Morgunblaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996
URSLIT
Haukar-Valur 88:73
Íþróttahúsið Strandgötu, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, 27. umferð, fimmtudaginn
8. febrúar 1996.
Gangur leiksins: 3:0, 4:4, 10:4, 17:7, 23:9,
23:14, 31:14, 35:20, 38:22, 42:22, 51:26,
53:38, 61:45, 69:52, 82:59, 84:71, 88:73.
Stig Hauka: Jason Williford 27, Jón Arnar
Ingvarsson 16, ivar Ásgrímsson 13, Sigfús
Gizurarson 11, Björgvin Jónsson 10, Bergur
Eðvarðsson 4, Pétur Ingvarsson 2, Þór
Haraldsson 2, Vignir Þorsteinsson 2, Sig-
urður Jónsson 1.
Fráköst: 20 í sókn - 27 í vörn.
Stig Vals: Ronald Bayless 32, Brynjar
Karl Sigurðsson 15, Hjalti Jón Pálsson 8,
Ragnar Þór Jónsson 6, Bergur Már Emils-
son 6, Gunnar Zoega 4, Sveinn Zoéga 2.
Fráköst: 7 í sókn - 23 í vörn.
Dómarar: Kristinnn Óskarsson og Jón
Halldór Eðvarðsson.
Villur: Haukar 16 - Valur 23.
Áhorfendur: 130.
Breiðablik - UMFS 75:73
Smárinn:
Gangur leiksins: 0:3, 5:10, 7:13, 19:17,
29:32, 34:35, 40:38, 46:38, 46:44, 51:44,
59:50, 65:57, 66:67, 71:71, 75:71, 75:73.
Stig Breiðabliks: Michael Thoele 31, Agn-
ar Olsen 22, Birgir Mikaelsson 13, Halldór
Kristmannsson 6, Einar Hannesson 3. ,
Fráköst: 11 í sókn - 22 í vörn.
Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskij
26, Ari Gunnarsson 13, Bragi Magnússon
10, Tómas Holton 9, Sigmar Egilsson 6,
Grétar Guðlaugsson 5, Gunnar Þorsteinsson
2, Sveinbjörn Sigurðsson 2.
Fráköst: 11 í sókn - 19 í vörn.
Dómarar: Kristján Möller og Sigmundur
Herbertsson. Dæmdu fremur lítið á köflum.
Villur: Breiðablik 14 - Skallagrímur 22.
Áhorfendur: Um 200.
UMFT-UMFG 78:86
íþróttahúsið Sauðárkróki:
Gangur leiksins: 3:2, 10:8, 14:14, 21:23,
21:35, 23:37, 25:42, 31:46, 37:57, 45:65,
49:71, 64:71, 75:78, 78:86.
Stig Tindastóls: Torrey John 38, Hinrik
Gunnarsson 14, Lárus Dagur Pálsson 9,
Pétur Guðmundsson 8, Ómar Sigmarsson
7, Arnar Kárason 2.
Fráköst: 9 í sókn - 24 i vörn.
Stig Grindvíkinga: Rodney Dobard 23,
Marel Guðlaugsson 22, Guðmundur Braga-
son 20, Helgi Jónas Guðfinnsson 12, Hjört-
ur Harðarson 9.
Fráköst: 5 í sókn - 29 í vörn.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Þorgeir Jón Júlíssun. Slakir.
Villur: UMFT 24 - UMFG 19.
Áhorfendur: 340.
ÍR - Þór 84:73
Seljaskóli:
Gangur leiksins: 0:10,10:13,19:18, 26:30,
29:34, 33:38, 38:44, 50:50, 56:50, 71:60,
77:67, 84:73.
Stig IR: Herbert Arnarson 26, John Rho-
des 22, Eiríkur Önundarson 13, Jón Öm
Guðmundsson 13, Broddi Sigurðsson 4,
Eggert Garðarsson 2, Guðni Einarsson 2,
Márus Amarson 2.
Fráköst: 15 í sókn - 29 í vörn.
Stig Þórs: Fred Williams 25, Böðvar Krist-
jánsson 15, Konráð Óskarsson 9, Kristinn
Friðriksson 8, Birgir Örn Birgisson 7, Haf-
steinn Lúðvíksson 5, Kristján Guðlaugsson
4.
Fráköst: 22 í sókn - 24 i vörn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Georg
Andersen, ágætir.
