Morgunblaðið - 31.01.1997, Síða 5

Morgunblaðið - 31.01.1997, Síða 5
4 B FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 B 5 DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF fasta á meðan sólin skín Við bænahald snúa múslimar sér í átt að Mekka. Fimm skyldur islam ISLAM er útbreidd um heiminn en áætlað er að múslimar séu samtals um einn milljarður manna. Fylgjendur islam verða að gegna fimm skyldum sem Múhameð, síðasti spámaðurinn, setti fram: ITrúarjátningin: Það er eng- inn guð nema Allah og Mú- hameð var sendiboði hans. Það eitt að hafa þessa setningu yfir á arabísku í votta viðurvist næg- ir til þess að verða múslimi. 2Múslimar skulu fara með bænfimm sinnum á dag með höfuðið í átt til Mekka, heilög- ustu borgar múslima þar sem Múhameð fæddist árið 570 eða þar um bil. 3Fasta skal í mánuðinum ramadan. 4Gefa skal eignarskatt til góð- gerðarmála. Útfærslan er misjöfn eftir löndum en stundum hefur tekjuskattur komið í stað- inn. 5MúsIimar skulu fara í píla- grímaför til helgra staða í Mekka a.m.k. einu sinni á ævinni ef fjárhagur leyfir. Fylgjendur islam um allan heim halda nú föstu sína en í heilan mánuð neita þeir sér um mat og diykk, kynlíf og reykingar frá sólarupprás til sólseturs. Hrönn Marinósdóttir gerði sér mat úr föstunni og ræddi við Jón Orm Halldórsson, lektor í alþjóðastjómmálum, ogþrjámúslima sem búa á íslandi. „í nafrii Allah hins milda og miskunnsama... Ó þér trúaðir yður er fyrir sett að fasta, svo sem þeim var fyrir sett, er á undan yður voru, til þess að þér megið réttlátir verða.“(Úr Kóraninum) FÖSTUMÁNUÐURINN er heilagasti mánuður múslima en þá birtist Gabríel erkiengill Múha- með spámanni í fyrsta sinn, líklega árið 609 og hann tók að boða trúna. Ramadan er níundi tunglmánuður múslima og færist árlega fram um ellefu daga þar sem tunglár þeirra er 354 dagar. Að þessu sinni hófst hann þann 10. janúar og stendur í 29 eða 30 daga, allt þar til sést í næsta tungl. Ég dvaldi einn vetur í Berlín fyrir nokkrum árum. Þar varð ég áþreifanlega vör við upphaf ramadan-mánaðar þegar skarkali barst frá Tyrkjafjölskyld- unni á efri hæð hússins um miðja nótt. Húsfreyjan var greinilega að hnoða deig á trégólfinu og sýsla heilmikið í eld- húsinu. Löngu fyrir dagrenningu voru svo hinir átta í fjöl- skyldunni komnir á ról. Þá var bjöllu dinglað af krafti, maturinn tilbúinn og sest var að snæðingi. JÓN Ormur Halldórsson Þetta endurtók sig svo út föstuna en þar sem múslimum ber að halda sig frá mat og drykk, reykingum og kynlífi á meðan sól er á lofti, stunda þeir gjarnan þessar heims- ins lystisemdir þegar skyggja fer. Margir vakna á ókristilegum tíma til að belgja sig út fyrir daginn, rétt eins og Tyrkjafjölskyldan gerði, sællar minningar. í ramadan-mánuði ber múslim- um jafnframt að halda sig frá sér- hverri illri gjörð eða girnd en fastan á að bera vott um viljastyrk þeirra, þolinmæði og óeigingirni. Éf efni standa til er þeim uppálagt að gefa fátækum ölmusu og i sumum lönd- um er miðað við að þeir gefi tíund af launum sínum. í lok föstunnar er gjarnan efnt til mikilla hátíða- halda sem standa þá yfir í þrjá daga. Fastan er ein af fimm skyldum islamstrúar sem múslimum ber að fylgja. í Kóraninum, heigu riti þeirra, er þó tekið fram að konur sem hafa á klæðum þurfa ekki að