Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 4

Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 4
ítRbmR KORFUKNATTLEIKUR Lánið lék vid Portland GRANT Long og Steve Smith í baráttu við Derrick McKey hjá Indiana um að ná frákasti. Atl- anta sigraði og stendur betur að vígi í úrsiitakeppninni. KNATTSPYRNA Michael Laudruptil Kobe íJapan MICHAEL Laudrup, fyrirliði Evrópumeistara Dana í knatt- spymu og leikmaður Real Madrid á Spáni, sagði í gær að hann ætl- aði að ljúka ferlinum í Japan. Hann sagðist hafa gert samning til 16 mánaða við Vissel Kobe f 2. deild og færi til Japans 1. ágúst. Laudr- up hafði áður tilkynnt að hann færi frá Real Madrid að loknu yfir- standandi tímabili til Japans eða Bandaríkjanna. „Ég valdi Japan vegna þess að áiagið er ekki eins mikið þar og hraðinn minni. Ég hef enn fætur til að spila en er orðinn þreyttur eftir að hafa spilað á hæstá plani í Evrópu í þrettán ár,“ sagði Laudrup. Knötturinn 373 sinn- um í netamöskvana Fimm af sex leikjum í deildarbikarkeppni KSÍ verða leiknir á grasi LOKASPRETTUR deildarbikarkeppni KSÍ í knattspyrnu hefst í dag með sex leikjum, þar sem sigurvegararnir komast áfram í úrslita- keppnina. Þá leika þrjú lið ítveimur riðlum og leika sigurvegararn- ir í riðlunum til úrslita 16. maí. Það var mikið skorað í riðlakeppn- inni - alls hefur knötturinn hafnað 373 í netamöskvunum síðan Baldur Bjarnason sköraði fyrsta mark keppninnar 14. mars í Kópavogi fyrir Stjörnuna gegn Ægi í 7:2 sigri. ARVYDAS Sabonis skoraði 27 stig fyrir Portland sem eygir enn von um að komast áfram í úrslitakeppni IMBA-deildar- innar í körf uknattleik eftir 94:91 sigur íframlengdum leik gegn Utah. Rod Strickland var með 19 stig fyrir heimamenn sem misstu niður 13 stiga forystu í seinni hálfleik. „Við vorum fastir fyrir en lékum ekki vel,“ sagði Strickland. Hittnin var ekki góð hjá leik- mönnum Portland. „Við virt- umst ekki geta hitt í körfuna en sigruðum," sagði Buck Will- iams. „Þetta hefur verið Akkil- esarhæil okkar á tímabilinu." Karl Malone var stigahæstur hjá Utah með 35 stig en John Stockton gerði 13 stig. Liðin mæt- ast aftur í Portland í kvöld en Utah stendur betur að vígi með tvo sigra og eitt tap. „Nú er tækifærið“ Atlanta vann Indiana 90:83 og er yfir 2:1 en fjórði leikurinn verður í Atianta á morgun. Steve Smith gerði 26 stig og Christian Laettner 24 stig fyrir Atlanta en Derrick McKey og Rik Smits gerðu sín 13 stigin hvor fyrir Indiana sem hefur leikið til úrslita í Austurdeild undan- farin tvö tímábil eftir að hafa haft betur gegn Atlanta. „Álagið skiptir mig ekki máli,“ sagði Larry Brown, þjálfari Indi- ana. „Ábyrgð okkar allra felst í því að vera tilbúnir á hveiju kvöldi. Þessir strákar vilja komast í helstu leikina og nú er tækifærið." ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Úrslitakeppni Austurdeildar Atlanta - Indiana...............90:83 ■ Atlanta er 2:1 yfir. Úrslitakeppni Vesturdeildar Portland - Utah.................94:91 ■ Utah er 2:1 yfir. NATO-mótið: Mótið var haldið 22. - 26. apríl. Átta liða úrslit: Keflavík - Njarðvík................120:89 NATO - Breiðablik...........1.......77:83 ÍR-Haukar...........................84:74 KR - Grindavík......................91:99 Undanúrslit Keflavík - Breiðablik...............78:84 ÍR-Grindavik.......................89:116 Úrslitaleikur: Grindavík - Breiðablik.............106:87 Um þriðja sætið: Keflavík - ÍR.......................100:86 1 úrslitum af Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu i blaðinu í gær snerust ein úrslit við. Var þar sagt að Fjölnir hefði lagt Létti með 6 mörkum gegn 2, hið rétta er að Léttir vann. Golf Mót í Grindavík Mótið var haldið laugardaginn 27. apríl og var Fiskimjöl og lýsi styrktaraðili. Karlar, án forgjafar: Gunniaugur Sævarsson, GG...............75 ÓskarB. Ingason, GO....................77 i'orsteinn Geirharðsson, GS............78 Með forgjöf: GuðbrandurBjarnason, GG................67 ísleifur Iæifsson, GO..................68 Jóhann Friðbjörnsson, GOB..............70 Fimm af sex leikjunum sem verða leiknir í dag, fara fram á gras- völlum; FH - Grindavík,_ Fylkir - Stjarnan, Breiðablik - ÍR, ÍA - Leiftur, og ÍBV - Keflavík. Leikur Fram og Vals fer fram á gervigras- velli Hauka á Ásvöllum. Sigurveg- ararnir í fyrstu þremur leikjunum leika saman i riðli í