Villur: ÍR 22 - Þór 19.
Áhorfendur: 274.
Keflavík - KR 115:106
íþrðttahúsið í Keflavík:
Gangur leiksins: 0:7, 2:7, 13:13, 15:21,
24:22, 41:34, 51:44, 55:53, 65:65, 77:77,
87:88, 98:98, 107:100, 115:106.
Stig Keflavíkur: Lenear Burns 33, Guðjón
Skúlason 24, Falur Harðarson 24, Gunnar
Einarsson 11, Davíð Grissom 8, Albert
Óskarsson 8, Sigurður Ingimundarson 4,
Jón Kr. Gíslason 3.
Fráköst: 8 í sókn - 20 í vöm.
Stig KR: Ósvaldur Knudsen 35, Hermann
Hauksson 22, Jonathan Bow 21, Ingvar
Ormarrsson 18, Ólafur Jón Ormsson 5,
Óskar Kristjánsson 5.
Fráköst: 6 í sókn - 17 í vörn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi
Bragason.
Villur: Keflavík 25 - KR 27.
Ahorfendur: Um 400.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
HAUKAR 27 23 4 2390: 2083 46
UMFN 26 22 4 2356: 2053 44
KEFLAVÍK 27 19 8 2537: 2268 38
TINDASTÓLL 27 13 14 2094: 2140 26
ÍR 27 12 15 2176: 2214 24
BREIÐABLIK 27 9 18 2133: 2445 18
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
UMFG 27 18 9 2479: 2204 36
KR 27 14 13 2315: 2317 28
SKALLAGR. 27 13 14 2123: 2169 26
ÞÓR 27 7 20 2250: 2284 14
ÍA 26 7 19 2228: 2430 14
VALUR 27 4 23 2082: 2556 8
1.DEILD KARLA
ls- SELFOSS........73: 91
Fj. leikja U T Stig Stig
SNÆFELL 15 13 2 1433: 1114 26
KFl 14 12 2 1234: 1064 24
ÍS 15 10 5 1136: 1108 20
ÞÓRÞ. 14 7 7 1233: 1157 14
LEIKNIR 14 7 7 1127: 1124 14
SELFOSS 14 6 8 1150: 1105 12
REYNIR S. 14 6 8 1154: 1271 12
HÖTTUR 14 4 10 986: 1140 8
IH 14 3 11 1132: 1336 6
STJARNAN 14 3 11 1006: 1172 6
Evrópukeppnin
A-riðill:
Leverkusen, Þýskalandi:
Bayer - Olympique d'Antibes......79:74
Michael Koch 20, Chris Corchiani 14, Henn-
ing Hamisch 13 - Tony White 16, Laurent
Foirest 13, Michael Ray Richardson 13.
B-riðiIl:
Madrid, Spáni:
Real Madrid - Benfica............86:81
Zagreb, Króatíu:
Cibona - Maccabi Tel Aviv........71:78
Marcelic 17, Zuric 12, Alanovic 10 - Cham-
bers 22, Curcic 18, Leef 13.
Aþenu, Grikklandi:
Panathinaikos - Bologna...........72:69
Nikos Economou 26, Dominique Wilkins 22,
Frangiskos Alvertis 15 - Paolo Moretti 19,
Orlando Wooldridge 13, Augusto Binelli 13.
■Grikkirnir, sem léku fyrir luktum dyrum,
eru svo gott sem ömggir um að komast í
úrslitakeppnina.
NBA-deildin
Boston - San Antonio.........,...89:99
New York - Washington............87:82
Philadelphia - Indiana.........102:101
Miami - Atlanta.................101:89
Toronto - Milwaukee..............88:93
Detroit - Orlando................97:83
Minnesota - Portland............93:103
Utah - Vancouver................102:79
LA Clippers - Houston..........102:110
LA Lakers - New Jersey..........106:96
Golden State - Chicago...........95:99
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Allterþá
þrennt er
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Breiðablik hefur heldur betur
bætt leik sinn frá því í haust
og nú er svo komið að flest lið geta
átt von á að lenda í
vandræðum á móti
þeim. Þetta fengu
Skallagrímsmenn úr
Bogarnesi að reyna
í gærkvöldi er Blikar unnu 75:73 í
leik, sem var í járnum mest allan
tímann en Blikar höfðu þó undirtök-
in lengst af.