fasta, og einnig er séð í gegnum fingur við eldra fólk, sjúklinga, vanfærar konur og börn. 100 múslimar á íslandi Áætlað er að hér á landi búi um 100 múslimar, meðal annars frá Miðausturlöndum og fyrrum Júgó- slavíu. Þeim hefur reynst erfitt að miða föstuna við dagsbirtu þar sem hennar nýtur stutt við á veturna en nánast allan sólarhringinn á sumrin. Flestir hafa því brugðið á það ráð að fasta í samræmi við dagsbirtu í þeim löndum sem þeir eru ættaðir frá, yfirleitt um 12 til 13 tíma á dag. í bígerð er að stofna trúfélag múslima á íslandi og hefur umsókn þess efnis verið lögð til dóms- og kirkjumálaráðuneytis. Fleiri fasta en áður Jón Ormur Halldórsson, stjórn- málafræðingur, hefur skrifað bók um islam og doktorsritgerð um Indónesíu sem er fjölmennasta ríki múslima með um 200 milljónir íbúa. Jón Ormur segir föstuna upphaf- lega hafa verið skyldu múslima við guð, en hafi síðar einnig orðið sam- félagslegs eðlis, eins_ og reyndar allt annað í islam. „Út frá trúnni er markmið föstunnar að aga líkam- ann í þágu hins andlega þar sem litið er á hana sem samfellda bæn. En fastan er einnig félagsleg, allir taka þátt hvort sem þeir eru forrík- ir eða fátækir og því eflir hún sam- kennd hópsins. Tilfinningin hefur einnig orðið sú að þeim sem fasta sé treystandi en hinir vanvirði ekki einungis guð heldur einnig samfé- lagið.“ Múslimar taka föstuna mun al- varlegar en þeir gerðu fyrir nokkr- um árum gagnstætt því sem hefur gerst í kristinni trú þar sem fastan er að mestu aflögð nema í Miðaust- urlöndum, að sögn Jóns Orms. „Mjög trúuðum múslimum þykir jafnvel fínt að vera teknir í andliti og horaðir þegar föstunni lýkur svo augljóst sé hve trúaðir þeir eru. Hjá þeim sem taka trúna síður al- varlega en fasta samt eru veislu- höld á kvöldin algeng. Fastan verð- ur því stundum hálfgerð sýndar- mennska." Að mati Jóns Orms hefur það færst i aukana í seinni tíð að líta niður á þá sem borða á almanna- færi meðan á föstu stendur. „Sam- félag múslima sýnir sífellt minna umburðarlyndi gagnvart öðrum að þessu leytinu til.“ Ástandið er mis- munandi eftir löndum en í Saudi- Arabíu þar sem bókstafstrúarmenn sitja að völdum eiga menn yfir höfði sér fangelsisvist ef þeir sjást með samloku um miðjan dag. Uppstökkir og daufir í dálkinn Ráðlegt er að forðast viðskipti í heimi múslima í ramadan-mánuði, en þá fer atvinnulíf jafnan í hæga- gang og fyrirtæki og opinberar stofnanir eru opin skemur en vana- lega. „Menn eru gjarnan svangir og oft uppstökkir eða daufir af þeim sökum og því er ramadan versti mánuðurinn til að vera á ferð- inni í mikilvægum erindagjörðum." Það sem einkennir islam er eink- um tvennt að mati Jóns Orms; hún er afdráttarlaus eingyðistrú og múslimum eru settar reglur um hvernig þeir skuli haga sér í þessu lífi ekki síður en í því næsta. Regl- umar varða mannleg samskipti sem miða að því að draga úr árekstrum fólks og freistingum almennt. FJÖLSKYLDA FRÁ KÚRDISTAN Vakna fyrir dög- un til að borða í BREIÐHOLTINU búa þrír ungir flóttamenn frá suður- hluta Kúrdistan sem heyrir undir Irak. Þremenningarnir kjósa nafnleynd af ótta við hefndaraðgerðir íraskra stjórn- valda gagnvart ættingjum og vinum í Kúrdístan. Ari, eins og hann kallar sig, hefur dvalið á íslandi í tæplega fimm ár en eiginkona hans og yngri bróðir fluttu til landsins í fyrra. „Við söknum Kúrdistan en þar sem stjórnvöld vinna skipulega að útrýmingu kúrdísku þjóðar- innar er okkur fyrirmunað að búa þar. Mér var skipað að ganga í herinn sem íraskur þegn en ákváð þess í stað að stijúka. Irak er ekki mitt land. Lögum samkvæmt er hver sá sem reynir að að flýja undan herskyldu dæmdur til dauða ef til hans næst.