úrslitakeppn- inni og sigurvegararnir í þremur síðustu leikjunum verða sam'an í riðli. Blikarnir, sem fá ÍR-inga í heim- sókn, hafa skorað flest mörk allra liða, eða 29 mörk. Tveir leikmenn þeirra náðu þrennu i fyrsta leikn- um, þegar þeir unnu stórsigur á Reyni Sandgerði, 10:0. Arnar Grét- arsson varð fyrstur til að skora þrennu í deildarbikarkeppninni, eða einni mín. á undan félaga sínum Sævari Péturssyni. Alls hafa fjórtán leikmenn skorað fyrir Blikana. Tveir leikmenn hafa skorað mörk í öllum leikjum liða sinna. Skaga- maðurinn Stefán Þórðarson hefur skorað átta mörk í fimm leikjum og Eyjamaðurinn Leifur Geir Haf- steinsson sex mörk í fimm leikjum. Skagamenn fá lið Leifturs í heimsókn og verður gaman að sjá hvað Leiftur, sem hefur fengið góð- an liðsstyrk, gerir gegn Islands- meisturunum á Akranesi. Leik- menn IA, sem hafa skorað 25 mörk, unnu það afrek að skora fjórtán mörk gegn BÍ, 14:0. Níu leikmenn liðsins skoruðu í leiknum. Eyjamenn, sem hafa skorað 25 mörk en ekki fengið á sig nema eitt, taka á móti Keflavík. Þar verð- ur Tryggvi Guðmundsson í sviðs- ljósinu, en hann skoraði fimm mörk í síðasta leik sínum, í sigurleik Eyjamanna gegn ÍR, 9:0. Fylkir, sem hefur unnið alla fimm leiki sína, mætir Stjörnunni sem hefur heldur ekki tapað - unnið fjóra leiki og gert eitt jafntefli, 4:4, gegn Skagamönnum. Framliðið, sem hefur einnig unn- ið alla fimm leiki sína, mætir Val, sem tapaði og gerði jafntefli við FH í riðlakeppninni. Sigurður Grét- arsson, þjálfari Vals, hefur leikið með liðinu og hefur skorað eitt af nítján mörkum Valsmanna. FH-ingar, sem eru taplausir i sex leikjum - unnið fimm og gert eitt jafntefli gegn Val, 2:2, leika gegn Grindavík á æfingasvæði sínu að Kaplakrika. Rush kvaddi stuðnings- menn Liverpool IAN Rush kom inná sem vara- maður á Anfield á laugardag og kvaddi stuðningsmenn fé- lagsins með 1:0 sigri á móti Middlesbrough en þetta var siðasti leikur hans með Liv- erpool á heimavelli. Eftir leik- inn liljó]) hann kveðjuhring á vellinum og gaf áhorfanda peysu sína. „Þetta var áhrifa- mikil stund og frábær dagur,“ sagði hann en jafnvel stuðn- ingsmenn Boro risu á ftetur og klöppuðu hetjunni lof í lófa. „Eg gleymi aidrei stuðningn- um sem ég fékk en því miður náði ég ekki að skora í síðasta heimaleiknum. Ég fék rnjög gott marktækifæri en stundum reynir maður of mikið. Stuðn- ingsmennirnir vildu að ég skoraði og ég var jafn ákafur en dæmið gekk ekki upp að þessu sinni,“ sagði Rush sem er 34 ára og hefur gert meira en 400 mörk á ferlinum. Rush fær frjálsa sölu í maí og hefur ekki ákveðið hvert hann fer. „Framtíðin er björt lýá Liverpool en eftir bikar- úrslitaleikinn sest ég niður með fjölskyldunni og ákveð framhaldið.“ I febrúar ákvað hann að fara frá Liverpool i lok tímabilsins en þá sagði hann að til að vera áfram á toppnum yrði hann að spila reglulega og hann gæti leikið i úrvalsdeildinni í tvö ár til viðbótar. Roy Evans, knattspymu- stjóri Liverpool, var ánægður með sigurinn og Rush. „Það var ánægjulegt að Ijúka heimaleikjum tiraabilsins með sigri og mark frá Rush hefði glatt okkur enn meira. Hann hefur verið frábær og við eram þakklátir fyrir að hafa haft hann svona lengi. Hann á möguleika á að leika þrjá leiki með okkur enn og fjóra ef til aukaleiks kemur í bikamum.“ ídag Knattspyrna Deildarbikarkeppni KSI Akranes: ÍA-Leiftur.............14.45 Kaplakriki: FH - Grindavík.......16 Vestm.: ÍBV - Keflavík..........16 Hofsstaðav.: Fylkir - Stjarnan...16 „■.Vígsluleikur á nýjum velli á mót- um Skólabrautar og Bæjarbrautar. Kópavogsv.: Breiðablik - IR......18 Ásvellir: Fram - Valur.......18.30 Klifur íslandsmótið í klifurkeppni verður haldið að Hjallahrauni 9 (hjá björg- unarsveitinni Fiskakletti) í Hafnar- firði og hefst kl. 14 en keppt verður I tveimur flokkum karla og kvenna- flokki. Fimleikar Firmakeppni FSÍ verður í Laugar- dalshöll og hefst kl. 18. H | FELAGSLÍF Uppskeruhátíð FH ÁRLEG uppskeruhátíð yngri flokka handknattleiksdeildar FH verður í dag í Kaplakrika frá klukkan 16 til 18. Mikið verður um að vera á hátíðinni og meðal annars verða veittar viður- kenningar auk þess sem boðið verður upp á veitingar. Afmæliskaffi Fram . Knattspyrnufélagið Fram er 88 ára í dag. í tilefni dagsins bjóða Fram-kon- ur upp á afmæliskaffi í Framheimilinu frá kl. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.