Leikurinn var hvorki áferðar-
fallegur né skemmtilegur en hann
var spennandi engu að síður. Bæði
lið léku maður á mann vörn, en í
upphafi síðari hálfleiks skiptu Borg-
nesingar yfir í svæðisvörn sem gekk
ágætlega, en Blikar voru bæði þol-
inmóðir og þrautseigir í sókninni og
biðu eftir að fá góð færi. Borgnes-
ingar áttu það hins vegar til að
skjóta allt of fljótt og þá oftar en
ekki úr slæmri stöðu.
Mikil spenna var í lokin. Skalla-
grímur komst yfir er 2,40 mínútur
voru eftir og aftur einu stigi er 1,10
voru eftir. Þeir náðu síðan að jafna
er 35 sekúndur lifðu af leiknum.
Blikar fóru í sókn og þegar þrjár
sekúndur voru eftir af skotklukkunni
var Birgir Mikaelsson allt í einu al-
einn undir körfunni, fékk boltann
og gat ekki annað en skorað. Gestum
lá mikið á að koma boltanum í leik
og grýttu honum fram en það mis-
tókst og Agnar Olsen komst inn í
sendinguna og fékk vítaskot sem
hann misnotaði ekki og kórónaði þar
með mjög góðan leik sinn.
Agnar og Thoele voru bestir í liði
Blika og Birgir átti einnig góðan
leik en þessir þrí gerðu 66 af 75
stigum liðsins, en tveir leikmenn
skiptu með sér hinum stigunum níu.
Hjá gestunum skoruðu 8 leikmenn,
Ermolinskij mest og var hann bestur
Borgnesinga. Ari átti ágæta spretti
eins og Bragi og Tómas, en sá síðast-
nefndi mætti að ósekju skjóta meira
fyrir utan því hann virtist geta hitt
þegar hann langaði til.
Haukar ekki í
vandræðum
Weðsta lið úrvalsdeildarinnar,
Valur, hafði lítið að sækja í
greipar bikarmeistara Hauka á
Strandgötunni í
Stefán gærkvöldi. Hafn-
Stefánsson firðingar unnu
skrifar 88:73 og eru þar
með efstir í deild-
inni, með tveimur stigum meira en
Njarðvíkingar sem eiga að spila í
kvöld.
Fyrstu fimm mínúturnar spiluðu
Hlíðarendapiltarnir góða vörn og
stóðu í Hafnfirðingum en er Hauk-
ar fóru að hitta í körfuna, skildu
leiðir. Haukar spiluðu svæðisvörn
nema hvað einn leikmaður elti
helstu skyttu Vals, Ronald Bayless,
um víðan völl. Strax eftir hlé fór
forskotið í helmings mun, 48:24,
og sigur var í höfn. Um miðjan
hálfleik skiptu Valsmenn í nokkurs
konar pressuvörn sem gekk ágæt-
lega um tíma en við það jókst sjálfs-
traustið og eftir fjórar þriggja stiga
körfur í röð undir lokin minnkuðu
þeir forskot Hauka niður í 15 stig.
Haukar gerðu því 50 stig eftir hlé
en Valsmenn 51.
Haukar réðu gangi leiksins og
hefðu eflaust tekið aðeins meira á
ef þeir hefðu þurft. Að venju stjórn-
aði Jón Arnar Ingvarsson sókninni
og átti 12 stoðsendingar en Jason
Williford lék vel fyrir liðið og tók
21 frákast. Sigfús Gizurarson var
góður við að gæta Ronalds.
Vonleysi hrjáði Valsmenn á köfl-
um en að auki voru mistökin mörg
og afleit. Ronald fékk lítið svigrúm
en tókst þó að skora 32 stig, taka
10 fráköst og gefa 9 stoðsending-
ar. Hjalti Jón Pálsson tók góðar
rispur. Liðið hitti úr tveimur af 10
þriggja stiga skotum fyrir hlé en 8
af 12 eftir hlé.
Handhöfum fríkorta skal bent á að frímiðar á
bikarúrslitaleikina verða afhentir á skrifstofu
HSÍ föstudaginn 9. febrúar frá kl. 14.00 til
17.00 gegn framvísun skírteina.
Fríkortshafar athugíð að um takmarkaðan
miðafjölda er að ræða og fríkort gilda
ekki við innganginn.