“ Honum tókst að stijúka til Tyrklands og þangað sendu íslensk sljórnvöld honum ferðaskilríki. „Kona mín og bróð- ir fóru eins að en Kúrdar hafa vanalega ekki ferðaleyfi og engin vegabréf.“ „Á ramadan vöknum við vanalega um fjögurleytið að nóttu til að undirbúa málsverð. Húsmóðirin bakar þá gjam- an brauð og útbýr fleira góðgæti svo sem kjöt- eða fisk- rétti. Fyrir klukkan sex snæðum við en leggjum okkur jafnan aftur til klukkan átta. Á kvöldin bijótum við föstuna kl. 17.22 enþáer sólsetur í Kúrd- istan. Aðspurður hvort ekki reyn- ist erfitt að vera án drykkjar all- an daginn, segir Ari það ekkert vandamál þegar kalt er í veðri. „Þegar föstuna ber upp að sumri til í Kúrdistan, fer hitinn stund- um upp í 50 gráður og þá sækir þorstinn að.“ Ari og fjöl- skylda hans lesa Kóraninn hvern morgun og biðja fimm sinnum á dag, kijúpandi á gólfinu með höfuðið í átt að Mekka. I lok ramadan er jafnan mikið um að vera í Kúrdistan. „Örtröð er í öllum búðum, lítil börn fá gjafir og snæddur er veislumatur." Eiginkona Ara er efnafræðingur en bræðurnir tveir eru menntaðir rafmagnsverkfræðingar. Ari talar góða ís- lensku en hin tvö hafa undanfarið sótt námskeið í íslensku fyrir útlendinga. íslenskan er að þeirra mati ákaflega erfið viðureignar enda gjörólik kúrdísku. Enn sem komið er hefur þeim gengið erfiðlega að fá atvinnu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. „Ég hef næstum sótt um hveija þá vinnu sem auglýst hefur verið." Um tíma vann Ari ýmis verkamannastörf og í fyrra starfaði hann fjóra mánuði á Veðurstofu íslands. „Þannigtókst mér að safna fyrir flugfargjaldi handa eiginkonu minni.“ Ari hefur ótakmarkað dvalar- og atvinnuleyfi á íslandi og ætlar að sækja um íslenskan ríkisborgararétt. Eigin- kona hans og bróðir hafa hins vegar dvalarleyfi til ársloka. Þeim líður vel á íslandi og hafa eignast marga góða ís- lenska vini. Af ótta við ofsóknir íraka hafa þau verið nánast sambandslaus við ættingja og vini í sínu heima- landi og það finnst þeim verst af öllu. Morg-unblaðið/Halldór ULLARTEPPIÐ notar Ari til að kijúpa á við bænagjörðir. SIGURLAUG ÁSGEIRSDÓTTIR Holl hreinsun fyrir líkamann UNDANFARIN fimmtán ár hefur Sigurlaug Ásgeirdóttir fastað í ramadan-mánuði. Hún tók islams- trú þegar hún giftist Palestínuara- banum Ali Allan Jamil Shwaiki, en hann lést fyrir átta árum. Ali flutti til íslands fyrir tilvilj- un, að sögn Sigurlaugar. „Árið 1966 starfaði hann á hóteli í Jerú- salem og kynntist þar íslensku KFUM-fólki sem hvatti hann til að heimsækja ísland. Sú íslands- ferð varð hins vegar lengri en ráð var fyrir gert.