóttir,
Aldís Jónsdóttir,
Eyjólfur Kristinn Jónsson,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útfarir,
EIRÍKS MARELSSONAR
og SOFFÍU MARELSDÓTTUR,
Sigurbjörg Marelsdóttir,
Sigurður Marelsson,
Már Marelsson,
Sigurður Már Hilmarsson, Dóra Þyri Arnardóttir.
og ljóð eftir sjálfan sig en hann
átti einkar auðvelt með að setja
saman texta, bæði í bundnu og
óbundnu máli. Þessar samveru-
stundir fyrir utan vinnu átti hann
ekki hvað síst þátt í að gera eftir-
minnilegar með glaðværð sinni.
í einkalífi sínu var Gunnar gæfu-
maður. Hann var rnikill íjölskyldu-
maður og átti yndislega fjölskyldu
sem hann mat mikils og gerði sér
far um að vera jafnframt góður og
traustur vinur sem og faðir og eig-
inmaður. Einstaklega fallegt sam-
band hans við foreldra sýndi, að
hann hafði notið góðrar æsku og
var honum gott veganesti í eigin
lífi. Hann var alla tíð mikill íþrótta-
maður, skíðaíþróttin skipaði stóran
sess hjá ijölskyldunni, og ófáar
ferðir fór fjölskyldan í KR-skálann
í Skálafelli, enda Gunnar KR-ingur
af lífi og sál. Ekki má gleyma lax-
veiðiáhuga hans og eru ófáar sög-
urnar úr veiðiferðunum sem honum
tókst svo vel að lýsa. Hann var
alla tíð heilsuhraustur og var varla
nokkurn dag frá vinnu sökum veik-
inda. Því kom það eins og reiðar-
slag er hann greindist með krabba-
mein í febrúar sl. Örlögum sínum
mætti hann af æðruleysi og sýndi
slíkan kjark og viljastyrk í baráttu
sinni við sjúkdóminn að aðdáun
vakti og var hann fullur bjartsýnj
um góðan bata til síðasta dags. í
þeirri baráttu naut hann einstakrar
umhyggju og ástúðar Eyglóar, sem
hann kallaði hetjuna sína.
Og nú er komið að kveðjustund.
Við félagar Gunnars, fyrrverandi
og núverandi samstarfsfólk, þökk-
um góðum vini samfylgdina og
óskum honum góðrar heimkomu.
Elsku Eygló, Baldur, Kalli og aðrir
ástvinir. Söknuðurinn er sár, en við
eigum öll dýrmætar minningar sem
enginn getur frá okkur tekið og
aðeins tíminn einn getur náð að
sefa sorgina. Þið eigið alla okkar
samúð. Guð blessi minningu góðs
vinar.
Katrín, Þórir, Reynir,
starfsfólk Hagvangs og
fjölskyldur.
Fleirí minningargreinar um
Gunnnr Mnack bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Dagbók
Háskóla
Islands
Mánudagur 18. júlí: Dr. Rob-
ert L. Selman, sálfræðingur
og prófessor við Harvardhá-
skóla í Bandaríkjunum, heldur
fyrirlestur kl. 17.15 í stofu 101
í Odda. Fyrirlesturinn nefnist
The Risky Business of Grow-
ing Up Social og er hann öllum
opinn.
Blömastofa
Fnófinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Slmi 31099
Opið öil kvöld
til ki. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.