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
Njarðvík: UMFN - ÍA..........20
1. deild kvenna:
Akranes: ÍA-ÍS...............20
1. deild karla:
Sandgerði: Reynir - Stjarnan.20
Rabbfundur hjá KR
KR-ingar koma saman til skrafs og
ráðagerða í félagsheimilinu við Frosta-
skjól í kvöld, föstudagskvöld. Gestur
fundarins verður Orn Steinsen, for-
maður hússtjórnar KR, og mun hann
fjalla um framkvæmdir á vegum fé-
lagsins næstu árin, endurnýjun valla,
byggingu nýs íþróttahúss og fleira.
íslandsmótið í blaki
ABMdeild karla.
Föstudagur 9. febrúar
KA-heimilið kl. 20.30:
KA-HK
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 C 3
Ivar
Benediktsson
skrifar
ur, 84:73, sigur sem er öruggari en
tölumar gefa til kynna.
„Það var nokkur spenna í okkur
í byijun leiksins og
við ætluðum okkur
að taka leikinn í okk-
ar hendur strax, það
gekk ekki og þeir
fengu að gera það sem þeim sýnd-
ist. í síðari hálfleik var annað upp á
teningnum, við vorum afslappaðri og
þá opnaðist leikurinn betur fyrir okk-
ur,“ sagði Herbert Arnarson, leik-
maður IR, sem náði sér á strik í síð-
ari hálfleik og gerði 21 stig.
Sjö fyrstu upphlaup ÍR í leiknum
fóru í vaskinn og Þórsarar létu ekki
happ úr hendi sleppa og skoruðu
fyrstu tíu stigin. Jón Örn opnaði
stigareikning IR-inga er 3,40 mín.,
voru liðnar af leik. Þeim tókst að
jafna en Þórsarar náðu að komast
fram úr á ný. Sóknarieikur heima-
manna gekk ekkert og vörnin var
galopin fyrir skipulagslausum sókn-
arleik gestanna. í hálfleik skildu lið-
in að fimm stig, 38:33 fyrir Þór.
ÍR-ingum tókst að hressa verulega
upp á sóknarleík sinn í upphafi síð-
ari hálfleiks og John Rhodes lokaði
fyrir ódýrar körfur sem Fred Will-
iams fékk að gera í fyrri hlutanum.
ÍR sveif vængjum þöndum fram úr
norðanmönnum sem engin svör virt-
ust eiga og þegar við bættist ein-
dæma lánleysi í upplögðum færum
upp við körfunar var þeim ekki við-
bjargandi.
Mikill hraði var í leiknum og réðu
leikmenn beggja fylkinga oft á tíðum
ekki við hann. Þar af leiddi að tals-
vert var um mistök á báða bóga s.s.
rangar sendingar.
Herbert og Rhodes voru bestu
menn IR-inga og Jón Örn átti einnig
góða spretti, einkum í fyrri hálfleik
þegar illa gekk. Fred Williams stóð
upp úr liði Þórs en einnig skulu
nefndir Birgir Örn Birgis og Böðvar
Kristjánsson.
Lakers á skrið
Chicago fann taktinn á ný
Los Angeles Lakers virðist vera
komið á sigurbraut því í fyrri-
nótt sigraði liðið New Jersey 106:96
og var þett.a ellefti sigur Lakers í
síðustu 13 leikjum. Earvin „Magic“
Johnson átti góðan leik hjá Lekers,
kappinn gerði 18 stig, tók 9 frá-
köst og átti 8 stoðsendingar en
Elden Campbell var stigahæstur
með 19 stig. Spekingar vestanhafs
eru farnir að gæla við þá hugmynd
að Lakers geti náð langt í úrslita-
keppninn eftir að Johnson dró fram
skóna á ný.
Eftir tvo tapleiki í röð náði
Chicago góðum sigri á Golden
State, 99:95, og þar fór Michael
Jordan hreinlega á kostum og gerði
40 stig og Scottie Pipen var með
15. Chicago er enn með besta vinn-
ingshlutfallið þrátt fyrir að hafa
tapað tveimur síðustu leikjum.
Enn tapar Orlando á útivelli og
að þessu sinni gegn Detroit. Allan
Houston fór mikinn í liði Detroit
og gerði 31 stig og Grant Hill var
með 19 stig í þessum góða sigri.
Sean Elliot átti fínan leik með
Spurs þegar liðið brá sér til Boston.