“ Hjónin ráku um tíma hænsabú og seinna bílapartasölu við Rauða- vatn, en sonur Sigurlaugar hefur nú tekið við rekstrinum. Báðar dætur Sigurlaugar og tengdason- urinn, sem er frá Hebron, fasta á ramadan. „Abraham reykir og því reynist fastan honum mun erfiðari en okkur mæðgunum. Við borðum næringarmikla máltíð á kvöldin, oft rétt fyrir háttinn en sleppum því hins vegar að vakna fyrir allar aldir til að snæða eins og flestra er háttur. Margir halda sjálfsagt að ég sé stórskrítin að fasta á þennan máta en fastan er holl hreinsun fyrir lík- amann og fær mig til að hugsa til þeirra sem að minna mega sín. Oft hef ég reynt að fara í megrun en án árangurs. Á föstunni finnst mér hins vegar lítið mál að borða hvorki vott né þurrt.“ Mun meira er um freistingar hérlendis en í Palestínu, að sögn Sigurlaugar. „Þar eru allir samtaka um að matast ekkert allan daginn en á kvöldin ríkir mikil gleði, fjölskyldan kemur saman og mikill söngur er í útvarpinu.“ Lifandi trúarbrögð Sigurlaug segir islam vera lif- andi trúarbrögð. „Það er margt gott í trúnni, hún byggir á sama meiði og kristnin, en Jesús Kristur var til að mynda einn af spámönn- um Allah. Mikið er um bænahald hjá múslimum, sem er frábrugðið kristninni. Eins og gyðingar borða múslimar ekki svínakjöt og harð- bannað er að neyta áfengis." Vanalega klæðist Sigurlaug ekki skikkjum og blæjum eins og fjöldi islamskra kvenna. „í Palestínu sveipa ég mig slíkum fatnaði en þar er best að falla inn í hópinn og klæða sig á sama hátt og þorri kynsystra minna.“ Sigurlaug segir nauðsynlegt að koma á samfélagi íslenskra músl- ima. Eg fann það sterkt þegar Ali lést hve nauðsynlegt það er að eiga slíkan bakhjarl.“ SALMAN TAMINI Gott að léttast „Yður leyfist að liggja með konum yðar um nætur á föstunni. Þær eru yður til yndis, eins og þér eruð þeim. Etið og drekkið þar til þér getið greint hvítan þráð frá svörtum undir dögun. Takið síðan upp föstu að nýju unz nóttin fellur á, og nálgizt þær ekki, en dveljið við bænir yðar í bænahúsum." (Úr Kóraninum) Morgunblaðið/RAX SIGURLAUG Ásgeirsdóttir ásamt barnabörnunum, Ómari og Evu Núru Abrahamsbörnum. í leiðinni „ÉG fasta fyrir sjálfan mig og guð,“ segir Salman Tam- ini, íslenskur ríkisborgari sem ættaður er frá Jerúnsalem. Salman hefur búið hér á landi í rúman aldarfjórðung, hann er kvæntur íslenskri konu og er fimm barna faðir. „Meginntak föstunnar er sjálfsskoðun," segir Salman. „Þá er okkur ætlað að íhuga hvort við höfum villst af leið en jafnframt ber okkur að hugsa hlýtt til náungans og gefa fátækum ölmusu. Þá lesum við mikið Kóraninn og fjölgum bænastundum." Þar sem Salman miðar föstutíma sinn við heimahag- ana, sleppir hann morgunmat og hádegismat en borðar hefðbundinn kvöldmat. „Á föstunni líður mér jafnan vel en stundum er ég þreyttur eftir langan vinnudag. í Palest- ínu hætta múslimar yfirleitt að vinna um hádegisbil. Ég fasta ekki af megrunarásæðum en viðurkenni að ekki væri verra að missa fáein kíló, svona í leiðinni." Á föstunni hugar Salman sérstaklega að heill fjölskyldu sinnar og leggur sig fram um að gleðja hana. „Svo veltur það á eftirvinnunni hve mikla ölmusu ég veiti fátækum." Fjölskylda Salmans fastar ekki honum til samlætis. „Þau bera virðingu fyrir minni trú en eru ekki alin upp við föstuna. Þegar börnin fara með mér til Jerúsalem fasta þau hins vegar og hafa gaman af.