Spurs vann 99:89 og gerði Elliot
36 stig, og tók auk þess tíu fráköst
go David Robinson gerði 19 stig
fyrir Spurs. Dino Radja gerði 24
stig fyrir Boston og var stigahæstur
á þeim bæ.
Það gengur hvorki né rekur hjá
LA Clippers og í fyrrinótt tapaði
liðið sjöunda leik sínum í röð, að
þessu sinni á heimavelli fyrir sjálf-
um meisturunum frá Houston.
Clyde Drexler gerði 28 stig fyrir
Houston og Hakeem Olajuwon 15
en hjá Clippers var Riehardson
stigahæstur með 31 stig.
Alonzo Mourning gerði 36 stig
fyrir Miami þegar liðið vann Atl-
anta en hjá Haukunum var Steve
Smith stigahæstur með 27 stig.
Patrick Ewing lék vel þegar New
York tók á móti Washington og
hafði betur þó svo enginn afgangur
væri af því. Knicks vann 87:82 og
gerði Ewing 31 stig, tók 11 fráköst
auk þess sem hann varði fimm skot
frá mótherjum sínum. Þetta var
sjötti sigurleikur Knicks í röð.
Þá kom að því að Indiana tap-
aði, en liðið hafði sigrað í 9 leikjum
í röð þar til það heimsótti 76ers í
fyrrinótt. Heimamenn sigurðu
102:101 og var Jerry Stackhouse
stigahæstur í liði 76ers eins og svo
oft áður í vetur og gerði 30 stig
og Derrick Alston var með 24.
Milwaukee gerði góða ferð til
Kanada þar sem liðið vann Toronto
93:88 og var Sherman Douglas
stigahæstur með 21 stig. Mike
Dunleavy, þjálfari Milwaukee,
fagnaði þarna 100. sigri sínum með
Bucks.
Karl Malone gerði 22 stig, tók
11 fráköst og átti 6 stoðsendingar
þegar Utah Jazz sigraði Vancouver
auðveldlega, 102:79. John Stockton
gerði 18 stig fyrir Jazz.
Portland brá sér til Minnesota
og sigraði með tíu stiga mun,
103:93. Þar var Clifford Robinson
í ham og gerði 32 stig fyrir gestina.
SKÍ með námskeið
Ganga er góð íþrótt
KR-ingum voru Jonathan Bow,
Hermann Hauksson, Ósvaldur
Knudsen og Ingvar Ormarsson
bestir.
Endaspretturínn dugði ekki
GÓÐUR endasprettur Tindastóls er
liðið tók á móti Grindvíkingum í
gærkvöldi dugði ekki, Grindavík
sigraði 86:78 eftir að hafa haft 22
stiga forystu um
™ miðjan síðari hálf-
skrifar frá íGikinn. Mikil ba,r-
Sauðárkróki átta var frá upphafi
og jafnt á flestum
tölum. Um miðjan hálfleikinn kom
verulega slakur kafli heimamanna,
hittnin var afleit og vörnin illa á
verði. Þetta nýttu gestirnir sér og
skoruðu grimmt með þá Marel og
Guðmund í aðalhlutverkum. Hjá
heimamönnum virtist sjálfstraustið
í lágmarki og sóknirnar voru fálm-
kenndar.
Ljóst var eftir hlé að Páll Kol-
beinsson hafði stappað stálinu í sína
menn og nú var allt annar bragur
á leiknum en Grindvíkingarnir hertu
sóknina, léku á als oddi og náðu
22 stiga forystu um miðjan hálfleik-
inn þrátt fyrir góða baráttu Tinda-
stóls.
Gestirnir hafa væntanlega talið
að málið væri afgreitt því það kom
þeim mjög í opna skjöldu hve Tinda-
stólsmenn bitu harkalega frá sér
undir lokin. Torrey fór á kostum
en Hinrik, Pétur og Lárus áttu einn-
ig ágætan leik og sömuleiðis Arnar
og Omar sem áttu góða spretti og
voru vel virkir. Þetta kom Grindvík-
ingum úr jafnvægi og Tindastóll
gerði 15 stig án þess að gestirnir
næðu að svara.
Þegar 25 sekúndur voru eftir var
staðan 75:78 og allt gat gerst. En
leikurinn, sem áður var orðinn
býsna laus í höndum dómaranna,
var lítið fyrir augað og Grindvíking-
ar héldu fengnum hlut og sigruðu.
„Ég er ánægður með að við kom-
ust aftur inn í leikinn eftir slaka
byijun og með smá heppni hefðum
við getað unnið. Ég er ekki vanur
að kvarta undan dómgæslunni, en
ég hef séð hana betri en í kvöld,“
sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari
Tindastóls, eftir leikinn.
ÍR-ingar vöknuöu í
seinni hálfleik
EFTIR brösóttan fyrri hálfleik skipti
ÍR um ham í hálfleik og sýndi gestum
úr Þór frá Akureyri enga kurteisi,
sigldi fram úr þeim og innbyrti sig-
Það skipti sköpum þegar við
misstum Jonathan Bow út af
með 5 villur, því hann hafði verið
að leika ákaflega vel
Björn og þá sérstaklega í
Blöndal vörninni. Þetta
skrifar frá nýttu Keflvíkingar
Keflavík sér með því að koma
boltanum inn í teiginn á stóru
mennina og við því áttum við ekk-
ert svar,“ sagði Hermann Hauks-
son, leikmaður vesturbæjarliðs KR,
eftir að liðið hafði beðið lægri hlut
fyrir Keflvíkingum, 115:106, í
Keflavík í gærkvöldi.
Leikurinn bauð ekki upp á mikla
spennu þrátt fyrir að vera jafn allan
tímann. Varnir beggja liða voru
frekar slakar eins og sjá má á úr-
slitunum. KR-ingar voru betri í
byijun en Keflvíkingar náðu síðan
undirtökunum sem þeir héldu fram
í síðari hálfleik. Þá jafnaðist leikur-
inn að nýju og jafnt var nánast á
öllum tölum þar til KR-ingar misstu
Bow út af, en þá voru rétt um 2
mínútur til leiksloka. Bow hafði þá
verið að leika vel bæði í sókn og
vörn þar sem hann hafði góðar
gætur á Lenear Burns. En við brott-
hvarf hans riðlaðist varnarleikur
KR-inga og það voru Keflvíkingar
fljótir að nýta sér. Burns blómstr-
aði og eftirleikurinn var tiltölulega
auðveldur hjá heimamönnum.
„Það var slæmt fyrir KR-inga
að missa Bow út af og það var
ákveðinn 'vendipunktur sem við
nýttum okkur. Við lékum skynsam-
lega síðustu mínúturnar og þetta
var bæði sætur og þýðingamikill
sigur fyrir okkur, “ sagði Jón Kr.
Gíslason, þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga. Bestu menn hjá Kefl-
víkingum voru Lenear Burns, Falur
Harðarson, Guðjón Skúlason, Al-
bert Óskarsson og Gunnar Einars-
son, sem gerði góða hluti. Hjá
Morgunblaðið/Sverrir
SKIÐAGANGA
KNATTSPYRNA
Framtíðin óráðin
hjá Dumitrescu
SKÍÐASAMBAND íslands er að hefja
herferð í gönguskíðakennslu. Tilraun
var gerð í fyrra með að bjóða almenn-
ingi í Reykjavík kennslu og viðbrögðin
urðu svo gífurleg að ákveðið var að
halda áfram nú og að þessu sinni víðs
vegar um landið.
Það er Auður Ebenezersdóttir sem
hefur veg og vanda af kennslunni.
Hún byijar á Vaibjarnarvelli í Laugar-
dal á morgun. Fólk þarf ekki að skrá
sig til kennslu, heldur er nóg að
mæta á staðinn.
Kennsla hefst kl. 10, aftur kl. 12,
síðan kl. 14 og loks kl. 16 og á sama
tíma á sunnudag. „Við lánum útbún-
að, erum með 40 pör af skíðum, en
ég vil endilega hvetja þá sem eiga
skíða að koma með þau,“ sagði Auður
við Morgunblaðið.
Eftir námskeiðin í Reykjavík um
helgina heldur Auður af stað hringinn
í, kringum landið. Hún verður næst í
Ólafsvík 16. og 17. febrúar og heldur
síðan norður um. Ferðinni lýkur í loks
mars og lokaþáttur herferðar SKÍ á
svo að vera almenningsganga á Nesja-
völlum 13. apríi. Gangan nefnist Lava
Loppet, sem SKÍ gekkst fyrir á sínum
tínia en á nú að endurvekja.
Toyota umboðið lánaði Skíðasam-
bandinu RAV jeppa sem Auður verður
á meðan á ferð hennar stendur og
kerrusalan Víkvetji lagði til kerru, til
að flytja skíðapörin 40 og annan nauð-
synlegan búnað milli staða.