“ Líf og fjör er á ramadan i Jerúsalem. „Eft- ir sólsetur er mikið um mannamót. Moskur eru full- ar af fólki og sumir liggja þar á bæn allar næt- ur. í heilan mán- uð er Aid- hátíð- in undirbúin. Hún stendur í þrjá daga og má líkja við jólin hjá kristnum mönnum." Fyrirætlan Salmans var á sínum tíma að flytja til Banda- ríkjanna. „Ég átti ekki fyrir fargjaldi alla leið, svo ég ákvað að dvelja hér um hríð. Mér leist vel á landið og íbúana, hóf fljótlega nám í tölvunarfræði við Háskóla ís- lands og síðan hef ég verið búsettur hér, alveg alsæll." Salman er afar óánægður með túlkun fjölmiðla á islam. „Vesturlandabúar fá kolranga mynd af trúarbrögðunum því í fréttum er einungis sagt frá öfgasinnaðum músl- imum. Islam hins vegar, eins og önnur trúarbrögð, boðar frið, sátt og samlyndi með mönnum. Borgarastyrjöldin í Alsír er gott dæmi um slæman fréttaflutning. Komið hef- ur fram í fjölmiðlum að samkvæmt Kóraninum sé heittrú- uðum múslimum vís dvöl í Paradís ef þeir drepa villitrúar- menn á föstunni. En ofbeldi er aldrei leyfilegt í islam, síst af öllu í ramadan-mánuði og því eru svona fréttir alveg út í bláinn.“ Fyrir tilstilli Salmans verður að öllum líkindum stofn- að trúfélag múslima á íslandi innan skamms. „Svars er að vænta frá stjórnvöldum á næstu dögum. Ég tel nauð- synlegt að trúfélagi verði komið á fót til að styrkja samband múslima og auðvelda þeim að iðka trú sína. Hver veit nema upp rísi moska á íslandi, einn góðan veðurdag." Morgunblaðið/Golli SALMAN Tamini gluggar í Kóraninn, heilagt rit múslima. ■J" AÐ næra tómið í sálinni" er yfirskrift BA-ritgerðar Önnu JjJ Guðrúnar Hugadóttur, hús- móður á fimmtugasta aldurs- 2 ári, fjögurra barna móður og ömmu í Garðabæ, sem á morg- un útskrifast með BA-gráðu í *S^ uppeldis- og menntunarfræði frá Hí. Aðspurð segir hún að viðfangsefnið sé sótt langt út fyrir eigin reynsluheim. ■I Þema ritgerðarinnar; ungl- ingar og fíkniefni, var henni líka allsendis framandi nema af umfjöllun í fjölmiðlum „. . .enda hef ég lifað í mjög vernduðu um- hverfi alla tíð og efalítið notið meiri forréttinda en margir aðrir. Þótt ég hvetji konur eindregið til að hefja nám þegar mesta. barnastússið er að baki geri ég mér grein fyrir að margar eiga óhægt um vik. Ég er svo heppin að búa við fjárhagslegt öryggi, eiga góðan eiginmann og börn sem hvöttu mig og hjálpuðu mér á alla lund,“ segir Anna Guð- rún, sem settist á skólabekk í Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ fyrir níu á „gamals aldri“ árum og lauk stúdentsprófi nokkr- um mánuðum á eftir syni sínum. Að l»ra meira og melra Og Önnu Guðrúnu langaði að læra meira og meira. Löngu áður en hvíta húfan var sett upp árið 1992 var hún ákveðin í að hefja nám í námsráðgjöf. „Ég kynntist náms- ráðgjöfum í FG, heillaðist af starfi þeirra og þar sem ég var bæði eldri og reyndari en skólasystkini mín fannst mér ég oft skynja hvernig þau gætu skipulagt námið og nýtt tímann betur.“ Þótt Önnu Guðrúnu fyndist lang- skólanám ekki henta sér á sínum tíma tregar hún ekki að hafa hætt í Menntaskólanum á Akureyri og Morgunblaðið/Kristinn í FAÐMI FJÖLSKYLDUNNAR. F.v.Vera, Guðmundur, Anna Guð- rún. Fyrir aftan þau eru Hugi og Alma. Á myndina vantar Daða, sem er við nám í Bandaríkjunum. LOKAHÖND lögð á BA-ritgerðina sem fjallar um unga fíkniefnaneytendur og líf þeirra eftir meðferð. farið í húsmæðraskóla. „Trúlega væri ég samt ekki sátt ef dætur mínar tækju slíka ákvörðun. Ég var fremur gamaldags miðað við tíðar- andann, en í þá daga voru margar ungar konur