í tilefni herferðar SKÍ mun Ólafur
Björnsson, íþróttakennari og skíða-
þjálfari í Noregi, skrifa pistla til leið-
beiningar almenningi og birtast þeir
einu sinni í viku í Morgunblaðínu.
Fyrsta grein Ólafs er hér til hliðar.
LOKSINS er snjórinn kominn! Og
tími til að taka fram gönguskíðin.
Skíðaferðirnar eru sjálfsagl
ekki orðnar margar hjá fólki í vet-
ur, þar sem snjórinn hefur látið
bíða eftir sér. Það er mjög mikil-
vægt nú í byrjun að þið takið því
rólega. Skíðaferðirnar eiga að vera
rólegar og hjartslátturinn á helst
að vera um það bil 120-150 slög á
mínútu.
Takið gjarnan púlsinn 4-5 sinn-
um á meðan á skíðaferðinni stend-
ur. Þið munuð komast fljótt að því
að þið þurfið ekki að ganga hratt
til þess fá púlsinn svo hátt. Það er
því mikilVægt í byrjun að fólk velji
sér brautir þar sem ekki er að finna
of brattar brekkur.
En hvers vegna er mikilvægt að
ganga svona rólega? í fyrsta lagi
þá er skíðaganga úthaldsíþrótt og
úthald þjálfa menn best við slíka
rólega þjálfun. Þó að æfingar á
meiri hraða séu einnig mikilvægar
er slík róleg þjálfun um það bil 70%
af allri þjálfun hjá góðum skíða-
göngumanni.
I byijun er einnig mikilvægt að
hugsa um tæknihliðina og þá er
mikilvægt að taka því rólega. Jafn-
vægi er gjarnan svolítið ábótavant
í byrjun vetrar og vil ég því hvetja
fólk til þess að nota góðan tíma til
jafnvægisæfinga.
Æfingar eins og að ganga í létt-
um brautum án stafa eru mjög
góðar jafnvægisæfingar og jafnvel
Olympíumeistarar eins og Björn
Dæhlie nota þessar æfingar mikið.
Góða ferð!!
Ólafur Björnsson.
RÚMENANUM Ilie Dumitrescu
hefur verið neitað um endurnýjun
á atvinnuleyfi sínu í Englandi og
því er óljóst hvort hann verður
áfram í herbúðum West Ham þar
sem hann hefur leikið síðan hann
var keyptur á 145 miiljónir króna
frá Tottenham í síðasta mánuði.
„Við áttum alls ekki von á að þetta
yrði vandamál því Dumi er reyndur
leikmaður og stjarna úr heims-
meistarakeppninni, og það hefur
venjulega verið auðsótt að fá at-
vinnuleyfi fyrir slíka menn,“ sagði
Harry Redknapp hjá West Ham.
Svisslendingnum Marc Hottinger
var einnig neitað um atvinnuleyfi í
gær, en hann hefur verið í herbúð-
um Newcastle og frá því hafði ver-
ið gengið að hann færi til Everton
en eins og mál standa nú verður
ekkert af þeim flutningi.
Keflvíkingar sterkari
í lokin gegn KR-ingum
Enn einn
sigur Blika
AGNAR Olsen átti mjög góð-
an leik í liði Breiðabliks er
liðið sigraði í þriðja lelknum
í röð í úrvalsdeildinni. Greini-
legt er á leik Breiðabliks-
manna að Birgir Guðbjörns-
son þjálfari er að gera góða
hluti í Kópavoginum. Hér
verst Agnar gegn Borgnes-
ingnum Sigmari Egilssyni
HK í undanúrslK
jr
Islandsmeistarar HK höfðu undirtökin allan tímann í Digranesi í gærkvöldi
þegar liðið lagði bikarmeistara Víkings í þremur hrinum gegn engri í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar. Það er því ijóst að nýtt nafn verður grafið á kvenna-
bikarinn í ár og miðað við frammistöðu HK-stúlkna undanfarið þá kann það
að verða nafn HK í fyrsta skiptið í bikarsögunni, en Víkingsstúlkur hafa leikið
til úrslita í sex skipti á síðustu sjö árum. HK-stúlkur unnu fyrstu hrinuna 15:9
og tvær þær næstu, 15:7 og 15:7, í leik sem tók 71 mínútu.