uppteknar af boðskap Rauðsokkuhreyfingarinnar og kven- réttindabaráttunni. Ég undi bara glöð við mitt, giftist átján ára, og fannst tilhlýðilegast að kunna sitt- t hvað fyrir mér í heimilishaldi, enda ætlaði ég að helga mig búi og börn- um um ókomin ár,“ segir Anna Guðrún og bætir við að eigin- manni sínum, Guðmundi Hall- grímssyni lyíjafræðingi, hafi verið þvert um geð að tilvonandi eigin- kona sín hætti námi. Fyrstu búskaparárin bjuggu ungu hjónin í Danmörku, síðan á Akur- eyri og loks í Garðabæ þar sem þau búa enn. Anna Guðrún var þó ekki „bara húsmóðir“ því hún vann í fyr- irtæki þeirra hjóna eftir því sem timi gafst til. Hún segir fyrirkomulagið hafa hentaði sér ágætlega, en þó hafi hún af og til hugleitt að fara aftur í skóla og ljúka að minnsta kosti stúdentsprófi. „Loks lét ég til skarar skríða og innritaði mig í FG. Sonur minn, Daði, sem er næstelst- ur systkinanna, var í byijun lítt hrifin af tiltækinu og þótti ekki mjög skemmleg tilhugsun að vera ef til vill í bekk með mömmu sinni. Ég vildi síður styggja strákinn og varð því ósköp fegin þegar hann sætti sig við ákvörðunina og sagði mér að það væru nokkrar svona gamlar í skólanum. Sjálfri varð mér um og ó þegar ég mætti við skóla- setninguna. Mér fannst ég vera hræðilega roskin og litlu munaði að ég hætti við allt saman.“ Önnur vinnubrögft Sem betur fer segist Anna Guð- rún hafa stappað í sig stálinu og hafið nám á sálfræðibraut. Sonurinn var á tölvubraut og því voru mæðg- inin aldrei saman í tímum. Þau tóku þó einu sinni sama stærðfræðiprófið og segist Anna Guðrún hafa haft mun þyngri áhyggjur af frammi- stöðu Daða en sinni eigin. Að hætti verðandi stúdenta tók Anna Guðrún þátt í dimmisjón, með tilheyrandi húllum hæi, uppáklædd eins og bóndakona úr afdölum. „Þetta var óskaplega skemmtilegt. Við keyrðum um bæinn í traktor, ‘ héldum kaffiboð fyrir kennarana og fórum út að borða um kvöldið. Ég dró mig þó í hlé þegar krakkarnir fóru að sprella í miðborginni um miðjan daginn, hafði einhvern veg- inn á tilfinningunni að þar yrði ég svolítið utangátta.“ Víftari sýn á Iffið og tllveruna Eftir stúdentspróf tók Anna Guð- rún sér smáfrí frá námi til að gæta dótturdætra sinna, tvíburanna Evu og Tinnu, því hún gat ekki hugsað sér að móðir þeirra þyrfti að hætta námi eins og hún hafði gert forðum. Eftir barnapössun í hálft ár ákvað hún að skella sér BA nám í uppeld- is- og menntunarfræði. Anna Guðrún segir að námsárin, hin síðari, hafi opnað sér víðari sýn á lífið og tilveruna. Þegar kom að vali á lokaverkefninu segist hún hafa ígrundað margt en að lokum ákveðið að rannsaka hvers vegna sumir ungl- ingar leiðast út í fíkniefnaneyslu og hvemig þeim sem farið hefðu í með- ferð vegnaði að henni lokinni. „Þar sem ég hugði á nám í náms- ráðgjöf fannst mér nauðsynlegt að kynna mér vandann til þess að vera betur í stakk búin að liðsinna þeim nemendum sem víkja af beinu braut- inni. Oft eru þetta nemendur sem hafa staðið sig mjög vel en verða skyndilega áhugalausir um námið. Ég tel að vel upplýstir kennarar og námsráðgjafar geti átt stóran þátt í að næra tómið í sál þessara ógæfu- sömu ungmenna," segir Anna Guð- rún, sem stefnir ótrauð á að ljúka námi í námsráðgjöf að tveimur árum liðnum. ■ vþj

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.